Morgunblaðið - 18.08.2004, Qupperneq 6
ÍÞRÓTTIR
6 B MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
Ólympíuleikarnir í Aþenu
KNATTSPYRNA
A-riðill karla:
Kórea - Malí ...............................................3:3
Grikkland - Mexíkó ...................................2:3
Staðan:
Malí .........................................3 1 2 0 5:3 5
S-Kórea ..................................3 1 2 0 6:5 4
Mexíkó....................................3 1 1 1 4:3 4
Grikkland ...............................3 0 1 2 4:7 1
C-riðill karla:
Argentína - Ástralía ..................................1:0
Serbía - Túnis ............................................2:3
Staðan:
Argentína .............................3 3 0 0 9:0 9
Túnis .....................................3 1 1 1 6:3 4
Ástralía.................................3 1 1 1 2:5 4
Serbía ...................................3 0 0 3 3:14 0
E-riðill kvenna:
Svíþjóð - Nígería .......................................2:1
Staðan:
Svíþjóð....................................2 1 0 1 2:1 3
Nígería ...................................2 1 0 1 2:1 3
Japan ......................................2 1 0 1 1:1 3
F-riðill kvenna:
Þýskaland - Mexíkó...................................2:0
Staðan:
Þýskaland.............................2 2 0 0 10:0 6
Mexíkó....................................2 0 1 1 1:3 1
Kína ........................................2 0 1 1 1:9 1
G-riðill kvenna:
Grikkland - Brasilía ..................................0:7
Bandaríkin - Ástralía ................................1:1
Staðan:
Brasilía ...................................2 2 0 0 8:0 6
Bandaríkin .............................2 1 1 0 4:1 4
Ástralía...................................2 0 1 1 1:2 1
Grikkland .............................2 0 0 2 0:10 0
Ástralía...................................1 0 0 1 0:1 0
HANDKNATTLEIKUR
A-riðill kvenna:
Úkraína - Kína.......................................26:21
Ungverjaland - Grikkland ....................33:20
Staðan:
Ungverjaland.....................2 2 0 0 61:44 4
Brasilía ...............................1 1 0 0 29:21 2
Úkraína ..............................1 1 0 0 26:21 2
Kína ....................................2 0 0 2 25:54 0
Grikkland ...........................2 0 0 2 41:62 0
B-riðill kvenna:
Kórea - Danmörk ..................................29:29
Frakkland - Spánn ................................27:20
Staðan:
Danmörk ............................2 1 1 0 64:55 3
Frakkland ..........................2 1 0 1 53:55 2
S-Kórea ..............................1 0 1 0 29:29 1
Angóla.................................1 0 1 0 24:24 1
Spánn..................................2 0 1 1 44:51 1
KÖRFUKNATTLEIKUR
A-riðill karla:
Nýja Sjáland – Kína..............................62:69
Serbía - Ítalía .........................................74:72
Spánn - Argentína .................................87:76
Staðan:
Spánn 2 2 0 170:134 4
Serbía 2 1 1 156:155 3
Ítalía 2 1 1 143:143 3
Argentína 2 1 1 159:169 3
Kína 2 1 1 127:145 3
Nýja-Sjáland 2 0 2 131:140 2
B-riðill karla:
Ástralía – Angóla...................................83:59
Litháen – Púerto Ríkó ..........................98:90
Bandaríkin – Grikkland........................77:71
Staðan:
Litháen 2 2 0 176:163 4
Grikkland 2 1 1 147:131 3
Púertó Ríkó 2 1 1 182:171 3
Ástralía 2 1 1 148:150 3
Bandaríkin 2 1 1 150:163 3
Angóla 2 0 2 147:172 2
BLAK
A-riðill karla:
Túnis – Argentína .....................................2:3
Frakkland – Serbía ...................................0:3
Grikkland – Pólland ..................................3:1
Staðan:
Grikkland 2 2 0 6:1 4
Argentína 2 2 0 6:2 4
Pólland 2 1 0 4:3 2
Serbía 2 1 1 3:3 3
Túnis 2 0 2 2:6 2
Frakkland 2 0 2 0:6 2
B-riðill karla:
Ástralía - Rússland....................................0:3
Bandar. – Holland .....................................3:0
Brasilía - Ítalía...........................................3:2
Staðan:
Brasilía 2 2 0 6:3 4
Holland 2 1 1 3:5 4
Rússland 2 1 1 5:3 3
Ítalía 2 1 1 5:4 3
Bandaríkin 2 1 1 4:3 3
Ástralía 2 0 2 1:6 2
SUND
200 metra flugsund karla:
Michael Phelps, Bandaríkjunum ......1.54,04
Takashi Yamamoto, Japan ................1.54,56
Stephen Parry, Bretlandi ..................1.55,52
200 metra skriðsund kvenna:
Camelia Alina Potec, Rúmeníu .........1.58,03
Federica Pellegrini, Ítalíu .................1.58,22
Solenne Figues, Frakklandi..............1.58,45
200 metra fjórsund:
Jana Klochkova, Úkraínu ..................2.11,14
Amanda Beard, Bandaríkjunum.......2.11,70
Kirsty Coventry, Zimbabve ..............2.12,72
KNATTSPYRNA
Vináttulandsleikur
Laugardalur: Ísland - Ítalía .................19.15
Í KVÖLD
DANSKIR knattspyrnumenn hófu í
gær verkfall eftir að viðræður milli
dönsku leikmannasamtakanna og
danska knattspyrnusambandsins
sigldu í strand. Er þetta í fyrsta
sinn í sögu dönsku deildakeppn-
innar sem slíkt gerist. Þetta þýðir
að öllum leikjum á vegum danska
knattspyrnusambandsins verður
frestað, bæði í öllum deildum
deildakeppninnar og í bik-
arkeppnum. Deilan stendur um
reglur Alþjóðaknattspyrnu-
sambandsins, FIFA, varðandi
samninga leikmanna sem eru 23
ára og yngri en leikmanna-
sambandið sættir sig ekki við að
borga þurfi fyrir þá leikmenn eftir
að samningar þeirra renna út.
