NT


NT - 29.09.1985, Síða 9

NT - 29.09.1985, Síða 9
NT Sunnudagur 29. september Með rót í auga Það var einhverju sinni í gamla kirkjugarðin- um við Suðurgötu að eldri kona kom að máli við mig. Konan sagði farir sínar ekki sléttar og spurði hvort ég gæti ráðið fram úr vandamálum sínum. Karl faðir hennar hefði verið jarðsettur fyrir mörgum árum og lengst af verið öllum til friðs, en nú upp á síðkastið hefði hann gengið Ijósum logum á heimili dóttur sinnar og látið dólgslega. Þóttist konan þess fullviss að.eitthvað væri athugavert við gröf gamla mannsins og bað mig um að fylgja sér í stutta skoðunarferð þangað. Eftir að hafa kannað aðstæður varð ég þess fullviss að hér væri eitthvað gruggugt á seyði því að á leiðinu gat að líta verksummerki um jarðrask mikið eins og karlinn hefði bylt sér allóþyrmilega. Voru plöntur allar rifnar upp með rótum og lágu eins og hráviði umhverfis leiðið. Við nánari eftirgrennslan kom í Ijós að ofan á karlinn hafði skömmu áður verið jörðuð kona ein úr Vest- mannaeyjum sem látist hafði stuttu eftir gosið í Heimaey. Líkið hafði verið flutt til Reykjavíkur og jarðsett þar sökum þess að kirkjugarðurinn í Eyjum var fullur af vikri. Ég kom því til leiðar að kona þessi var grafin upp og jörðuð á öðrum stað. Virtist karl una vel þeim málalokum og lá kyrr um sinn. Nokkrum árum síðar var ég staddur í gamla kirkjugarðinum og kom þá sama konan til-mín aftur og sagði að nú væri gamli maðurinn kominn á kreik að nýju og léti nú verr en nokkru sinni áður. Hún bað mig sem fyrr að ganga að leiðinu með sér og athuga hvort ég sæi eitthvað sem gæti bent til þess að ró hans hefði verið raskað. Fylgdi ég konunni aftur að leiðinu en í fljótu bragði sá ég ekkert sem hefði getað orðið honum til ama. Gróður allur var í miklum blóma og leiðið vel hirt. Það eina sem mér flaug í hug var að reynitré, sem var við höfðalag gamla mannsins, hafði vaxið ótrúlega síðan ég hafði síðast haft afskipti af gröfinni og gæti hugsanlega hafa vaxið inn í kistuna og í auga hans. Eftir því sem ég hugsaði meira um þetta sannfærðist ég um að það hlyti að vera rétt skýring. Lagði ég til við konuna að hún pantaði kranabíl og hífði upp tréð með rótum af leiðinu. Þar sem konan hafði tröllatrú á ráðleggingum mínum lét hún ekki segja sér þetta tvisvar heldur pantaði stærstu gerð af kranabíl frá G.G. og var tréð fjarlægt samdægurs. Síðan hefur gamli maðurinn ekki látið á sér kræla að því er ég best veit.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.