NT - 26.07.1985, Blaðsíða 23
26. júlí 1985 23
Íþróttír
fiOftKUP
hf.
...
mm
NT-mynd: Svemr
■ Henning og Björn Rafnsson berjast um knöttinn einbeittir á svip
íslandsmótið í knattspyrnu 1. deild:
KR-ingar nýttu færi sín
mun betur en FH-liðið
- unnu því sigur 3-1 í ekki svo ójöfnum leik - Björn gerði tvö
■ Það má með sanni segja að
KR-ingar hafí náð góðri nýtingu
í færum sínum í leiknum gegn
FH á KR-velli í gærkvöld. Þeir
iigruðu líka í leiknum með
iremur mörkum gegn einu.
Leikurinn var í heild jafn. KR-
ngar voru mun beittari í fyrri
íálfleik en FH mun sterkara í
iíðari hálfleik ef undan eru
ikildar síðustu 10 mín. en þá
r'oru þeir búnir að gefa vonina
im stig uppá bátinn. Leikurinn
ar hinn fjörugasti á að horfa.
Leikið í mikilli sól og allir í góðu
ikapi - bara gaman.
Eins og getið er þá voru
KR-ingar mun hættulegri við
markið og áttu nokkur færi í
fyrri hálfleik á meðan FH gekk
illa að skapa sér færi. Fyrsta
marktækifærið kom þó í fætur
Inga Bjarnar er hann komst
innfyrir vörn KR en Stefán varði
skot hans með fótunum. Síðan
voru FH-ingar meira með bolt-
ann fyrstu 15 mín. ári þess að
skapa sér færi. KR-ingar skor-
uðu síðan úr einni fyrstu sókn
sinni. Boltinn kom fyrir og Will-
um skallaði í slá. Þaðan barst
boltinn út í teig og skoppaði á
Tennistekjur:
Navratilova þénar
- hef ur unnið til meir en milljón dollara á þessu ári
milli manna uns Hannes rak
hausinn í hann og Kristján
Gíslason varð að bjarga á línu
með hendinni og það er ólög-
legt. Víti og Björn skoraði ör-
ugglega, 1-0. Björn Rafnsson
skoraði líka annað markið. Þá
kom sending fram og Guð-
mundi Hilmarssyni mistókst að
gefa aftur á Halldór. Björn
komst inná milli og skoraði
fallegt mark. Stuttu síðar átti
Ásbjörn skot í slá. Það var svo
á markamínútunni sem Júlíus
Þorfinnsson komst einn í gegn
eftir sofandahátt í vörn FH og
skoraði með góðu skoti undir
Halldór, 3-0 og leikhléi.
FH-ingar hresstust stórlega í
síðari hálfleik og sóttu mjög.
Þeir fengu nokkur ágæt færi en
tókst ekki að nýta þau sem
skyldi. Það var svo um miðjan
hálfleikinn að Hörður Magnús-
son braust inní teig þar sem
hann var felldur. Hörður skor-
aði sjálfur úr vítinu sem Óli
Ólsen dæmdi réttilega.
Það kom í ljós í gær að
aganefnd KSÍ hafði ekkert að
gera með „Jónsmálið“ og því
munu stigin í leik KR og Þróttar
færast til KR-inga í einhvern
tíma að minnsta kosti. Þetta
fleytir þeim í 3. sæti deildarinnar
og dregur Þrótt niður í svaðið.
NT
Boltinn
Björn Rafnsson var skæður hjá
KR og Ágúst Már átti skínandi
leik svo og Gunnar Gíslason. Hjá
FH var Hördur Magnússon í
standi svo og Kristján Gíslason.
Knattspyrna kvenna 2. deild:
Molar
■ Staðan í 1. deild fyrir leik KR
og FH í gærkvöldi var þessi. KR
skráður sigur á Þrótti 4-3.
Fram
Akranes ..
KR ......
Valur ....
Þór......
Keflavík ..
Þróttur ...
FH
Ómar Torfason hefur
gert flest mörkin í 1. deild,
en listinn yfir þá marka-
hæstu lítur þannig út.
mörk
ómarTorfason.Fram 9
Ragnar Margeirsson, ÍBK 8
Guðm. Steinsson, Fram 7
Bjami Sveinbjörnss. Þór 7
Hörður Jóhanness. í A 7
Guðm. Torfason, Fram 6
Jónas Róbertsson, Þór 6
Aðalst. Aðalsteinsson, Vík 5
Guðm. Þorbjörnss. Val 5
Sveinbj. Hákonarson, ÍA 5
Sumarfrí flestra leik-
manna I. deildarliöanna fer
nú í hönd því að ekkert
verður leikið í dcildinni fyrr
en 10. ágúst. Þá hefst 12.
umferð og lýkur henni
tveimur dögum síðar.
