Morgunblaðið - 25.09.2004, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. SEPTEMBER 2004 B 3
KEFLAVÍK tapaði í gær naumlega
fyrir finnsku meisturunum Kuvot,
76:80, í öðrum leik sínum á hinu
óopinbera Norðurlandamóti fé-
lagsliða í körfuknattleik sem nú
stendur yfir í Bærum í Noregi.
Keflvíkingar hafa þar með tapað
báðum leikjum sínum, þeir biðu líka
lægri hlut fyrir Bærums Verk frá
Noregi í fyrradag. Þeir eiga þó enn
möguleika á að ná öðru sætinu og
leika úrslitaleik mótsins en þeir
geta náð því með því að sigra Norr-
köping Dolphins frá Svíþjóð í dag.
Keflavík var yfir, 26:20, eftir
fyrsta leikhluta en í öðrum leik-
hluta skoraði liðið aðeins 6 stig og
var undir í hálfleik, 32:45. Finn-
arnir héldu forystunni eftir það,
staðan var 63:53 eftir þriðja leik-
hluta en undir lokin minnkaði
Keflavík muninn tvisvar í tvö stig.
„Þetta var miklu betri leikur en
gegn Norðmönnunum, en finnska
liðið er miklu sterkara en það
norska. Við höfðum burði til að
sigra en fórum illa að ráði okkar í
öðrum leikhluta. En liðið bætti sig
vel á milli leikja, og stefnan er að
halda áfram á þeirri braut,“ sagði
Sigurður Ingimundarson, þjálfari
Keflavíkur, við Morgunblaðið.
Stig Keflavíkur: Anthony Glover
31, Gunnar Einarsson 12, Magnús
Gunnarsson 10, Arnar Freyr Jóns-
son 7, Jimmy Miggins 6, Davíð
Jónsson 6, Halldór Halldórsson 2,
Jón N. Hafsteinsson 2.
Naumt tap Keflavíkur
gegn Kuvot frá Finnlandi
FÓLK
GYLFI Þór Orrason, milliríkja-
dómari í knattspyrnu, dæmir leik
FH og KA í undanúrslitum bik-
arkeppninnar sem fram fer í dag
kl. 14 og honum til aðstoðar verða
Gunnar Gylfason og Eyjólfur
Ágúst Finnsson.
JÓHANNES Valgeirsson mun
dæma leik Keflavíkur og HK sem
fram fer á morgun kl. 14. Aðstoð-
ardómarar verða þeir Einar K.
Guðmundsson og Sigurður Óli
Þorleifsson.
RÚV sýnir báða leikina í beinni
útsendingu. Leikur FH og KA
verður klukkan 14 á laugardag og
leikur Keflavíkur og HK klukkan
14 á sunnudag.
KEFLAVÍK og HK hafa haldið
mörkum sínum hreinum í bikar-
keppninni til þessa. HK hefur leik-
ið alla fjóra leiki sína á heimavelli
og lagt þar að velli Deigluna, 3:0,
ÍA, 1:0, Reyni S., 1:0 og Val, 1:0.
KEFLAVÍK hefur hins vegar
spilað leiki sína á útivelli. Keflavík
vann 3:0 sigur á Völsungi, lagði
Fram, 1:0 og Fylki með sömu
markatölu.
FH byrjaði þátttöku sína í bik-
arkeppninni í ár með 5:0 sigri á
Ægi. Því næst lagði liðið Aftureld-
ingu, 1:0, og síðan KR, 3:1.
KA sigraði Tindastól, 1:0, í 32
liða úrslitunum, Víking 4:2 í 16 liða
úrslitunum og í ÍBV í vítaspyrnu-
keppni í 8 liða úrslitunum eftir
markalaust jafntefli.
KA og FH mættust í undanúr-
slitum bikarkeppninnar fyrir
þremur árum. KA sem var í 1.
deild gerði sér þá lítið fyrir og
lagði úrvalsdeildarlið FH í Kapla-
krika, 3:0. KA er að leika í undan-
úrslitum bikarsins fjórða árið í röð.
SVERRIR Garðarsson, varnar-
maðurinn sterki hjá FH, tekur út
leikbann í leiknum við KA.
HÖRÐUR Már Magnússon hefur
reynst HK-mönnum dýrmætur í
bikarkeppninni. Hörður skoraði öll
þrjú mörkin á móti Deiglunni.
Hann skoraði sigurmarkið á móti
bikarmeisturum ÍA í 32 liða úrslit-
unum og sigurmarkið á móti Val í
8 liða úrslitunum.
HÖRÐUR Már, sem lék úrslita-
leik bikarkeppninnar með Val gegn
KA árið 1992, hefur því skorað 5 af
6 mörkum HK í keppninni til
þessa.
ZORAN Daníel Ljubicic, fyrirliði
Keflavíkur, hóf feril sinn á Íslandi
með HK, lék þar í tvö ár og er
fimmti markahæsti leikmaður
Kópavogsfélagsins frá upphafi með
32 mörk.
