Morgunblaðið - 18.04.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 18.04.2004, Síða 11
fólk, fólk í neyslu, fátækt fólk og edrú fólk. Kaffistofan er athvarf þess alla daga ársins, virka daga kl. 10–17 og um helgar 11–16. Rekstur kaffistofunnar er heilmikið fyrirtæki og krefst tveggja laun- aðra starfsmanna sem ganga vaktir til skiptis auk sjálfboðaliða sem eru nauðsynlegir ef hægt á að vera að bjóða upp á heitan mat. Bygg- ist reksturinn að miklu leyti á matargjöfum frá bakaríum og fyr- irtækjum. Auk þess sem Reykjavíkurborg og Reykjavíkurdeild Rauða krossins og fleiri styrkja reksturinn. Reynt er að bjóða upp á heita máltíð á hverjum degi en alltaf er kaffi, brauð og meðlæti á borðum. Að auki rekur Samhjálp m.a. meðferðarstöðina Hlaðgerð- arkot, tvö áfangaheimili eftir meðferð, félagsmiðstöð og heimili fyrir heimilislausa á Miklubraut 20. Til rekstrar heimilisins fær Samhjálp húsnæði og rekstrarfé frá Félagsþjónustunni sem veitir auk þess faglegan stuðning. Það er mál manna, bæði íbúa og fagfólks, að stuðningsheimilið sé afar vel heppnað úrræði, enda er biðlisti eftir plássum. Heimilið er fyrir karla sem eru tvígreindir, þ.e. eiga við geðræn vandamál að stríða en einnig fíknisjúkdóm. Ekki er sett það skilyrði að menn séu edrú en neysla er ekki leyfð innandyra á heimilinu. Hver og einn borgar leigu fyrir sitt herbergi. Heiðar Guðnason, forstöðumaður Samhjálpar, segir að Samhjálp- arfólk hafi nokkuð góðan mælikvarða á fjölda heimilislauss fólks með því að telja gesti á kaffistofunni. Hann segir að seinnipart mán- irhafnir eða plastpokar standa við flest rúm, yfirleitt allar eigur þeirra heimilislausu. Þeir halda sínu plássi í skýlinu ef þeir eru komnir fyrir klukkan tíu að kvöldi, annars geta þeir átt von á að annar verði kominn í rúmið þeirra. Húsið er á tveimur hæðum og vegna brunavarna má bara vera opið á annarri hæðinni í einu. Dagvistun er á efri hæðinni, en sofið er á neðri hæðinni. Klukkan 8:30 er morgunmatur framreiddur og klukkan tíu fara allir upp á efri hæðina og er svefnherbergjum þá lokað. Flestir halda út í daginn upp úr kl. 10 en aðrir nýta sér dag- vistunina svokölluðu í Gistiskýlinu sem er fyrir hendi allan veturinn en á sumrin er aðeins opið í næturgistingu, nema um helgar. Konur eru í miklum minnihluta þeirra sem nýta sér aðstöðuna í Gistiskýlinu og virðast heimilislausar konur ekki eins sýnilegar og heimilislausir karlar. Samkvæmt starfsreglum Gistiskýlisins mega karlar og konur ekki sofa í sama herbergi nema um par sé að ræða. Yngsta konan sem gisti í skýlinu á síðasta ári var 19 ára og sú elsta 55 ára. Yngsti karlinn var 21 árs og sá elsti 74 ára. Samhjálp: Stuðningsheimili við Miklubraut vel heppnað Samhjálp rekur kaffistofu á Hverfisgötu í Reykjavík fyrir ut- angarðsfólk og aðra aðstöðulausa. Þangað kemur heimilislaust VÍTAHRINGUR GÖTUNNAR 18.4.2004 | 11 menna markaði. Félagslegt húsnæði stendur ekki til boða nema eftir langa bið og þetta eru mjög slæmar aðstæður.“ Skýli fyrir konur nauðsynlegt Tilraunaverkefni í samstarfi Reykjavíkurborgar og Samhjálpar felst í rekstri tveggja heimila við Miklubraut og er annað þeirra úrræði fyrir þá sem eru í neyslu en þurfa húsaskjól. „Sá sem er heimilislaus og ég tala nú ekki um ef hann er undir áhrifum, á hann ekki að vera í húsi? Á hann að vera á götunni? Á Miklubrautinni er leigan tekin af bótunum þeirra, þeir fá mat og eru ánægðir með þetta. Þeir segja sjálfir að það ætti að fjölga svona plássum, ég er sammála því en það þarf líka að koma upp öðru skýli. Sérstaklega fyrir konur. Þær eru líka á götunni en þær gleymast. Þær sjást ekki eins mikið og karlarnir en þær eru þarna. Þær eru í nákvæmlega sama vítahringnum, inn og út af stofnunum, inn og út úr sam- böndum og inn og út af heimilum ættingja. Svo nýtir fólk sér það að geta farið í meðferð þegar það er að niðurlotum komið. Svo byrjar þetta upp á nýtt. Þegar fólkið kemur úr meðferð er ekkert sem bíður þess, það er allt annað fyrir fjöl- skyldufólk. Þeir sem eru heimilislausir vita innst inni að þótt þeir klári meðferð- ina verði þeir sennilega komnir inn aftur eftir einhvern tíma. Þeir kunna þetta ut- an að og meðferðin gagnast ekkert.“ Helgu finnst hið opinbera ekki standa sig nægilega vel í að veita heimilislausu fólki þá aðhlynningu sem það þarf. Um of sé ábyrgðinni velt yfir á frjáls fé- lagasamtök og sjálfboðasamtök eins og Samhjálp, Rauða krossinn eða Geðhjálp. „Síðan er líka stólað á að lögreglan geti alltaf hýst fólk. Þetta er náttúrulega svo vitlaus hugsunarháttur.