Morgunblaðið - 18.08.2004, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 18.08.2004, Qupperneq 2
ÓL Í AÞENU 2004 2 B MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÖRYGGISGÆSLA við sundlaugina sem keppt er í á Ólympíuleikunum í Aþenu hefur verið hert til muna eftir að áhorfanda tókst að komast ofan úr áhorf- endastúku og stinga sér í laugina á meðan keppni í dýfingum stóð yfir í gær. Komst maður vandalaust framhjá fámennum hópi öryggisvarða sem voru ann- ars hugar. Atvikið varð hins vegar til þess að nú hef- ur vörðum allt í kringum laugina verið fjölgað til muna enda eiga uppákomur sem þessar ekki upp á pallborðið á Ólympíuleikum þar sem öryggi kepp- enda er haft í hávegum. Umræddur áhorfandi var handtekinn þegar hann kom upp úr lauginni. Eftir því sem næst verður kom- ist er hann frá Kanada og hafði skrifað á brjóstkass- ann ástarkveðju til eiginkonunnar sem er heima í Kanada. Ekki fylgir sögunni hvort hún sá kveðjuna í beinni útsendingu né þá hver viðbrögð hennar voru. Maðurinn situr hins vegar á bak við lás og slá. Hann má eiga von á hárri sekt og vera vísað frá Grikklandi. Öryggisgæsla hert eftir ástarkveðju BANDARÍKJAMAÐURINN Michael Phelps kom fyrstur í mark í 200 metra flugsundi í gær á nýju ólympíumeti, 1.54,04 mínútum og bætti fyrra met um rúma sekúndu. Phelps hef- ur unnið þrenn gullverðlaun og tvenn brons- verðlaun á Ólympíuleikunum í Aþenu. „Ég er ánægður með að hafa tryggt mér gullið en ég vildi setja nýtt heimsmet sem tókst ekki,“ sagði heimsmethafinn Phelps. Takashi Yamamoto frá Japan varð annar á 1.54,56 en hann saumaði talsvert að Phelps á síðustu metrunum. Stephen Parry frá Bret- landi hlaut bronsverðlaunin á 1.55,52 en þetta voru fyrstu verðlaun Breta í sundkeppni leik- anna að þessu sinni. Á leikunum fyrir fjórum árum í Sydney unnu Bretar engin verðlaun í sundi. Phelps ánægð- ur með gull- verðlaunin Reuters Michael Phelps fagnar eftir að hafa tryggt sér önnur gullverðlaun sín á ÓL.  EUNICE Barber, ein fremsta sjö- þrautarkona heims, hefur ákveðið að draga sig út úr frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna en hún hefst í næstu viku. Barber hefur ekki náð sér af meiðslum sem hafa hrjáð hana í lang- an tíma. Barber, sem er frönsk, segist ekki hafa gert upp hug sinn hvort hún keppi í langstökki á leikunum en hún vann til gullverðlauna í þeirri grein á HM á síðasta ári.  DÝFINGAMENNIRNIR Nikolaos Siranidis og Thomas Bimis eru hetjur í heimalandi sínu eftir að hafa sigrað í samhæfðu stökki af 3 metra palli. Leonidas Sampanis varð fyrst- ur til þess að vinna til verðlauna af heimamönnum en hann varð þriðji í 62 kg. flokki í lyftingum. „Gríska þjóðin getur nú andað léttar eftir at- burði síðustu daga. Dimmu skýin sem mál Thanou-Kenteris hefur verið yfir Grikklandi eru farinn frá landinu,“ segir í dagblaðinu Eleftherotypia.  CHEN Yanqing sem vann til gull- verðlauna í 48 kg flokki kvenna í lyft- ingum á Ólympíuleikunum í Aþenu segir að allir keppendur kínverska liðsins hafi farið í gegnum lyfjapróf undanfarin misseri. „Kína er á móti ólöglegum efnum og það er ekki hægt að komast framhjá lyfjaeftirlitinu eins og það er í dag,“ sagði Yanqing eftir sigurinn.  