NT - 25.09.1985, Page 5
Verkstæðið V
hefur göngu sína
- og þar stendur nú yfir sýning á textílverkum
■ Nýtt textílverkstæði Verkstæði V.
að Þingholtsstræti 28 var opnað um
síðustu helgi og afrakstur verkstæðis-
ins og einnig myndverk sem unnin
voru sem lokaverkefni Myndlista- og
handíðaskóla íslands vorið '85 verða
til sýnis á verkstæðinu alla virka daga
frákl. 10-18oglaugardagakl. 14-16.
Á verkstæðinu vinna þær Elísabet
Þorsteinsdóttir, Guðrún J. Kolbeins,
Herdís Tómasdóttir. Jóna S. Jóns-
dóttir og Þuríður Dan Jónsdóttir.
Á verkstæðinu verða unnin textíl-
verk ýmiskonar aðallega ofin og
þrykkt. Hvert verk rnun verða eins-
takt, engin tvö verk eins. Verkstæðið
hefur áhuga á að vinna verk inn í rými
og tengja textíl og arkitektúr.
■ Konurnar fimm sem standa að Verkstæðinu V.
Landsbókasafnið:
w
Islensk bókaskrá
1974-78 komin út
■ íslensk bókaskrá, samsteypuskrá
um árin 1974-1978 er nýlega komin
út. f skránni sem er unnin í þjóðdeild
Landsbókasafnsins er steypt saman
efni ársskránna 1974-1978.
Sökum þess að allnokkur rit frá
þessu árabili bárust ekki í tæka tíð,
eru þau nú aftast í bindinu í sérstök-
um viðauka.
Efniviður bókaskrárinnar er ís-
lensk rit sem afhent hafa verið Lands-
bókasafni íslands samkvæmt lögum
um skylduskil til safna íslensk bóka-
skrá er mikið rit, 320 bls. Hún er hin
þarfasta handbók og þótt henni sé
ætlað að vera allsherjarskrá um ís-
lensk rit umrædds tímabils er aldrei
svo að einhver rithafi hafi ekki undan
skotist. Landsbókasafni væri því mik-
il þökk í vitneskju um rit frá þessum
árum er af einhverjum sökum hafa
ekki komist í safnið.
Bókaskráin er til sölu í anddyri
Safnahússins við Hverfisgötu og kost-
ar 1200 krónur. Það verð gildir til
áramóta en þá verður það hækkað í
1500 krónur.
Skrá um íslensk blöð og tímarit
1974-1978 er enn í smíðum og verður
birt í sérstöku bindi svo fljótt sem
kostur er.
Atvinnulífsrásir
í útvarpi
■ Á mánudag í næstu viku ir munu hafa viðskeytið „rás“
mun hefjast á rás eitt í útvarp- í heiti sínu og þannig fáum við
inu þáttaröð sem fjallar um að heyra iðnaðarrás," „sjáv-
atvinnulífið á íslandi. Hér er arútvegsrás,“ogo.s.frv. íþáttum
um að ræða 20 mín.þætti sem þessum verður víða komið við
hefjast kl. 11.10 á morgnana og meðal annars talað við ráð-
og mun hver þáttur fjalla um herra og aðra áhrifamenn.
eina atvinnugrein. Þættir þess-
Læti í Grindavík:
„Útibú frá Víkurfréttum"
■ Brotist var inn í söluturn í
Grindavík um helgina, og brotnar í
honum flest allar rúður. Samkvæmt
heimildum sem NT fékk, þá var
þarna um að ræða hóp óánægðra
bæjarbúa sem var að koma af dans-
leik. Þeir skildu eftir sig orðsendingu
á einum vegg söiuturnsins. „Utibú frá
Víkurfréttum."
Miðvikudagur 25. september 1985 5
lifa ekki
eingöngu
á salati
Námskeiöin hefjast
30. sept. Allir finna
flokk viö sitt hæfi
hjá okkur.
VETRARDAGSKRÁ LÍKAMSRÆKTAR JSB
Líkamsrækt og megrun fyrir konur á öllum aldri. Morgun-, dag- og kvöldtímar í Suöurveri. Hörku púl og svitatímar fyrir van- ar í Bolholti.
Lokaðir og framhaldsflokkar eru óöum aö fyllast í Bolholti. Þær sem voru í fyrra hafið samband strax viö Bolholt. Megrunarflokkar fyrir þær sem þurfa og vilja missa aukakílóin núna! kl. 6.30 í Suöurveri.
Rólegur tími kl. 2.30 þri.—fim. fyrir eldri konur eöa þær sem þurfa aö fara varlega meö sig, í Suöurveri. NÝTT NÝTT Aerobic fyrir ungar og hressandi. Eldfjör- ugir tímar kl. 5.30 mán.—miöv. í Suöurveri.
Nýtt nýtt. Ljósabekkir nú einnig í Suöurveri. Frábær gæöi frá Son- tegra.
Framhaldsflokkar kl. 9.15 mán.—-miðv. Kl. 1.30 kl. 5.30 þri.—fim. kl. 7.30 mári.—mið. Hafðu samband strax við Suöur- ver Jazzdans fyrir þær sem voru í jazz eöa ball- ett í gamla daga eöa þær sem fóru aldrei en langaöi alltaf, kl. 9.30 mán, —miöv. í Suöurveri.
Tímatafla JSB
Mánudaga. þridjudaga, miövikudaga, fimmtudaga
kl. 9.15, 10.15, 1.30, 2.30, 4.30, 5.30, 6.30, 7.30, 8.30, 9.30.
Jazzballettskóli Báru
Suðurveri, sími Bolholti, sími
83730 36645