NT - 24.07.1985, Blaðsíða 4
Víkurbarði.
■ Þessi mynd er tekin í gegnum þann fræga Gatklett við Stapa, þann sem
ritdeilur urðu um í blöðunum Isafold og Þjóðólfi um aldamótin.
Miðvikudagur 24. júlí 1985
■ Lóndrangar á Snæfellsnesi. Þjóðtrúin segir að stærri drangurinn sé
Álfakirkja en sá minni bókhlaða álfanna.
frá þessum tíma utan fiskgarðar og
reitir.
Á þessunt slóðum eru ýmis örnefni
sem minna á Bárð Snæfeilsás og
Bárðarsögu, nt.a., nafnið Uritvík.
Sagan segir að Bárður hafi komið frá
Noregi og kom að landinu við þetta
svæði. Þegar þeir komu á lygnan sjó
settust þeir á borðstokka til álfreka,
eins og þaö heitir í sögunni, og róa
síðan inná víkina og þá sjá þeir að
þann vallargang hafði rekið á fjörur,
þess vegna gáfu þeir víkinni nafnið
Dritvík.
Þarna eru fleiri örnefni sem minna
á Bárðarsögu eins og Uárðarskip og
Bárðartrúss í miðri víkinni, Maríu-
sandur heitir sandurinn en þau þóttu
ámóta góð til áheita, Báður og María
mey. Glímustofa heitir klettabás þar
sem vermenn glíntdu og völundarhús
gamalt er til uppi á vesturbarðanum,
þ.e. á lciöinni milli Djúpalóns og
Dritvíkur en það er vont að finna því
það er svo vallgróið. Tröllakirkja er
þarna fyrir utan, sent er sérstaklega
skemmtilegt að koma í ef maður
hittir á að vera þarna á fjöru.
Að lokinni dvöl í Dritvík er ekið
áfram og Hólahólar eru næsti við-
komustaður, gígaþyrping, og
þar er hægt að ganga beint inn í
stærsta gíginn; þetta er stærsta hring-
leikahús í norðanverðri Evrópu og
byggt af sjálfum himnasmiðnum.
Þessi gígur heitir Berudalur eða Beru-
laut.
Þegar hér er komið er farið að
saxast verulega á daginn og því er
best að halda áfram og fara sem leið
liggur að Gufuskálum þar sem stóra
mastrið gnæfir yfir. Þar uppi í hraun-
inu á móti eru einhverjar elstu bygg-
ingar á landinu, gömul fiskbyrgi.
Nú verður það að ráðast hvað
næsta verk verður. Það er hægt að
borða eða gista í Ólafsvík, eða að aka
áfram yfir Fróðárheiði og borða á
Búðum, þar sem maturinn er sérstak-
lega skemmtilega framreiddur og
kryddaður. Og síðan er hægt að nota
sunnudaginn til að dóla sér heim
aftur.“
■ Frá Hellnum á Snæfellsnesi
■ Frá Dritvík á Snæfellsnesi. Tröllakirkja er fyrir miðri mynd en til vinstri er