NT - 24.11.1985, Blaðsíða 13

NT - 24.11.1985, Blaðsíða 13
14 Sunnudagur 24. september NT ^®3s& EIN*R I BETEU‘ ■ Ég eignaðist fyrstu kindina mína átta ára gamall. Sumarið 1931 varég í sveit hjá Ólafi Þorsteinssyni í Álfhólahjáleigu i Vestur-Landeyjum. Lofaði hann mér lambi eftir sumar- dvölina og mátti ég velja það úr réttinni. Mér var valið auðvelt og valdi ég svarhálsótt gimbrarlamb hyrnt, sem ég kallaði Hálsu. Um haustið var lambið sent til Eyja og fóðrað með kúnum á Arnarhóli um veturinn. Gemsanum var svo sleppt um vorið í Ystaklett þar sem hann gekk allt sumarið. Þegar féð var sótt að hausti skilaði Hálsa sér og var metfé, velbyggð, falleg og mikið ærefni. Ég var sannarlega stoltur af kindinni minni. Til allrar óhamingju kom eldri maður, sem fór að dást að Hálsu og kvað upp þann úrskurð að hún yrði aldrei fallegri. Án þess að eignarréttur min væri virtur, var Hálsa skorin og nýtt til heimilisins. Ég átti bágt með að komast yfir þetta og ásakaði pabba og Loft í Uppsölum, sem skaut kind- ina. Ég minnist þess varla að hafa grátið sárari tárum um ævina, en vegna þessarar kindar. Börn eiga sinn rétt og þau eiga erfitt með að sætta sig við að á honum sé troðiö. Því ættu foreldrar og systkini aö muna eftir. Mörg ár liðu þar til ég eignaðist aftur kindur. Árið 1953 keypti ég þrjár ær af Þórði Stefánssyni í Haga. Ég bjó þá í Betel og fékk að hafa kindurnar í kofa á lóðinni hjá Óskari bróður. Mér þótti skemmtilegt að sinna kindunum, þess utan gáfu þær af sér til heimilisins. Mikið bras og fyrirhöfn fylgir því að eiga kindur í Vestmannaeyjum. Þar á ég bæði við smölun á heimalandinu (Heimaey) og í úteyjum. Hafa oft hlotist mannskaðar af. Fara varð því með allri gát. Ofurkapp var lagt á að sinna þessu helst um helgar. Mér var meinilla við það. Ég vildi heldur láta veðrið ráða og fara aðeins í góðu veðri. Enda var ekki farandi í úteyjar nema veður væri sjólaust og þurrt. Stundum gafst ekki leiði svo vikum skipti. Þetta gat skapað vandræði á haustin, vegna sláturkinda sem þurftu að komast í land í september. Ég átti kindur ásamt fleirum í Bjarnarey. Haustið 1956 var mjög erfitt með leiði. Sífelldar háfáttir og kvikur sjór hindruðu ferðir. Kosið var til bæjarstjórnar 26. október þetta haust. Þá loks var reynt að fara í Bjarnarey. Helgi Benediktsson lánaði okkur bát sinn „Mugg“ til fararinnar, skjögtbát áttum við sjálfir. Ég hafði róið á vetrarvertíð meö Óskari bróðir á „Mugg“ og þekkti því vel þettagóða skip, sem smíðað var af Gunnari Marel Jónssyni. Vélin var mér þæg og auðveld, skiptiskrúfa var á bátnum en nú hafði eitthvað bilað í tengslum (kúplingu) svo skrúfan snerist alltaf meö. Það kom ekki að sök ef hún var stillt á hlutlausan skurð. Þaö óhapp vildi til eftir að við komum út í Bjarnarey um morguninn að Stefán Jónsson frá Sléttabóli los- aði skjögtbátinn aftan úr „Mugg“ og batt hann við framvantinn. Þetta varð til þess að báturinn lenti beint undir kælivatnsbununni og fyllti á skammri stundu. Hékk báturinn sokkinn í kollu- bandinu beint undir framvantinum. Þeir Guðmann Guðmannsson skip- stjóri frá Brekkhúsi og Stefán frá Sléttabóli fóru því aftur í land á „Mugg“ og komu skjögtrbátslausir til baka. Eftir að mannskapur var kominn upp í eyju var byrjað að setja upp rétt. Að því loknu var öllu fé smalað. Síðan þurfti að