NT - 25.07.1985, Blaðsíða 6
Fimmtudagur 25. júlí 1985 14
■ Frá tónlistardeild ríkisútvarpsins,
fIII!! 1!!
M !!!!!>»
Mikill tónlistarfjársjóður
geymdur hjá ríkisútvarpinu
- rætt við Sigurð Einarsson, dagskrárgerðarmann í tónlistardeild útvarpsins
■ Við höldum áfram að
kynna starfsemi sjúnvarps og
útvarps og tökum nú fyrir starf
tónlistardeildar útvarpsins.
Við hana vinna nú 14 einstakl-
ingar með skrifstofufólki og
spjaldskrárfólki.
„Plássleysi háir okkur tölu-
vert hér á deildinni og það er
fremur þröngt um okkur,“
sagði Sigurður Einarsson, dag-
skrárgerðarmaður á tónlistar-
deildinni. „Hér er einn stór
salur þar sem plötuskáparnir
standa og öll spjaldskráin, en
hún er á hjólum og mjög
fyrirferðarmikil. Svoeru minni
herbergi inn af, t.d. eitt þar
sem lausráðnir dagskrárgerð-
armenn hafa aðstöðu, en þar
er ritvél og plötuspilari.
Við vinnum yfirleitt frá 8.00-
16.00. Einn starfsniaður situr
þó hér frá 16.00-18.00 til að
sinna fólki frá Rás 2, en þar er
frekar lítið plötusafn og yfir-
leitt aðeins nýjar plötur.
Við erum þrjú sem höfum
aðallega með klassíska tónlist
að gera og svo eru tvö í léttri
tónlist, poppi, harmoníkutón-
list og þess háttar. Við erum
sem sagt fimm sem erum köll-
uð dagskrárgerðarmenn. Okk-
ar starf felst aðallega í að velja
tónlist inn á föstu liðina hjá
útvarpinu, t.d. miðdegis- og
morguntónleika.
Svo er ég með þætti á laugar-
dögum þar sem ég kynni létta
sígilda tónlist og Knútur R.
Magnússon er með þætti á
fimmtudagskvöldum og kynnir
þar tónlistina sem hann velur.
Mikil vinna við
skrásetningu
Einn starfsmaður sér um
alla skýrslugerð og skráir niður
hvað hcfur verið leikið af
tónlist, auk þess sem hann sér
um greiðslur fyrir tónlistar-
þætti.
Spjaldskrárgerð er að mestu
flutt inn í Efstaleiti en við hana
vinna nú þrír starfsmenn.
Spjaldskráin sjálf er þó enn
hérna á Skúlagötunni ogstarfs-
mennirnir raða í hana hérna.
Þetta fyrirkomulag stafar af
plássleysinu hjá okkur.
Pá er mikil vinna við skrá-
setningu og hér eru tveir starfs-
menn sem sjá um að setja
númer á allar plötur og seðla
með nafni ríkisútvarpsins.
Klassískar plötur eru merktar
með bókstafnum L og fjögurra
stafa tölu fyrir aftan, LX er
popptónlist og létt tónlist,
fimm stafa tala táknar íslensk-
ar plötur o.s.frv.
Ef maður vill finna eitthvert
verk eftir Beethoven í
spjaldskránni þá leitar maður
undir Beethoven og finnur
verkið t.d. undir L 5968.
50.000 plötur
Plöturnar hér eru orðnar
ansi margar. Pær eru um
50.000 talsins. Hér eru tii allar
íslenskar plötur og yfirleitt í
nokkrum eintökum. Þær kaup-
um við alltaf. Hins vegar þurf-
um við yfirleitt að panta erl-
endar plötur eða fara eftir því
hvað verslanirnar kaupa inn.
Verðum að fylgjast með
hvað er að gerast í
tónlistarlífinu
Menn koma hingað og biðja
um upptökur og tónlistarstjóri
í samráði við varatónlistar-
stjóra metur hvort eigi að taka
upp. Svo er farið fram á upp-
tökur á sumum verkum og þá
sérstaklega á tónleikum úti í
bæ. Þá sendir útvarpið menn á
staðinn, en ef sú upptaka er
ekki nógu góð þá er e.t.v.'
boðið upp á nýja hérna í
stúdíói.
