Morgunblaðið - 29.09.2004, Side 8
8 C MIÐVIKUDAGUR 29. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
bílar
B
ræðurnir Rúnar og Baldur
Jónssynir á Subaru Legacy
unnu fimmta og síðasta mót
sumarsins sem fram fór á
Suðurnesjum síðastliðinn laugar-
dag. Eknar voru sérleiðir um Kleif-
arvatn, Ísólfsskála, Reykjanes og
Djúpavatn ásamt því að eknir voru
þrír hringir á rallíkrossbrautinni en
þeir töldu ekki með í keppninni
heldur var það meira gert til sýnis
fyrir áhorfendur. Þeir Rúnar og
Baldur höfðu þegar tryggt sér Ís-
landsmeistaratitilinn fyrir keppnina
en óku greitt engu að síður og héldu
þeir Sigurði Braga Guðmundssyni
og Ísak Guðjónssyni á Ford Focus
WRC fyrir aftan sig alla keppnina.
Allt þar til ekið var inn á Djúpavatn
gat brugðið til beggja vona því leið-
in er löng og erfið en þar lentu þeir
Sigurður Bragi og Ísak í miklum
vandræðum og voru þeir heppnir að
klára leiðina.
Strax á fyrstu metrunum biluðu
rúðuþurrkurnar hjá þeim Sigurði
Braga og Ísak og í því veðri sem var
á laugardaginn var þetta stórt
vandamál. Á annarri sérleið misstu
þeir síðan bremsurnar og brutu
framöxul. Á síðustu sérleiðinni um
Djúpavatn tók miðstöðin einnig upp
á því að bila þannig að það fyllist
allt af móðu ofan á rúðuþurrku-
vandamálið og þeir sáu því lítið út,
óku þrisvar útaf á leiðinni.
Var aldrei ætlunin að dóla með
„Hugsunin hjá okkur var að fara í
gegnum þetta rallí þétt en hafa
jafnframt gaman af akstrinum,“
sagði Rúnar. „Veðrið setti strik í
reikninginn, það var mikil bleyta og
rok. Vegirnir voru því ekkert upp á
sitt besta. Við náðum aldrei al-
mennilegum takti í keppninni fyrr
en inn á Djúpavatni og áttum því
mikið inni. Samt sem áður náðum
við að sigra og við erum mjög sáttir
við það. Það var aldrei ætlunin að
dóla bara með þótt ekkert væri í
húfi nema að vinna keppnina og
ákváðum því bara að taka þátt í
þeim slag. Við erum mjög sáttir við
tímabilið í heild sinni og hefur þetta
gengið framar björtustu vonum hjá
okkur. Miðað við hvernig tímabilið
leit út fyrirfram þá höfum við keyrt
alveg ofboðslega vel í sumar, lagt
mikið undir í akstrinum og sýnt
hvað við getum,“ sagði Rúnar að
keppni lokinni.
Framhaldið hjá þeim bræðrum er
óvíst og munu þeir nota veturinn til
að hugsa hvað þeir gera og hvort
þeir haldi áfram yfirhöfuð að keppa.
Við upphaf tímabilsins var því
spáð að Subaru-bíll þeirra bræðra
ætti ekki mikið erindi í Ford Focus
en annað kom á daginn. Rúnar og
Baldur unnu sína heimavinnu vel,
mættu yfirvegaðir til keppni og
uppskáru samkvæmt því. Sigurður
Bragi og Ísak urðu fyrir mörgum
óhöppum ásamt því að hafa aldrei
náð fullum tökum á bílnum. „Nú
verður sumarið gert upp og vonandi
eigum við möguleika á að halda
bílnum,“ sagði Sigurður Bragi.
„Það sem ég er óánægðastur með
er hvað mér hefur lítið farið fram.
Sumarið í sumar ætluðum við að
nota til að læra en það er alveg ljóst
að ef við verðum með næsta sumar
þá verður það lærdómssumarið.
