NT - 20.12.1985, Side 27
t * 4- ,
TILMAN RÖHRÍG
EKKERT STRÍÐ
ÞÝSKU BARNA- OG UNGLINGABÓKAVEROLAUNIN
1984
fOftLAQiO
Verðtaunabókfyrir
börn og unglinga
■ Út er komin hjá Forlaginu ung-
lingasagan Ekkert stríð eftir þýska
rithöfundinn Tilman Röhring. Hann
er einn umdeildasti barna- og ung-
lingabókahöfundur Þjóðverja núna,
bækur hans hafa vakið mikla athygli
víða um lönd og hlotið margháttaða
viðurkenningu. Árið 1984 hlaut
þessi bók Þýsku barna- og ung-
lingabókaverðlaunin, virtustu verð-
laun sem þýskum barnabókahöfund-
um hlotnast í heimalandi sínu.
Sagan gerist ( Þýskalandi árið
1641. Þrjátíu ára stríðið hefur staðið
í 23 ár og aðeins elstu menn muna
friðinn forðum daga. Börn og ung-
lingar skilja varla hvað orðið friður
merkir. Ótti og örbirgð er daglegt
brauð. - Jockel er fimmtán ára, hann
er ástfanginn af Katrínu jafnöldru
sinni, en unglingarnir fá engin tæki-
færi til að njótast. í stríði er ekki tími
til ásta. Samt tekst Jockel að sýna að
lokum á óvenjulegan hátt hvaða hug
hann ber til Katrínar.
í fréttatilkynningu Forlagsins seg-
ir m.a.: „Ekkert stríð er meistaralegt
framlag til friðarumræðu okkar
daga, spennandi og rituð á máli sem
börn og unglingar skilja. Hún er
andsvar við ruddaskap þeirrar sjón-
varpsmenningar sem fóstrar ung-
linga á Vesturlöndum. Sagan segir
sögu þeirrar sjónvarpsmenningar
sem fóstrar unglinga á Vesturlönd-
um. Sagan segir sögu þeirra sem
raunverulega verða fyrir barðinu á
styrjöldum og gleymast yfirleitt í
yfirborðsmennsku æsifregna og of-
beldismynda. Tilman Röhrig lýsir
veruleika styrjalda á þann hátt að
enginn getur setið hlutlaus - heldur
ekki börn og unglingar.“
Ekkert stríð er 111 bls. Þorvaldur
Kristinsson þýddi söguna. Prent-
smiðjan Oddi hf. prentaði.
Gettu hvad þú veist
■ Vaka-Helgafellhefursentfrásér
stórfróðlega og skemmtilega spurn-
ingabók, sem heitir Gettu nú! Þetta
er sjöunda bókin í hinu geysivinsæla
safni Tómstundabóka Vöku.
Gettu nú! cr aðallega ætluð yngri
kynslóðinni, en fólk á öllum aldri
getur lesið hana sér til gagns og
gamans. Hún er spennandi þar sem
einstaklingar cða lið geta spreytt sig á
spumingunum. Hún er fóðleg og býr
yfir margvíslegri og nýstárlegri vitn-
eskju. Og síðast en ekki síst er hún
stórskemmtileg.
Sigurður Helgason, fréttamaur,
tók saman efnið í bókina og hana
prýða margar skemmtilegar teikn-
ingar eftir Þorstein Eggertsson. í
bókinni eru spurningar úr ýmsum
áttum, spurningaleikir um menn og
ntálefni, sögu íslands, landið og
þjóðlífið. Þá reynir á hversu fróðir
menn eru um önnur lönd, íþróttir,
popp, einkennisstarfi bifreiða, dýra-
líf og sitthvað fleira.
Gettu nú! er bók, sem eigendurnir
eiga eftir að taka fram aftur og aftur,
glöggva sig á spurningum og svörum
og einnig mun bókin stuðla að ótal
ánægjustundum með vinum, kunn-
ingum og ættingjum, og allir veðra
fróðari.
Bókin er sett, filmunnin og prent-
uð í Prentstofu G. Benediktssonar,
en bundin í Bókfelli hf.
yngstu börnin
■ Komnar eru út hjá Iðunni fjórar
bækur fyrir yngstu börnin í bóka-
flokknum Ég get bækurnar. Þessar
bækur eru ætlaðar til að vísa litlum
börnum fyrstu skrefin á þroska-
brautinni og fjalla allar um það sem
lítil börn þekkja úr daglegu umhverfi
sínuoglífi. Bækurnarheita: Aðtaka
til, Að lána dótið sitt, Að sofna og
Að leika sér.
Bjarni Fr. Karlsson þýddi. Bæk-
urnar eru prentaðar á Ítalíu.
MABRl KUNNAS
IOUHH
Þaðsemgerist þegar
flestir sofa
■ Kominerútnýlitmyndabókeftir
finnsku höfundana Mauri og Tarja
Kunnas. Bókin sem er í stóru broti
og öll litprentuð segir frá því sem
gerist á nóttunni þegar flestir sofa. Þá
fert.d. Kalli blaðberiákreik, Slemb-
ir slökkviliðsmaður er á ferðinni,
sinna þarf frú Fjólu flóðhesti sem
liggur á sjúkrahúsi og hr. Rútur
gengur steinsofandi um stræti borg-
arinnar.
