NT - 26.07.1985, Blaðsíða 24

NT - 26.07.1985, Blaðsíða 24
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddarverða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 •' ritstjórn 686392 og 687695 • íþróttir 686495_ HHHi — Fjöldi barna á götunni nú í haust? Starfs- manna- flótti ádagvistar- heimilm: ■ Krakkarnir á litlu deildinni á Hagaborg voru að drekka síðdegiskafnð sitt þegar okkur bar að garði. Litlir og kámugir Hngur tróðu súkkulaðikökum upp í pínulitla munna og svo var smjattað og kjamsað og sopið á mjólk svona til að skola gómsætinu niður og svala þorstanum. „Gr þetta gott?,“ spyrjum við og fáum vatn í munninn. „Jáhá,“ segja krakkarnir. En það er um að gera að vera fljótur að borða því góða veðrið bíður og skyldan kallar. Krakkarnir hlaupa út og hitta krakka á öðrum deildum og halda áfram þar sem frá var horfið að moka, hjóla, sparka bolta, vega salt, skríkja, hlæja og pota í hvert annað. „Ætlar þú að tala við mig,“ spyr Þorri Björn sem er 6 ára, „ég er búinn að vera dáldið lengi á Hagaborg," segir hann. „Ég líka,“ segir Kiddi sem er 5 ára. „Ég er að hætta í dag,“ segir Þorri Björn, „ég fer í heilan mánuð í sumarfrí og svo fer ég í skóla. Ég fer í Álftamýrar- skóla.“ „Ég er 6 ára,“ segir Davíð, „og ég fer í Landakots- skóla.“ „Er til Landakots- skóli,“ spyr Þorri Björn. „Auðvitað," segir Davíð. „Pabbi minn er að byggja hús,“ segir Kiddi, „og mamma mín vinnur á ferðaskrifstofu“. „Já, ■ Krakkarnir á einni deildinni hámuðu súkkulaðikökuna í sig úti í góðviðrínu. ■ Þórunn Einarsdóttir um- sjónarfóstra. hafi í sumar haft 11.000 krónur á mánuði þegar búið var að draga af þeim í félagsgjöld, skatta o.fl. Það sé alveg ljóst að gera verði eitthvað róttækt í þessum málum ef rekstur dagheimilanna eigi að komast í eðlilegt horf. Og með það brugðum við okkur upp á efri hæðina þar sem skrifstofur Dagvistunar Reykjavíkurborgar eru til húsa, og bönkuðum upp á hjá Þórunni Einarsdóttur umsjón- arfóstru, sem leysir Berg Felix- son framkvæmdastjóra af í sumarfríi. Þórunn segir að allt síðasta ár hafi verið mjög erfitt að fá fólk til starfa á dagvistar- heimilum en þó hafi steininn tekið úr í sumar og ástandið hafi aldrei verið eins slæmt. Alls staðar vanti starfsfólk og eins og nú horfi við séu öll líkindi að ekki verði hægt að opna sumar deildir dagvistar- heimilanna eftir sumarfrí, til dæmis Hagaborg, Austurborg, Laugaborg og Lækjarborg. Fóstrur hafi alltaf vantað á dagvistarheimilin og því hafi heimilunum verið haldið gang- andi með Sóknarstarfsmönn- um. „En nú fáum við þær ekki lengur því að launin eru svo lág. í sumar var hægt að bjarga málunum með því að ráða skólafólk til starfa en það er alveg ljóst að 1. september verða mikil vandræði,“ sagði Þórunn. 362 starfsmenn hafi hætt störfum í fyrra, eða um 62% starfsmanna. „Við höfum geysilegar áhyggjur af þessu og erum að reyna að klóra í bakkann með því að auglýsa eftir fólki og koma stöðunni áfram til yfirboðara okkar. En það er við ramman reip að draga. Það er ekki leyfilegt að fara út fyrir þann ramma sem kjarasamningar mæla fyrir um og útkoman verður að fólk kærir sig ekki um þessi störf,“ sagði Þórunn að lokum. já,“ segir blm. sem hefur enga stjórn á málgleði strákanna. „Hvernig gengur þér sjálfri í blaðamennsku," spyr Þorri Björn spekingslega. „Ein frænka mín vinnur við að búa til blöð og ég er áskrifandi að Andrés Önd,“ bætir hann við. „Ó,ó,ó,ó djatt,“ segir Andri litli sem er eins árs og fer að skæla. „Vertu duglegur,“ segir ein starfsstúlkan og tekur hann í fangið. Krakkarnir á Hagaborg eru að fara í mánaðar sumarfrí eftir helgi en allar líkur benda til að ekki verði hægt að opna tvær deildir af fjórum að því loknu því 6 starfsmenn eru að hætta. Guðrún Steingríms- dóttir forstöðukona segir að ástandið sé ekki verra í Haga- borg en á öðrum barnaheimil- um. Sjálfri hafi sér ekki tekist að ráða fleiri en eina starfs- stúlku og það sé alveg Ijóst að ekki sé hægt að ráða hvern sem er í svona starf. Það skiptir miklu máli að viðkomandi sé barngóður og góður í sam- starfi. En þeir séu orðnir ansi fáir sem kæra sig um að vinna á þessu kaupi, ófaglærðu starfsmennirnir sem eru í Sókn ■ „Ég kann sko alveg að vega salt og ég kann miklu fleira“ NT-myndir: Ámi Bjama

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.