handlanga féð úr réttinni, niður Hafnarbrekkuna og um borð í bátinn. Þetta gekk vel með mörgu fólki. Þar eð skjögtbátsins naut ekki lengur við var ekki um annað að ræða en að leggja „Mugg“ að steðj- anum í eynni. Við höfðum oft gert það á öðrum bátum. Góð nælontóg héldu bátnum föstum við eyna og fríholt voru til hlífðar. Þegar dráttur var rétt hálfnaður urðu fallaskipti og sjór kolófær um leið. Höfnin í Bjarnarey varð eins og suðupottur. Fyrsta aldan, sem kom inn með berginu, sleit bátinn frá að framan og springinn sömuleiðis. Hékk báturinn við eyna á afturband- inu einu saman. Hann snerist frá að framan, skrúfan lenti í klettunum og vélin snarstoppar. Um borð voru áttatíu kindur, Guðmann skipstjóri og nokkrir krakkar. Útlitið var allt annað en glæsilegt, stórgrýtisfjaran nokkra faðma undan og báturinn vélarvana. Allir um borð, jafnt menn og skepnur, í bráðum lifsháska. Nú þurfti skjótra viðbragða við. Ég hljóp úr stöðu minni í handlangara- röðinni og niður á steðjann. Þaðan hoppaði ég í bátinn og náði taki á lunningunni. Svipti mér um borð og segi um leið við Guðmann: „Setjum vélina í gangl" Við þekktumst vel og kunnum til verka. Til að ræsa vélina var notuð svonefnd sígarettukveiking, viðgerð- um klárt á augabrajgði og settum vélina í ræsistöðu. Eg spurði Guð- mann hvort hann vildi skjóta þrýsti- loftinu, eða vera á dælunum. Hann vildi heldur skjóta. Guði sé lof, þetta tókst. Tveggja strokka June-Munktellinn fór í gang með öll sín hundrað og fjörutíu hestöfl. Við Guðmann flýttum okkur upp. Höggið, sem kom á skrúfuna, hafði slegið skrúfublöðin í þá stöðu að báturinn fór á fulla ferð áfram. Ef þau hefðu snúist á hinn veginn, þá hefði verið úti um okkur. Ég var með beittan hníf á mér og sannaðist það að líflaus er hníflaus maður. Skar ég á afturbandið. Um leið kom alda, sem beindi bátnum frá berginu og settum við á fulla ferð beint á haf út. Fólkinu, sem í eynni var, létti og fór það niður Hvannhillu þar sem við tókum það um borð. Við sluppum með skrekkinn og allt hafði þetta góðan endi fyrir Guðs náð. Guðmann, sem hafði róið um fjölda ára og margan hildi háð við Ægi, taldi þetta það svartasta sem hann hefði komist i. Var hann þó vélstjóri um borð í „Skíðblaðni" þegar bátinn var að reka upp i Faxasker. Þá korn þar að Sighvatur Bjarnason á „Erlingi ll“ og bjargaði bát og skipshöfn úr bráðri hættu. Ég var staddur í dráttarbrautinni þegar „Muggur" var tekinn á þurrt til botnhreinsunar nokkru síðar. Utgerð- arstjórinn taldi allt í lagi, nema hvað hleraskrap væri við forgálgann. En hið sanna var að það voru hrúðurkar- larnir í Bjarnarey, sem struku bóginn á bátnum. Ég ætla að segja frá annarri ferð í Bjarnarey, þar sem skammt skildi á milli lífs og dauða. Við fórum að vorlagi og var ekki leiði i höfninni svo við fórum upp Hvannhillu. Það rigndi svolítið og þurfti því að sýna aðgæslu vegna hálku í vætunni. Höfðum við stuðning af bandi á leiðinni upp og niður hilluna. Valdimar Trandberg var búinn að leggja bát sínum að steðjanum og við vorum á niðurleið. Tekur þá Hallberg heitinn Björnsson sig út úr hópnum, sleppir bandinu og ætlar að hlaupa um borð í bátinn. Missir hann fótanna í hálkunni, nær aftur jafnvægi og hleypur í hendingskasti beint fram af brúninni. Það var mildi að hann sló ekki höfðinu við brúnina í fallinu. Hallberg