NT - 29.09.1985, Blaðsíða 10

NT - 29.09.1985, Blaðsíða 10
10 Sunnudagur 29. september NT masfélagið ísland skráveifur viö húna hins opinbera trúöar sem glyttir í dansandi viö ærandi yfirleik mjölfiðlanna innan um uppgert drasliö sem lekur úr kölkuöum spöðum þeirra - hárréttt: vinna sambönd axlabönd skoöanir & líf í stíl við gjáandi bókakilina EINNIG: meðferð gegn hyldýpi manns ins til reiðu all(tofstutt)an sólar hrínginn nýsprautuðum steríótípunum & auðvitað líka margumgöluðu sjálf söguðu þrekhjólamennunum sem leggja út á ískældan svalann sinn á leið frá vonbrigðum draumlífsins út í hi nn vandamálalausa morgun nýja heil brigðisins; velgja sóllampanna eina hlýjan í þessari skelfilegustu mar tröð n i e t z s c h e Skáldið ísak Harðarson þekkja fáir, manninn ísak Harðarson enn færri, en konuna, köttinn og oststykkið ísak Harðarson má telja á fjöðrum annarra vængja í eigu alþjóðar og þótt víðar væri leitað með samanheft augnlok. Það er því vel við flugtak að klófesta þennan upprennandi höfund áður en hann sleppur ósnýttur útí þjóðfélagið og kanna hvort sakleysi hans sé í raun svo massíft sem hann vill vera láta. Með þetta í huga höldum við gegnum gargandi haustdaginn búnir girnileaum spurningum og rennum fyrir í kassalaga hverfi í austurborginni þar sem Isak liggur einsog sníkjudýr uppi á tengdafólki sínu ásamt konu, dóttur, læðu og mágkonu. Við þurfum að bánka einusinni áður en svarað er, og eitt andartak óttumst við að ísak hafi munað eftir komu okkar og ákveðið að vera heima. En þetta er ástæðulaus ótti; 3 dögum síðar kemur hann sjálfur til dyra, draugslegur einsog alltaf, með höfuðið á sínum stað, í smekklegu þríriti. „Ég er búinn að borga," segir hann þvoglumæltur, þegar við kynnum okkur sem Karíus og Baktus hf í leit að skjóli undan ábrestandi Nóaflóði. „Komið aftur í næsta lífi.“ ísak Harðarson er maður ekki einsamall; um vinstri afturfót hans er föst keðja úr lifandi holdi sem hlykkjast eitthvert inní myrkrið að baki honum. Baki honum? Baki-Honum?! ísak Baki-Honom?!! „ Við eigum ekkert til að gefa á tombólu!“ hrópar rödd innan úr húsinu af svo mikilli heift að gömul kona á leið um götuna breytist í maraþonhlaupadrottningu sem eygir endamarkið, og á allt þetta horfum við með endurtekningu og öllu saman. „Það er bara verið að rukka fyrir Tímann, Ófelía!" kallar ísak og lokar næstum hurðinni, en stingur höfðinu út um gættina og horfir biðjandi á okkur. „Getiði ekki gefið mér bara pínulítið meiri tíma strákar- bara diggadigg meiri, ha? Ég er valla orðinn þrítugur, hef engar skoðanir - hvaðþá mannheldar..." Andartaki síðar erum við komnir inn (loksins!) og ísak afsakar með skökku brosi, sérsmíðuðu til að fela tannleysið, að hann skuli ekki vera búinn að hella uppá könnuna, þar sem hann sé að skola úr bleium. „Eða viljiði heldur eter?“ og afturþettasmæl eins og hann hafi sagt eitthvað zmellið. Við göngum inn mjóan gang sem er enn mjórri vegna 12 píaNóa sem standa þar meðfram veggjum og leika Eðlisfræðilega séð, fyrir horn og hersveit, eftir Kukl. (sak býður okkur inní baðherbergið, loðið, mjúkt og rakt. „VanGogh er loks liðinn. Nú eru það bleiurnar," tilkynnir hann, beygir sig yfir baðkerið og hrærir í vatnsósa, áður útkomnum bókum sínum sem liggja þar í bleyti í volgu blóði.„Heiminum er svo illt í maganum, að maður verður að notast við allt," bætir hann við, afsakandi og í sama bili skellur risavaxinn karamellubúðingur á húsinu af svo miklu afli að brimar í baðkarinu, og hinn heimsfrægi bandaríski leikari Robert Redford stingur höfðinu hikandi inn um dyrnar og horfir á okkur undrandi. „l-is this The Great G-Gatsby?“ spyr hann vantrúaður, en áttar sig svo: „Sorry - wrong movie.“ - og hverfur jafn snögglega. „Þetta er alltaf að gerast," segir (sak, þtningarfullur og hrærir í baðkarinu með höfðinu. „Hvernig er þetta hjá ykkur þarna í Blaðsíðumúlanum?" Þegar við segjum honum að hjá okkur séu það vanillubúðingar og Antony Perkins í leit að The Trial, kinkar hann rauðu höfði og gerist raunsær: „Þetta er tákn tímanna. Sviðin eru að skarast og allt að smella saman. Sá dagur er í nánd þegar Leikstjórinn gægist inní öll hús heimsins samtímis og gefur nánari fyrirmæli." (sak bendir á lifandi holdkeðjuna sem föst er við afturfót hans - og nú sjáum við að hinn endi hennar liggur ofaní klósettskálina. „Er lífið ekki orðið yndislega surrealískt, þegar einu beinu tengslin - fyrir utan himininn auðvitað - við ómanngerða náttúru eru gegnum þessa rás?" spyr hann, og spurningin minnir okkur á erindi okkar: Bókmenntir! „Jájá, fsak. Jájájá - þetta vita allir. En hvað kemur Ijóðið málinu við?“ Var það þá sem hann byrjaði að kristallast? gæftir (til elfars guðna, málara á stokkseyri) og sérhvern morgun vaknar og gáir til mynda ýtir auganu út á ólgandi hafdjúp litanna og einn á báti leggur net sín fyrir fegurðina undir glóandi pensli daglegt brauð skyndilega á ég von á að þessi eldhúskollur taki á rás kóngulóarfótum eftir parketinu og beri mig afsíðis til að snæða í rólegheitum -

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.