NT - 25.09.1985, Page 10
Urr*
EFAB SFROUl
STEVEMcQUE
Miðvikudagur 25. september 1985 10
Guðlauqur Berqmundsson skrifar frá U.S.A.
Skaparinn undirbýr komu sína:
Læðupokasýningin sem
stóð ekki undir nafni
Guðlaugur Bvrgmundsson
skrifar frá Bandaríkjunum:
Skaparinn undirbýr komu sína
Lædupokasýningin sem
stóð ekki undir nafni
■ Upphafið var ákaflega
freistandi auglýsing í blaðinu
mínu. Endirinn reyndist ekki
vera eins afgerandi, blendnar
tilfin ningar í rakamettuðu næt-
urlotinu. Það flaug að manni.
að gott hefði verið að geta fylgt
orðatiltækinu góða: I upphafi
skal endinn skoða. Og þó,
þetta var kannski ekki svo
slæmt, þegar allt kemur til alls.
Maður hefur svo sannarlega
komist í hann krappari.
En byrjum á byrjuninni:
Læðupokasýning frá einu af
stóru kvikmyndaverunum í
kvöld, eða eins og það heitir á
ensku: Major studio sneak pre-
view tonight. Og myndin?
Skaparinn (Creator) heitir hún
og er leikstýrð af Ivan Passer,
manni, sem ég veit lítil sem
engin deili á. Gott ef hann er
ekki einhvers staðar að austan.
Leikararnir ekki af verri
endanum. Peter OToole í
aðalhlutverkinu, dyggilega
studdur af þeim Mariel Hem-
ingway og Vincent Spano.
Læðupokasýningar eru
landlægár hér í Ameríku, og
allir, sem eitthvað fylgjast með
kvikmyndum, hafa heyrt
þeirta getið. Mel Brooks gerði
fyrirbærið ódauðlegt, þegar
hann tók það á orðinu í Silent
Movie: halarófa af uppdubb-
uðum góðborgurum læðist inn
í kvikmyndahúsið, nælir sér í
væna öskj u af poppi og laumast
í sætin. Það var í Hollywood.
Og ekki annað að sjá, en að
sýningin væri ókeypis. Enda
mun tilgangurinn með þessum
sýningum vera sá, að kanna
viðbrögð áhorfenda við fram-
leiðslunni, áður en hún er sett
á markað víðs vegar um heim-
inn, með smávægilegum breyt-
ingum ef þess gerist þörf. Eða
svo hélt ég að minnsta kosti.
Raunveruleikinn í Houston,
Texas, var allt annar og bitrari
en sá, sem Hollywood hafði
talið okkur trú um, að væri
hinn eini rétti. í fyrsta lagi
þurfti að borga 200 krónur
fyrir miðann, sem er venjulegt
verð fyrir kvöldsýningu hér í
borg. I öðru lagi fylgdi miðan-
um ekki neinn spurninga listi,
eins og ég hafði ímyndað mér
í sakleysi mfnu. Hvernig áttu
forráðamenn Universal þá að
komast að því hvert álit mitt á
myndinni væri? Pað er að
segja, ef tilgangur svona sýn-
inga er sá, sem ég held, að
hann sé. Ekki nema einhver
útsendari framleiðandans
verði í salnum til að skrá ná-
kvæmlega hvenær og hversu
lengi áhorfendurnir hlæðu, því
Skaparinn er jú gamanmynd.
Varla. Hann lét þá ekki fara
mikið fyrir sér.
Þegar Ijóst varð, að öll hin
ytri umgjörð stæði engan veg-
inn undir þeim vonum, sem
við hana voru bundar, var
kvikmyndin sjálf síðasta
hálmstráið. Skyldi Skaparan-
um takast að bjarga því, sem
bjargað varð? Og svarið er:
ekki fullkomlega. Hann komst
nærri því á stundum. En stund-
um er bara ekki alltaf.
Auglýsingin í blaðinu mínu
kynnir myndina á eftirfarandi
hátt, svona í lauslegri þýðingu:
„Það er líklega ólöglegt, get-
ur verið hættulegt og er áreið-
anlega snargeggjað.“
Dr. Harry Wolper er sérvit-
ur snillingur (séní). Og með
aðstoð tryggra aðstoðarmanna
sinna er hann að því kominn
að gera merkustu uppgötvun
allra tíma. Einu ljónin í vegin-
um eru háskólinn, starfsmenn
hans, náttúrulögmálin og ná-
lægt 20 tilskipanir. En með
dálítilli heppni, gætu þaufram-
kvæmt kraftaverk."
