NT - 07.11.1985, Blaðsíða 19

NT - 07.11.1985, Blaðsíða 19
 1 ’p Fimmtudagur 7. nóvember 1985 19 f þróttir íslandsmótið í handknattleik: Dagur góður í gærkvöldi Skoraði tíu mörk - Fram sigraði Þrótt 38*21 ■ Þaö fór eins og flestir bjugg- ust við.Fram sigraði Þrótt ör- ugglega í 1. deildinni í hand- knattleik í Laugardalshöl! í gær- kvöldi. Ljósataflan sýndi 38-22 er gengið var til búningsklefa og sjaldan lýgur góð tafla. Framarar tóku strax yfir- höndina og komust í 3-1. Eftir 17. mínútna leik var staðan orðin 10-5 og spurðu þá fáir að leikslokum. Framarar ógnuðu Molar ... Portúgalska stúlkan Aurora Cunha sigraði í 15 km götuhlaupi í Gates- head í Engandi um helg- ina. Hún kom í mark rétt á undan Judi St. Hiilaire frá Bandaríkjunum á tímanum 49 mín. og 17 sek.... ... Bretinn Warren Hum- preys sigraði á Opna- portúgalska golfmótinu sem lauk um helgina. Þetta var fyrsti sigur hans í móti á 14 ára ferli hans sem atvinnumaður í golfi... vel með skyttuna Dag í aðal- hlutverki. Varnir beggja liða voru hins vegar æði mistækar, sérlega Þróttaravörnin. f síðari hálfleik var það sama upp á teningnum. Framarar komust í nær helmings mun, 30-16, og virtust geta skorað að vild. Þróttarar klóruðu þó að- eins í bakkann í lokin, en of seint - lokastaðan 38-22 var ekki umflúin. Þessi leikur á sjálfsagt fljótt eftir að gleymast vegna þess að hann var lélegur. Dagur skoraði 10 mörk fyrir Fram og var góður. Egill skoraði 8(1), og Jón Árni 6. Hjá Þrótti var. Birgir bestur, rtyndar lang- bestur og skoraði heil 8 mörk. Arnór skorinn ■ Þærfréttirbárustígær- kvöldi að knattspyrnu- kappinn kunni Arnór Guðjónsen muni ganga undir skurðaðgerð n.k. föstudag. Skorið skal upp fyrir þeim þrálátu vöðva- meiðslum sem Amór hefur átt í lengi. Amór verður því alveg frá sex næstu vikur en fær sig þá vonandi endanlega góðan. Dagur er hér kominn á loft. Þetta gerði hann oft í gærkvöldi er Fram sigraði Þrótt. M -mynd Árni Bjarna. íslandsmótid í handknattleik: Brynjar í banastuði Varði frábærlega er Stjarnan sigraði Val 24*18 - Ellert var einnig góður Frá Leifi Garðarssyni fréttaritara NT: ■ Brynjar Kvaran, markvörð- Úrvalsdeildin í körfuknattleik: Vesturbæingar unnu - jaf nan og spennandi leik gegn Kef I víkingum 81 *78 ur Stjörnurnar, varði eins og berserkur á móti Val, en liðin áttust við í Kópavogi í gær- kvöldi. Stjörnumenn sigruðu með 24 mörkum gegn 18 eftir að hafa verið undir í hálfleik 10-12. ■ K.R.-ingar sigruðu Keflvík- inga með 81 stigi gegn 78 í úrvalsdeildinni í körfu í gær- kvöldi og var leikurinn þræl- skemmtilegur á að horfa, hrað- inn mikill en nokkuð mikið um óþarfa villur. Páll Kolbeinsson fór á kostum í liði K.R.-inga í fyrri hálfleikn- um, raðaði niður stigum og lagði upp góðar körfur. Staðan í hálfleik var 44-39 fyrir K.R. í síðari hálfleik hélst hraðinn og spennan jókst. En K.R. stóð uppi sem sigurvegari í lok leiks og fékk því stigin dýrmætu. Keflvíkingar eiga þó hrós skilið fyrir ágæta frammistöðu en sárt hlýtur það að vera að tapa svo naumlega fyrir Reykjavíkurlið- unum Val og K.R. með stuttu millibili. Páll (17) var bestur K.R.