NT - 17.09.1985, Blaðsíða 13

NT - 17.09.1985, Blaðsíða 13
i skrefið í jákvæðri . un um fiskvinnslu" n framkvæmdastjóri VSÍ ■ „Ég vonast til að þessir samning- ar? auk þess að skila fiskvinnslufólki verulegum kjarabótum, verði jafn- framt þáttur í því að bæta samskiptin milli vinnuveitenda og launþega í stéttinni. Og jafnframt að það geti orðið fyrsta skrefið til jákvæðari um- fjöllunar um starfsgreinina - þ.e. að sá neikvæði tónn sem skinið hefur í gegn um alla umfjöllun um fisk- vinnslu á síðustu árum fari að breytast - menn fari að sjá bæði fiskinn og fiskvinnsluna í Ijósi þeirrar þýðingar sem hún hefur fyrir þjóðarbúið sem aftur gefur því fólki sem vinnur við greinina meira sjálfstraust og sjálfs- virðingu,“ sagði Magnús Gunnars- son. framkvæmdastjóri VSÍ m.a. í samtali um kosti og áhrif nýju bópus- samninganna. Magnús taldi það ekki spurningu að þessi nýi samningur endurspegli þær áhyggjur sem menn í fiskiðnaði hafa af því að geta ekki rekið frysti- húsin með eðlilegum afköstum vegna manneklu. „Menn gerðu sér grein fyrir að þeir yrðu að koma til móts við starfsfólkið." Magnús gat þess að lögð sé áhersla á að hraða þeirri umfjöllun sem nú á sér stað í sérstakri nefnd um m.a. sérhæfni fiskvinnslufólks og mögu- leikana á námskeiðahaldi og aukinni menntun í tengslum við fiskvinnsl- una. „Menn virðst nefnilega vera að uppgötva það núna allt í einu - eftir 40 ára þróun - að þá hefur þessi undirstöðuatvinnugrein þjóðarinnar aldrei átt sér neinn samastað í hinu almenna skólakerfi. Það er auðvitað feiknarlega undarlegt að hún skuli hvergi meðhöndluð í grunnskólun- um. Og þegar svo skólakerfið var Hróflið ekki við kvótanum - er álit austfirskra sjómanna ■ Fjórðungssamband fiskifélaga á Austfjörðum samþykkti á laugar- daginn ályktun þar sem kvatt er til 1 þess að kvótakerfinu verði viðhald- | ið í því horfi sem þaðernú. Einnig | voru Austfirðingar mjög andvígir ! því að hróflað yrði við kvótanum með því að færa fram fyrir sig frá næsta ári. Að þeirra mati er verið að koma aftan að þeim sem hafa stjórnað veiðum sínum með tilliti til þess kvóta sem þeim hefur verið úthlutaður. Það kemur ekki á óvart að Austfirðingar mæli með kvóta- kerfinu, þar sem þeir eru upphafs- menn þess. Upphaflega kom hug- myndin fram á fiskiþingi 1977 og var þar flutt af Austfirðingum. Þá eru Austfirðingar mjög ánægðir með þær breytingar, sem gerðar voru á kvótakerfinu og komu til endurskipulagt og fjölbrautaskóla- kerfið tekið upp - þá er nánast allt kennt þar annað en það sem tengist þessari meginatvinnugrein þjóðarinn- ar. 1 þessu sambandi verð ég að gagn- rýna stjórnmálamennina og svo for- ystumennina í þessum greinum, bæði launþega og vinnuveitendamegin, fyrir að hafa ekki sett sér þann metnað að þarna skapaðist ákveðin þróun eins og í öllurn öðrum greinum atvinnulífsins. Til að breyta um- fjölluninni um þetta allt saman tel ég að til að byrja með þurfi að finna einhverja skammtímalausnir og síðan að taka allt menntakerfið til skoðunar með það í huga hvernig þróa megi menntun fólks í þessari grein eins og öllurn öðrum greinum," sagði Magn- ús Gunnarsson. framkværnda í ár, þar sem þeir sem völdu sér sóknarmark fengu leið- réttingu og gátu bætt sinn hlut. Margir Austfirðingar völdu sókn- armarkið í ár og hafa þannig getað lagað hlut sinn. Eins og fram hefur komið í fréttum eru Vestfirðingar mjög óhressir með kvótann. Ástæðan fyrir því er sú að þeir veiða mest þorsk en lítið aðrar tegundir. Veiði Austfjarðabáta er