Eins og í fyrri bókum Mauri Kunn-
as er mikill fjöldi mynda í NÆTUR-
BÓKINNI sem vekja kátínu ungra
barna en fræða þau jafnframt um
hina margvíslegustu hluti sem gerast
í umhverfi þeirra.
Þorsteinn frá Hamri þýddi. Bóka-
útgáfan Iðunn gefur út en hún hefur
áður gefið út bækurnar BÖRNIN Á
HVUTTAHÓLUM og JÓLA-
SVEINNINN Á KORVAFJALLI
eftir sörnu höfunda. Bókin er prent-
uð í Finnlandi.
Föstudagur 20. desember 1985 27
Rás 2 kl. 20.
Sjónvarp kl. 23.40:
Reykvískur
vinsældalisti
f rá 1956!
■ Á Rás 2 verður í kvöld kl. 20
þáttur sem má búast við að hlýi
mörgum um hjartaræturnar sem
áttu sín sokkabandsár á árunum
1950-1960. Þá rifja.þeir Trausti .
Jónsson og Magnús Þór Jónsson,
sem allir þekkja nú sem Megas,
upp fyrri hluta reykvísks vinsælda-
lista frá því í júní 1956. St'ðari
hlutanum verður útvarpað milli
jóla og nýárs. Þátturinn bernafnið
Heitar krásir úr köldu stríði.
Voru til íslenskir vinsældalistar
1956, spyrjum við í fávísi okkar.
Einn og einn segir Trausti mega
finna frá árunum 1950-1960. Þann
sem hlustendur fá að heyra nú suðu
þeir Trausti og Megas upp úr tíma-
ritum frá þessum tíma og öðrum
heimildum. Lögin á listanum eru
alls 27, langflest erlend. Þ.á.m. má
heyrá alfyrstu rokklögin sem náðu
vinsældum hér á landi. Svo til öll
■ Trausti Jónsson og Magnús
Þór Jónsson grafa upp gamla ís-
lenska vinsældalista
lögin eru af 78 snúninga plötum og
var hreint ekki svo auðvelt að hafa
upp á þcim. En öll spjót voru höfð
úti og á endanum hafðist upp á
þeim öllum, nema einu.
Eitthvert framhald verður á þátt-
um með gömlum íslenskunt vin-
sældalistum. Og fljótlega upp úr
áramótum verða Trausti og Megas
með þátt, sem eflaust á eftir að
vekja forvitni. Þar ætla þeir að
leika íslenska tangóa, en tangóinn
er sem kunnugt er í endurreisn um
þessar ntundir.
Hræsni og tvö-
falt siðgæði
ræður ríkjum
■ Ást í meinum (The Weather in
the Streets), ný bresk sjónvarps-
mynd gerð eftir tveimur skáldsögum
eftir Rosamond Lehmann, er föstu-
dagsmynd sjónvarpsins. Sýning
hennar hefst kl. 23.40 og stendur til
kl. 1.25,svoað þaðervissaraaðhafa
fótaferðartíma í fyrramálið á bak við
eyrað áður en sest er niður til að
njóta hennar.
í myndinni er lýst hræsni og tvö-
földu siðgæði því sem réði ríkjum í
ensku þjóðfélagi á millistríðsárun-
um. Olivia Curtis (Lisa Eichhorn)
yfirgefur tilbreytingarlaust og leiðin-
legt hjónaband og heldur til Lund-
úna, ákveðin í því að iifa þar að eigin
geðþótta. Þar rekst hún af tilviljun á
Rollo Spencer (Michael York), ein-
um meðlimi lágaðalins, sem hún
hafði hrifist af þegar fundum þeirra
bar saman 10 árum áður. Hann hefur
skyldum að gegna við sjúka konu
sína.
Rás2sunnudag kl. 15.
T ónlistarkrossgátan
■ Á sunnudag kl. 15-16 verður 42. Tónlistarkrossgát-
an á dagskrá Rásar 2. Stjórnandi í þetta sinn er Þorgeir
Ástvaldsson.
Útvarpkl. 22.55:
SVIPMYND
■ Í kvóld kl. 22.55 dregur Jónus Jónasson upp svip-
mynd af Nönnu Óiafsdóttur, listdansstjóra Þjóðleik-
hússins.
Föstudagur
20. desember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15Morgunvaktin.
7.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna: „Elvis,
Elvis“ eftir Mariu Gripe Torfey Steins-
dóttir þýddi. Sigurlaug M. Jónasdóttir les
(18).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tonleik-
ar, þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir.
10.05 Dagtegt mál. Endurtekinn þáttur (rá
kvöldinu áöur sem Sigurður G, Tómas-
son flytur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Tilkynningar. Lesið úr forustugreinum
dagblaðöana.
10.55 Þingfréttir.
11.05 „Ljáðu mér eyra" Umsjón: Málmfrið-
ur Sigurðardóttir. (Akureyri).
