NT - 28.08.1985, Síða 1
Laghentar, glaðlegar og
röskar stúíkur óskast...
■ Laghent stúlka - röskar,
áreiðanlegar og glaðlegar stúlk-
ur - stundvísar og áreiðanlegar
stúlkur - duglegar og ábyggileg-
ar stúlkur - dugleg og sjálfstæð
stúlka - stúlkur í uppvask -
dugmiklar stúlkur - vanar
saumakonur - duglegar konur -
reglusöm ráðskona.
Eftir öllum þessum stúlkum/
konum og miklu fleiri er nú
auglýst dag eftir dag í auglýs-
ingadálkum DV. Auglýsingar
eftir fólki til starfa skipta mörg-
um tugum daglega - voru t.d. 53
í blaðinu í gær, á sama tíma og
auglýsingar eftir starfi eru sárafá-
ar. Athygli vekur að í nær öllurn
atvinnuauglýsingum í DV er
auglýst eftir stúlkum/konum
þótt sumir hliðri sér hjá að segja
það beint. eins og t.d: „Fólk
óskast til verslunarstarfa...
einnig stundvís og reglusamur
maður." Langsamlega mest
virðist vanta stúlkur til allskonar
afgreiðslu- og þjónustustafa í
verslunum, söluturnum, veit-
ingahúsum, skyndibitastöðum
og bakaríum. Undir þessa þætti
féllu t.d. 32 af alls 53 atvinnu-
auglýsingum í blaðinu í gær.
Samkvæmt upplýsingum
Ráðningarþjónustu Liðs-
auka hefur verið stöðugt vax-
andi eftirspurn eftir starfsfólki
allt þetta ár og mest nú upp á
síðkastið. Liðsauki hefur sér-
staklega séð um ráðningar til
skrifstofustarfa og þar með
ráðningu stúlkna að miklum
meirihluta. Auk þess að kunna
skil á hinum fjölbreytilegustu
skrifstofustörfum ekki síður en
karlmennirnir verða stúlkurnar
líka að vera leiknar í vélritun,
sern fremur fátítt er meðal
starfsbræðra þeirra. Ekki mun
sú umframkunnátta þeirra þó
jafnaðarlega skila stúlkunum
hærri launum.
Viðmælcndur NT voru í litl-
um vafa um það að skýring þess
hve kvenfólk sé eftirsótt til
starfa felist ekki síst í því að
með því komist atvinnurekend-
ur af með lægri launakostnað.
Sameining BÚR og ísbjarnarins:
Áætlað tap hvors 50 millj.
- fyrstu sex mánuði þessa árs
■ Allt bendir til að Bæjarút-
gerð Reykjavíkur og ísbjörninn
verði sameinuð í eitt fyrirtæki.
Borgarráð samþykkti í gær með
atkvæðum sjálfstæðismanna að
hefja viðræður við forsvars-
menn ísbjarnarins með samein-
ingu í huga. Samkvæmt skýrslu
sem lögð var fram á borgarráðs-
fundinum er gert ráð fyrir því
að öll starfsemi nýja fyrirtækis-
ins verði flutt á Granda/Örfiris-
eyjarsvæðið, annað húsnæði selt
og að gerðir verði út 6-7 togarar.
Skýrslan, trúnaðarskýrslan
svokallaða, var gerð að undir-
lagi borgarstjóra. í henni kemur
fram að fjáhagsstaða beggja
fyrirtækjanna hafi farið mjög
versnandi og er áætlað að tap
hvors um sig nemi um 50 mill-
jónuin króna fyrstu sex mánuði
þessa árs. Auk verulegs sam-
dráttar í afla hafi aflasamsetn-
ingin átt sinn þátt í slæmri stöðu
fyrirtækjanna.
Lagt er til að fyrirtækin verði
sameinuð í eitt þar eð frekara
samstarf en nú er gæti ekki leitt
til aukinnar hagræðingar. Nýja
fyrirtækið taki yfir eignir og
skuldir þeirra beggja, tryggt
Reykjavík:
Sjötugur
maður
barinn
■ Ráðist var á rúm-
lega sjötugan mann í
gærkvöld á Hverfisgöt-
unni í Reykjavík. Mað-
urinn var fluttur á slysa-
varðstofu þar sem gert
var að meiðslum hans,
en hann hlaut m.a.
skurð á höfði og var
bólginn og blár í andliti.