GUNNLEIFUR Gunnleifsson,
markvörðurinn snjalli úr HK, sem
ekki hefur fengið mark á sig í bik-
arnum í ár, lék í tvö ár með Kefla-
vík í úrvalsdeildinni, 2000 og 2001,
en áður stóð hann um skeið í mark-
inu hjá KR-ingum.
NÁMSKEIÐUM Knatt-
spyrnuakademíu Íslands sem
hefjast áttu á mánudag hefur
verið frestað um óákveðinn
tíma vegna kennaraverkfalls-
ins. „Þetta gengur ekki meðan
á verkfalli stendur vegna þess
að námskeiðin eru fyrir skóla-
tíma á morgnana, hefjast kl.
6.30, og það var greinilegt að
iðkendur voru ekki tilbúnir til
að mæta þá og fara síðan aftur
heim í stað þess að mæta í
skólann. Við verðum því að
bíða um sinn og sjá hvernig
verkfallið þróast áður en við
ákveðum hvenær við förum af
stað,“ sagði Arnór Guðjohn-
sen, einn forvígismanna KAÍ.
Frestað
vegna
verkfalls
Morgunblaðið/Kristján
u við KA-mennina Atla Þórarinsson fyrirliða og Stein Viðar Gunnarsson varnarmann í leik liðanna á Ak-
ngar fögnuðu sigri og tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta skipti í sögu Hafnarfjarðarfélagsins.
ÍÞRÓTTIR
MM íslenskir kylfingar reyndu fyrir
á fyrsta stigi úrtökumóts evrópsku
taraðarinnar í golfi sem fram fór á
mur stöðum á Englandi í síðustu
u og skiluðu 20% af „stofninum“ sér
leið á annað stig úrtökumótsins
m fram fer í nóvember nk. Líklega
ætisnýliðun ef Hafrannsóknastofnun
ði gert skýrslu um keppnina – yfir
ðaltali síðustu ára.
irgir Leifur Hafþórsson úr GKG
g nokkur feilspor á fyrsta keppn-
eginum af fjórum en lék að öðru
i eins og krafist var af honum. Á
u höggi yfir pari samtals og endaði í
i 28 efstu á Carden Park-vellinum.
ði reyndar mun betur og endaði í
–16. sæti.
igurpáll Geir Sveinsson, GA, var
ins einu höggi frá því að komast
am á St. Annes-vellinum og Ólafur
r Sigurðsson úr GK var tveimur
gum frá því að komast á annað stig
ökumótsins en hann lék á Carden
k.
Magnús Lárusson úr GKj. var þrem-
höggum frá 28. sætinu á Chart
s-vellinum en Heiðar Davíð Braga-
úr GKj. náði sér ekki á strik að
su sinni á St. Annes en er með
gamannatitla frá Spáni og Wales.
ðar Davíð hefur sýnt að hann getur
arað sig í keppni við þá bestu sem
eru áhugamenn líkt og hann og
gnús Lárusson. Alls komust 149
fingar í gegnum fyrsta flöskuháls-
af þremur á úrtökumótunum fimm.
slenskir atvinnukylfingar búa við þá
töðu í íslensku íþróttaumhverfi að
rkir frá einkaaðilum og fyrirtækjum
a þeim kleift að taka þátt í mótum –
el gengur að safna fé til slíkra
ða.
irgir Leifur Hafþórsson er skýr-
a dæmið um óslípaðan demant sem
mínu mati fær ekki sanngjarna með-
dlun þegar kemur að því að útdeila
r afrekssjóði Íþrótta- og Ólympíu-
mbands Íslands.
Á yfirstandandi keppnistímabili hef-
Birgir Leifur sýnt það og sannað að
n er besti kylfingur landsins. Ís-
dsmeistari í höggleik, Íslandsmeist-
ari í holukeppni, stigameistari Toyota-
mótaraðarinnar, og Íslandsmeistari í
sveitakeppni með GKG.
Í stuttu máli – langbestur.
Í sjöunda sinn á sínum ferli reynir
hann fyrir sér á úrtökumóti fyrir evr-
ópsku mótaröðina í golfi. Þar reyna
fyrir sér um 900 kylfingar á hverju ári
og aðeins 4% þeirra ná alla leið inn á
mótaröðina enda aðeins 35 aðgöngu-
miðar í boði á hverju ári.
Líkurnar eru að mörgu leyti eins og í
getraunum eða í lottó. Og á þeim vett-
vangi standa íslenskir kylfingar höllum
fæti.
Stærsti hlutinn af því fé sem afreks-
sjóður Íþrótta- og Ólympíusambands
Íslands fær til úthlutunar á hverju ári
kemur frá sölu á lottó- og getrauna-
seðlum. Sérstök nefnd á vegum ÍSÍ út-
deilir fé til afreksmanna og kvenna en
farið er eftir reglugerð við úthlutunina.
En viðskiptavinir sem kaupa lottó og
getraunseðla fá litlu um það ráðið
hvert stuðningur þeirra eigi að renna –
að undanskilinni söluþóknun til fé-
lagsliða sem eiga sitt eigið „getrauna-
númer“.
