NT - 17.09.1985, Blaðsíða 3

NT - 17.09.1985, Blaðsíða 3
 GQ Þriðjudagur 17. september 1985 3 s ká k Karpov hefur náð forystunni! Kasparov virðist niðurbrotinn eftir tapið í fjórðu skákinni ■ Það skipuðust skjótt veður í lofti austur í Moskvu um helg- ina. Eftir að hafa átt í hinu mesta basli með fullhugann unga hefur Karpov heldur betur náð að laga stöðu sína. Föstu- daginn 13. september (13 er happatala Kasparovs!) knúði hann fram sinn fyrsta sigur í einvíginu og jafnaði metin. Fjórða skákin var listavel tefld af hálfu Karpovs, en fáir áttu von á að hann næði forystunni strax daginn eftir. Kasparov mætti grimmur til leiks, lék kóngspeðinu fram um tvo reiti í fyrsta skipti í einvíginu og lét ófriðlega í flóknu miðtafli. Karpov varðist öllum atlögum andstæðingsins fimlega og skyndilega eins og hendi væri veifað missti Kasparov flugið, Karpov krækti sér í peð og vanmáttugar sóknartilraunir Kasparovs höfðu litla þýðingu. Þegar skákin fór í bið var útlitið allt annað en glæsilegt hjá Kasp- arov hann var peði undir og hafði fyrir það engar bætur en full snemmt fannst mér þó að gefast upp án frekari tafl- mennsku. Hann hlýtur þó að hafa sundurgreint stöðuna nógu nákvæmlega til að fullvissa sig um að frekari barátta væri von- laus. Það virðist ætla að koma í Ijós í þessu einvígi að styrkur Karpovs liggur ekki síst í gífur- legum viljastyrk. Enginn verður heimsmeistari í skák án þess að vera sterkur karakter, sagði Kortsnoj eitt sinn og um erki- óvin sinn Petrosjan sagði hann: sterkur karakter en vondur. Þó fimm skákir í þessu einvígi segi ekki mikið í sjálfu sér þá er ýmislegt sem bendir til þess að óstöðugir skapsmunir snillings- ins frá Baku geti valdið honum miklum erfiðleikum á leiðinni til heimsmeistaratignar. Hann bregst illa við tapi, virðist hrein- lega missa móðinn. Einvígið hefur fsíðustu skákum þróast mjög Karpov í vil og í Ijósi þess að honum nægir að halda jöfnu, 12:12 hljóta næstu skákir að hafa verulega þýðingu fyrir möguleika Kasparovs. Fimmta skákin fylgir hér á eftir. Kóngspeðsbyrjun Kaspar- ovs kemur ekki á óvart því undir lok fyrra einvígis hrelldi hann Karpov hvað eftir annað með skarpri taflmennsku í spönskum leik og Peroffs - vörn: 5. einvígisskák: Hvítf: Garrí Kasparov Svart: Anatoly Karpov Spænskur leikur 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. Hel b5 7. Bb3 d6 8. c3 0-0 9. h3 Bb7 10. d4 He8 11. Rbd2 (Skarpara er talið 11. a4, en þannig lék Kasparov í einni af skákunum í fyrra einvíginu.) 11. ... Bf8 12. a4 Dd7 13. axb5 axb5 14. Hxa8 Bxa8 15. d5 Ra5 (Karpov lék 15. - Rd8 í 46. skákinni í vetur, fékk vonda stöðu og var heppinn að sleppa með jafntefli. Hann hefur ör- ugglega kynnt sér þennan leik allrækilega fyrir einvígið og framhaldið bendir til þess að á a5 sé rétti staðurinn fyrir riddar- ann.) 16. Ba2 c6 17. b4 Rb7 (Hálfklúðursleg staðsetning en ferðinni er heitið til d8.) 18. c4 Hc8 19. dxc6 Dxc6 20. c5? (Vafasamur leikur. Hugmyndin er alltof einföld, 20. - dxc5 21. Bxf7f o.s.frv. Karpov er fljótur að setja fyrir lekann.) 20. .. Rd8! (Valdar snögga blettinn í stöðu svarts, f7 - peðið.) 21. Bb2 dxc5 22. bxc5 (En ekki 22.Rxe5 Da6! og síðan c4 og svartur stendur mun betur.) 22.... Dxc5 23. Bxe5 Rd7 24. Bb2 (Kasparov er alveg heillum horf- inn og nú nær svartur yfirburða- stöðu. Best var 24. Bal og þó svarta staðan sé-e.t.v. heldur skárri munarekki miklu.) 24. ... Db4! 