Útfærum þetta aðeins
nánar. Dr. Harry Wolper er
prófessor í læknisfræði ein-
hvers staðar á austurströnd-
inni, og hefur fengið Nóbel-
sverðlaunin fyrir vísindaiðkan-
ir sínar. Heittelskuð eiginkona
hans lést fyrir 30 árum og allar
götur síðan hefur Harry verið
að reyna að rækta frumur úr
henni til að geta skapað hana
á nýjan leik. Ræktunartilraun-
irnar, sem hann framkvæmir í
kofaræksni í garði hjá sér, eru
langt komnar, þegar myndin
hefst.
Nú vantar doktorinn bara
aðstoðarmann og egg úr lifandi
konu. Aðstoðarmanninum
stelur hann frá öðrum prófess-
or og helsta keppinaut sínum
og óvildarmanni. Eggið fær
hann hjá ungri stúlku, sem
hann hittir af tilviljun á kaffi-
húsi. Allt er orðið klárt.
Unga stúlkan verður alveg
vitlaus í í Dr. Wolper, og áður
en yfir lýkur fara þau að
krunka saman. Aðstoðarmað-
urinn verður líka ástfanginn af
ungri og fallegri stúlku, og þar
fer allt vel að lokum þrátt fyrir
mikla tvísýnu um tíma.
Um ræktunartílraunirnar er
það að segja, að upp kemst um
strákinn Tuma. En prófessorn-
um var alveg sama. Hann hefur
fundið nýja ást og getur þess
vegna gleymt þeirri gömlu. Og
á síðustu stundu kemur krafta-
verk í veg fyrir, aðstoðarmað-
urinn verði að feta í fótspor
læriföður síns, og rækta unn-
ustu sína. Happy end.
Skaparinn er heldur brokk-
geng bfómynd, og í rauninni
frekar þunn. En frábær leikur
þeirra þremenninganna, sem
upp voru talin í byrjun þessa
pistils, gerir hana að hinni
þokkalegustu skemmtun.
Nokkrir áhorfendur klöpp-
uðu í myndarlok. Það var það
eina, sem gerði þessa læðu-
pokasýningu frábrugðna
venjulegri bíósýningu.
Guðlaugur Bergmundsson,
Houston, Texas.
■ Svona fara Kanarnir að því
að dobla mann í bíó á hæpnum
forscndum.
Prefab Sprout -
Steve McQueen
Frábær
plata
■ Fáar plötur vöktu eins mikla athygli breskra
tönlistargagnrýncnda á síðasta ári og Swoon, fyrsta
plata hljómsveitarinnar Prefab Sprout. Hljómsveit-
in var kosin bjartasta vonin í Bretlandi árið 1984 og
það var því ekki að ástæðulausu að inenn biðu
spcnntir eftir næstu plötu hljómsveitarinnar, sem
nú er komin út og heitir Steve McQueen.
Margir hafa látið í Ijósi skoðun sína á hljómsveit-
inni og nýju plötunni, ég var því dálítð spenntur
þegar ég læddi Steve McQueen undir nálina og hissa
varð ég. Lagið var Faron Young og ef það hefði
verið örlítið hrárra hefði vel verið hægt að Ijúga að
mér að þar færi New Model Army. Lagið var
þrælgott og það næsta var ekki síðra. Það var lagið
Bonny róleg einföld ballaða í ætt við Style Council.
Þar er búið að líkja Prefab Sprout við tvær mjög
ólíkar hljómsveitir og er það nokkuð lýsandi fyrir
tónlist Prefab Sprout sem bæði er sérstök og mjög
persónuleg.
Steve McQueen er poppaðri og ef eitthvað er,
léttari plata en Swoon og að mínu mati er hún betri.
Erfitt er að gera upp á milli laganna á plötunni, mín
reynsla er að lagið sem hlustað er á í það og það
skiptið sé um leið besta lag plötunnar. Flest lögin á
Steve McQueen eru róleg. í þeim býr mikill kraftur
og útsendingarnar eru mjög góðar. Hvergi er neinu
ofaukið og ekkert vantar, nema ef textablað. Paddy
McAloon semur öll lög texta hljómsveitarinnar.
Textarnir falla vel að lögunum og í þeim eru
skemmtilegar pælingar og fáir hefðu slegið hendinni
á móti textablaði, eins og reyndar var gert á Swoon.
Steve McQueen er samfelld plata og stílbrot eru
engin þó sum lögin á plötunni sé komin til ára sinna,
elsta lagið (Faron Young) er frá árinu 1978,
plötuhliðarnar eru misþungar, sú seinni krefst meiri
hlustunar, en vinnur á.
Eftir dálitla hlustun fór ég að hlakka til næstu
plötu Prefab Sprout og ekki ætti efnisskortur að
hrjá Paddy, því hann lýsti því yfir í blaðaviðtali fyrir
skömmu að hann ætti á lager efni á fimm stórar
plötur, svo við bara bíðum.
Þetta er búið að vera mikil lofræða um plötuna
enda er ekki annað hægt, hún er einfaldlega frábær
og það sem meira er, umslagið er líka stórgott.