NT - 30.08.1985, Side 24
—
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónurfyrirhverja ábendingu sem leiðir til
fréttar í blaðinu og 10.000 krónurfyrir ábendingu sem leiðirtil bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687695 • íbróttir 686495
.
—
____M
Kröftug villibráð
Fylgst með framleiðslu nýjunga
hjá Afurðadeild Sambandsins
■ I banaboxinu er fénu slátrað á snöggan og sársaukalausan hátt, með sérstakri loftbyssu. Síðan
hefst ferð skrokkana eftir færiböndum.
■ Þessa dagana stendur yfir sumarslátrun á sauðfé í Sláturhúsi Sambandsins í
Borgarnesi. Þessi slátrun er jafnframt námskeið fyrir sláturhússtjóra hvaðanæva af
landinu, þar sem þeim er m.a. kynnt nýjasta slátrunartækni.
Venjuleg haustslátrun hefst svo um miðjan næsta mánuð og í kjölfar hennar svo og
sumarslátruninnar mun Sambandið bjóða upp á nýjung undir nafninu „Kröftug
villibráð“.
■ Síðasti hluti fláningarinnar. Að henni lokinni er skrokkurinn vandlega skolaður, áður en innyfli
eru hreinsuð og skrokkurinn vigtaður og settur í flokk.
Nýjungin felst í því, að yfir
sláturtíðina verður neytendum
boðið upp á nýtt og ófrosið
kindakjöt sem komið verður í
verslanir aðeins 48 klst. eftir
slátrun, en þá hefur það hangið
við hárrétt hita- og rakastig í
hæfiíegan tíma.
Pannig eru, að sögn for-
svarsmanna búvörudeildar
Sambandsins, tryggð full-
komnustu bragðgæði og þá er
kjötið best til neyslu. Boðið
verður upp á nýja kjötið í
sérstökum loftþéttum umbúð-
um sem lengja geymsluþol þess
verulega ef það er geymt við
rétta kælingu. Einnig er hægt
að velja um mun fleiri og
smærri hluta dilksins en áður
hefur tíðkast. Ef viðtökur
verða góðar er líklegt að neyt-
endum bjóðist þetta ferska
kjöt aðra hluta ársins, t.d. um
páska en ekki aðeins í kringum
sláturtíðina á haustin.
Blaðamönnum var nýlega
boðið að fylgjast með sumar-
slátruninni í Borgarnesi, en
þar hefst ferð hinnar kröftugu
villibráðar til neytenda.
Dýrin fá ekki að sjá
órlög hvert annars
„Pað var ekki laust við að
dálítill hrollur færi um blaða-
mann NT, þegar hálfgerð
feigðarlykt fyllti vitin er gengið
var inn í vinnslusal sláturhúss-
ins í Borgarnesi. Ekki batnaði
það þegar íklæðst var hvítum
sloppum og einhver sagði,
„svona til að verja fötin fyrir
blóðslettunum", það var
a.m.k. erfitt að gera sér upp
bros við þessu gríni.
Skoðunarferðin hófst í svo-
kallaðri fjárheimt, en þar er
fénu safnað saman daginn fyrir
aftöku og það látið bíða örlaga
sinna yfir nótt, á fastandi
maga. Að þessu sinni var held-
ur tómlegt um að litast í fjár-
heimtinni, enda mun minni
starfsemi í gangi meðan á
sumarslátrun stendur heldur
en í haustslátruninni. En eins
og áður sagði, þarna biðu nú
aðeins 30-40 hnípnir dilkar í
hóp, en einn og einn voru þeir
leiddir inn í banaboxið, síðasta
viðkomustaðinn.
„Við leggjum mikla áherslu
á að dýrin sjái ekki hvað fer
fram í banaboxinu," sagði
Gunnar Aðalsteinsson slátur-
hússtjóri, þegar blaðamaður
spurði hann hvort ókyrrð færð-
ist ekki yfir féð þegar banaboxið
nálgaðist, „og þetta gengur allt
rólega fyrir sig, þær virðast
ekki hafa nokkurn grun um
hvað gengur á fyrr en of seint."
