NT


NT - 30.08.1985, Síða 19

NT - 30.08.1985, Síða 19
m m f Föstudagur 30. ágúst 1985 19 NT-mynd Kóbert ■ Sæbjörn og Ormarr berjast um boltann í leiknum í gær. Hannes fylgist meö, Islandsmótið 1. deild: Naumt sloppið - hjá ÍBK í Krikanum - Jöfnuðu í lokin ■ Keflvíkingar voru ekki langt frá því að tapa alveg af toppslag 1. deildar og FH-ingar ekki langt frá því að bjarga sér endanlega frá falli í 2. deild í gær. Pegar örfáar mínútur voru til leiksloka í leik FH og ÍBK í Kaplakrika þá skoraði Jón Erl- ing Rangarsson mark fyrir FH og ætluðu menn að það myndi nægja til sigurs. Óli f>ór var ekki á sama máli og hann jafnaði með góðu skoti á næstu mínútu. Allt var þó ekki úti enn og Jón Erling fékk dauðafæri strax á eftir er hann fékk frían skalla inná markteig en hann fór beint í hendur Porsteins markvarðar og ÍBK slapp með skrekkinn. FH stendur reyndar nokkuð vel í deildinni eftir að hafa fengið eitt stig en ÍBK á nú bara smá möguleika á titli. Leikurinn var fjörugur og mikið um færi. Bæði liðin léku nokkuð opinn leik. Mark Jóns Erlings var sett upp af Inga Birni en hann þvældi þá nokkra Keflvíkinga og renndi boltanum í átt að marki þar sem Jón kom og rúllaði honum yfir línuna. OÍi Pór fékk knöttinn við víta- teigshorn og afgreiddi hann með góðu skoti í netið - fallegt mark. Jafntefli verða þó að teljast sanngjörn úrslit í leikn- um því sótt var mikið á báða bóga. FH átti opnari færi en í heild sanngjarnt. I HNOT' SKURN ■ Opinn leikur með fullt af sæmilegum færum. FH-ingar óheppnir að halda ekki fengnum hlut eftir markið en jafntefli þó sanngjarnt. Mark FH gerði Jón Erling Ragnarsson á 83. min en Óli Þór Magnússon jafnaði strax á eftir. Áhorfendur voru ekki ýkja margir en veður gott. Magn- ús Pálsson átti góðan leik hjá FH svo og Halldór i markinu en Valþór og Jón Kr. voru góðir hjá ÍBK. íslandsmótið 1 deild: Jafntefli í hörkuleik - hjá KR og Fram og enn allt í hnút á toppnum ■ Tvö af efstu liðum 1. deildar KR og Fram skvldu jöfn á KR-velli í gærkvöldi í hörkuleik. Mikil barátta einkenndi leik- inn sem var eins og allir aðrir leikir nú til dags mjög mikilvægur fyrir bæði liðin. Framarar þurftu að vinna til að standa enn betur að vígi í deildinni og hefðu reyndar verið komnir með aðra hönd á titilinn ef þeir hcfðu sigrað. KR varð að vinna til að eiga betri möguleika á titlinum og hefðu skotist í efsta sæti dcildarinnar með sigri en þar hafa þeir ekki verið í ein 10 ár. Hvorugt liðið gaf sig hinsvegar svo jafntefli varð og þakka öll önnur lið í deildinni fyrir það. Framarar fengu óskastart í leiknum er Pétur Ormslev snéri á rangstöðugildru KR og skoraði með góðu skoti strax á 4. mín. Staðan orðin 1-0 og kom þetta mark sem köld vatnsgusa framan í KR-inga. Peir sóttu þó í sig veðrið en færin í leiknum voru heldur fá. Sterkar varnir. í síðari hálfleik byrjuðu Framarar betur en KR-ingar náðu þó að breyta aðeins sínum leik með því að færa Gunnar Gíslason fram á miðjuna úr bakvarðarstöðunni og bar það árangur. A 65. mín. þá gaf Björn Rafnsson fyrir markið og Gunnar kom aðeins við bolt- ann sem fór til Ásbjarnar og hann stang- i Fótbolti í Brasilíu: aði knöttinn í netið af stuttu færi, 1-1, og fögnuður mikill í vesturbænum. KR-ingar voru sprækari um tíma eftir þetta en síðan komu Framarar aftur inní myndina. Leikurinn var síðan baráttuleikur og þurfti Ragnar Örn að grípa til gula spjaldsins við og við til að halda mönnum í skefjum. Bæði liðin spiluðu þennan leik á úlopnu og var ekkert gefið eftir. Baráttan á miðjunni var alsráðandi. Varnir liðanna stóðu fyrir sínu og ef eitthvað var þá var framlína Fram heldur frískari en sókn KR-inga. Sanngjörn úrslit og staöan á toppnum nánast óbreytt. Sanngjörn úrslit i jöfnum baráttuleik. Færin ekki ýkja mörg en mikid slegist á miðjunni. Pétur Ormslev skoraði fyrir Fram á 4. mín. en Ásbjörn Björnsson jafnaði á 65. min. Ragnar örn dæmdi vel en áhorfendur voru margir. Gunnar Gísalson var góður hjá KR og Viðar Þorkelsson átti mjög góðan leik hjá Fram svo og Örn Valdimarsson sem kom inná. Sex leikmenn eftir ■ Nýja liðið hans Paolo Roberto Falc- ao, Brassans snjalla í knattspyrnunni, Sao Paulo, vann heldur léttan sigur í leik Staðan Fram ................... 15 9 3 3 29 21 30 Vaiur................... 15 8 5 2 22-10 29 KR ......................15 8 4 3 30-21 28 Þór..................... 15 9 1 5 24-19 28 ÍA...................... 15 8 3 4 30-16 27 ÍBK..................... 15 8 2 5 25-16 26 FH ..................... 15 5 2 8 19-27 17 Víðir................... 15 3 3 9 16-32 12 Þróttur................. 15 3 2 10 15-28 11 Víkingur.................15 1 1 13 12-32 4 gegn Paulista í gær því undir lok leiksins er staðan var 2-1 fyrir Paulo var fjórða og fimmta leikmanni Paulista vikið af velli og leiknum því hætt þar sem liðið hafði I aðeins sex leikmenn á vellinum. Falcao | sat uppí stúku og horfði á leikinn en hann : mun spila með í næsta leik Sao Paulo. ■ Leikið var í HM unglinga i knatt- spyrnu í gærkvöldi og urðu úrslit þessi: Kólumbia-Túnis................... 2-1 Ungverjal.-Búlgaría.............. 1-1 Brasilia-SaudrArabia ............ 1-0 Spánn-írland .................... 4-2 Sovétr.-Kanada................... 5-0 Nígería-Ástralia.................. 3-2 Mexíkó-England .................. 1-0 Kína-Paraquay.................... 2-1 BRAUTRYÐJANDINN | MYKJU- R0TASPREADER DREIFARIIMN Gtobuse Nú fáanlegur í tveim stærðum 3ja rúmmetra og 4,2 rúmmetra á stórum flotdekkjum. Þessir fjölhæfu mykjudreifarar hafa verið seldir í áratugi á íslandi, við sívaxandi vinsældir. Hann dreifir öllum tegundum búfjáráburðar, jafnt lapþunnri mykju sem harðri skán. Howard SPR. 1050 3 rúmm. kr. 98.200.- Howard SPR. 1550 4,2 rúmm. kr. 114.100.- (Gengi 22)8 ’85) Til afgreiðslu strax á einstökum greiðslukjörum. LÁGMÚLI 5, SlMI 81555

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.