Mér þarf að fara mikið fram til að
geta gengið að einhverjum sigrum
vísum og ég þarf að læra betur á
bílinn fyrir næsta sumar því Rúnar
kann margfalt betur á sinn bíl en ég
kann á minn,“ sagði Sigurður Bragi
að keppni lokinni.
Hlöðver Baldursson og Halldór
G. Jónsson á Peugeot 306 S16 náðu
að tryggja sér Íslandsmeistaratit-
ilinn í 2000 cc flokknum með naum-
indum en þeir urðu í öðru sæti á eft-
ir Daníel Sigurðssyni og Sunnevu
Lind Ólafsdóttur á Honda Civic.
Ekki mátti miklu muna að Daníel
og Sunneva næðu að taka titilinn
því Hlöðver og Halldór urðu að
sigra eða hafna í öðru sæti til að
tryggja sér titilinn en þeir Hilmar
B. Þráinsson og Ægir Arnarsson á
Toyota Corolla urðu einungis þrem-
ur sekúndum á eftir þeim Hlöðveri
og Halldóri. Sjaldan eða aldrei hef-
ur Íslandsmeistaratitill unnist á
minni mun því ef Hlöðver eða Hall-
dór hefðu verið fjórum sekúndum
lengur að aka eina sérleið þá hefðu
þeir ekki orðið Íslandsmeistarar.
Ekki munaði nema 26 sekúndum
á milli sjöunda og ellefta sætis í
heildarkeppninni sem er með ólík-
indum jafnt eftir rúmlega 74 kíló-
metra akstur á sérleiðum í ofsaroki
og rigningu. Ragnar Einarsson og
Steinar Sturluson voru í raun í
fjórða sæti yfir heildina en fengu á
sig eina og hálfa mínútu í refsingu
fyrir að mæta of seint á fyrstu leið
og féllu við það niður í sjötta sæti.
Mikill sekúnduslagur
!" #
$
%
&
' !
&
&
()
* +
# %
,
&
'
&&
-- , )- .
$,
/ 0 12 43
+
"
#
$
+
(. !
!&
56
7.
$
%
, )
&
#
. 5 , )
#
&$
%3
1
5
'
&
3
89 :/;<
=
>
8
?
@
9
A
B
C
D
>E
>>
>8
>?
>@
>9
>A
EE;@E;@D
EE;@8;@C
EE;@A;8E
EE;@C;EE
EE;@C;@E
EE;@D;8A
EE;9E;>D
EE;9E;88
EE;9E;8?
EE;9E;@8
EE;9E;@9
EE;98;>A
EE;9?;>A
EE;9@;@9
E>;ED;@>
E>;>D;?D
/" 238EEE/
4
4
2 11F"2%!
/.:G@H@
&
F ! 2I2
+ J
K
?EA>A
=
3
F
=.
=
3
F
2=@
=
3
F
=.
L =
3
F
=.
=
3
F
=.
1 =
3
F
=.
=/AE>
:F
=
3
=.
-
)$
Ljósmynd/Gunnlaugur Einar Briem
Rúnar og Baldur á fleygiferð á Subaru-bílnum sínum á einni sérleiðinni.
Hlöðver og Halldór tryggðu sér Íslandsmeistaratitilinn í 2000 cc flokknum.
LANDROVEREIGENDUR létu ekki
rok og rigningu á sig fá á laugardag-
inn þegar Landroverklúbbur B&L
efndi til haustferðar sinnar, að þessu
sinni upp í Skorradal um Uxahryggi
og Bláskógaheiði og síðan línuveginn
yfir Skarðsheiði.Um 60 bílar voru
með í ferð, allt frá hálfþrítugum
Landrover upp í nýja Discovery og
Range Rover lúxusjeppa. Undirrit-
aður bjóst satt að segja ekki við
jafngóðri þátttöku og raunin varð í
því slagveðri sem heilsaði þennan
dag, en er ekki lífið fullt af óvæntum
uppákomum þegar allt kemur til
alls? En auðvitað var þetta ekki
óvænt uppákoma, heldur þaul-
skipulögð samkoma áhugasamra
jeppaeigenda. Landroverklúbbur B&L
er nú orðinn sex ára og hefur haldið
úti öflugu starfi síðan fyrsta ferðin
var farin í Þórsmörk haustið 1998.
