NT


NT - 30.08.1985, Side 3

NT - 30.08.1985, Side 3
Föstudagur 30. ágúst 1985 3 NORDEL þingar í Reykjavík: Vettvangur upplýsingamiðlunar - segir orkumálastjóri. Ný íslensk raforkuspá kynnt ■ „Nú á tímum eru upplýsing- ar orðnar mjög verðmæt vara og það er því til mikils að vinna fyrir íslendinga að eiga aðild að þessu samstarfi og fá þar með aðgang að upplýsingum, sem annars lægju ef til vill ekki á lausu,“ sagði Jakob Björnsson orkumálastjóri á blaðamanna- fundi í gær vegna ársþings NORDEL sem nú er haldið í Reykjavík. NORDEL er nor- ræn samtök raforkuframleið- enda og eiga aðild að þeim Noregur, Svíþjóð, Danmörk, Finnland og ísland. „Þessi mál horfa nokkuð öðru vísi við okkur en hinum Norður- löndunum. Pau hafa mikla sam- tengingu sín í milli og má segja að þeirra raforkukerfi sé ein heild og þessi samhæfing er alltaf að aukast. Af landfræði- legum ástæðum er ísland utan þessarar samtengingar og okkar hagur af þessu samstarfi felst fyrst og fremst í því að þar höfum við vettvang til að afla upplýsinga og koma upplýsing- um frá okkur á framfæri. En við erum nú fremur þiggjendur en veitendur á þessu sviði eins og fleirum í norrænu samstarfi. Að sögn Jakobs snerust um- ræður um ýmis tæknileg mál auk þess sem skýrt var frá ýms- um áætlunum á sviði raforku- mála. Par ber e.t.v. hæst nýjan sæstreng milli Svíþjóðar og Finnlands og áætlanir Svía um hvernig sú raforka, sem þeir afla nú með kjarnorkuverum verði leyst af hólmi, en Svíar hafa ákveðið í kjölfar þjóðarat- kvæðagreiðslu, að eftir 2010 verði engin raforka framleidd með kjarnorku. Ný raforkuspá íslendinga var kynnt á þinginu, en Jakob vildi ekki greina frá innihaldi hennar en kvað hana verða kynnta einhvern næstu daga. En er samtenging landanna fjögurra skýring á dýrari raf- orku hér á landi en á hinum Norðurlöndunuin? „Auðvitað skapar hún ákveðið hagræði, en það er hins vegar flókið mál og margir þættir sem þarf að taka til skoðunar ef á að svara þessari spurningu," sagði Jakob Björnsson. ■ Jón Stefánsson: Við Höfnina 1924. Á sýningu fjögurra frumherja eru 111 málverk og nú fer hver að verða síðastur að sjá þessa einstæðu sýningu á verkum þessara listamanna. Sýningu fjögurra frum- herja lýkur um helgina ■ Nú fer hver að verða síðastur að sjá sýningu á verkum fjögurra frum- herja, þeirra Þórarins B. Þorlákssonar, Ásgríms Jónssonar, Jóhannesar S. Kjarval og Jóns Stefáns- sonar, en sýningunni sem staðið hefur í Listasafni íslands í sumar lýkur sunnudaginn 1. septem- ber. Á sýningunni eru 111 málverk, öll í eigu safnsins, það elsta frá aldamótaárinu 1900 en það yngsta frá árinu 1966. Meðal þeirra eru margar perlur íslenskrar málara- listar sem hver og ein gerir það vel þess virði að eyða í safninu dagstund. Sýningin er opin dag- legafrá kl. 13.30-16.00 og lýkur eins og fyrr segir 1. september. Hraða- takmark- anir ■ Verið er að leggja bund- ið slitlag á vegarkafla rétt fyrirutan Borgarnes. Hraða- takmarkanir hafa verið síð- ustu daga. Lögreglan í Borg- arnesi segir að mikil brögð hafi verið að því að menn hafi ekki virt takmarkanirn- ar, og valdi það hættu á rúðu- brotum. Það eru eindregin tilmæli lögreglunnar í Borg- arnesi að menn hlíti hraða- takmörkunum. Orgeltónleikar í Kristskirkju ■ Björn Steinar Sólbergs- son heldur orgeltónleika í Kristskirkju sunnudaginn 1. september kl 17. Á efnisskránni verða þrír samforleikir eftir J.S. Bach, tríosónata nr. 5 í C-dúr eftir J.S. Bach, Choral dorien og Litanies eftir J. Alain og Prelude et fugue le nom d’Alain eftir M. Duruflé. Söngglaðir syngja í Skál- holtskirkju ■ Hetur þu gaman at þvi að hlusta á aðra syngja af blaði eða sjálf(ur) að syngja hástöfum? Ef svo er, hvernig væri þá að skella sér í Skálholt um helgina á árlega „Söng- daga“ í Skálholtskirkju? „Söngdagar'1 eru nú haldnir í áttunda sinn og þeir hefjast á föstu- dagskvöldi 30. ágúst og halda áfram allan laugardag og sunnudag. Hóp- inn á „Söngdögum1' skipar fólk sem hefur gaman af því að syngja af blaði og hefur gaman af söng og mun hópurinn syngja við messu í kirkjunni kl. 14.00 hjá sóknarprest- inum séra Guðmundi Óla Ólafssyni og „Söngdögum“ lýkur með „tón- leikum“ í kirkjunni kl. 17.00 og eru allir velkomnir. Verkefnin að þessu sinni verða eftir Bach, Handel og Schútz en á undanförnum árum hefur verið tek- ist á við ýmis verkefni svo sem Requiem eftir Faure, Pange Lingua eftir Kodaly, Missa Brevis eftir John Speight, Rejoice in the Lamb eftir B. Britten auk fjölda smærri verkefna af ýmsu tagi og þar af þó nokkur eftir íslenska höfunda. 4ra dyra Isuzu Trooper '86 Þægilegri og rúmbetri en nokkru sinni fyrr. Isuzu Pickup '86 með „Space Cab" stórauknu rými fyrir farþega og farangur, Við bjóðum sérlega hagstæð greiðslukjör og tökum jafnvel gamla bílinn upp í þann nýja! HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300 KL. 13.00 - 17.00 LAUGARDAG KOMIÐ OG KYNNIST KRAFTMIKLUM NÝJUNGUM. BiLVANGUR sf

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.