NT - 24.07.1985, Page 16
Laugarvatn hefur alltaf verið einn
fjölsóttasti ferðamannastaður á
Suðurlandi, enda er þar ágætis að-
staða til útiveru og letilífs.
Þarna í nágrenninu leynast einnig
ýmsir fallegir staðir sem öllu færri
hafa séð eða vitað um, en auðvelt er
að komast að og njóta ef menn vilja
liðka sig aðeins og bregða undir sig
betri fætinum. Og ef bíllinn er tekinn
í þjónustuna er hægt að skoða staði
innar í Laugardalnum, ekki síður
skemmtilega, á tiltölulega skömmum
tíma.
Sá sem þekkir Laugardalinn og
nágrenni einna best, er Olafur Briem
magister, sem starfaði sem kennari á
Laugarvatni í 40 ár. Ólafur hefur
alltaf gengið mikið og hann hefur
þraut-kannað flestar þær gönguleiðir
sem Laugardalurinn og nágrenni hef-
ur upp á að bjóða.
NT bað Ólaf Briem að segja frá
nokkrum gönguleiðum í nágrenni
Laugarvatns og fer frásögn hans hér
á eftir:
„Þegar ég kom að Laugarvatni
voru algengastar tvær gönguleiðir.
Önnur var upp í Stóragil að Trúlofun-
arhríslu og helli sem þar er rétt fyrir
ofan, og hin var upp að Gullkistu sem
er á Miðdalsfjalli, en þaðan er mjög
gott útsýni.
En eftir að ég fór að vera á
Laugarvatni gerði ég mér það til
dundurs að fara gönguferðir einn og
það voru aðallega tvær gönguleiðir í
næsta nágrenni sem ég rakst á án þess
að mér væri bent á þær. Önnur er rétt
við Laugarvatn upp með Litluá. Það
er best að ganga upp eftir Þingvalla-
veginum í tæpan hálftíma og fara
þaðan upp með ánni. Þar eru mjög
fallegir fossar þrír saman, tveir í ánni
og cinn sem er niður klettinn að
vestanverðu í uppsprettu sem rennur
þar. Þetta er ekki nema um klukku-
tíma ganga fram og til baka.
Önnur leið sem ég fann sjálfur er
upp með Skillandsá sem rennur
skammt fyrir vestan Miðdal. Þar er
mjög fallegt gljúfur með skemmtileg-
uni bergmyndunum-og neðarlega í
því er hvammur með fallegum fossi á
móti sem fellur í ána. Það sést aðeins
ofan á hann frá Laugarvatni. Það er
þægilegra, ef menn hafa bíl, að aka
Miðvikudagur 24. júlí 1985 16
■ Laugarvatn getur í góðu veðri minnt á erlenda baðströnd, eins og sést á þessari mynd. Laugarvatnsfjall er í baksýn.
Hótel
Bjarkarlundur
Reykhólasveit — Sími 93-4762
Erum á krossgötum um Vestfirði
Gisting — veitíngar — tjaldstæði — veiðileyfi — bátaleiga
Bjóðum alla ferðamenn hjartanlega velkomna
Starfsfólk hótelsins
hálendisferð
Brottför alla miðvikudaga í sumar frá og með 10. júl(
1. DAGUR: Ekið Sprengisand og gist I Nýjadal. 2. DAGUR: Ekið
áfram norður, Bárðardal, Goðafoss til Mývatns og gist þar. 3.
DAGUR: Mývatns- og Kröflusvæði skoðuð, ekið síödegistil Ak-
ureyrar og gist þar. 4. DAGUR: Ekið til Hveravalla og gist þar.
5. DAGUR: Frá Hveravöllum til Kerlingarfjalla, Gullfoss, Geysis,
Laugavatns, Þingvalla og til Reykiavíkur.
INNIFALIÐ: Fullt fæði, leiðsögn og gisting í tjaldi. Einnig er
hægt að gista í skálum og á hótelum.
VERÐ AÐEINS 6.900.-
Allar nánari upplýsingar í síma 687912 og hjá ferðaskrifstofu s
BSÍ, Umferðarmiðstöðinni, sími 22300. I
Snæland Grímsson hf. |
Feröaskritstofa. Sími 687912.
Kvöld- og helgarsími: 75300 og 83351