Við verðum því að fylgjast
með hvað er að gerast í tónlist-
arlífinu," sagði Sigurður Ein-
arsson.
Rás 2 kl. 21.
Nýbylgjan í læknastétt
í Gestagangi í kvöld
■ „í kvöld koma til mín tveir
læknar. Þóra Fischer, kven-
sjúkdómalæknir á Landspítal-
anum, en hún er eina konan
sem lokið hefur námi í þeirri
sérgrein hér á landi. Hinn er
Einar Thoroddsen, háls-, nef
og eyrnalæknir á Borgarspítal-
anum,“ sagði Ragnheiður
Davíðsdóttir, stjórnandi
Gestagangs á Rás 2 kl. 21.00.
„Mér finnst heyrast of lítið í
læknum í fjölmiðlum, nema
þegar þeir fjalla um læknis-
fræðileg efni. Það er gaman að
fá að kynnast tveimur læknum,
starfi þeirra og öllu sem því
fylgir. Þetta er ekki bara fólk í
hvítum sloppum, þetta er fólk
eins og við og á sínar tóm-
stundir, fjölskyldur o.s.frv.
Þessir tveir læknar eiga það
sameiginlegt að vera ungir,
færir á sínu sviði og síðast en
ekki síst að hafa kastað frá sér
þessari hefðbundnu lækna-
ímynd. Þau eru bæði afskap-
lega hress og mannleg og ganga
ekki um með virðulegan lækn-
issvip. Að mínu áliti með-
höndla þau sjúklinga sína á
mannlegri hátt. Ég kalla þetta
nýbylgjuna í iæknastétt.
Þegar ég kom til hans Einar
í fyrsta skipti, þá tók hann á
móti mér í gallabuxum og
T-bol. Hann tók strákinn minn
í fangið, hossaði honum og lék
við hann góða stund til þess að
búa hann undir það sem í
vændum var. Þetta er bylting
frá því ég var krakki, því þá
hræddist ég alla menn í hvítum
sloppum, fiskvinnslufólk, mál-
ara og yfirleitt alla sem þurftu
starfs síns vegna að klæðast
. þessum flíkum.
Við munum ræða um starf
læknanna, um þann hátíðleika
sem tíðkast á stofuganginum
og stéttaskiptinguna á sjúkra-
húsunum. Við komum inn á
það langa nám sem þau hafa
stundað tómstundir þeirra og
ýmislegt annað skemmtilegt."
■ Einar Thoroddsen. ■ Þóra Fischer.
Utvarp kl. 17.05:
Barnaútvarpið
■ „í Barnaútvarpinu í dag
ætlum við að segja frá starfi
blaðaljósmyndara“ sagði
Ragnheiður Gyða Jónsdóttir,
stjórnandi Barnaútvarpsins.
„Við fengum fyrirspurn frá
hlustanda um starfið og ætlum
að ræða við einn blaðaljós-
myndara um það.
Svo heyrðum við um svif-
flugstíma sem krökkum í
unglingavinnunni hjá Vinnu-
skóla Reykjavíkur er boðið
upp á á Sandskeiði og við
ætlum að kanna það.
Spennusagan er svo alltaf á
sínum stað með þátttöku
krakkanna, svo og ýmislegt
fleira."
Fimmtudagur
25. júlí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir Bæn
Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi. Til-
kynningar
7.55 Málræktarþáttur. Endurt. þáttur
Ólafs Oddssonar frá kvöldinu áöur.
8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá.
8.15 Veöurfregnir. Morgunorð -
Erlingur Níelsson, ísafirði, talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Ömmustelpa" eftir Ármann Kr.
Einarsson Höfundur les (11)
9.20 Leikfimi 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For-
ustugreinar dagblaöanna (útdr.)
Tónleikar.
10.45 Málefni aldraðra Þáttur i umsjá
Þóris S. Guðbergssonar
11.00 „Ég man þá tið“ Lög frá
iiðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Létt tónlist
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
14.00 „Úti i heimi“, endurminning-
ar dr. Jóns Stefánssonar Jón Þ.
