NT


NT - 07.11.1985, Side 24

NT - 07.11.1985, Side 24
Við tökum við ábendingum um fréttir allan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leið ir til fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Sídumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvðldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495 " Unga fólkið sparar: Um 20% útborgunar greidd með sparifé Þeir sem kaupa íbúö í fyrsta sinn eiga aö meðaltali um 20% útborgunarinnar í eigin fé, þ.e. sparifé, skyldu- sparnaði og bíl. Þeir sem keypt hafa áöur treysta nær eingöngu á lán til að fjár- magna mismun kaupverðs og söluverðs fyrri eignar. Þetta kemur m.a. fram í könnun sem gerð var í ll() manna úrtaki meðal íbúðarkaup- enda á höfuðborgarsvæðinu 1984, af félagsvísindadeild H.í. íbúðakaupendur grcinast í 2 afmarkaða hópa, þriðj- ungurinn sem var að kaupa fyrstu íbúðina og 2/3 sem var að kaupa sína 2. til 7. íbúð. Af þeim var nærri helmingur- inn að minnka viö sig hús- næði, enda kvaðst aðeins um 8. hver vera að kaupa vegna plássleysis. Hjá þessum síðartalda hóp dugði útborg- Strokufangi: Finnst ekki ■ Strokufangi scm strauk af Litla-Hrauni fyrir tæpri viku leikur enn lausum hala. Maðurinn mun vera þekktur fyrir klókindi að sögn fanga- varða. Hjá lögreglunni í Reykjavík fengust þær upplýs- ingar að maöurinn sé ekki hættulegur, og hafa borist fréttir af honum. þannig að einungis mun vera tímaspursmál hvcnær hann næst. Fanginn mun eiga óafplánað um tvö ár af refsitíma sínum. Skák: Helgi eða Agdestein - næsti Norður- landameistari? ■ Þaö hvílir nú á herðum Jóhanns Hjartarsonar aö gera Helga Ólafsson að Norður- landameistara í skák. en þaö mun ráðast af úrslitum skákar Jóhanns og Norömannsins Simonar Agdestein í dag hvort Helgi hlýtur titilinn. Helgi og Agdestein gerðu jafntelli í gær og er nú aðeins ein skák eftir ótefld í þessu þriggja manna einvígi um titil- inn 'eftirsótta, Fyrir þessa skák er Helgi efstur í mótinu meö 3 vinninga. Agdestein næstur meö 2 en Jóhann hefur enga skák unniö. Vinni Agdestein Jóhann verða þeir Helgi efstir með 3 vinninga hvor, en þá mun Agdestein hljóta titilinn sam- kvæmt ákvörðun norræna skáksambandsins á þá leið að láta Sonneborn-Berger stiga- tölu úr Norðurlandamótinu ráða úrslitum. Vinni Jóhann eða nái jafntefli tryggir hann Hclga titilinn. unin í fyrri íbúð upp í 78% útborgunarinnar í þeirri síð- ari að meöaltali, en mismun- urinn lang mest fjármagnað- ur með margskonar lánum. Hjá kaupendum l. íbúðar var um helmingur útborgun- arinnar fjármagnaður með lífeyrissjóðs- og G-lánum. Það sem á vantaði (31 %) kom vtða aö, frá ættingjum, bankalán og aukinni vinnu auk þess sem fjármögnun ll% útborgunarinnar var ennþá óviss þegar langt var liðið á útborgunartímabilið. Flestir kaupendur - úr báðum hópunum - töldu að lækkun útborgunar ntundi koma sér best, en næst mest áhersla er lögð á vaxtalækk- un. Fyrstu kaupendur lcggja auk þess áherslu á hækkun húsnæðislána. Þá lögðu 2/3 áherslu á opinbera ráðgjof í húsnæðismálum. Verkafólk gerist hlut- hafar í útgerðarfélagi - Hlutafélag stofnað til að kaupa Kolbeinsey aftur til Húsavíkur ■ Fiskverkunarfólk í Fisk- iðjusamlaginu á Húsavík hefur ákveðið að verja afturvirkum bónusgreiðslum, sem samið var um í síðustu bónussamningum, til hlutafjárkaupa í hlutafélagi, sem stofnað verður á morgun, til endurkaupa á togaranum Kolbeinsey, sem Fiskveiðasjóð- ur keypti nýlega á uppboði á Húsavík. Alls mun hlutaféð sem fisk- verkunarfólkið lcggur til nema um 400.000 krónum og taka 100 manns þátt í því, þannig að meðaltali leggur hver einstakl- ingur fram um 4.000 krónur. Fréttaritari NT á Húsavík ræddi við verkafólk í Fiskiðju- samlaginu og tjá orð aldinnar verkakonu best hug fólksins á staðnum „Bjartsýni er það sem viö skulum halda í sem lengst varðandi þetta má!,“ Auk verkafólksins rnun Fisk- iðjusamlagið, Kaupfélag Þing- eyinga, Verkalýðsfélögin og Húsavíkurkaupstaður taka þátt í hlutafélaginu, auk þess sem vonast er til að sem flestir einstaklingar í bænum gerist þátttakendur í hlutafélaginu. Tryggvi Finnsson, forstjóri Fiskiðjusamlagsins á Húsavík. sagði við NT í gær að ætlunin væri að byrja með 30 milljónir í hlutafé. Sagði hann að það væri nauðsynlegt fyrir kaupstaðinn ■ í þessu húsi Hafnarstræti 20 rekur Hermann Björgvinsson fyrirtæki sitt, Verðbréfamarkaðinn. Hann situr nú gæsluvarðhaldi fram til 20,nóvember, vegna gruns um okurlánastarfsemi. NT mvnd Róbcrt. Okurlánamálið: Bankastarfsmaður og stór-fyrirtæki - meðal þeirra sem áttu fé hjá meintum okurlánara ■ Háttsettur bankastarfsmað- ur og matvælafyrirtæki, sem verslar mikið við bændur, munu samkvæmt heimildum sem NT telur vera áreiðanlegar, vera flækt í okurlánamálið sem upp kom um síðustu helgi. Banka- starfsmaðurinn er háttsettur hjá einum af ríkisbönkunum í sjáv- arplássi úti á landi. Matvæla- fyrirtækið er hinsvegar í mið- borg Reykjavíkur. Af þessu er Ijóst að þetta umfangsmikla mál teygir anga sína jafnvel um allt land. Ekki er þó vitað til þess að erlendir aðilar hafi lagt til fjár- magn við starfsemi þessa. Þrátt fyrir mörg lán, sem Hermann Björgvinsson ergrun- aður um, að hafa veitt með háum vöxtum hefur einungis ein kæra borist til rannsóknar- lögreglu. Þórir Oddsson vararannsókn- arlögreglustjóri svaraði spurn- ingu um fleiri kærur vegna ok- að hafa togara af svipaðri stærð og Kolbeinsey, til að landa afla í Fiskiðjusamlagið og er vonast til að stjórnvöld standi við þá viljayfirlýsingu sína að togarar sem Fiskveiðasjóður kaupir á uppboðum fari aftur í heima- höfn, æski menn þess. Sagði Tryggvi að á lánsfjárlögum væri ákveðin upphæð, sem ætti að verja til þess. Kolbeinsey var slegin Fisk- veiðasjóði á 176 milljónir en hvort það yrði kaupverðið sagði Tryggvi að væri ómögulegt að segja til um á þessu stigi málsins. Sagði hann að Húsvíkingar hefðu verið í stöðugum viðræð- um við Fiskveiðasjóð að undan- förnu, en ekkert ákveðið komið út úr þeim viðræðum enn. Létu fyrirberast í flutningabíl á Mýrdalssandi „Aldrei sofið betur á ævinni“ - sagði flutningabílstjórinn Runólfur Runólfsson frá Vík ■ „Aldrei sofið betur á æv- inni,“ sagði Runólfur