NT - 24.07.1985, Qupperneq 3
Miðvikudagur 24. júlí 1985
■ Fallegasta höfn í heimi, segir Jón Árnason um höfnina á Stapa, en höfnin
er eins og höggvin út úr klettunum.
á bjargið, og á einum stað er lítill rani
framúr þannig að maður getur eigin-
lega staðið á rananum og haft bjargið
beint fyrir framan sig. Þarna sátu þeir
á brúninni og kváðust á Kolbeinn
jöklaraskáld og Kölski og sá fyrr-
nefndi hafði betur.
Lóndrangarnir eru að mínu viti
fallegastir að sjá tilsýndar en ef farið
er alveg að þeim má skoða gamlar
verbúðartóftir. Álfatrú er líka bundin
við Lóndranga. Stóri drangur á að
vera kirkja álfanna og Litli drangur er
bókhlaðan þeirra.
Á Malarrifi er hægt að fara upp í
vitann en þar er ekkert sérstakt að
sjá. Það er miklu nær að fara áfram
vestureftir þjóðveginum. Þar verður
fyrir vegur niður á Djúpalónssand,
vegur sem konur á Snæfellsnesi,
gengust fyrir að ruddur.yrði gegnum
hraunið til þess að auðveldara yrði að
komast niðureftir ef á þyrfti að halda
t.d. ef skip færust .fyrir utan.
Þegar genginn er stígurinn niður á
Djúpalónssand er komið að aflrauna-
steinunum fjórum, sem þar hafa verið
frá gamalli tíð, Amlóða, Hálfdrætt-
ing, Hálfsterk og Fullsterk. Þessir
steinar eru ekkert sérstaklega þungir
en þeir 'eru slípaðir af og það þarf
útsjónarsemi og vit líka til að koma
þeim á stall. Vermenn í Dritvík
mældu þarna krafta sína og útsjónar-
semi en þetta tvennt þarf nú gjarnan
að fylgjast að til sjós.
Frá Djúpalóni er svo um 20 mín-
útna gangur í Dritvík. Maður er ekki
kominn í Dritvík þó komið sé að
steinunum, eins og margir halda.
Dritvíkingar (Drissarar) sóttu allt sitt
vatn í Djúpalón sem er eini staðurinn
sem ferskt vatn finnst á þessu svæði.
Ferská vatnið flýtur þar ofan á en
undir er sjór sem sígur gegnum malar-
kambinn. Þetta gefur lónunum hinn
sérstæða lit.
Dritvík var aðalútgerðarstöðin á
þessu svæði hér áður en nú sést lítið
Sjá bls. 4.
ÞJÓNUSTA ( FYRIRRÚMI
í hverri viku
Okkar stefna er að halda uppi fastri
áætlun og auka með því öryggi
í vöruflutningum.
í Reykjavík: Á Siglufirði:
Mánudögum Þriðjudögum
Fimmtudögum Föstudögum
SIGLUFJARÐARLEIÐ
VORUFLUTNINGAR - NAFNNUMER 7557 4371
Afgreiðsla t Reykjavik Voruflutningamidstoðin, simi 91 10440
Afgreiðsla a Siglufirði Simi 96-71510
Sigurður G Hilmarsson, simi 91 -74643
VELKOMIN Á SELFOSS
Stórmarkaður KÁ, í hjarta bæjarins býður upp á glæsilegt úrval allskonar vöru.
— Ferska matvöru/nýlenduvöru
— Ferðavöru
— Bækur og timarit
— og fleira, og fleira
Veitingabúðin Ársel er opin daglega frá kl. 9.00 til kl. 23.00.
Arseh