-inga en Garðar og Birgir stóðu sig einnig vel, sérlega í síðari hálf- leik. Báðir voru með 16 stig. Hreinn og Sigurður Ingimund- arson voru góðir í fyrri hálfleik hjá Keflavík en Jón Kr. og Olafur tóku við hlutverkum þeirra í þeim síðari. Jón Kr. skoraði20stig ogSigurður 18. Stavanger tapaði Frá Magnúsi Magnússyni fréttaritara NT í Noregi: ■ Stavanger, liðið sem Helgi Ragnarsson þjálfar, tapaði sínum fyrsta leik í norska handboltanum í gærkvöldi. Liðið lá fyrir Urædd 23-22. Það var Jak- ob Jónsson sem skoraði mest fyrir Stavanger, 6 mörk alls. Markvörður Vals, Ellert Vigtús- son var einnig í góðu formi í marki Vals og var besti maður síns liðs. Stjarnan var aðgangsharðari til að byrja með og komst í 10-6. En Valsmenn skoruðu næstu sex mörkin og voru þó yfir er gengið var til hlés. 1 síðari hálfleik héldu Valsarar upp- teknum hætti en tvö mörk Sig- urjóns Guðmundssonar og víti varið af Brynjari voru vendi- punkturinn í leiknum og Stjarn- an sigldi framúr og alla leið í höfn. Mörk: Hannes skoraði 8(6) mörk fyrir Stjörnuna en Jakob var hæstur Valsmanna með 6 mörk. íslandsmótið í handknattleik 1. deild: Hrun hjá KR - skoruðu aðeins fjögur mörk í seinni hálfleik Evrópukeppnirnar í knattspyrnu: Nær Robson 50 ■ Fyrirliði enska lands- liðsins í knattspyrnu Bryan Robson gæti leikiö sinn 50. landsleik í næstu viku er enska liðið mætir N-írum á Wembley. Hvort Robson leikur er þó komið undir bata hans en kappinn reif vöðva í læri í síðasta landsleik Englend- inga, 5-0 sigrinum gegn Tyrkjum. Ef Robson nær sér ekki er líklegt að Paul Bracew- ell, miðjuleikmaður Ever- ton, komi inn í 22 manna hópinn sem tilkynntur var á mánudaginn. Olíklegt er að Bobby Robson, lands- liðseinvaldur, geti prófað mikið af nýjum leikmönn- um því þótt úrslitin skipti engu máli fyrir Englend- inga þurfa N-írar stig til að tryggja sér sæti í úrslitum heimsmeistaramótsins. Er því líklegt að Alþjóða- knattspyrnusambandið (FIFA) kreljist þess að Englendingar mæti með sitt sterkasta lið í leikinn. Juve lét auð stæði - ekki hafa áhrif á sig og sigraði Verona 2*0 Valsbanarnir Nantes sigruðu sannfærandi ■ Juventus bar sigur úr býtum gegn nágrönnum sínum Veróna og er nú komið í átta liða úrslit Evrópukeppni meistaraUða. Leikurinn endaði 2-0 fyrir heimamenn en spilað var á auð- um Stadio Communale-refsing sem Uðið fékk fyrir þátt sinn í harmleiknum í Brússel í vor. Michel Platini skoraði fyrsta mark Juve úr vítaspyrnu sem þótti frekar vafasöm. Það var svo Aldo Serena sem innsiglaði sigur Evrópumeistaranna. Gautaborg fylgir Juventus í átta liða úrslitin. Liðið lá að vísu fyrir tyrkneska félaginu Fenerbache 2-1 en hafði sigrað heima í Svíþjóð 4-0. Það var Larsson sem skoraði útimarkið mikilvæga. Annað skandi- navískt lið fylgir Gautaborg eftir. Það er finnska liðið Lahti sem sló sovésku meistarana Zenith út nokkuð óvænt. Þá sigraði Anderlecht lið Omonia frá Kýpur 1-3 og er komið áfram. Per Fríman skoraði tvö mörk og Georges Grun eitt fyrir belgíska liðið. Júgóslavenska liðið Hajduk Split sló Tóríno frá Ítalíu út í UEFA keppninni. Brassinn Júnior skoraði úr víti fyrir ítalska stórliðið en þrjú mörk frískra Júgga gerðu draum Tór- inó um áframhald að engu. Real Madrid hélt jöfnu gegn Odessa en leikið var við strönd Svartahafsins. Madríd er því komið áfram en leikurinn gegn sovéska liðinu kostaði þá þó þrjú spjöld. Öðru sovésku liði gekk betur. Það er Dnepro- petrovsk sem sigraði PSV Eind- hoven 1-0 og er komið áfram. Paul Heggarty skoraði jöfn- unarmark