lenti úti i sjó, fór á bólakaf og var lengi að koma upp aftur. Þegar hann kom loksins aftur úr kafinu var stutt i hann og auðvelt að innbyrða. Þarna munaði ákaflega mjóu og fékk Hallberg að heyra það óþvegið frá okkur, að framar kæmi hann ekki með upp á svona aðfarir. Við vildum ekki flytja með okkur lík í land. í byrjun ágúst var ávalt farið til að bólusetja lömbin. Þa tóku menn oft fyrstu kindur til slátrunar, geldar ær eða hrúta. Hentaði mörgum vel að fá nýmeti í soðið fyrir þjóðhátíðina. Meðal þeirra, sem áttu fé í Bjarnar- ey, voru gamlir þróttmiklir skipstjorar. Nefni ég þar Guðjón Jónsson á Heiði og Þórð Stefánsson í Haga. Þeir voru báðir góðir liðsmenn, aldrei úrtölu- menn og stóðu vel fyrir sínu. Átti ég kindaviðskipti við þá báða og fór það allt vel. Nú var farið í vikunni fyrir þjóðhátíð í Bjarnarey og smalað. Þegar féð var komið í rétt tekur Þórður sig til og krefst þess að sín lömb verði bólusett fyrst. Hann vildi spara þeim hnjask og troðning. Gengu lömbin hans þrettán fyrir öðrum og voru bólusett. Setti hann lömbin og ærnar jafnóðum út fyrir réttina og var allt hans fé komið í haga á innan við tuttugu mínútum. Svo var haldið áfram við bólusetning- una og henni lokið. Við fórum heim með nokkrar sláturkindur, tók ég veturgamla á sem var góður skurður. Næst þegar farið var i Bjarnarey fundust nokkur dauð lömb og voru þau öll með marki Þórðar. Um haustið heimti hann aðeins tvö lömb af þrettán. Vitanlega var Þórður hnugg- inn yfir þessu, en engin skýring þótti augljós. NT Sunnudagur 24. september 1 7 Leiðréí m§s Menn gátu sér þess til að gamalt bóluefni hefði drepið lömbin. Vana- lega gengu af tíu til tólf skammtar á ári. Þótti sjálfsagt að nýta þetta. Vegna kröfu Þórðar um að verða fyrstur hafa lömbin hans veriö spraut- að með gamla bóluefninu. Sannaðist hér hið fornkveðna að „hinir fyrstu verða síðastir". Kindamörk í Eyjum voru flest ættuð undan Eyjafjöllum og oft frá æsku- heimili viðkomandi fjáreiganda. Árið 1958 var gefin út markaskrá í Eyjum og var það hin önnur á þessari öld. Sáum við um útgáfuna Elías Bergur Guðjónsson, Guðjón Jónsson í Döl- um og ég. Höfðum við reytur af gömlu skránni, sem Helgi Benónýsson af- henti mér. Helgi var glöggur maður. Sagöi hann mér þá sögn úr Borgar- firði að fjármark Snorra Sturlusonar hafi verið sýlt hægra og stýft vinstra. Fallegt mark við hæfi hins merka manns. Þegar nýja skráin kom út var mörk- um úthlutaö eftir þörfum. Pabbi helg- aði sér gamalt ættarmark frá Teigi í Fljótshlíð og síðar Arnarhóli í Land- eyjum. Það var tvírifað í sneitt aftan bæði. Ég aftók að nota þetta mark, mér þótti það alltof mikil særing og blóðgun. Helgi Benónýsson hafði úthlutað mér markinu sýlt hægra og Guðna syni mínum sýlt hægra og heilrifað vinstra. Við notuðum þau mörk á kindurnar. Menn höfðu misjafna trú á mörkum. Staðreyndin var sú að sumir misstu litið sem ekkert fé, en aðrir meira og minna ár eftir ár. Þurfti ekki alltaf hættu af björgum eða hömrum til að fé týndist. Stundum týndist fé af mannavöldum eða fyrir misskilning. Jón Nikulásson á Kirkjubæ átti kindur í mörg ár. Þeirra á meðal var ein ær sem ávallt skilaði tveim hrút- lömbum að hausti. Jón langaði mikið til að eignast ærefni undan þessari kind og eftir margra ára bið fæddist gimbur. Var gimbrin sett á og þótti mjög falleg