Morgunblaðið - 26.09.2004, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. SEPTEMBER 2004 B 11
Óskað er eftir tilboðum í:
Hitaþolnar plastpípur
PR80 DIN 8077-1977-12
Útboðsgögn verða seld frá og með þriðjudeginum 28.
september 2004, hjá þjónustufulltrúum á 1. hæð í húsi
Orkuveitu Reykjavíkur, Bæjarhálsi 1,110 Reykjavík. Verð
útboðsgagna er kr 3.000.
Tilboð verða opnuð á sama stað í fundarsal á 3. hæð,
vesturhúsi, fimmtudaginn 21. október 2004 kl. 11.00.
OR/04/028
Orkuveita Reykjavíkur • Bæjarhálsi 1 • 110 Reykjavík
Sími 516 6000 • Fax 516 7000
www.or.is/utbod
ÚTBOÐ
Útboð
Utanhússviðgerðir o.fl.
Húsfélögin Víðimel 19, 21 og 23, Reykjavík,
óska hér með eftir tilboðum í utanhússviðgerð-
ir. Húsfélagið samanstendur af 31 íbúð.
Helstu verkþættir eru sem hér segir:
Viðgerð á þökum, endurnýjun á þakjárni og
þakgluggum.
Múrviðgerðir ásamt endursteiningu hússins.
Brjóta niður eldri svalir og koma fyrir nýjum
forsteyptum svölum með léttum handriðum.
Smíða ný létt skyggni fyrir anddyri.
Endurnýjun og lagfæring glugga.
Málun utanúss.
Rafmagn, breyting á veikstraumslögnum.
Útboðsgögn eru afhent á Verkfræðistofunni
Hamraborg sf., Hamraborg 10, Kópavogi,
3. hæð, gegn 10.000 kr. skilatryggingu.
Verklok 1. ágúst 2005.
Tilboð verða opnuð á Verkfræðistofunni Hamra-
borg sf., Hamraborg 10, 3. hæð, miðvikudaginn
6. október 2004 kl. 16.00 að viðstöddum þeim
bjóðendum sem þess óska.
Útboð
Drangsnes, Hólmavík, Óspakseyri
Sjóvarnargarðar
Siglingastofnun óskar eftir tilboðum í gerð sjó-
varnargarða á ofantöldum stöðum.
Helstu magntölur:
Drangsnes, 532 m3 flokkað grjót af stærð 0,1-
1,5 tonn.
Hólmavík, 327 m3 óflokkuð kjarnafylling og
263 m³ flokkað grjót af stærð 0,3-1,5 tonn.
Óspakseyri, 418 m3 óflokkuð kjarnafylling
og 322 m³ flokkað grjót af stærð 0,2-2,5 tonn.
Verkinu skal lokið eigi síðar en 30. desember
2004.
Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu Siglinga-
stofnunar, Vesturvör 2, Kópavogi, frá þriðju-
deginum 28. september gegn 5.000 kr.
greiðslu.
Tilboð verða opnuð á sömu stöðum þriðjudag-
inn 12. október 2004 kl. 11:00.
Siglingastofnun.
Vatnamót í Skaftárhreppi
Landeigendafélag Hörgslandsþorps óskar eftir
tilboðum í veiði í Vatnamótum í Skaftárhreppi
í Vestur-Skaftafellssýslu.
Vatnamót eru þar sem mætast Skaftá, Breið-
balakvísl og Fossálar. Um er að ræða fimm
stanga svæði sem leigist til næstu fimm ára,
frá og með 1. apríl 2005. Svæðið leigist án
veiðihúss. Vatnasvæðið er um 8 km sunnan
þjóðvegarins, 32 kílómetra austan við Kirkju-
bæjarklaustur. Vegalengdin frá Reykjavík er
290 km. Landeigendafélagið áskilur sér rétt
til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öll-
um. Verðtilboðum þarf að skila skriflega fyrir
5. október 2004 til Landeigendafélags Hörgs-
landsþorps, Hörgslandi 2, 880 Kirkjubæjar-
klaustri. Einnig má senda tilboð í tölvupósti
á netfangið: olafiaj@centrum.is.
Nánari upplýsingar veita Sigurður Kristinsson
í síma 487 4863 eða í tölvupósti
iggis@hvippinn.is og Ólafía Jakobsdóttir í síma
892 9650 eða tölvupósti olafiaj@centrum.is.