Einnig eru danskir leikmenn ósátt-
ir við að fá ekki að skipta um lið ut-
an félagaskiptaramma FIFA.
Verkfallið hefur þó ekki áhrif á
þátttöku danskra félagsliða í Evr-
ópukeppni, en Bröndby og AaB
eiga að spila í Evrópukeppninni í
næstu viku. Segja forráðamenn lið-
anna að þau muni nota erlenda leik-
menn úr aðalliðinu og leikmenn
sem ekki eru meðlimir samtaka
danskra knattspyrnumanna, auk
leikmanna úr unglingaliðum félag-
anna. Theo van Seggelen, aðalritari
alþjóðasamtaka knattspyrnuleik-
manna, FIFPro, segir í yfirlýsingu
samtakanna að hann harmi afstöðu
danska knattspyrnusambandsins
og segist styðja kröfur danskra
leikmanna.
Danskir knattspyrnumenn í verkfall
VALA Flosadóttir, bronsverð-
launahafi í stangarstökki á síðustu
Ólympíuleikum, og unnusti hennar
Magnús Aron Hallgrímsson sendu ís-
lensku ólympíukeppendunum bar-
áttukveðjur og hlýja strauma í gær.
Símbéf með þessum skilaboðum frá
Völu og Magnúsi barst í gær til
Ólympíuhópsins. Þau reyndu bæði
fram á síðustu stundu að tryggja sér
keppnisrétt á ÓL en tókst ekki.
ANA Perez hefur komist að sam-
komulagi við kvennalið ÍBV í hand-
knattleik um að leika með liðinu í vet-
ur. ÍBV varð Íslands- og bikar-
meistari á síðustu leiktíð. Perez lék
með ÍBV á árunum 2001-2003 en hún
lék á Spáni í vetur. Perez mun búa í
Reykjavík næsta vetur.
FJÓRIR leikmenn úr efstu deild
karla í knattspyrnu voru úrskurðaðir
í eins leiks bann á fundi aganefndar
KSÍ í gær. Guðni Rúnar Helgason,
Fylki, Tryggvi Sveinn Bjarnason,
ÍBV, og Petr Podzemsky, KR, fá eins
leiks bann vegna fjögurra áminninga.
Jermaine Palmer, Víkingi, fær eins
leiks bann vegna sex áminninga.
DAVID Beckham, fyrirliði enska
landsliðsins, telur að félagsskipti
Nicky Butt frá Manchester United til
Newcastle geti orðið til þess að Butt
vinni sér fast sæti í byrjunarliði Eng-
lands. „Það mun gera Butt mjög gott
að leika með Newcastle og það er ljóst
að Newcastle hefur styrkst mjög mik-
ið með tilkomu hans. Butt er einn af
bestu miðjumönnum Englands og ég
held að félagsskipti hans til New-
castle geti orðið til þess að hann muni
leika meira með Englandi en áður,“
sagði Beckham.
JAMIE Carragher, varnarmaður
Liverpool, telur að Djibril Cisse og
Milan Baros geti fyllt skarð Michael
Owens sem er farinn til Real Madrid.
„Ég lék lengi með Owen og ég óska
honum góðs gengis á Spáni en nú er
kominn tími til að gleyma Owen. Það
var mikilvægt að Cisse skoraði í sín-
um fyrsta úrvalsdeildarleik og á með-
an hann og Baros halda áfram að
skora verður auðveldara að gleyma
Owen,“ segir Carragher.
