NT - 06.07.1985, Page 12

NT - 06.07.1985, Page 12
Innanhúss 6. júlí 1985 12 ■ Krístinn Eggertsson hefur aö baki áralanga reynslu af því aö kaupa og selja persnesk teppi. í bakgrunni sjást teppi frá PakÍStan. Mynd-Svernr Nauðsynlegt að velja teppin sérstaklega ■ „Faðir minn byrjaði að versla með persnesk teppi fyrir um 25 árum, þannig að þetta er nokkuð sem ég hef kynnst vel á löngum tíma,“ sagði Kristinn Eggertsson í Málningarvör- um, Ingólfsstræti 5. „Sjálfur hóf ég innflutning á teppum af þessu tagi fyrir átta árum og nú fer ég árlega utan til innkaupa." Pað er íransk- ur farandsali á vegum fyrirtækisins IRAN ART sem selur Kristni teppin, og það má geta þess að danska fyrirtækið ILLUM, sem margir ís- lendingar þekkja, verslar við þennan sama aðila. Að sögn Kristins er nauðsynlegt að velja teppin sérstak- lega með því að skoða þau vandlega og þreifa á þeim, ótal gallar geta leynst í þeim og það þarf oft reynslu og þekkingu til að koma auga á þá strax. Par sem fyrrnefndur farandsali kemur til Evrópu síðla hausts, þá er úrval teppa í Málningarvörum mest um jólaleytið. „Eftirspurnin hefur aukist töluvert á síðustu tveimur árum,“ sagði Kristinn, „og þá einkum eftir pakist- önskum teppum, sem eru oftast ódýr- Málningarvörur - Ingólfsstræti 5: Sérinnflutt persnesk teppi ari en önnur sambærileg.“ Þess má geta að persnesk kallast öll þau teppi sem hnýtt eru samkvæmt ákveðnum reglum og aðferðum á því svæði er tilheyrði ríki Persa, hér forðum daga. Þannig geta persnesk teppi t.d. átt uppruna sinn að rekja til fran, Pakist- an, Afghanistan og Tyrklands, svo eitthvað sé nefnt. Það sem helst aðgreinir hinar ýmsu tegundir er hnútafjöldinn þ.e. hversu þétt teppin eru hnýtt, hvernig þau eru lituð, og mynstrin. Hnútaf jóldinn ræður oftast mestu um verðið Hnútafjöldinn ræður oftast mestu um verðið. Sem dæmi um hvað pers- nesk teppi kosta, má nefna að hand- hnýtt teppi með írönsku mynstri, sem er 120x180 cm að stærð, kostar kr. 58.000. Pakistönsk teppi af sömu stærð kosta frá kr. 16.000 og upp í kr. 35.000, og þá er miðað við að hnúta- fjöldi á fermetra sé á bilinu 400.000- 800.000. Kristinn gat þess að greiðslur fyrir teppin eru háðar samkomulagi hverju sinni. Að sögn hans er verðið einnig mikið háð því hvaða gjaldeyri seljandinn miðar við. í Evrópu er það v-þýska markið sem ræður verðinu, en áður var það dollarinn. Á þeim tveimur árum sem liðin eru frá því að þessi breyting átti sér stað, hefur verðlag á persneskum teppum verið mjög stöðugt, og reyndar má fullyrða að það hafi staðið í stað. Petta á einnig við um þau teppi sem seld eru hér á landi a.m.k. í Málningarvörum, þau kosta nokkurn veginn það sama og á meginlandinu. Endastnánast um aldur og ævi „Viðkvæmustu fletirnir í persnesk- um teppum eru kantarnir og kögrin, þar er oft að finna galla ef teppin eru handfjötluð," sagði Kristinn. „Svo þarf að horfa vel í mynstrin." Ef teppi eru vel valin, og ef þau sæta réttri meðferð eigenda, þá endast þau nán- ast um aldur og ævi án þess að glata gildi sínu, bæði hvað varðar fegurð og Verslunin Sonja tlytur inn sólskyggni ■ 1 síðasta tölublaði af „Innanhúss og utan“ var heil opna tileinkuð sólskyggnum, og þar var vísað til íslensks framleiðanda. í framhaldi af því má geta þess að verslunin Sonja hefur nú í nokkur ár flutt inn sænsk sólskyggni frá fyrirtækinu AHLQV- IST MARKISEN. Að sögn Margrét- ar Jónsdóttur eru þessi sólskyggni hönnuð úr álgrindum og segldúk sem er styrktur með dralonefni. Nú er komin fjögurra ára reynsla á þessa vöru hérlendis, og sagði Margrét að íslensk veðrátta hefði ekki bitið á þessum skyggnum svo nokkru næmi. Hún bætti því við að allar þær eining- ar sem hún hefði flutt inn hefðu verið sérpantaðar eftir máli, og þá væri tekið tillit til óska viðskiptavinarins í hvert skipti þ.e. hvað varðar áletrun og þess háttar. Þeir sem kunna að hafa áhuga á því að kynna sér sól- skyggnin betur geta haft samband við verslunina'Sonju, s. 21444. ■ Verslunin Sonja hefur um árabil flutt inn sænsk sólskyggni fyrir fjölda fyrírtækja í Reykjavík. Mynd-An. ■ Nokkur stærrí teppi. Á veggnum hangir teppi með írönsku mynstrí, 120x180 cm að stærð, en það kostar kr. 58.000. Mynd - Sverrir verðmæti. Kristinn gat þess að fyrir nokkru seldi hann í umboðssölu 100 ára gamalt teppi á kr. 60.000. Hann lagði áherslu á að skór með hrágúmmí- sólum eru helsti slitvaldur persneskra teppa, og enn frekar ef þau liggja þar sem fólk snýr sér þ.e. langvarandi núningur á afmörkuðum bletti slítur þessum teppum eins og öðrum. Reyndar má geta þess að það er jafn algengt að eigendur persneskra teppa hengi þau á veggi, eins og að leggja þau á gólf. Breyttir lifnaðariiættir eða styrjaldir geta haft áhrif á þessa gðmlu listgrein Kristinn sagðist að lokum ekki hafa mikla trú á því að persnesk teppi yrðu almenningseign hér á landi, innflutn- ingurinn yrði aldrei verulegur. Hvað varðar framtíð þessara teppa almennt, þá telur Kristinn að fram- boðið á ákveðnum tegundum eigi eftir að minnka all skyndilega. Nú hefur markaðurinn verið mettaður með gömlum birgðum um nokkurt skeið, en brátt kemur að því að einstakar tegundir falla út af ýmsum ástæðum t.d. Afghan-teppin. Þessi heimshluti, sem áður var ríki Persa, gengur nú í gegnum nokkurt átaka- skeið, eins og flestum mun kunnugt, og breyttir lifnaðarhættir eða styrjald- ir geta haft áhrif á þessa gömlu listgrein sem teppahnýtingar eru.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.