Að mínu mati er stór brotalöm í
áherslum nefndarinnar sem hefur skil-
greint hlutverk sitt með þeim hætti að
meirihluti af ráðstöfunarfé nefnd-
arinnar skuli renna til íþróttagreina
sem eru undir hatti Ólympíu-
nefndarinnar, IOC.
Sem sagt Ólympíugreinar og skil-
greiningar sem nefndin vinnur eftir
eru að mínu mati afar óraunhæfar sé
litið á íþróttagreinar sem eru vinsælar
á heimsvísu.
Bestu kylfingar heims hafa lýst því
yfir að þeir hafi ekki áhuga á því að
taka þátt á Ólympíuleikum í nánustu
framíð. Stórmótin fjögur sem eru á
hverju keppnistímabili samhliða móta-
röðum í Ameríku, Asíu og Evrópu
nægja afrekskylfingum eins og staðan
er í dag. Nútíma-fimmtarþraut, sam-
hæfð sundfimi, samhæfðar dýfingar,
sundknattleikur og „landhokkí“ eru Ól-
ympíugreinar sem eru framar en golfið
í goggunarröðinni samkvæmt vinnu-
reglum afrekssjóðsins.
Í starfsreglum afreksjóðs er stuðst
við eftirfarandi skilgreiningu á afrek-
um:
„Afreksíþróttafólki í einstaklings-
greinum er skipt niður í þrjá styrk-
leikaflokka til viðmiðunar:
A-flokkur Afreksíþróttamenn sem
teljast líklegir til þess að verða meðal
átta bestu ánæstu Ólympíuleikum eða
heimsmeistarakeppni í sinni íþrótta-
grein.
B-flokkur afreksíþróttamenn með 20
bestu í heiminum í sinni íþróttagrein.
C-flokkur afreksíþróttamenn með 40
bestu í heiminum í sinni íþróttagrein.“
Það er vissulega gott að setja sér há-
leit markmið en fyrir ungt íþróttafólk
sem ætlar sér að ná langt eru þessi við-
mið oft á tíðum óraunhæf.
Dæmi:
Sá kylfingur sem er í áttunda sæti á
heimslistanum í dag hefur unnið sér
inn rúmlega 230 millj. kr. á þessu ári
og hann heitir Paidraig Harrington og
er frá Írlandi. Harrington var upptek-
inn um síðustu helgi vegna Ryder-
keppninnar á Oakland Hills. Ef Harr-
ington væri íslenskur ríkisborgari
fengi hann 160.000 kr. á mánuði fyrir
stöðu sína á heimslista. – Eins og hann
þyrfti á því halda!
Spánverjinn Miguel Angel Jimenez
er í 20. sæti, B-leikmaður, samkvæmt
skilgreiningu afrekssjóðsins. Jimenez
var líkt og Harrington upptekinn við
Ryder-keppnina um sl. helgi og hefur
unnið sér inn um 140 millj. kr. á þessu
keppnistímabili. Jimenez fengi 80.000
kr. á mánuði frá afrekssjóðnum miðað
við afrek sín á þessu ári – ef hann væri
íslenskur.
Chris Riley var að ég held einnig að
keppa um síðustu helgi með Ryder-liði
Bandaríkjamanna. Hann er sem stend-
ur í 40. sæti á heimslistanum, með 86
millj. kr. í verðlaunafé. Riley yrði að
sætta sig við 40.000 kr. á mánuði frá af-
rekssjóðnum ef hann væri íslenskur
enda C-leikmaður.
Birgir Leifur Hafþórsson, Sigurpáll
Geir Sveinsson, Heiðar Davíð Braga-
son, Magnús Lárusson, Ólafur Már
Sigurðsson, Ragnhildur Sigurðardóttir
og Ólöf María Jónsdóttir eru afrek-
skylfingar sem hafa valið að reyna fyr-
ir sér á meðal þeirra bestu. En til þess
að ná alla leið eru margir flöskuhálsar
og kostnaðurinn mikill og afreksmaður
á borð við Björgvin Sigurbergsson sá
sér ekki fært að taka þátt að þessu
sinni vegna óvissu um fjárhagslega
framtíð sína sem atvinnumaður.
Stuðningur Íþrótta- og Ólympíusam-
bands Íslands hefur verið til skammar
við afrekskylfinga á undanförnum ár-
um af þeirri einföldu ástæðu að skil-
greiningar og vinnureglur afrekssjóðs-
ins eru langt frá því að vera raunhæfar.
Á árunum 1999–2003 fékk Golf-
samband Íslands úthlutað samtals 3,6
millj. kr. af tæplega 123 millj. kr. sem
afrekssjóður úthlutaði á þessum tíma.
Það gerir tæp 3% af heildarúthlutun
sjóðsins – og er í engu samræmi við
hlutfall þeirra sem stunda golf. Enda
næstfjölmennasta íþróttagrein lands-
ins á eftir knattspyrnu. Og vel á
minnst. Knattspyrnuhreyfingin fékk
6,6% af heildarköku afrekssjóðsins á
árunum 1999–2003 og er það efni í aðra
grein.
Sigurður Elvar Þórólfsson
Afrekssjóður
á villigötum
seth@mbl.is