Þegar í banaboxið er komið
hlýtur féð skjótan og sársauka-
lausan dauðdaga. Þar bíður þess
boltabyssan, sem með einu
skoti rekur tein inn í ennið á
því, þannig að það deyr sam-
stundis.
Frá banaboxinu í krókótta
leið færibanda
Út úr banaboxinu er skrokk-
unum velt yfir á svokallað
blóðband, en þar eru þeir
■ Skrokkarnir eru fláðir í áföngum, þarna er þegar búið að
hækka skrokkinn, en síðan er hann hengdur í svokallaða glennu,
eins og sést á myndinni.
skornir á háls og þeim látið
blæða.
Nú tóku ótal færibönd við
og eiginlega var blóðbandið
síðasti staðurinn þar sem ein-
hverrar tilfinningasemi gætti
hjá blaðamanni, fyrir honum
voru skrokkarnir nú bara
hreint og beint kjöt.
Skrokkarnir færast svo upp
frá blóðbandinu á krókum sem
flytja þá upp á næstu hæð
sláturhússins en þar tekur við
vinnslan á þeim, þar sem hver
maður hefur sitt verk. Fyrst
eru þeir hæklaðir, þ.e. aftur-
lappir skornar af, og fyrsta stig
fláningar hefst. Síðan smám
saman eru skrokkarnir verkað-
ir, fláðir og snyrtir og loks
tekin úr þeim innyflin. Mikil
áhersla er lögð á hreinlæti í
sláturhúsinu og þess er sérstak-
lega vel gætt að halda öllum
líkamshlutum saman sem
lengst svo hægt sé að rekja
sýkta eða mengaða parta til
upprunalegs skrokks. Einnig
ganga skrokkarnir í gegnum
margar hieinsanir þar sem
ullartægjur og fleira er vandlega
skolað af þeim áður en þeir eru
vigtaðir og settir í flokka.
Kjótið komið í búðir á
þriðja sólarhring efftir
slátrun
Eftir að kjötið hefur verið
látið hanga nægilega lengi er
það flutt í sérstökum gámum
til Reykjavíkur í nýja pökkun-
arstöð Afurðasölu Sambands-
ins að Kirkjusandi, þar sem
því er pakkað í áðurnefndar
lofttæmdar umbúðir, eða sag-
að niður og fryst, og er það þá
tilbúið í verslanimar.
Auk þessarar nýju pökkun-
arstöðvar hefur verið sett upp
aðstaða í Afurðasölunni byggð
á nýjustu rannsóknum, sem
gerir klei ft að þíða frosið kjöt
við bestu aðstæður. í tengslum
við þessar nýjungar í pökkun og
meðferð lambakjöts og verk-
lega námskeiðið í sumarslátr-
un, er staddur hér á landi
Nýsjálendingurinn David
Jennings sem er sérfræðingur á
þessu sviði. Var hann spurður
að því hvort íslenskt kindakjöt
væri mjög frábrugðið því nýsjá-
lenska.
„Já, það er hreinlega allt
annað bragð af því en þessu
sem við eigum að venjast á
Nýja-Sjálandi, og ég held að
íslenska kindakjötið sé ein-
stakt í veröldinni íjtessu tilliti.
Mér finnst íslenska kindakjöt-
ið með þessu sérstaka bragði
mjög gott, kannski má segja
að maður sé að bragða á Is-
landi sjálfu þegar það er
borðað, enda gengur féð hér
villt í íslensku högunum áður
en það er leitt til slátrunar. Það
er meiri fjöldaframleiðsla á
mínum heimaslóðum og féð
öðruvísi alið og geta má þess
að á ári hverju er um 40
milljónum fjár slátrað þar en
tæplega 800 þúsundum slátrað
hér á landi. Munurinn er því
býsna mikill," sagði David að
lokum.