17 ára Grikki, Ilias Iladis, varð í
gær Ólympíumeistari í undir 81 kílós
flokki í júdó karla þegar hann sigraði
Úkraínumanninn Roman Gontyuk í
úrslitum. Iladis þakkaði föður sínum
algerlega árangurinn en faðir hans er
einnig þjálfari hans.
Það er svo leiðinlegt kerfi á þessuað við getum ekki spilað í
A-riðli næsta ár, það verður 1989-
árgangurinn sem
fær þann heiður.
Það eru reyndar
tveir úr okkar liði
sem mega vera með,
Hjörtur Hrafn Einarsson og Þröst-
ur Leó Jóhannsson. Ég held að við,
árgangur 1988, sé mun sterkari en
árgangur 1989 þannig að við gerðum
þeim ef til vill ekkert rosalega mik-
inn greiða að vinna og láta þá mæta
þeim bestu í næsta móti,“ segir fyr-
irliðinn, sem var valinn besti leik-
maður mótsins og fékk fínan bikar af
því tilefni. „Það er búið að koma hon-
um fyrir, hann fékk sinn sess á hill-
unni,“ segir fyrirliðinn hæverskur.
„Þetta var alveg mögnuð ferð hjá
okkur og gríðarlega skemmtileg.
Eftir góðan árangur á Norðurlanda-
mótinu, þar sem við sigruðum með
því að vinna Svía með 31 stigi í úr-
slitum, gerðum við okkur vonir um
að vera meðal fjögurra efstu liða á
Evrópumótinu. Við sáum fljótlega að
við áttum fullt erindi þarna og sett-
um þá stefnuna á að vinna. Finnar
voru síðan það góðir við okkur að
leggja Makedóna og því máttum við
tapa síðasta leiknum við Hollend-
inga og í þeim leik var meira um
skiptingar hjá okkur en í öðrum
leikjum.
Ég held að við höfum náð svona
langt á góðri liðsheild. Það voru
toppmenn í þessari ferð og það
komu ekki upp nein leiðindi eða
árekstrar og við náðum mjög vel
saman, innan vallar sem utan. Vörn-
in hjá okkur var öflug og menn dug-
legir við að hjálpa ef menn misstu
sinn mann,“ segir Brynjar.
Hann sagðist ekki hafa fundið fyr-
ir stærðarmun, en oft er Ísland með
lágvaxið lið. „Ætli þetta sé ekki eitt
hávaxnasta lið sem við höfum haft,
ég held að það hafi verið um átta eða
níu leikmenn um 1,90 eða hærri
þannig að ég fann ekki fyrir stærð-
armun – ekki alvarlega í það
minnsta.“
Næsta EM hjá þessum árgangi er
eftir tvö ár og „við verðum að
treysta á árganginn fyrir ofan okkur
að sigra í B-riðlinum eins og við
gerðum þannig að við fáum að njóta
þess að spila í A-riðli,“ segir fyrirlið-
inn.
En hvenær byrjaði besti maður
mótsins að spila körfu?
„Bróðir minn, sem var tíu ára þeg-
ar ég var fjögurra, setti upp körfu á
svefnherbergishurðina og við vorum
alltaf að skjóta þar þannig að það
varð fljótlega að skipta um hurð.
Síðan fór ég að æfa hjá KR þegar ég
var sjö ára og hef æft vel síðan,“ seg-
ir Brynjar Þór Björnsson, en hann
er sonur Björns M. Björgvinssonar
formanns unglinganefndar KKÍ og
fyrrverandi formanns KKÍ.
FÓLK
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurlið Íslands í B-deild Evrópukeppni U-16 ára landsliða pilta. Efri röð frá vinstri: Þröstur Leó
Jóhannsson, Hafþór Júlíus Björnsson, Gústaf Hrafn Gústafsson, Sigurður Gunnar Þorsteinsson,
Hörður Helgi Hreiðarsson, Hjörtur Hrafn Einarsson og Benedikt Guðmundsson þjálfari. Neðri röð
frá vinstri: Hörður Axel Vilhjálmsson, Þórir Guðmundsson, Páll Kristinsson, Brynjar Þór Björns-
son, Emil Þór Jóhannsson og Böðvar Sigurvin Björnsson.
Brynjar Þór, fyrirliði 16 ára landsliðsins í körfuknattleik
Hálfgerður
bjarnargreiði
„ÞAÐ má eiginlega segja að þetta sé hálfgerður bjarnargreiði,“ segir
Brynjar Þór Björnsson, fyrirliði 16 ára landsliðs Íslands í körfuknatt-
leik, sem sigraði í B-riðli Evrópumótsins um helgina og tryggði Ís-
landi þar með rétt til að leika meðal þeirra bestu á næsta ári, í A-riðli.
Eftir
Skúla Unnar
Sveinsson