Tilboð óskast í íbúðarblokk
við Kópavogsbraut 1d, Kópavogi
13671 Kópavogsbraut 1d, Kópavogi.
Um er að ræða íbúðarblokk sem er tvær hæðir
auk kjallara og neðri kjallara, ásamt þakrými
sem er vel manngengt og hefur verið nýtt sem
geymslurými. Húsið er byggt úr steinsteypu árið
1960. Stærð hússins er 1679 m² og stærð lóðar
3841 fm. Húsið var klætt að utan með Stenex-
plötum ásamt því að skipt var um glugga og
gler fyrir um 10 árum. Brunabótamat húsnæðis-
ins er kr. 135.960.000 og fasteigna- og lóðamat
er kr. 128.745.000.
Húseignin er til sýnis í samráði við Ríkiskaup,
Borgartúni 7, 105 Reykjavík í síma 530 1412. Til-
boðseyðublöð liggja frammi á sama stað ásamt
reglum um frágang og útfyllingu á tilboðseyðu-
blaði.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 14.00
þann 12. október 2004 þar sem þau verða opnuð
í viðurvist bjóðenda er þess óska.
Tilboð óskast í grunnskólann að Núpi
í Ísafjarðarbæ
13605 Um er að ræða skólahúsnæði og
íbúð að Núpi, Dýrafirði, Ísafjarðarbæ.
Húsnæðið er byggt 1975. Stærð skólahúsnæðisins
er 316,6 m² og íbúðar 173,0 m².
Brunabótamat eignanna er kr. 61.029.000 og
fasteignamat er kr. 14.178.000.
Nánari upplýsingar um ofangreinda eign veita
Ríkiskaup í síma 530 1412, Borgartúni 7, 105
Reykjavík þar sem tilboðseyðublöð ásamt leið-
beiningum um útfyllingu tilboðseyðublaða
liggja frammi.
Tilboð skulu berast Ríkiskaupum fyrir kl. 10.00
hinn 19. október 2004 þar sem þau verða opnuð
í viðurvist bjóðenda er þess óska.
Skólaakstur - útboð
Kópavogsbær auglýsir útboð skólaaksturs fyrir
Salaskóla, Lindaskóla og Smáraskóla.
Hér er um að ræða akstur í íþróttir og sund.
Útboðsgögn verða afhent í afgreiðslu fræðslu-
sviðs, Fannborg 2 (2. hæð) frá 27. september.
Frestur til að skila tilboðum er til 8. október
kl. 15.
Framkvæmdastjóri fræðslusviðs.
ÚU T B O Ð
Forval 13680 - Íþrótta- og kennslu-
húsnæði fyrir Menntaskólann í
Hamrahlíð
Ríkiskaup, fyrir hönd menntamálaráðuneytis,
efna til forvals vegna byggingu á íþrótta- og
kennsluhúsnæði fyrir Menntaskólann í Hamra-
hlíð, til að velja þátttakendur í fyrirhugað lokað
alútboð.
Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í fyrirhuguðu
útboði skulu senda inn þátttökutilkynningu
ásamt umbeðnum upplýsingum.
Verkið felst í hönnun og byggingu á nýju íþrótta-
og kennsluhúsi sem rísa skal á lóð Menntaskól-
ans við Hamrahlíð. Byggingin verður um 2.000
m² að stærð nettó þ.e. án tæknirýma, ganga,
stiga, inn- og útveggja.
Verkefni verktaka nær til hönnunar og smíði
hússins ásamt frágangi, innréttingum og hluta
búnaðar þannig að allar kröfur verkkaupa og
yfirvalda séu uppfylltar.
Nýbyggingu MH er ætlað þríþætt hlutverk:
að rúma aðstöðu fyrir fjölbreytta líkamsræktar-
kennslu
að opna fyrir fjölgun um allt að 150 nemendur
að leysa úr brýnustu húsnæðisþörfum skólans
að að öðru leyti (beint eða með endurskipu-
lagi á eldra húsnæði).
Áætlað er að framkvæmdir geti hafist næsta vor
og þeim verði lokið sumarið 2006.
Forvalsgögn verða til afgreiðslu hjá Ríkiskaupum
frá og með þriðjudeginum 28. septem-
ber nk. Verð forvalsgagna er kr. 3.500. Þátttöku-
tilkynningar skulu berast Ríkiskaupum eigi síðar
en 19. október 2004 kl. 11.00.