NT - 25.09.1985, Side 1
NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP. 7
Líknarfélög tekin
við ríkisrekstri?
■ „Ástæðanfyrirþvíaðtækja-
kaupin eru fjármögnuð með
almennri fjársöfnun er sú. að
líknarfélögin fá ntðurfellda toiia
á tækjunum en ' sjúkrahúsin
ekki," sagði Árni Sverrisson,
framkvæmdastjóri St. Jósefs-
spítla í Hafnarfirði, en ýrnis
félagasamtök undir forystu
Bandalags kvenfélaga í bænum.
eru nú að fara af stað með
l almenna söfnun til kaupa á nýj-
um röntgentækjum fyrir spítal-
ann. •'
Árni Sagði að það' gerðist
stöðugt algengara að tækjakaup
væru fjármögnuð á þennan hátt,
en það hefði verið reynt að fá
tolla af lækningatækjum niður-
fellda én það ekki fengist. Sagði
hann að svona virtist sem ríkis-
valdið vildi hafa þennan háttinn
á, þannig kæmust þeir hjá því
að þurfa að taka fjármagn af
fjárlögum til þessara kaupa.
Fjárveitingar til sjúkrahúsa fara
fyrst og fremst í rekstur og
tiltölulega lítið í endurnyjun á
tækjum. Það er því eðlilegt að
sjúkrahúsin notfæri sér velvilja
almennings.
Að sögn Árna eru röntgen-
tækin á sjúkrahúsinu gömul og
þurfa endurnýjun og gera lítið
meira en að anna röntgen-
myndatökum á legusjúklingum.
Hafnfirðingar hafa því þurft að
sækja þessa þjónustu til Reykja-
víkur. Meðnýjutækjunum.sem
Skýringin á stórauknum sparnaði?:
Innflutningur maí-ágúst
ekkert meiri en í fyrra
Vöruskiptajöfnuðurinn jákvæður um 844 milljónir
■ Almennur vöruinnflutning-
ur til landsins í ágústmánuði s.l.
nam 2.206 millj. króna cif, sem
er 0,5% minna en í ágúst 1984
reiknað á föstu gengi. Síðustu
fjóra mánuðina, maí-ágúst, er
almennur vöruinnflutningur
aðeins 0,6% meiri en á sama
tíma 1984. Er því raunverulega
um minnkun að ræða sé miðað
við innflutning á mann.
Mjög snögg umskipti urðu
eftir fyrstu tvo mánuði ársins,
þegar aukning innflutnings var
26% milli ára. Eftir það varð
snögg breyting. Um 5% aukn-
ing varð mánuðina mars og
apríl, uns dæmið snérist svo
alveg við í maímánuði. Benda
má á, að framangreind þróun
virðist fara saman við verulega
aukningu á sparifé í bönkunum
sem fór að gæta snemma á
árinu, eins og áður hefur verið
frá skýrt í NT. Tekið skal fram
að í samanbtirðinum hér að
framan er einungis átt við al-
mennan innflutning, þ.e. án
stóriðju, olíu og fleiri sérstakra
liða.
Heildarinnflutningurinn í
ágústmánuði s.l. nam 2.467
millj. króna fob, en útflutning-
urinn 3.232 millj. og var vöru-
skiptajöfnuðurinn í mánuðinum
því hagstæður urn 765 millj.
króna. Fyrstu átta mánuði árs-
ins voru fluttar inn vörur fyrir
21.230 millj. en út fyrir 22.074
millj. Vöruskiptajöfnuðurinn
það sem af er árinu er því
hagstæður um 844 millj. króna
fob/fob, samanborið við 475
millj. króna halla á árinu 1984.
Útflutningsverðmætið er nú
16% meira en á sama tíma í
fyrra reiknað á föstu gengi.
Verðmæti sjávarafurða hefur
aukist um 22%, kísiljárns 23%,
en álútflutningur minnkað um
19%.
Heildarverðmæti vöruinrt-
flutningsins hefur aukist um 8%
milli ára reiknað á föstu gengi.