1 millitíðinni verður að-
eins einn leikur þar sem lið
í 1. deild eiga í hlut. Þá er
viðureign Fram og Þórs í
undanúrslitum bikarsins
næstkomandi mánudag, 29.
júlí.
í 2. dcild verður gert hlé
eftir leikina um helgina. Þá
verður leikin 11. umferð,
en sú 12. hefst svo 9. ágúst.
...Dregið hefur verið í
landshappdrætti HSÍ og
komu vinningar á eftirtalda
miða. Opel Kadett GSI, að
verðmæti 650.000 kr. á
miða nr. 178230, Opel Ka-
dett GL, aö verðmæti
425.000 kr. á miða nr.
25284 og 33183.
Opel Kadett LS, að verð-
mæti 370.000 kr. á miða nr.
22804, 89594, 101772,
117720, 126652, 129858,
130846, 141092, 159775,
178263, 220246 og 221749.
Handknattleikssam-
bandið færir öllum lands-
mönnum þakkir fyrir góða
þátttöku í landshappdrætt-
inu til undirbúnings þátt-
töku íslenska landsliðsins á
Heimsmeistaramótinu
1986.
...íslandsmótið í hand-
knattleik utanhúss verður
haldið við Mýrarhúsaskóla
á Seltjarnarnesi 7.-18.
ágúst. Keppt verður í meist-
araflokkum karla og
kvenna og 2. flokki kvenna,
ef næg þátttaka fæst.
Þátttökutilkynningar
skulu hafa borist fyrir 2.
ágúst og er hægt að koma
þeim til Fríðu Bergsdóttur
(sími 91-626543), Marínó
G. Njálssonar (91-19835
milli kl. 18 og 19) eða
Þorstcins Stefánssonar (91-
621614 á kvöldin)...
■ Martina Navratilova, Tékk-
inn sem nú býr í Bandaríkjun-
um hefur unnið sér inn tæplega
eina milljón dollara (41 milljón
kr. ísl.) með þátttöku í tennis-
mótum á yfirstandandi keppn-
istímabili. Nákvæmlega til tekið
hefur hún hlotið 994.579 dollara
í verðlaun, sem er um þriðjungi
hærri upphæð en sú sem næst
kemur. Það er Chris Evert-
Lloyd, sem hefur tekið á.móti
tékkum að verðmæti 652,269
dollarar.
Tvær tékkneskar stúlkur eru
næstar á lista. Hana Mandlikova
hefur fengið 294,872 dollara í
verðlaun og Helena Sukova
261,512 dollara. Þær Navratilova
og Evert-Lloyd eru því í algjör-
um sérflokki.
Pam Shriver, meðspilari Na-
vratilovu í tvíliðaleik, er í 5.
sæti með 244,653 dollara.
HNOT-
SKURN
Leikurinn var jafn þrátt fyrir
að KR sigraði með tveggja marka
mun. KR-ingar voru beittari í
sókn í fyrri hálfleik en FH átti
mun meira í þeim síðari. Mörk
KR gerðu: Björn Rafnsson á 18.
mín úr víti og á 35. mín. Júlíus
Þorfinnsson skoraði svo á 43.
mín. Mark FH gerði Hörður
Magnússon úr víti á 65. mín.
Dómari var óli ólsen og var
þokkalegur.
Víkingur með forystu
- í A-riðli 2. deildar eftir 2*0 sigur á Aftureidingu
■ Víkingur tók forystuna í
A-riðli 2. deildar kvenna á mið-
vikudagskvöldið, er liðið sigraði
Aftureldingu 2-0. Víkingsstúlk-
urnar eru þá komnar með 15
stig, þremur meira en FH, en
bæði liðin hafa leikið sex leiki.
Afturelding er með sex stig.
Helena Ólafsdóttir skoraði
fyrra markið í leiknum og
skömmu síðar komst Inga Lára
Þórisdóttir í gott færi. Birna
Bjarnason náði hins vegar að
verja skot hennar og Inga Lára
beygði sig niður og blótaði í
sandinn. Er hún reis upp aftur
skallaði hún hins vegar Birnu,
og brotnuðu tvær tennur hjá
markmanninum við höggið.
Birna var flutt á sjúkrahús og
varamarkvörðurinn tók hennar
sess.
Inga Lára átti síðan allan
heiðurinn af síðari markinu.
Hún gaf sendingu frá vinstri
kanti og knötturinn fór í netið
eftir mikla þvögu við mark
Aftureldingar. Hjördís Jóns-
dóttir hefur líklega átt síðustu
sendinguna áður en knötturinn
fór inn.
í leiðinni er rétt að skjóta inn
markaskorurum Víkings í 0-7
sigrinum gegn Grundarfirði á
dögunum. Inga Lára skoraði þá
þrennu, Valdís Birgisdóttir
gerði tvö og Hjördís eitt. Eitt
var svo sjálfsmark.