NT - 24.07.1985, Qupperneq 1
BMR
Gönguleiðir í Eyjafirði og nágrenni • Ferðamöguleikar með áætlunarbif-
reiðum • Gengið á Heimaklett og siglt í Kafhelli • Vestfirðir heimsóttir •
Gönguleiðir um Reykjavík og nágrenni • Þegar viðarlauf breytist í gull -
gönguleiðir frá Laugarvatni • Gengið út frá Héraði • í helgarbíltúr á
Snæfellsnesi • Farið vítt um Vesturland • Þjóðgarðurinn í Skaftafelli
Miðvikudagur
24. júlí 1985.
Umsjón:
Gunnar Birgisson
Forðist stðku staðísumarfríinu
— því þar er alltaf rigning
■ Ferðablað NT fyrir sumarið 1985 lítur nú dagsins
ljós. Blaðið er fyrst og fremst miðað við göngur, sem
byggjast þó oft á því að farartæki sé með í ferðinni,
því oft er um gönguleiðir að ræða sem enda ekki
endilega á sama stað og þær hefjast. Er þá hentugt að
einn úr ferðahópnum keyri á áfangastaðinn og bíði
þar, einnig er hægt að nýta sér þjónustu áætlanabif -
reiðaog ferðast milli gönguleiða með þeim.
NT fékk sérfróða menn til að segja frá möguleikum
ýmissa svæða á landinu. Nauðsyn var að takmarka
það sem fjallað yrði um, en önnur landssvæði verða
væntanlega tekin fyrir seinna meir. Fyrir valinu urðu
því fulltrúar allra landshluta og gefst ferðafólki kostur
á að kynnast gönguleiðum sem það hefur e.t.v. ekki
vitað um áður. En við athugum hér gönguleiðir í
Vestmannaeyjum, á svæðinu við Laugarvatn, í þjóð-
garðinum í Skaftafelli, í Héraði og nágrenni þess, í
Eyjafirði, á Vestfjörðum, einkum suðurhluta þeirra,
á Snæfellsnesi, á Vesturlandi og síðast en ekki síst, í
Reykjavík og nágrenni hennar.
Bent er á ýmsa möguleika sem gefast á fyrrgreind-
um svæðum. En að sjálfsögðu skiptir endanlega máli
áhugi, fyrirætlanir, tími og einkum hugmyndaflug
hvers og eins. Pótt lítið sé um merktar gönguleiðir hér
á landi, þarf það ekki að torvelda neinum á neinn hátt.
Alls staðar er hægt að ganga og alls staðar er gengið.