hinsvegar mjög blönduð og nýtist þeim því kvótinn mun betur. Á þinginu var einnig samþykkt ályktun um veiðar smábáta undir 10 brúttólestum. Var lagt* til að veiðar þeirra verði eingöngu bundnar við sóknarmark og þorsk- veiðar bannaðar í 150 daga á árinu 1986, einnig að útgerðarmenn smá- báta velji sér tvisvar á ári fyrirfram hvenær þeir hyggist stunda veið- arnar. Þá er lagt til að allar þorsk- netaveiðar verði háðar kvóta, sama hversu stór báturinn er. Þriðjudagur 17. september 1985 13 Hraðfrystistöð Reykjavíkur: Ammoníaksleki í vinnslusal húsnæðið var rýmt í hvelli ■ Ammóníakleiðsla fór í sundur hjá Hraðfrystistöð Reykjavíkur í gær. Vinnslusalurinn var rýmdur þegar í stað, og vélstjórar hjá hraðfrystistöð- inni hófust handa um að gera við leiðsluna. Slökkviliðið var kallað til og aðstoðuðu þeir við að ræsta út ammóníakið. Vinna lá niðri í stöðinni í allan gærdag, eða frá klukkan tíu um morguninn, þegar óhappið varð. „Það þarf mjög lítið ammóníak í andrúmsloftið til að þar sé ólifandi, og auk þess er efnið mjög ertandi fyrir rakasvæði á líkamanum og veld- ur miklum óþægindum sagði varð- stjóri hjá slökkviliðinu í samtali við NT í gær. Þórhallur Helgason framkvæmda- stjóri Hraðfrystiöðvarinnar sagði í samtali við NT í gær að salurinn hefði verið rýmdur um leið, og hefði enginn hlotið skaða af. Hann sagði að menn frá tryggingarfélaginu væru að meta skemmdir, bæði á fisk sem var í vinnslu þegar óhappið varð og eins hvort skipta þyrfti um umbúðir á fisk sem hafði egar verið pakkað. „Það er Ijóst að um tilfinnanlegt tjón er að ræða.“ sagði Þórhallur. Þingflokkar stjórnarflokkanna: Fá fjárlagafrumvarpið til athugunar í dag - tekjuhliðin er höfuðverkurinn ■ Eftir ríkisstjórnarfund í dag verður fjárlagafrumvarp fyrir árið 1986 lagt fyrir þingflokka beggja stjórnarflokkanna. Raunar er frumvarpið ekki fullbúið. „Það er einkum verið að skoða tekjuhliðina og hvernig cr hægt að auka tekjurn- ar án þess að hafa umtalsverð áhrif á framfærslukostnað," sagði Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra í samtali við NT. „Það er helst þar sem hnífurinn stendur fastur." „Það er tvennt sem veldur því að það verður að hreyfa tekjuhliðina, í fyrasta lagi er rekstrarhalli í ár upp á tvo milljarða og hann yrði að óbreyttu eitthvað á þriðja milljarð á næsta ári og þetta verður að brúa. Þessi halli stafar af því að launin hækka miklu meira en gert hafði verið ráð fyrir í kjölfar samning- anna í sumar og það var ákveðið að endurgreiða sjávarútveginum um hálfan milljarð í uppsöfnuðum söluskatti. Þetta eru stærstu liðirn- Forsætisráðherra sagði að þaö væri aðeins hægt að brúa bilið með niðurskurði eða hækkuðum tekjum og ýmislegt hefði verið skorið niður þegar. Hins vegar mætti benda á að trygginga- Dg heilbrigðiskerfið væri orðið 40% af fjárlögum og þar hefði reynst erfitt að draga saman. Menntamálin væru um 14% af fjarlögum og það sem eftir væri líokkaðist undir ýmsan rekstur og framkvæmdir næmu aðeins um 7%. „Þetta er því afar þröngt dæmi,“ sagði forsætisráðherra. Til FISKVERKENDAog ÚTGERÐARMANNA Höfum áhuga á kaupum á öllum rauðsprettuflökum sem þér getið framleitt, dökka hliðin af. Einnig smáþorski, heilfrystum(slægðum með haus á. Sendist vikulega með íslenskum skipum til Bandaríkja N-Ameríku (Austurströnd) Vinsamlega tjáið oss hve mikið magn er hægt að fá ÓLAFUR JOHNSON 40 WALL STREET, SUITE 2124 SÍMI: 212 344 6676, 718 622 0615 TELEX: 4945457

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.