Arásarmaðurinn var
handtekinn en ekki
reyndist unnt að yfir-
heyra hann vegna ölv-
unar.
verði að eigið fé fyrirtækisins
verði ekki undir 35-40% af
matsverði og starfsmannafjöldi
verði um 460-500. Komið verði
á aukinni sérhæfingu og vélvæð-
ingu, unnið að framleiðslu verð-
meiri afurða og kappkostað að
bæta meðferð afla og auka gæði
hráefnis.
Fulltrúar minnihlutans sem
greiddu atkvæði gegn samein-
ingarviðræðunum lögðu fram
■ Góða veðríð nýtt til viðhalds,
króna
nokkrar bókanir í málinu. Sig-
urjón Pétursson fulltrúi Alþýðu-
bartdalagsins sagði í bókun
sinni að hann teldi að allt frá
upphafi kjört ímabilsins hefði
meirihlutinn stefnt að því að
leggja Bæjarútgerðina niður og
hefði dregið verulega úr starf-
semi fyrirtækisins. Þetta nýja
fyrirtæki væri hins vegar álíka
stórt og Bæjarútgerðin hefði
verið í upphafi kjörtímabilsins
og sagði Sigurjón í samtali við
NT að frekar bæri að etla BÚR
en hitt.
Fulltrúar Kvcnnaframboðs-
ins 'og Alþýðuflokksins mót-
mæltu allri meðferð þessa niáls
og töldu óeðlilegt að fulltrúum
þeirra hcfði ekki verið gefinn
kostur á setu í nefndinni sem fór
yfir skýrsluna frá því á síðasta
fundi en gegndi nú Jjví hlut-
verki að ræða við Isbjarnar-
menn.
Skúlagötu-
skipulagið:
Vísað til
borgar-
stjórnar
■ Ekki verður tekin
ákvörðun um Skúlagötu-
skipulagið svokallaða að
sinni því Borgarráð sam-
þykktiá fundi sínum í gær
að vísa því til fyrsta reglu-
legs fundar í borgarstjórn
sem haldinn verður 19.
september n.k.
Pað var borgarstjóri
sjálfur sem gerði tillögu
um frestunina en Sigurjón
Pétursson fulltrúi Alþýðu-
bandalagsins hafði þá beð-
ið um frestun ákvarðana-
tökunnar. Ef e'kki yrði
orðið viö þeirri beiðni
myndi hann krefjast frest-
unar á grundvelli sam-
þykktar borgarinnar, með
því að fara fram á auka-
fund í borgarstjórn.
Jón Pálsson yfirflugvirki:
„Dagurinn þeg-
ar allt brann
hjá Gæslunni“
- ef manninum hefði tekist
að gangsetja þyrluna
■ Maðurinn sem fór ölvaður
inn á svæði Landhelgisgæslunn-
ará Reykjavíkurflugvelli, getur
átt yfir höfði sér skaðabóta-
kröfu, allt að 2,5 milljónum
króna. Þyrla Gæslunnar er ekki
tryggð nema fyrir þriðja aðila,
þ.e.a.s. ef hún veldur tjóni á
öðrurn hlutum.
Jón Pálsson yfirflugvirki hjá
Landhelgisgæslunni sagði í sam-
tali við NT í gær að ekki væri
endanlega Jjóst hversu mikið
mótorinn hefði skemmst, en
hann yrði sendur utan til viðgerð
ar. Á meðan mun Gæslan fá
leigðan mótor að utan, þannig
að líkur benda til þess að TF-
GRÓ verði kornin í loftið aftur
um helgina.
Jón sagði að skemmdirnar á
mótornum hefðu orðið, þegar
maðurinn reyndi að gangsetja
þyrluna inni í flugskýlinu.
„Hann hafði tekið nokkra tíma
á gömlu þyrlu Albínu Thor-
darson. Hann reyndi að gang-
setja okkar þyrlu eins og um þá
þyrlu væri að ræða.“
Við þessar. aðfarir mun hann
hafa kæft mótorinn og skemrnt
hann alvarlega.
Hvað hefði gerst ef hann
hefði komið vélinni í gang?
„Nú þá yrði sennilega talað
um þennan dag, sem daginn
þegar brann hjá Gæslunni. Guð
má vita hvað hefði gerst ef hann
hefði komið henni í gang,“
sagði Jón.