Morgunblaðið - 29.09.2004, Page 6

Morgunblaðið - 29.09.2004, Page 6
6 C MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ bílar BÍLASÝNINGIN í París hefur nokkra þýðingu fyrir Íslendinga sem öðrum þjóðum fremur kaupa jeppa og jepp- linga. Ástæðan er sú að frumsýndir voru að minnsta kosti fimm nýir bílar í þessum flokki sem allir eiga eftir að koma á markað hérlendis. Áður hefur verið fjallað um breytt- an Land Rover Discovery á þessum síðum en hann var eitt helsta tromp PAG, lúxusbílaarms Ford, á bílasýn- ingunni í París. Útlitsbreytingin er al- gjör og bíllinn hefur fengið svip eins og Range Rover, en stóru breyting- arnar eru líka þær að honum hefur verið umbylt að innan og farin er sjálfstæða burðargrindin. Ekki er vit- að á þessu stigi hvað bíllinn kostar en ljóst er að hann hækkar umtals- vert í verði. Von er á fyrstu bílunum í desember nk. Stóri bróðir X-Trail Nissan kynnti tvo nýja jeppa fyrir Evrópumarkað. Fyrstan að telja er Nissan Pathfinder sem kallaður hef- ur verið stóri bróðir X-Trail. Ástæðan er sú að Pathfinder verður með sam- byggða yfirbyggingu og grind og þar að auki einvörðungu með sítengdu aldrifi, ekki ólíku því sem boðið er upp á í X-Trail. Drifið er rafstýrt og tengir afturhjólin sjálfvirkt eingöngu þegar þörf er fyrir drif á öllum hjól- um. Það verður samt hægt að beita fjórhjóladrifi eftir fjórum mismunandi valprógrömmum, sem er drifkerfi sem fleiri framleiðendur eru nú að þróa. Bíllinn verður boðinn m.a. með 2,5 lítra dísilvél. Pathfinder er hins vegar mun rúmbetri en X-Trail og er með sætum fyrir sjö manns. Path- finder er byggður á Dunehawk- hugmyndabílnum sem sýndur var í Frankfurt í fyrra og er nánast óbreyttur frá hugmyndabílnum. Þetta er því bíll með útlit jeppans en byggður og hannaður til notkunar í borgum. Eins og margir borgarjeppar er Pathfinder með þremur sætaröð- um en þá öftustu er hægt að fella Nýju jepparnir í París Morgunblaðið/Guðjón Guðmundsson Pathfinder er borgarjeppi með sætum fyrir allt að sjö manns. Pathfinder státar af nýju drifkerfi en er án millikassans. Nýr Discovery er væntanlegur í desember til Íslands og hækkar í verði. Discovery er nýr að innan eins og utan og meira vandað til innréttinga. WW GOLF 1600, ÁRGERÐ 1999 Beinsk., 5 dyra, ek. 49 þús. km. Bíllinn er ný yfirfarinn og er í toppstandi. Verð 850 þús. Uppl. í s. 554 2065 og 849 2098. Wolksvagen Golf 1800 sjálfskiptur, skemmdur eftir umferðaróhapp til sölu. Uppl. í síma 698 1640. TOYOTA YARIS ÁRG. '99 5 dyra, ek. 77.000 km, cd, low profile, vindskeið, góður bíll, bílalán 400.000. Verð 650.000. S. 554 1610/892 7852. TOYOTA LANDCRUSIER 90 GX TD Nýskr. 11/2003, ekinn 17 þús. km., stein- grár, ssk., dráttark., filmur. V. 4.690.000. Upplýsingar í síma 897 8711. TILBOÐ 360.000 KR. Daewoo Nubria SX STW 1600 cc árg. '99. Ek. 141 þús. Cd-spilari, samlæsingar, heil- sársdekk, álfelgur, með filmum og skoðaður '05. Áhvílandi bílalán. Uppl. í síma 891 8998. Mercedes S-Class 320. Til sölu frábært eintak af S-320, árg. 1995, ekinn 145.000 km, þjónustubækur, hlaðinn aukabúnaði s.s. innb. gsm-sími, tímastillt hitunarkerfi o.m.fl. Ekkert áhvílandi. Verð kr. 2.600.000. Myndir og uppl. á www.korter.is/benz. S. 896 6860. HPI MT-2 FJÓRHJÓLADRIFINN 1/10 TRUKKUR T-15, 2,5cc mótor, 1,2 hestöfl, ca 2 kg að þyngd, hraði allt að 70 km/ klst. Pakkatilboð. Bíll með öllu. HPI á Íslandi. Tómstundahúsið, Nethyl 2, sími 5870600 www.tomstundahusid.is MUSSO '00 3,2 220 HÖ Sjálfsk. Ekinn 71 þús. Leður, fjarstart og rafmagn í öllu. Spólvörn, ABS, cd-spilari, AC. Lúxusbíll í topp ástandi. Verð 1.850 þús. Upplýsingar í síma 899 2755. ÓDÝR VEL MEÐ FARINN FJÖLSKYLDU- BÍLL Hyundai Elantra 1800 GLS Wagon til sölu. Listaverð/uppítökuverð 28/9 '04 390 þús. Tilboð 250 þús. stgr. Upplýsingar í síma 895 0383. NISSAN PRIMERA árg. '01 ek. 61 þús. km. Fallegur bíll, 5 dyra, 5 gíra. 1600 cc., CD, þjónustubók, álfelgur. Verð aðeins 1.190 þús. Skipti á dýrari möguleg. Uppl. Kristinn 863 6401.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.