skepna. Að hausti var smalað og kom þessi eftirlætiskind Jóns í rétt, en þegartil átti að taka var hún horfin. Éngu líkara en jörðin hefði gleypt hana. Nokkrar kindur urðu eftir í réttinni og var þeim sleppt, biðu þær síðustu smölunar. Eftir síðustu smölun var glöggum i en ekifi , T b’Hngar aa • v,ðtal tii , /'W/ hluti b^'nS Var birtur bí kHarkaflans ^igarblaöid birtir heild’ umeiö af,ann i °9 aörir hutS9Ei"ar aru beönir ‘f abei9andi þessui^lZiaré Rifstjóri og heiðarlegum fjármanni dregin kind, sem var með marki hans en hann kannaðist ekkert viö. Hann sagði að þessari kind hefði veriö slátrað eftir síðustu smölun, og væri hún tæplega hér afturgengin. Var nú farið að athuga ósviðinn haus dauðu kindarinnar og kom í Ijós að hann var af uppáhaldskind Jóns á Kirkjubæ. Varð Jón mjög sáryfir þessu. Honum voru boðnar ríflegar bætur, en hann taldi kindina óbætanlega og var treg- ur til að þiggja bæturnar. Einu sinni kom Jón Sigurðsson frændi minn í heimsókn til kunningja síns að haustlagi. Húsmóðirin vísaði Jóni niður í kjallara, því húsbóndinn væri eitthvað að bauka þar. Þegar Jón kom í kjallarann var húsbóndi að gera til kind, en átti þó engar kindur sjálfur. Honum varð hverft við komu Jóns en Jón gerði ekkert úr þessu og féll það í gleymskunnar dá. Þegar pabbi stóð á áttræðu hætti hann störfum hjá Vestmannaeyjabæ á gamlársdag. Hann hafði þá óskerta líkams og sálarkrafta. Það varð úr að ég keypti nokkrar kindur til viðbótar fjárstofni mínum og fullnýttum við tún pabba og skepnuhús. Ég var hættur aö hafa kindur i Bjarnarey og hafði flutt mig á Fjallið, en svo kallast Dalfjall, Háin og Klifið á Heimaey einu nafni. Guðjón Valdason var köllunarmaöur og leigjandi Fjallsins, aðrir í kompaníinu voru Sigurður Kristjánsson frá Löndum, Bjarni dýra- læknir Bjarnason í Breiðholti, Birgir Sigurjónsson á Sólheimum, Jón Gunnlaugsson á Gjábakka, Bogi Matthíasson og Skúli Theodórsson. Þetta var góður félagsskapur og skemmtilegur. Eitt sinn var verið að reka fé í rétt. Þar var grá ær frá Guðjóni Valdasyni, sem kölluð var Stina. Hún reyndi alltaf að smeygja sér úr safninu og þurfti að hafa gott auga með Stínu. Reyndi hún nokkr- um sinnum að komast fram hjá okkur Sigga á Löndum. Siggi var svekktur yfir þessu og kallar til Guðjóns: „ Hvert sækir hún Stina þetta?“ Guðjón svar- aði í mestu einlægni: „Það veit ég ekki. Hún sækir það alls ekki til mín“. Ég átti nokkurn þátt í upphafinu á kindabúskap Skúla Theodórssonar. Það var eftir mikið rok að ég gekk meö drengjunum mínum inn í Her- jólfsdal. Þegar við erum undir Fisk- hellum, austan megin í dalnum, heyr- um við kindajarm. Viö fórum að gá og sáum kind standa á mjórri syllu í miðju bjarginu. Dautt lamb lá í brekk- unni fyrir neöan þverhnípið. Við skild- um að þarna hafði rokið feykt kindun- um fram af brúnni og annaö lambið lent á syllunni, en hitt farið alla leið nlður í dalinn. Snerum við strax heim í bæ og greindum Guðjóni Valdasyni frá þessu. Hann hafði hraðann á eins og honum var tamt. Kallaöi saman mannskap og safnaði tógum. Fól hann mér að tala við Skúla Theodórs- son sigmann, sem fúslega varð við beiðni okkar um að siga eftir kindinni. Við vorum komnir upp á bjargbrún tæpum klukkutíma eftir að jarmið heyrðist. Skúli var bundinn í vaðinn og hafði með sér band fyrir kindina. Seig hann niður