Morgunblaðið - 18.08.2004, Page 5

Morgunblaðið - 18.08.2004, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2004 B 5 ÞJÓÐVERJAR þóttu sigurstranglegastir í hand- knattleikskeppni karla á Ólympíuleikunum, í skoðanakönnun sem Alþjóða handknattleiks- sambandið gekkst fyrir á vef sínum. Þeir fengu 21,05 prósent atkvæða, Frakkar komu næstir með 16,56 prósent og Króatar voru þriðju með 14,81 prósent en þessar þrjár þjóðir skáru sig nokkuð úr. Brasilíumenn virðast hafa tekið virkan þátt í skoðanakönnuninni því lið þeirra, sem er talið það lakasta á leikunum, varð í fjórða sæti henn- ar og fékk 7,86 prósent atkvæða. Rússar voru fimmtu með 7,02, Egyptar sjöttu með 6,95, Suð- ur-Kóreubúar sjöundu með 6,32, Slóvenar átt- undu með 4,98, Ungverjar níundu með 4,84, Ís- lendingar tíundu með 4,28, Spánverjar elleftu með 4,07 og heimamenn, Grikkir, voru lang- neðstir í könnuninni með aðeins 1,26 prósent at- kvæða. Þjóðverjar sigur- stranglegastir HAFSTEINN Ægir Geirsson er í 40. sæti af 42 keppendum eftir annan keppnisdaginn af sex í siglingum á Laserbátum á Ólympíuleikunum í Aþenu. Honum gekk illa í báðum um- ferðum dagsins, varð síðastur í þeirri fyrri en í 36. sæti í þeirri síðari. Hafsteinn missti því heldur flugið eftir fyrsta daginn en að honum loknum var hann í 34. sæti. Miklar tafir urðu á keppninni í gær vegna óstöðugs vinds og keppendur þurftu að bíða í þrjá tíma úti á sjó eft- ir því að geta byrjað. Í seinni umferðinni var síðan nánast logn. „Hafsteinn var óheppinn með vindskiptin í dag og var ávallt á öfugum enda í brautinni þegar þau komu. Seinni umferðin var allt í lagi hjá honum og hann á eftir að hækka aftur því sú fyrri verður strikuð út í lokin, vegna þess að lakasta keppnin er ekki talin með þegar upp er staðið,“ sagði Birgir Ari Halldórsson flokkstjóri við Morg- unblaðið. Þriðji keppnisdagurinn er í dag og þá fara að vanda fram tvær umferðir. Erfiður dagur hjá Hafsteini  HEIMSMEISTARALIÐ Serbíu/ Svartfjallalands í körfuknattleik karla hafði betur gegn liði Ítalíu í gær, 74:72, á Ólympíuleikunum í Aþenu. Milos Vujanic tryggði Serb- um sigur með tveimur vítaskotum 5,6 sekúndum fyrir leikslok en skot Massimo Bulleri á síðustu sekúndum leiksins geigaði. Kínverjar, Ítalir og Serbar hafa öll unnið einn og tapað einum leik í B-riðli keppninnar.  ÞAÐ virðist sem kvennalið Kúbu í blaki sé gríðarlega sterkt á Ólympíu- leikunum í Aþenu en liðið átti í höggi við Rússa í b-riðli. Leikur liðanna var æsispennandi og stóð yfir í tvo tíma. Kúbumenn höfðu betur, 3:2, í odda- hrinu, 26:24, 19:25, 25:27, 25:19, 15:13. Kúba sigraði í kvennaflokki á ÓL í Sydney.  JIM Ronny Andersen varð í gær fyrsti Norðmaðurinn til þess að kom- ast í 2. umferð í einliðaleik karla í badminton. Andersen lagði æfinga- félaga sinn Pedro Yang frá danska liðinu Kastrup Badmintonklubb en Yang er frá Gvatemala. Andersen þykir gríðarlega höggfastur þegar hann smassar badmintonkúluna og er hraðinn á kúlunni um 300 km/klst er hún yfirgefur spaðann.  BANDARÍSKA körfuknattleiks- konan Sheryl Swoopes, getur bætt þriðju gullverðlaunum sínum í safnið í Aþenu, en hún var í liðinu sem vann til gullverðlauna í Atlanta árið 1996 og Sydney árið 2000. Swoopes var útnefnd besti leikmaður WNBA- deildarinnar í Bandaríkjunum árið 2000 og 2002.  ALEXANDER Popov, frá Rúss- landi, tókst ekki að tryggja sér sæti í úrslitum 100 m skriðsundsins í gær þegar hann varð í 9. sæti í undan- úrslitum. Popov, sem er 32 ára gam- all var ólympíumeistari í greininni í Barcelona fyrir tólf árum og í Atl- anta fyrir átta árum. Hann var í átt- unda sæti í 100 m skriðsundi í und- anrásunum.  