Runólfs- son flutningabílstjóri hjá fyrir- tækinu Nýlandi í Vík. Runólfur og bróðir hans Sæmundur urðu að láta fyrirberast í flutninga- bílnum aðfaranótt miðviku- dagsins, vegna stórhríðar sem skall á þá félaga á Mýrdalssandi í fyrrakvöld. Ekki væsti um þá í bílnurn að sögn Runólfs. Bíllinn gekk alla nóttina og voru þeir vel búoir, með mat og vel klæddir. „Það sást til okkar um eitt- leytið í gær, þegar við vorum að brjótast niður að bænum Herj- ólfsstöðum. Þá komu þeir frá bæ úr nágrenninu með olíu handa mér, enda var bíllinn að verða olíulaus. Við vorum síðan komnir heim að bænum klukk- an hálf fjögur,“ sagði Runólfur. Þar var þeim tekið með opnum örmum og allar móttökur voru til fyrirmyndar eins og hann orðaði það. í bifreiðinni, sem er tíu hjóla vöruflutningabifreið, ereinung- is FR talstöð og náðist ekki til neins með henni. „Við héldum kyrru fyrir í bílnum. enda var snældubrjálað veður alla nótt- ina. Það fór ekki að draga úr veðrinu fyrr en um sjöleytið í morgun," sagði Runólfur. Þeir voru að koma frá Stöðv- arfirði áleiðis til Víkur. „Við vorum komnir á Klaustur um tíu leytið um kvöldið og héldum að þetta myndi sleppa. Það var síðan um tvö leytið um nóttina sem við stöðvuðumst við Skálm, þá var útsýni sama og ekkert og hár skafl framan við bílinn og við næstum komnir út af.“ Run- ólfur var ekki á því að nú yrðu rólegheit næstu daga. „Ég fer suður um leið og verður opnað.“ Það er ekki víst að Runólfur komist suður, fyrr en líður undir helgi. Mikinn snjó hefur sett niður í grennd við Vík í Mýrdal, og var þungfært á götum þar í gær. Björgunarsveitarmenn hjálpuðu fólki til að komast til vinnu sinnar um morguninn, þar sem ófært var um götur í Vík. Símon Gunnarsson starfs- maður hjá Kaupfélaginu í Vík vildi ekki gera mikið úr þessu. Hann sagði: „Þaðeralltafhress- andi að koma út í svona veður ef maður þarf ekki að vera !engi.“ urlánastarfsemi neitandi, en benti jafnframt á að öruggt væri að fleiri hefðu fengið lán hjá Hermanni, en sá sem kærði. Lítið var um yfirheyrslur hjá embættinu í gær, þar sem rann- sókn málsins beinist enn að gagnasöfnun. Þósegja heimildir NT að þeir aðilar sem nefndir eru að ofan hafi heimsótt Auð- brekkuna í Kópavogi í gær, þar sem RLR er til húsa. Beðið um skýrslur - bæði í Flugráði og á Alþingi vegna tafar við brottför Shevardnadze ■ Flugráð hefur krafist nán- ari skýringar á flugi bandarísku orrustuflugvélanna við brott- för utanríkisráðherra Sovét- ríkjanna í lok síðasta mánað- ar. Sættir það sig ekki við skýrslu Flugmálastjórnar, sem utanríkisráðherra hefur vitnað til þegar hann hefur tjáð sig um málið. Það voru þeir Páll Pétursson og Skúli Alexand- ersson sem óskuðu þess að þetta mál yrði upplýst. Listflug Bandaríkjamanna hefur einnig orðið til þess að þingmenn allra flokka nema Sjálfstæðisflokksins hafa beðið um skýrslu vegna þessa atburð- ar. Var utanríkisráðherra beð- inn að gefa þessa skýrslu og jafnframt farið fram á að um- ræða um skýrsluna fari fram strax og skýrslan hefur verið lögð fram.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.