25. Rb3 Rc5! (Peðið á e4 riðar til falls. Báðir skákmennirnir þó einkum Kasparov voru orðnir tíma- naumir og sést vel af framhald- inu.) 26. Bal Bxe4 27. Rfd4 Rdb7 28. De2 Rd6 29. Rxc5 Dxc5 30. Dg4 (Þessir sóknartilburðir eru van- máttugir en það er erfitt að benda á betri leiki. Hvítur er einfaldlega peði undir fyrir eng- ar bætur og á heimsmeistara- nráli kallast slík staða tæknilega unnið tafl.) 30. ... He8 31. Hdl Bg6 32. Df4 Db4 33. Dcl Be4 34. Hel Da5 35. Bb3 Da8 36. Db2 (Ekki beinlínis gáfulegur leikur og hefði einhvern tímann verið hlegið að slíkri taflmennsku, en í tímahraki leggur Kasparov gildru fyrir heimsmeistarann: 36. - Bxg2 37. Hxe 8 Rxe8 38. Rf5 með hótuninni 39. Rh6f) 36. ...b4 37. He3 Bg6 38. Hxe8 Dxe8 39. Dcl Re4 40. Bd5 Rc5 41. Rb3 , Helgi Olafsson stórmeistari skrifar um skák - Hér fór skákin í bið og voru menn ekki alveg vissir hvort væri betra 41. - Rxb3 eða 41. - Rd3. Karpov valdi síðarnefnda kostinn. En lengri varð skákin ekki því Kasparov gafst upp án þess að tefla frekar. Þó staðan sé töpuð þá verður svartur að tefla afar nákvæmt og þess vegna er ákvörðun Kasparovs undarleg og ber ekki vott um mikinn baráttuhug. Staðan í einvíginu: Karpov 3 Kasparov 2 6. skákin verður tefld í dag. Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki vígð: Framkvæmdakostnaður nemur 350 milljónum ! : t5r| r ■ Gestir skoða vélasal Steinullarverksmiðjunnar. ■ Steinullarverksmiðjan á Sauðárkróki var formlega tekin í notkun á sunnudaginn, 10 árum eftir að fyrst vaknaði hug- mynd um að í Skagafirði væru til staðar hráefni sem hentuðu til framleiðslu steinullarverk- smiðju. Nú er risið 3100 fer- metra verksmiðjuhús yfir verk- smiðjuna, sem veita mun um 35 manns atvinnu, og fram- kvæmdakostnaður við verk- smiðjuna er um 350 milljónir. Sverrir Hermannsson iðnað- arráðherra vígði Steinullarverk- smiðjuna á sunnudag og meðal þeirra sem fluttu ávarp var Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra. Eiginleg fram- leiðsla hefst síðan í vikunni en tilraunaframleiðsla hófst í ágúst. Helstu hráefni verksmiðjunn- ar er fjörusandur og skeljasand- ur sem bræddur er með rafmagni og spunninn út í einangrun- arefni. Tekist hafa samningar við Landsvirkjun og RARIK og Rafveitu Sauðárkróks um við- unandi verð á raforku. Stærð verksmiðjunnar er miðuð við að afkastagetan sé um 6000 tonn á ári og ljóst er að fyrstu árin verður ekki markað- ur fyrir alla þá framleiðslu. Hins vegar gerir stjórn verksmiðj- unnar sér vonir um að notkun á steinull til einangrunar aukist samfara lækkuðu verði á fram- leiðslunni og er reiknað með að verksmiðjan nái um 4000 tonna sölu á innlendum markaði að tveim árum liðnum. Aðilar að Steinullarverk- smiðjunni eru Ríkissjóður, Steinullarfélagið hf., OY Partek ab, Finnlandi, Samband ís- lenskra samvinnufélaga og Kaupfélag Skagfirðinga. Stjórn fyrirtækisins skipa 7 menn og er formaður stjórnarinnar Arni Guðmundsson. ■ Sverrir Hermannsson iðnaðarráðherra hleypir rafmagni á vélar Steinullarverksmiðjunnar við formlega vígslu hennar á sunnudag. NT-mynd: Árni Bjarna Forseti íslands: Spánarheimsókn lýkur á morgun ■ í dag mun forseti fslands, Vigdís Finnbogadóttir, sem stödd er í opinberri heimsókn á Spáni, heimsækja borgarstjóra Madrid og spænska þingið. Ennfremur verður Prado lista- safnið skoðað. Um kvöldið heldur forseti samkvæmi til heiðurs spænsku konungshjón- unum. Á morgun, miðvikudaginn 18. september mun Vigdís heimsækja listiðnaðarstofnun í Madrid og E1 Escorial klaustur- höllina sem er skammt fyrir utan borgina. Þennan dag hitt- ast utanríkisráðherrar Spánar og íslands og ræðast við. Síðdegis á morgun lýkur svo heimsókn- inni, en þá heldur forseti flug- leiðis til Parísar, og mun svo hefja opinbera heimsókn sína :til Hollands, sem stendur 19.-21. september.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.