NAN Aye Khine frá Myanmar, áð- ur Búrma, sem varð fjórða í keppn- inni, féll hins vegar á lyfjaprófi og hef- ur yfirgefið Ólympíuþorpið. Hún segir að þjálfari hennar hafi ekki gefið upp rétt innihald í fæðubótarefnum sem hún tekur inn með reglulegu millibili.  ARGENTÍNUMAÐURINN Agust- in Calleri hefur hætt keppni í tennis á Ólympíuleikunum í Aþenu en hann átti að leika gegn Rússanum Igor Andreev í 2. umferð einliðaleiks. Call- eri er meiddur á kviðvöðva.  Á FRÉTTAVEF bandarísku sjón- varpsstöðvarinnar CBS er greint frá því að ekkert landslið sé frá Banda- ríkjunum í handknattleikskeppninni þrátt fyrir að bæði karla- og kvenna- liðið eigi titil að verja í greininni! En áhugamenn um íþróttina vita að Bandaríkjamenn eru ekki hátt skrif- aðir í handknattleik enn sem komið er.  HINN hávaxni miðherji kínverska landsliðsins í körfuknattleik, Yao Ming, skoraði 39 stig í 69:62 sigri liðs- ins gegn Nýja-Sjálandi. Að auki tók hann 13 fráköst. Ég er allur að skríða saman ogað koma til. Það er búið að finna hvað var að angra mig og síð- ustu vikur hafa far- ið í að vinna bug á meiðslunum,“ sagði Örn Arnarson í samtali við Morgun- blaðið. Örn segir að vöðvar á bak- við herðablöðin og í upphandleggn- um hafi verið eitthvað í ólagi en þeir hafi verið nuddaðir ótt og títt síðustu vikurnar og séu allir að ná fyrri styrk. Örn keppir í 50 metra skriðsundi á morgun, sem er hans eina keppn- isgrein á Ólympíuleikunum, og spurður hvað hann ætlaði sér að gera í því sundi segir Örn: „Ég kem sáttur frá sundinu ef ég næ að bæta mig eða verða nálægt mínum besta tíma. Miðað við þessa tíma sem ég hef verið að skoða á ráslist- anum þá gæti ég endað allt frá 10. sæti niður í 40. sæti með því að bæta mig. Þetta er stutt stund og því er þetta spurning um hundr- aðshluta. Ég vona innilega að ég hitti á gott sund og svo verður maður bara að sjá til hverju það skilar.“ Ef þú lítur á raunsætt á hlutina, áttu þá möguleika á að komast í úr- slit í 50 metra skriðsundinu? „Ég tel litlar líkur á því. Ég þarf að bæta mig um næstum heila sek- úndu til að komast í úrslitin og ein sekúnda af 23 er slatti. Ef ég hitti gjörsamlega á sundið og tekst að bæta mig ásamt því að aðrir nái sér ekki á strik þá er smámöguleiki á að komast í undanúrslitin. Það get- ur allt gerst og ég ætla að sjálf- sögðu að leggja mig allan fram.“ Ef við lítum til baka, þá áttu þetta að verða Ólympíuleikarnir sem þú stefndir leynt og ljóst að því að komast á verðlaunapall? ,,Maður verður bara að bíta í það súra epli að ég get ekki staðið við stóru orðin. Það voru gríðarleg vonbrigði fyrir mig að lenda í þess- um meiðslum en það þýðir bara ekkert að svekkja sig á þessu. Íþróttirnar eru svona. Þær geta verið grimmar inn á milli. Auðvitað hafa einhver mistök verið gerð í undirbúningi mínum fyrir leikana. Maður hefur örugglega gert fullt af hlutum sem maður hefði ekki átt að gera. Margir hafa sagt að ég hafi gert mistök með því að fara ekki utan en ég ákvað að halda kyrru fyrir heima og æfa þar og ég sé alls ekki eftir því. Ég sá ekki fyrir að ég myndi lenda í þessum erfiðu meiðslum. Ég byrjaði að finna fyrir þeim 26. janúar. Þá gaf öxlin sig og allt fram til dagsins í dag hef ég barist við að fá mig góð- an í öxlinni.