Þar af er aukning almenns inn-
flutnings aðeins um 6%, jan,-
ágúst. Olíuinnflutningur hefur
hins vegar aukist um 12% og er
nú 3.449 millj. Þá nemur inn-
flutningur svonefndra sérstakra
liða um 2.548 millj. cif, sem er
um 16% aukningmilli ára. Þess-
ir liðir eru: Alfélagið 1,352
millj., Járnblendið 289 millj.,
skipainnflutningur 447 millj.,
sem er 32% aukning, flugvélar
160 millj. sem er tíföldun milli
ára og nýr liður, flugstöðvar-
bygging um 59 millj. króna.
Hafrannsókn mælir með 300.000
tonna þorskafla á næsta ári:
„Sýnir nauðsyn á
stjórnum fiskveiða“
- segir sjávarútvegsráðherra um niðurstöðurnar
■ „Ég tel að þetta sýni glögg-
lega, að það hefur verið þörf á
stjórnun fiskveiða og að það er
áframhaldandi þörf á stjórnun
þeirra,“ sagði Halldór Ásgríms-
son um þær rannsóknir og spár
sem Hafrannsóknarstofnunin
hefur gert um ástand fiskistofn-
anna við landið. Aðspúrður
sagði Halldór það skoðun sína
að smám saman yrði að byggja
upp fiskistofnana þó slíkt gæti
tekið allmörg ár og veiðarnar
myndu taka mið af því. Hins
vegar sagði hann ekki tímabært
að segja til um hvort þorskveið-
arnar næsta ár yrðu bundnar við
þau 300 þús. tonn sem Hafrann-
sóknarstofnunin leggur til.
Halldór minnti á að uppbygg-
ing fiskistofnanna væri vand-
meðfarið mál, menn yrðu að
gera það upp við sig hversu
mikið þeir væru tilbúnir til að
leggja á sig, því aðhald í fisk-
veiðum þýddi aðhald á öðrum
sviðum líka.
Sjá nánar bls. 3
•* -V-. ' » :
1 , * á,
Aukin framlög til rannsókna er krafa dagsins í dag, en stóraukin rannsókna- og tækniþróun
þykir grundvöllur atvinnuuppbyggingar framtíðarinnar. Þessi nemandi Austurbæjarskóla var aö
vísu ekki að vinna að rannsóknum í þágu atvinnuveganna en hver veit nema hann taki síðar þátt í
uppbyggingu lífefnaiðnaðar. NT-mynd: Ár„i Bjar„».
áætlað er að kosti unt þrjár og
1 hálfa milijón geta Hafnfirðingar
fengiö þessa þjónustu heima
fyrir. Með því styttist biðtíminn
og svartími læknis einnig.
Bæjaryfirvöld munu leggja
sitt til og bæjarbúar cn einhvern
næstu daga ntunu gíróseðlar
berast þeint. Upphæðin sem
hver einstakur þarf að borga er
200 kr. Sparisjóður Hafnar-
fjarðar stendur straum af gíró-
kostnaðinum.
Frakkland:
Teknir
fyrir
kjaft-
hátt
- sjá bls. 7
Skák
ábls. 13
Hjarta-
skurð-
lækningar
-sjá bls. 13
Biðstaða
í gengis-
málum
■ Þrátt fyrir að gengi Banda-
ríkjadollars félli skyndilega í
fyrradag, virðist sem hann hafi
ekki misst tiltrú á hinum al-
menna markaði. Dollarinn ým-
ist stóð í stað eða hækkaði
örlítið aftur víða um heim í gær,
einkum eftir að tölur um vöxt í
sumum geirum bandarísks efna-
hagslífs birtust.
Talsvert óvissuástand ríkir þó
enn í fjármálaviðskiptum í
heiminum og bíða menn nú
átekta. Ólíklegt er þó talið að
lækkunin verði mikið meiri.
Svo virðist sem hið sama sé
upp á teningnum hér á íslandi,
en komi til þess að dollarinn
haldi áfram að falla getur það
komið illa niður á útflutningi og
haft neikvæð áhrif á viðskipta-
jöfnuðinn. Jafnframt eru samn-
ingar miðaðir við gengisþróun
krónunnar og með áframhald-
andi falli dollarans gæti þessi
samningsgrundvöllur brostið.
Stjórnvöld segjast munu beita
áframhaldandi aðhaldi í gengis-:
málum og telja ólíklegt að doll-
árinn haldi áfram að lækka til
muna.