GRIKKIRNIR, Kostas Kenteris og Ekaterinu Thanou voru ekki með neina áverka eftir bifhjólaslysið sem þau segjast hafa lent í í síðustu viku, segir læknir Alþjóða ólympíunefnd- arinnar sem skoðaði grísku tvímenn- ingana. Læknirinn útilokar þó ekki innvortis höfuðmeiðsli en Kenteris og Thanou hafa bæði kvartað undan svima. Þau segjast hafa lent í bif- hjólaslysinu eftir að hafa misst af lyfjaprófi á fimmtudaginn í síðustu viku. ÓLAFUR Stefánsson leikur sinn 200. landsleik þegar landsliðið í handknattleik mætir Slóvenum á Ólympíu- leikunum í Aþenu í dag. Ólaf- ur er þá kominn í flokk góðra manna, sem hafa náð því tak- marki – Guðmundur Hrafn- kelsson 391 landsleikur, Geir Sveinsson 328, Júlíus Jónasson 272, Valdimar Grímsson 258, Kristján Arason 238, Þorgils Óttar Mathiesen 236, Jakob Sigurðsson 236, Patrekur Jó- hannesson 234, Einar Þor- varðarson 226, Guðmundur Þórður Guðmundsson 226, Bjarki Sigurðsson 225 og Sig- urður Valur Sigurðsson 209. Næstur á eftir þeim kemur Jal-iesky Garcia sem var utan vall- ar í 12 og hálfa mínútu gegn Króatíu og í tæpar 11 mínút- ur gegn Spáni. Á meðan hafa þeir Ás- geir Örn Hallgríms- son og Róbert Gunn- arsson aðeins fengið að reyna sig í nokkrar mínútur í hvorum leik og Kristján Andrésson fékk ekki að stíga inná völlinn í eina einustu mín- útu í fyrstu tveimur leikjunum. Gylfi Gylfason kom heldur aldrei inn á gegn Spáni en hann fékk 27 mínútur gegn Króatíu. „Ég upplifi það á þessum tíma- punkti að það hafi verið keyrt of mik- ið á sömu mönnunum, og spurningin er hvort það hafi ekki þurft að hvíla þá meira til að þeir næðu að ljúka leikjunum af krafti. Þetta þurfum við að skoða mjög vel,“ sagði Einar Þor- varðarson, aðstoðarþjálfari liðsins, við Morgunblaðið, strax eftir að ís- lenska liðið hrundi gjörsamlega á lokamínútunum gegn Spánverjum á mánudaginn. Enginn Spánverji lék í meira en 42 mínútur Spánverjar voru þá, eins og Ís- lendingar, að leika sinn annan erfiða leik á þremur dögum. Það er vægast sagt athyglisvert að skoða hvernig þeir hafa dreift álaginu á sína menn og óhætt er að segja að þeir hafi gjörnýtt sinn hóp. Í báðum leikjum hafa allir tólf útispilararnir komið mikið við sögu. Gegn Suður-Kóreu í fyrsta leik spiluðu allir í minnst 13 mínútur og mest í 48 mínútur. Gegn Íslandi var dreifingin enn betri, því enginn spilaði í meira en 42 mínútur og enginn minna en í 13 mínútur. Á lokamínútunum liggur mest við að hugsun sé skýr og nóg eldsneyti eftir á tanknum, það er þá sem úrslit leikja ráðast, hraðinn eykst og oft verða miklar sveiflur. Það þarf eng- an sérfræðing til að álykta hvort liðið hafi verið betur í stakk búið til að auka kraftinn og innbyrða sigurinn á síðustu mínútunum í Faliro í fyrra- dag. Ólafur Stefánsson lék í 59 mínútur og 22 sekúndur, Talant Dujshebaev lék í tæpar 37 mínútur. Þetta eru driffjaðrirnar í liðunum tveimur. Hvor átti meiri orku aflögu síðustu 5 mínúturnar í fyrradag? Auðvitað eru Spánverjar með meiri breidd en Íslendingar. En þurfa þeir Guðmundur Þ. Guð- mundsson og Einar samt ekki að nýta sinn hóp betur? Gefa lykil- mönnum liðsins næga hvíld á réttum köflum í leiknum til að hafa þá í standi þegar mest liggur við? Það myndi ég halda. Morgunblaðið/Golli ngferðabifreið- Guðmundsson anum í Aþenu. Það var ekki mikið líf á bekknum hjá íslenska landsliðinu á lokasprettin- um í leiknum gegn Spán- verjum. Guðmundur Þ. Guð- mundsson og Einar Þorvarðarson með nokkrum sinna manna. Lykilmenn Íslands fá litla hvíld í Aþenu ÞAÐ er óhætt að segja að mikið hafi mætt á lykilmönnum íslenska handknattleikslandsliðsins í fyrstu tveimur leikjum þess á Ólymp- íuleikunum í Aþenu. Þeir hafa litla hvíld fengið, einkum þrír þeirra sem varla hafa fengið að blása úr nös á varamannabekknum til þessa. Guðjón Valur Sigurðsson fór aldrei af velli, hvorki í leiknum við Króatíu né við Spán, og keyrði því fram og til baka í sókn og vörn allar 60 mínúturnar í bæði skiptin. Ólafur Stefánsson fékk að hvíla sig í 3 mínútur gegn Króötum og í tæpar 40 sekúndur gegn Spán- verjum, auk þess sem hann var svo „heppinn“ að fá eina tveggja mínútna brottvísun í hvorum leik. Sigfús Sigurðsson var utan vallar í sjö og hálfa mínútu gegn Króatíu og í fimm og hálfa gegn Spáni. Víðir Sigurðsson skrifar frá Aþenu Ólafur í 200 leikja klúbbinn r- m. na í i c dis n- s r ann ög r þeir nds, dað. ði Íslensku landsliðsmennirnir leika þýðingarmikinn leik gegn Slóveníu Morgunblaðið/Golli Guðjón Valur Sigurðsson með langskot gegn Spánverjum. ÓL Í AÞENU 2004

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.