“ „Eins og fótboltamaður snúi á sér ökklann“ Þegar þú kenndir þér meins í öxlinni og í ljós kom að þau voru al- varlegri en haldið var í fyrstu, sástu þá fyrir þér að þú þyrftir jafnvel að sleppa Ólympíuleikun- um? „Nei, það gerði ég ekki. Það að ég finni fyrir meiðslum í öxlinni er eins og fótboltamaður snúi á sér ökklann. Þetta er óskaplega eðli- legur hlutur en eftir að hafa verið hjá sjúkraþjálfara í fjóra mánuði án þess að finna nokkurn bata þá fór maður að verða ansi pirraður.“ Hvað tekur við hjá þér eftir að Ólympíuleikunum lýkur? „Ég reikna með að taka mér tvær til þrjár vikur í frí en síðan fer ég á fullt á nýjan leik. Í sept- ember held ég til Danmerkur og verð að æfa þar í vetur ásamt því að þjálfa en ég reikna svo með að setjast á skólabekk eftir áramótin. Mér finnst ég þurfa að skipta um umhverfi.“ Hvað með næstu ár. Hefur þú í hyggju að stefna á þína þriðju Ól- ympíuleika í Peking 2008? „Ætli ég verði ekki að gera það fyrst þessir leikar fara svona. Ég ætla hins vegar að taka eitt stór- mót í einu í stað þess að líta til lengri tíma. Ég ætlaði mér á verð- launapall hér í Aþenu sem var raunhæft markmið eftir leikana í Sydney og eins eftir heimsmeist- aramótið ári síðar þar sem ég vann silfur og brons. Ég ætla að gera allt sem í mínu valdi stendur til að komast í hóp þeirra bestu á nýjan leik. Ég kem til með að æfa eins og skepna og ef ég verð heill heilsu þá kvíði ég ekki framtíðinni,“ sagði Örn. Örn verður í eldlínunni klukkan 10 í fyrramálið að staðartíma, 7 að íslenskum. Af 87 keppendum, sem skráðir eru til leiks, er Örn í 51. sæti með tímann 23,40 sekúndur. Íslandsmet hans í greininni er 23,15 sekúndur, sett í apríl 2001. Heimsmetið í greininni á Rússinn Alexander Popov, 21,61 sekúndu en hann er skráður með annan besta tíma í Aþenu, 21,92 sek. Bandaríkjamaðurinn Gary Hall er skráður með besta tímann, 21,91.sek. Örn Arnarson ætlaði á verðlaunapall í Aþenu en þrálát meiðsli gera draum hans að engu Geri allt til þess að komast í hóp þeirra bestu á ný ÓLYMPÍULEIKARNIR í Aþenu áttu að verða leikarnir hans Arnar Arnarsonar sundmanns en eftir frábæran árangur á Ólympíu- leikunum í Sydney fyrir fjórum árum þegar hann lenti í fjórða sæti í 200 metra baksundi setti hann stefnuna á að komast á verðlauna- pall í Aþenu. Þetta var raunhæft markmið hjá Erni á þeim tíma og ekki síst eftir að hann krækti í tvenn verðlaun á heimsmeist- aramótinu ári síðar. En þegar íþróttirnar eru annars vegar geta hlutirnir breyst á örskömmum tíma. Örn lenti í alvarlegum axlar- meiðslum í byrjun þessa árs og þau meiðsli hafa gert það að verk- um að draumurinn um að komast á verðlaunapall hér í Aþenu er úti. Morgunblaðið/Golli Hjörtur Már Reynisson og Örn Arnarson eru hér á ferð á áhorf- endapöllunum í Aþenu. Nú er komið að þeim að keppa. Guðmundur Hilmarsson skrifar frá Aþenu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.