og gat náð kindinni, var hún bundin og hvoru tveggja dregiö upp. Reyndist þetta vera falleg gimbur frá feðgunum Birgi og Sigur- jóni Einarssyni á Sólheimum. Þeir Birgir og Sigurjón reyndust slíkir drengskaparmenn að þeir gáfu Skúla gimbrina í siglaun og varð hún upp- hafið að kindastofni Skúla. Öðruvísi voru aðstæður í Dalfjalli mörgum árum áður. Sigurður Hró- bjartsson á Litlalandi bað Jón Sig- urðsson í Ártúni og fleiri menn að koma með sér vestur á Dalfjall. Þar var þriggja vetra sauöur í sjálfheldu og þurfti að bjarga honum. Sauðurinn var á lítilli þröngri syllu neðan Sand- kórs vestan í Dalfjallinu. Tugum faðma fyrir neðan ólgaði grængolandi sjórinn. Vesalings skepnan var búin að naga hvert einasta stingandi strá sem hún náði til og var í algeru svelti. Siggi Hróa var nú bundinn og hafði aukaband fyrir sauðinn. Fyllti hann vasa sína af sandi og var það vani fjallamanna þegar þurfti að nálgast stygga kind. Köstuðu þeir sandi að henni og sneri hún sér þá undan. Siggi seig niður á sylluna og læddist að sauðnum. Þegar Siggi er að ná taki á honum snýr sauðurinn sér snögglega viö og tekur stökk beint út í loftið. Það skipti engum togum, Siggi spyrnti sér út á eftir honum. Náði hann i annað hornið og hrikti heldur betur í vaðnum þegar Siggi og sauðurinn tóku í. Sem betur fer sátu traustir menn undir og vaðurinn hélt. Var nú hift upp á sylluna, þar sem Siggi batt sauðinn og hvoru tveggja var tosað upp á brún. Þótti þetta hraustlega gert af Sigurði Hróbjarts- syni og ekki á færi nema hraust- menna. Jón Sigurösson sagði mér þessa sögu. Sat Jón neðstur undir vaðnum og voru þrír menn fyrir aftan hann. Sagði hann að átakið á tógið hafi verið mikið og komið óvænt. Sigurður Hróbjartsson var sá sem seig í Ofanleitishamar, ásamt Hjálm- ari Jónssyni i Dölum, til bjargar áhöfninni af „Sigríði" VE. Það var yfirnáttúruleg mannbjörg, sem byggðist á því að Jón Vigfússon kleif klakaðan Hamarinn í náttmyrkri og gat látið vita um félaga sína í nauð- um. Þegar ég flutti úr Eyjum haustið 1970 seldi ég Sveini Hjörleifssyni skipstjóra og útgerðarmanni kindur mínar og var það upphafið að kindabú skap hans. Sveinn hafði veriö feng- sæli skipstjóri i mörg ár á skipi sínu „Kristbjörgu". Nú var hann að draga í land og skapa sér tómstundagaman og ánægjuauka. Ég var að vinna við höfnina þegar þetta var og komum viö á hafnsögubátnum „Létti“ að Friðarhafnarbryggjunni. Um leið og við komum upp á bryggjuna kemur Sveinn akandi á bíl sínum. Hann stoppaði og vildi gera út um kaupin. Dró upp ávísanaheftið og notaði vélarhlífina á bílnum fyrir skrifborð. Þegar hann hafði skrifað ávísun upp á tugi þúsunda og afhent mér spyr hann: „Hvað eru þær margar?" Ólafur Jónsson frá Kirkjubæ svarar að bragði: „Ein!“ „Ein, ein, ein! Nei, þetta er alltof dýrt!“ segir þá Sveinn óðamála. Var mikið hlegiö þar til Sveinn spurði mig sjálfan. Benti ég honum á Hlíðarbrekkurnar, þar sem fjöldi kinda var á beit: „Þær eru þarna og vestur á Fjalli. Þú hirðir þær í næstu smölun og ert réttur eigandi ifið því, sem kemur með mínu markW í rétt. Það eru þrjátíu og ein kind á Fjallinu og afar fallegur tveggja vetra hrútur í Elliðaey." Þegar ég kvaddi Eyjarnar í lok september 1970 þá saknaði ég sauð- kindanna meira en margra mann- kinda.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.