NT - 01.09.1985, Blaðsíða 8
8 Sunnudagur 1. september NT
Torfæruhjól
BMX-hanskar
BMX-hjálmar
BMX-grímur
BMX-peysur
BMX-buxur
BMX-skór
BMX-sokkar
BMX-hnéhlífar
BMX-púðar
BMX-merki
* Sendum í póstkröfu
• Kreditkortaþjónusta
Stoppast framkvæmdir
■ Ét r m mm ■ ■■ Ét m a
við nýju flugstöðina?
Staðsetning
■ Suður með sjó, í vestur af núver-
andi flugstöðvarbyggingu er nú risin í
fulia hæð bygging ein mikil sem á að
gegna því hlutverki að vera flugstöð
Islendinga og samgöngumiðstöð um
ókomin ár. Bygging þessi er hin
reisulegasta og er um 14 þúsund
fermetrar að flatarmáli.
Saga
Flugstöðvarbyggingin hefur verið í
byggingu í tæp tvö ár og þar hafa
margir lagt hönd á plóginn. Að-
dragandi þessarar byggingar var
endurskoðun varnarsamningsins við
Bandaríkin, en þar var ákveðið að
skilja í sundur farþegaflug og starf-
semi varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli. Slíkur aðskilnaður gat ekki átt
sér stað nema með byggingu nýrrar
flugstöðvar, þar eð hin gamla er á
sama svæði og varnarliöið er með
starfsemi sína.
Framkvæmdir hafa gengið mjög
vel hingað til og vonast er til að svo
verði einnig áfram, en áætlað er að
flugstöðin verði tekin í notkun eftir
tæp tvö ár eða svo.
Lýsing
Flugstöðvarbyggingin greinist í tvo
meginhluta, aðalbyggingu og
landganr. Þetta er stór flötur og
verður gert ráð fyrir margskonar
starhsemi þar, s.s. verslunum, skrif-
stofum, fríhöfn.banka og veitingabúð
aö ógleymdri stórbættri aðstöðu
starfsfóiks. Ymsir listamenn verða
fengnir til að prýða liúsið bæði að
innan og utan og leitast verður við að
hafa allan aðbúnað sem myndarleg-
astan og við hönnun hússins hefur
verið tekið tillit til þarfa hreyfi-
hamlaðra og annarra með skerta
getu.
Varnarsvæði
Nýja flugstöðvarbyggingin cr sem
kunnugt er reist ávarnarsvæðiíslenska
Nýja flugstöðin sem styrinn stendur um.
rikið er eigandi byggingarinnar og
Bandaríkin taka þátt í kostnaði vegna
hennar. Á skrifstofu vainar-
máladeildar utanríkisráðuneytis-
ins fengust þær upplýsingar að það
væri hefð að borga ekki byggingar-
leyfisgjöld fyrir byggingar sem reistar
eru á varnarsvæði og við þá reglu mun
utanríkisráðuneytið halda sig einnig
nú, en þessu eru ekki allir sainmála
og upp eru komnar deilur um greiðslu j
byggingarleyfisgjaldanna.
Deilurnar
Hreppsnefnd Miðneshrepps telur
að flugstöðvarbyggingin sé ríkisbygg-
ing og reist í landi Miðneshrepps og
því beri ríkinu að borga byggingar-
leyfisgjöldin til hreppsins, vegna
byggingarinnar. Hreppsnefndin tekur
að ekki sé endalaust hægt að byggja
á þessu svæði án þess að hafa sam-
vinnu við nærliggjandi hreppi. Nefnd-
in segir að verktakar séu búnir að
borga sín gjöld og ríkið sé einn
verktaki og því beri því skilyrðislaust
að borga sín gjöld eins og aðrir.
Nefndin segir að Keflavíkurflugvöllur
sé ekki skilgrcindur sem sérstakur
hreppur og samkvæmt lögum tilheyri
skipulag Keflavíkurflugvallar hrepp-
unum í kring. Þeir hjá Miðneshrepp
telja að þarna sé um íslenska bygg-
ingu að ræða og komi málinu
ekki við hvort hún er reist á varnar-
svæði eða ekki. Miðneshreppur er að
undirbúa lögtakskröfur á hendur
utanríkisráðherra og hljóðar krafan
upp á rúmar 500 milljónir íslenskra
króna. Ef þessi gjöld verða ekki
greidd er hætta á að framkvæmdir
stöðvist við flugstöðina með ófyrir-
sjáanlegum atleiðingum.
Það er því að vona að þessi mál
leysist sem fyrst á farsælan hátt svo
mannvirkin komi sem fyrst að þeim
notum sem þeim er ætlað.
A.H.
■ Guðmundur Einarsson ræðir landsins eagn og nauðsynjar við gesti
reisugillisins.
1/ersBunin VIV
/VI4RKÍÐ
• Varahluta- og viðgerðarþjónusta.
Suðurlandsbraut 30. Sími 35320.