Dundee gegn Varrd- ar Skopje í Júgóslavíu og skoska liðið er því komið áfram. Burr- uchaga, Amisse (2) og Bracig- liano skoruðu mörk Nantes í öruggum 4-0 heimasigri gegn Belgrade. ■ Frábær markvarsla Krist- jáns Sigmundssonar í síðari hálfleik ásamt mjög góðri vörn skóp stóran sigur Víkinga á KR í Laugardalshöll í gær. Kristján varði 14 skot og tvö víti en megnið af þessu varði hann í síðari hálfleik en Víkingarsnéru stöðunni 9-11 fyrir KR í hléi sér í vil. Lokatölur urðu síðan 27-15 fyrir Víkinga. Jóhannes Stefánsson átti góð- an leik í fyrri hálfleik fyrir KR og hann var maðurinn á bak við stöðuna 11-9 fyrir KR í hlé. Víkingar gerðu sig seka um mörg mistök bæði í sókn og vörn. í seinni hálfleik lokaðist vörn- Víkinga algjörlega og KR átti ekkert svar við þessu. Staðan breyttist mjög fljótt og í allri hringavitleysunni í lokin skor- uðu Víkingar grimmt. Lokatöl- 27-15 segja allt. Jóhannes ur skoraði 6 fyrir KR en Guð- mundur Guðm. (7), Páll (6) og Guðm. Albertsson (5) voru at- kvæðámestir Víkinga. Alfreð f rábær Frá Guðmundi Karlssyni frcttarítara NT í Þýskalandi: ■ Kiel og Essen gerðu jafntefli 17-17 í handboltanum hér í Þýskalandi í gærkvöldi. Alfreð Gíslason var frábær í leiknum sem var skemmtilegur á að horfa. í fyrri hálfleik gerði þó Alfreð aðeins eitt mark og ætlaði þjálf- ari Essen, Ivanescou, ekki að setja hann inn á í síðari hálf- leiknum. En þegar illa fór að ganga gegn liði Jóhanns Inga sagði Alfreð: „Gefðu mér séns, ég finn að ég er í stuði". Og það var eins og við manninn mælt. Alfreð gerði næstu sex mörk og náði með þessu frábæra ein- staklingsframtaki að jafna leik- inn. Alfreð var að vonum hress eftir viðureignina því það þykir jafnan gott að sækja stig til Kiel. Þá sigruðu Atli Hilmarsson og félagar hans í Gúnsburg lið Dússeldorf 22-13. Evrópukeppnirnar í knattspyrnu: EVRÓPUKEPPNI MEISTARALIÐA: Omonia Nicosia, Kýpur-Anderlecht, Belgíu 1-4 (1-4) Austria Vin-Bayern Múnchen, V-Þýskal 3-3 (5-7) Steaua Búkarest, Rúmeniu-Honved, Ungverjalandi 4-1 (4-2) Fenerbahce, Tyrkl.-Gautaborg, Sviþjóö 2-1 (2-5) Juventus, Ítalíu-Verona, ítaliu 2-0 (2-0) Lahti, Finnlandi-Zenith, Sovétr 3-1 (4-3) Aberdeen, Skotlandi-Servette, Sviss 1-0 (1-0) EVRÓPUKEPPNI BIKARHAFA: AIK, Svíþjóð-Dukla Prag, Tókkós 2-2 (2-3) Sampdoria, Ítalíu-Benfica, Portugal 1-0 (1-2) Fram, Íslandi-Rapid Vín, Austurríki 2-1 (2-4) Dynamo Kiev, Sovétr.-Craiova, Rúmeníu 3-0(5-21 At. Madrid, Spóni-Bangor, Wales 1-0 (3-0) Dinamo Dresden, A-Þýskal.-Helsinki, Finnlandi 7-2 (7-3) UEFA-KEPPNIN: Dnepropetrovsk, Sovótr.-PSV, Hoilandi 1-0 (3-2) At. Osasuna, Spáni-Waregem, Belgíu 2-1 (2-3) Lok Leipzig-AC Mílanó, Ítalíu 3-1 (3-3) Nantes, Frakklandi-Partizan Belgrad, Júgósl 4-0 (5-1) Inter, Ítalíu-Linz, Austurríki 4-0 (4-1) Bohemians Prag, Tékkó-Köln, V-Þýskal 2-4 (2-8) Vardar Skopje, Júgósl.-Dundee Utd, Skotlandi 1-1 (1-3) Brugge, Belgíu-Spartak Moskva, Sovót 1-3 (1-4) Odessa, Sovétr.-Real Madrid, Spáni 0-0 (1-2) Legia Varsjá, Póllandi-Videoton, Ungverjal 1-1 (2-1) St. Mirren, Skotlandi-Hammarby, Svíþjóð 1-2 (4-5) „Gladbach", V-Þýskal.-Spaita, Hollandi 5-1 (6-2) Neutchatel Xamax, Sviss-Lok Sofía, Búlgaríu 0-0 (1-1) At. Bilbao-Liege, Belgíu '3-1 (4-1) Hajduk Split, Júgósl-Tóríno, ítaliu 3-1 (4-2)

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.