“ Í ritgerðinni fjallar Helga þó ekkert um þennan fé- lagslega hluta, heldur hefur hún smám saman kynnst honum líka samhliða rann- sókninni og í viðtölunum kemur fólkið einnig nokkuð inn á viðmót kerfisins gagnvart því. Helga segir erfitt að giska á fjölda heimilislausra, það fari eftir því hver skil- greini og í hvaða tilgangi. Fólk sem gistir í Gistiskýlinu þar sem eru fimmtán pláss, yfirgefnu húsnæði eða utan húss getur skipt nokkrum tugum, allt upp í fimmtíu, en að auki eru þau sem fá inni hjá ættingjum eða kunningjum en eru í neyslu og búa við bág kjör eins og hinir. Helga segir verkefnið hafa verið mjög gefandi og lærdómsríkt. Rannsóknar- spurningar hennar snúast m.a. um hver þáttur ríkjandi orðræðu um heimilisleysi og heimilislaust fólk sé í mótun sjálfs- myndar fólksins og á hvern hátt það beitir daglegu andófi. „Þessir einstak- lingar voru einhvern tíma þátttakendur í orðræðunni sem er viðhaldið í samfélag- inu. Nú eru þeir í allt öðru rými og þá breytast allar aðstæður. Sjálfsmyndin er mjög einstaklingsbundin en brotakennd að mörgu leyti og hún mótast aðallega af andófi gegn umhverfinu. Heimilislaust fólk reynir að skapa sér meira rými til að vera það sjálft, eins og við gerum öll, en það er oftast í andófi. Sem er vegna þess að aðstæðurnar útheimta það af fólkinu. Það vill enginn vera heimilislaus eða í þessum aðstæðum. Hins vegar er það ein- mitt ein af goðsögnunum, að þetta sé bara fólkinu sjálfu að kenna, það hafi valið sér þetta hlutskipti. En staðreyndin er sú að enginn velur sér að vera heim- ilislaus.“ Helga segir að heimilisleysi eigi rót sína að rekja í ástæður eins og rofin tengsl við fjölskyldu, rótleysi, erfiða æsku, andlát einhvers nákomins eða skilnað. Við- mælendur hennar eiga það sameiginlegt að hafa endað sem heimilislausir. Og vilji allir komast út úr þeim aðstæðum. Betla ekki að gamni sínu heldur af nauðsyn Helga kannast við þá afstöðu að fólk vilji ekki gefa þeim sem betla peninga vegna þess að aurarnir fari beint í vín og það geti sjálfu sér um kennt hvernig komið er fyrir því. „En ég hef þá afstöðu að ef einhver biður mig um 200 krónur, þá gef ég peninga ef ég er aflögufær. Það skiptir mig engu máli hvað viðkomandi ætlar að nota peningana í, ég á ekki að stjórna því. Mér finnst að gjafir eigi að vera skilyrðislausar. Það er mjög sérkennilegt að þeir biðja aldrei um neitt nema 100–200 krónur, það er eins og það sé engin verðbólga á götunni. Þegar maður veit hverjar aðstæður fólksins eru, er ekki annað hægt en að gefa því 200 krónur. Það hlýtur að vera niðurlægjandi fyrir manneskju að þurfa að ganga að ókunnri manneskju og biðja um smápening. Fólk getur bara sett sig í spor þeirra sem eru heimilislausir, þeir betla ekki að gamni sínu heldur af nauðsyn.“ Þeir sem eru heimilislausir hafa sagt Helgu frá því viðmóti að það sé oft þannig að fólk horfi í gegnum þá. Þeir þurfa að betla og segja að sumir gangi framhjá þeim án þess að líta á þá. Sumir segjast sjá það á fólki hverjir muni stoppa og hverjir ekki. Þeir eru yfirleitt reknir út úr verslunum, fá ekki að koma inn á veit- ingastaði nema vissa staði eins og Kaffi Austurstræti. En einstaka veitingastaðir gefa þeim mat bakatil og sumir verslunareigendur gefa þeim afgangsföt. „Annars er bara horft framhjá þeim.“ Helga talar um fordómana og goðsagnirnar um heimilislausa einstaklinga. „Fólk sem er í jaðarstöðu í samfélaginu lendir oftast í því að vera „hinir“ í sam- félaginu og á þann hátt er það að vissu leyti komið út fyrir þetta venjulega norm sem við setjum okkur. Til dæmis eru karlmennirnir sem eru á götunni ekki lengur viðurkenndir sem feður eða fyrirvinnur og þeir eiga ekkert heimili. Að eiga ekk- ert heimili er mjög abnormalt, allir eiga að eiga heimili. Við erum normið sem miðað er við, þeir eru öðruvísi, eiga ekki hús, eru skítugir og drekka. Og þetta eru allt félagsleg norm sem við viðurkennum ekki. Við viljum færa þá úr þessu rými og laga þetta vandamál með því að gera þá eins og okkur. En við getum ekki hugsað okkur að útvíkka okkar norm og skapa rými fyrir fólk sem er ekki ná- kvæmlega eins og við. Þetta leiðir til fordóma. Mér finnst að við eigum ekki að gleyma þessu fólki og líta framhjá því í svona litlu samfélagi eins og Ísland er.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.