Morgunblaðið - 29.09.2004, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 29.09.2004, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2004 C 7 bílar slétt ofan í gólfið þegar sætin eru ekki í notkun. Ekki liggur fyrir hve- nær Pathfinder og Murano koma til Íslands en innan tíðar er von á nýrri kynslóð Patrol, sem er minna breytt- ur en búast hefði mátt við. Breiðastur jepplinganna Mikil endurnýjun á sér stað hjá Kia, sem er í meirihlutaeigu Hyundai. Í París var frumkynnt ný kynslóð Sportage-jepplingsins sem er orðinn stærri og mun nútímalegri bíll á að líta. Hyundai kynnti reyndar líka sína útgáfu af jepplingi í þessum stærð- arflokki, Tucson, en hann ásamt Sportage keppa við bíla eins og Toyota RAV4, Honda CR-V og Ford Escape. Sportage hefur það fram yf- ir RAV4 að hann er 10 cm lengri en 15 cm styttri en Nissan X-Trail, og verður því ekki stærsti bíllinn í sín- um flokki. Hann verður hins vegar sá breiðasti í sínum flokki, 2 cm breiðari en Honda CR-V. Varadekkið er haft undir farangursrýminu og þar með er afturhlerinn látinn opnast upp, sem er kostur. Bíllinn verður boðinn með þremur vélum, 2,0 l bensínvél, 142 hestafla, 2,7 l V6 bensínvél, og 2,0 lítra dísilvél, 142 hestafla. Kia Sportage er mun nútímalegri í útliti og breiðastur jepplinganna. Tucson frumsýndur um allt land  B&L frumsýnir nýja sportjeppann Hyundai Tucson næstu helgi, eins og greint hefur verið frá. Frumsýningin mun þó ekki fara fram einvörðungu í Reykjavík, heldur víðs vegar um landið í samstarfi við umboðsaðila B&L. Heiðar J. Sveinsson, forstöðumaður sölusviðs, segir það skemmtilega tilbreytingu að frumsýna nýjan sportjeppa á sama tíma um allt land. Tölu- vert hafi verið spurt um hann síðustu vikur og með hliðsjón af því að áhuginn væri ekki bundinn Reykjavík eingöngu, hefði verið ákveðið að leita eftir samstarfi við stærstu um- boðsaðila B&L. Auk B&L verður Tucson frumsýndur hjá SG bílum í Reykjanesbæ, Bílási á Akranesi, Bílasölu Akureyrar, Bifreiðaverkstæðinu Áka á Sauðárkróki og Bifreiðaverkstæði Borgþórs á Egilsstöðum.  VETNI hefur um áratugi verið notað til að knýja eld- flaugar sem skotið er út fyrir himinhvolfið og á síðustu ár- um hafa bílaframleiðendur gert tilraunir með vetni í bílum. Þeir framleiðendur sem þetta hafa gert hafa flestir farið þá leið að búa tilraunabíla með efnarafölunum sem umbreytir vetni á þar til gerðum geymslutönkum í raf- magn og vatn, en BMW hefur frá fyrstu tíð valið þá leið að halda sig við gamla brunahreyfilinn og knýja bílinn með hreinu vetni. Nýlega setti BMW níu heimsmet með þessari tækni. Fyrirtækið tekur svo djúpt í árina að segja að metin marki upphafið að vetnisöldinni. Metin voru sett í tilraunabílnum H2R. Hann er með sex lítra, 12 strokka vél sem skilar 285 hestöflum. Hröðun bílsins úr kyrrstöðu í 100 km gerðist á sex sek- úndum og hámarkshraðinn var 302,4 km á klst. Þetta er mikill hraði sé miðað við aðra bíla sem byggja á vetn- istækni. Vélin í H2R er í megindráttum byggð á tólf strokka bensínvél BMW sem boðin var í 760i bílnum. Vetnisbrunavél BMW státar af nýjustu tækni eins og t.d. breytilegum opnunartíma ventla, svokallaðri Valvetronic- tækni. Stærstu breytingarnar á vélinni snerta innspraut- unarkerfi hennar. BMW hyggst í framtíðinni setja á mark- að fyrsta tvíorkubílinn í lúxusflokki. Bíllinn verður af nú- verandi kynslóð BMW 7 og verður þetta fyrsti bíllinn sem brennir jafnt bensíni sem vetni. Metin sem sett voru á H2R eru eftirfarandi. Fyrst kem- ur tíminn, síðan vegalengdin og loks hámarkshraðinn:  Á ferð í einn km: 11.993 sekúndur - 300,190.  Á ferð í eina mílu: 19,912 sekúndur - 290,962.  Úr kyrrstöðu í 1/8 mílu: 9,921 - 72,997.  Úr kyrrstöðu í kvartmílu: 14,933 - 96,994.  Úr kyrrstöðu í ½ km: 17,269 - 103,233.  Úr kyrrstöðu í 1 mílu: 36,725 - 157,757.  Úr kyrrstöðu í 10 mílur: 221,052 - 262,094.  Úr kyrrstöðu í 1 km: 26,557 - 135,557.  Úr kyrrstöðu í 10 km: 146,406 - 245,892. Brennir vetni og nær rúmlega 302 km hraða á klst. Níu met á vetnisknúnum BMW Tæknimenn BMW koma vetnistank- inum fyrir í H2R.  HONDA hefur þróað rafmagnsvespu með efnarafala sem umbreytir vetni í raforku. Efnarafalastæðan kallast Honda FC Stack. Hægt er að gang- setja vélina í frosti án vand- ræða og samstæðan er létt- ari og minni en áður hefur þekkst enda er þessi gerð hennar sérstaklega hönnuð fyrir vespuna. Honda hefur mikla reynslu af framleiðslu efnarafala í bíla en að því er best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem boðið er upp á þessa tækni í vespu. Raf- magnsvespan er byggð á 125cc vespu, sem er sú stærð sem einna vinsælust er til notkunar í stórborgum víða um heim. Efnarafallinn er fyrir miðju hjólinu en rafmótorinn við afturhjólið. Vespan er svipuð að stærð og þyngd og venjuleg vespa með bensínmótor. Honda hyggst halda áfram að þróa þessa nýju vespu og gera tæknihluta hennar ennþá minni og léttari í þeim tilgangi að hún nái sama ökudrægi og venjuleg vespa í þessum stærðarflokki. Stóri kosturinn við rafmagnsvespu af þessu tagi er að hún er mengunarlaus með öllu og stuðlar því að minnkun á losun lofttegunda sem stuðla að gróður- húsaáhrifum. Honda hyggst hefja sölu á rafmagnsvespu með efnarafala síðar á þessu ári í Bandaríkjunum og á næsta ári í Japan. Engin áform eru uppi um að selja hana í Evrópu. Vespa með efnarafal frá Honda Minni gerð vespunnar hentar í þétta borgarumferðina. Hvorki loft- né hljóðmengun fylgir rafmagnsvespunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.