Eins og venjulega byrjaði ferðin að
þessu sinni í höfuðstöðvum B&L við
Grjótháls þar sem boðið var upp á
morgunkaffi og smákruðerí. Úti ham-
aðist regnið en enginn kippti sér upp
við slíka smámuni. Upp úr dagmálum
var sett í gang og ekið sem leið lá
upp á Þingvöll og þaðan upp á Uxa-
hryggi. Það reyndi harla lítið á jepp-
ana fyrr en komið var inn á línuveg-
inn niður í Skorradal og þar fengum
við nóg af busli. Mikið var í ám og
lækjum þennan dag eins og vænta
mátti og drullupollarnir skiptu tug-
um. Vinnukonurnar voru því óspart
notaðar, enda gekk drjúgt yfir bílana í
öllum hamaganginum. Að sjálfsögðu
óku sumir virðulega og með sínu lagi,
en þarna vantaði aldeilis ekki öku-
þóra sem fannst æði gaman af sem
mestum skvettugangi. „Þetta er
ungt og leikur sér,“ heyrðist í ein-
hverjum.
Það kann að vera að sumum hafi
þótt gamanið vera farið að kárna
þegar bílalestin kom inn á línuveginn
á Skarðsheiðinni því hann reyndist
þungfær á köflum. Draga þurfti bíl og
bíl upp úr drullupyttum og var á
stundum hálfskrýtið að sjá óbreytta
lúxusjeppa í gargandi torfærum. En
þetta var auðvitað fólk „úti að leika“
og engin ástæða til að spara sinn
fjallabíl, þegar alltaf má og ef allt sit-
ur fast. Reyndar átti það við um
undirritaðan, því Defenderjeppinn
hans kolfestist í drullu fyrir klaufa-
skap. En þarna voru góðir ferða-
félagar, sem voru ekki seinir á sér að
rétta fram hjálparhönd. Stuttu síðar
var Roverinn kominn á beinu braut-
ina og allt gekk eins og í sögu niður
að félagsheimilinu að Hlöðum á Hval-
fjarðarströnd. Þar svignuðu borðin
undan kræsingum að hætti B&L, en
það er siður í þessum ferðum að elda
ofan í mannskapinn í ferðalok. Pylsur
handa ungviðinu og lambakjöt handa
hinum eldri.
Af þeim þremur ferðum sem und-
irritaður hefur farið í með B&L er
þetta sú strembnasta hvað varðar
torfærur, en það var auðvitað hið
besta mál. Skipuleggjendur verða líka
að fá prik fyrir leiðarval með því að
fara ekki allt of langt út fyrir bæinn.
Ekki er sérlega skemmtilegt að aka
klukkutímum saman á venjulegum
vegum áður en mesta fjörið byrjar.
Það er komin mikil og góð reynsla
á jeppaferðir B&L og nú hefur hinn
stóraukni Landroveráhugi landans
fætt af sér hinn svonefnda
Íslandroverklúbb. Ferðaáhuginn er í
fyrirrúmi og nú er bara að bíða eftir
næstu jeppaferð. Vonandi er ekki
langt í hana.
Landroverklúbbur B&L í haustferð um Skarðsheiði
Í leik á Landrover
Morgunblaðið/Örlygur
Um að gera að láta vaða í forina. Bílabað bíður við næsta barð.
Bílarnir þornuðu vart milli vatnsfalla, en svona er nú jeppasportið. Farið í hressilegt bílabað á Range Rover í einum smálæknum.
orsi@mbl.is