NT - 24.11.1985, Síða 8
Barna-Tíminn
I
I
I
Viningshafar þessa vikuna:
43. þraut: Hrærigrautur
Björgvin B. Þórðarson, Jakaseli 44, Reykjavík.
44. þraut: Veistu svarið?
1. Auður
2. R
3. 26. október
4. Grár
5. Moskva
6. Úr timri
7. Jafn þungt
8. 352
9. Hvítur og blár
lO.Rætur í efri góm.
Ingvaldur Jóhannsson, Vogi við Raufarhöfn.
Kæri Barnapóstur!
Mér finnst að þið ættuð að hafa fleiri sögur.
Jæja, hvað með það, ég ætla að senda þér
nokkra brandara:
Bjössi kom heldur hróðugur til pabba síns og
sagðist hafa selt hvolpinn sinn fyrir 10 þúsund
krónur.
- Það er lífsins ómögulegt, sagði pabbi. -
Hvernig fórstu að því?
- Ég fékk tvo 5 þúsund króna kettlinga fyrir hann!
Kæri Barna-Tími!
Ég bjó til þessa myndagátu og langar að biðja
krakkana að ráða hana. Hún felur í sér nafn og
heimilisfang manns nokkurs.
Bestu kveðjur,
Birna Björk Broddadóttir,
Framnesi, Akrahreppi, 551 Sauðárkróki.
(Pósturinn biður ykkur að ráða gátuna og senda
lausn til Barna-Tímans, Síðumúla 15, Reykjavík.)
Börnin voru mörg og voru all hávaðasöm svo að
ömmu gömlu líkaði það ekki. Hún hastaði á þau.
- Hvaða læti eru í ykkur krakkar. Getið þið ekki
verið stillt!
- Þú skalt ekki skamma okkur, amma, sagði
Siggi litli.
- Því að þú átt okkur að þakka að þú ert amma!
Aðalbjörg J. Helgadóttir,
Tjarnarholti 11,
675 Raufarhöfn.
I
I
|
'6961- Q!JV (a) •eujaisjniu ei. jbjubaqbcI (o) o t rua jiujbssbx (g) '£ 'Ju <?!a~l (v)
:iuninejcj b jwsnei
Kæri Barna-Tími!
Mig vantar pennavin á aldrinum 9-11 ára. Ég er
sjálfur 10 ára. Áhugamál mín eru: Hestar, fótbolti
og fleira. Mynd fylgi með fyrsta bréfi.
Jónas Þorkelsson,
Mel, Hraunhreppi, Mýrasýslu,
311, Borgarnes.