11.35 Morguntónleikar. a. „Hamlet",
hljómsveitarsvíta op. 32a eftir Dmitri
Sjostakovitsj. Fílharmonlusveitin í
Moskvu leikur. Gennady Ftozhdestven-
sky stjórnar. b. „Ástarljóð" eftir Isaac Al-
beniz. Davíð Qstrakh leikur a fiðlu og Wla-
dimirJamolskijápínaó.
12.00 Dagkskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynnignar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. a. Tríó í a-moll
op. 114 eftir Johannes Brahms. Tamás
Vásáry, Karl Leister og Ottomar Borwit-
sky leika á pfanó, klarinettu og selló. b.
„Bachianas Brasileiras" nr. 5 eftir Heitor
Villa-Lobos. Arleen Augér syngur með
sellóleikurum Filharmoniusveitarinnar i
Berlin.
17.00 Helgarútvarp barnanna. Amælis-
dagskrá um Stefán Jónsson rithöfund,
síðari hluti. Stjórnandi: Vernharður
Linnet.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. 19.35 Tilkynningar.
20.10 Þingmál. Umsjón: Atli Rúnar Hall-
dórsson.
20.20 Lög unga fólksins. Þóra Björg Thor-
oddsen kynnir.
21.00 Kvöldvaka a. Jóiavísur Félagar úr
kvæðamannafélaginu Iðunni kveða. b.
Bernskujólin mín Edda Vilborg Guðm-
ur.dsdóttir les úr bókinni „Hetjur hvers-
dagslífsins" eftir Hannes J. Magnússon.
Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum Atli Heimir Sveins-
son kynnir tónverk sitt, „Gloríu".
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins.
22.25 Kvöldtónleikar. a. „Concert royal"
nr. 4 eftir Francois Couperin.Lise Daho-
ust og Robert Sigmund leika á flautu og
sembal. b. Jessye Norman syngur „Um
eilífa ást“ op. 43 nr. 1 eftir Johannes
Brahms. Geoffrey Parsons leikurá pianó.
22.55 Svipmynd Þáttur Jónasar Jónasson-
ar. (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir.
00.05 Djassþáttur - Tómas R. Einarsson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á RÁS 2 til kl. 03.00.
Föstudagur
20. desember
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnendur:
Ásgeir Tómasson og Páll Þorsteinsson.
Hlé.
14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi: Valdís
Gunnarsdóttir
16.00-18.00 Léttir sprettir Stjórnandi: Jón
Ólafsson
Þriggja mínútna fréttir sagöar klukkan:
11.00,15.00,16.00 og 17.00
20.00-21.00 Heitar krásir úr köldu stríði
Reykvískur vinsældalisti frá júni 1956,
fyrri hluti. Stjórnendur: Trausti Jónsson
og Magnús Þór Jónsson.
21.00-22.00 Kringlan Tónlist úr öllum
heimshornum. Stjórnandi: Kristján Sig-
urjónsson.
22.00-23.00 NýrækSin Þáttur um nýja rokk- 1
tónlist, innlenda cj erlenda. Stjórnendur: . (
Snorri Már Skúlason og Skúli Helgason. |
23.00-03.00 Næturvaktin Stjórnendur:
Vignir Sveinsson og Þorgeir Ástvaldsson
17.00-18.00 Rikisu /arpið á Akureyri - j
svæðisútvarp
17.00-18.00 Svæó utvarp Reykjavíkur
og nágrennis (FM 90.1 MHz)
Föstudagur
20. desember
19.15 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig-
tryggsson.
19.25 Svona gerum við Tvær sænskar
fræðslumyndir sem sýna hvernig brauð
er bakað og gluggar smíöaöir. Þýðandi
og þulur Bogi Arnar Finnbogason. (Nord-
vision - Sænska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrlp á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Þingsjá
Umsjónrmaður Páll Magnússon.
21.00 Kastljós Þáttur um innlend málefni.
Umsjónarmaður Einar Sigurðsson.
21.35 Skonrokk Umsjónarmenn Haraldur
Þorsteinsson og Tómas Bjarnason.
22.25 Derrick Tíundi þáttur. Þýskur saka
málamyndaflokkur. Aöalhlutverk: Horst
Tappert og Fritz Wepper. Þýðandi Vetur-
liði Guðnason.
23.25 Seinni fréttir.
23.40 Ást i meinum (The Weather in the
Streets) Ný bresk sjónvarpsmynd gerð
eftir tveimur skáldsögum eftir Rosamond
Lehmann. leikstjóri Gavin Millar.
Leikendur: Michael York, Lisa Eichhorn
og Joanna Lumley. Myndin gerist i Bret-
landi um og eftir 1930. Söguhetjan Olivia
hyggst skapa sér sjálfstæða tilveru I
Lundúnum eftir misheppnað hjónaband.
Hún hittir aftur mann, sem hún hreifst af
sem ung stúlka, en hann er nú kvæntur.
Samband þeirra verður náið og hneykslar
marga auk þess sem það veldur Oliviu
ýmsum sárindum. Þýðandi Jóhanna Þrá-
insdóttir.
01.25 Dagskrárlok.