Þór les (16)
14.30 Miðdegistónleikar
15.15 Tiðindi af Suðurlandi Umsjón:
Þorlákur Helgason.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.20 Á frivaktinni Þóra Marteins-
dóttir kynnir óskalög sjómanna.
17.00 Fréttir á ensku
17.05 Barnaútvarpið
17.50 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir 19.45 Tilkynning-
ar. Daglegt mál. Sigurður G. Tóm-
asson flytur þáttinn.
20.00 Draumleikur
20.30 Einsöngur í útvarpssal
21.00 Erlend Ijóð frá liðnum tímum
Kristján Árnason kynnir Ijóöaþýð-
ingar Helga Hálfdanarsonar. Þriðji
þáttur: „Komfyll þinaskál“. Lesari:
Erlingur Gíslason.
21.25 Frá tónskáldum
21.45 Frá hjártánu Umsjón: Kristján
R. Kristjánsson. RÚVAK
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Fimmtudagsumræðan
23.35 Fiðlusónata nr. 3 í c-moll
24.00 Fréttir Dagskrárlok.
Fimmtudagur
25. júlí
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Ásgeir Tómasson og Gunn-
laugur Helgason
14.00-15.00 Dægurflugur Nýjustu
dægurlögin. Stjórnandi: Leópold
Sveinsson
15.00-16.00 í gegnum tíðina Stjórn-
andi: Þorgeir Ástvaldsson
16.00-17.00 Bylgjur Framsækin
rokktónlist. Stjórnendur: Ásmund-
ur Jónsson og Árni Daníel Júlíus-
son
17.00-18.00 Einu sinni áður var
Vinsæl lög frá 1955 til 1962 =
Rokktímabilið. Stjórnandi: Bertram
Möller
Hlé
20.00-21.00 Vinsældalisti hlust-
enda Rásar 2 10 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Páll Þorsteins-
son
21.00-22.00 Gestagangur Gestir
koma i stúdió og velja lög ásamt
léttu spjalli. Stjórnandi: Ragnheið-
ur Daviðsdóttir
22.00-23.00 Rökkurtónar Stjórn-
andi: Svavar Gests
23.00-00.00 Kvöldsýn Stjórnendur:
Július Einarsson og Tryggvi
Jakobsson
Föstudagur
26. júlí
19.25 Dýrasögur Refurinn og
björninn Þýðandi Kristin Mántylá.
(Nordvision - Finnska sjónvarpið)
Ævintýri Berta 2. þáttur Sænskur
teiknimyndaflokkur. Þýðandi Jó-
hanna Þráinsdótdtir. (Nordvision -
Sænska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Agnetha án ABBA (A som i
Agnetha) Þáttur um söngkonuna
Agnethu Fáltskog sem söng áður
með sænsku sveitinni ABBA en er
nú að hefja sjálfstæðan tónlistar-
feril. Þýðandi Veturliði Guðnason.
(Nordvision - Sænska sjónvarpið).
21.15 Njósnarafjölskyldan (A
Family of Spies) Bresk heimilda-
mynd um mesta njósnamál sem
upp hefur komið í Bandaríkjunum
um árabil. Walker og fjölskylda
hans seldu Rússum árum saman
mikilvægar upplýsingar um varnar-
kerfi Atlantshafsbandalagsins. (
myndinni er reynt að gera grein
fyrir afleiðingum þessa mikla
njósnamáls. Þýðandi og þulur Bogi
Arnar Finnbogason.
21.50 Hvernig ég vann stríðið (How
I Won the War). Bresk bíómynd frá
árinu 1967. Leikstjóri: Richard
Lester. Aðalhlutverk: Michael
Crawford, Lee Montague, John
Lennon, Roy Kinnear, Jack Mac
Gowran. Myndin gerist í heims-
styrjöldinni siðari og er gert napurt
grin árin að striðsbröltinu. Þetta er
sagan af þvi hvernig Ljúfur liðsfor-
ingi leiddi herdeild sína til eins
konar sigurs. Þýðandi Guðni Kol-
beinsson.
23.40 Fréttir í dagskrárlok.