Morgunblaðið - 06.10.2004, Page 2
2 MIÐVIKUDAGUR 6. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
SÍLDIN KOMIN
Síld af norsk-íslenskum stofni
veiddist skammt undan Glettinga-
nesi á Austfjörðum í síðustu viku og
mun það vera í fyrsta sinn í 37 ár
sem síld af þessum stofni veiðist svo
nærri landi í vetursetu.
Tekjuafgangur eykst
Samkvæmt frumvarpi til fjár-
aukalaga er gert ráð fyrir að tekju-
afgangur á ríkissjóði aukist um 1,1
milljarð kr. á þessu ári og fari úr 6,7
milljörðum samkvæmt fjárlögum
fyrir 2004 í 7,8 milljarða kr. í endur-
skoðaðri áætlun.
Lífeyrissjóðir of margir
Lífeyrissjóðirnir eru of margir og
áhættudreifing þeirra oft óskynsam-
leg vegna tengingar við ákveðnar
starfsstéttir. Þetta kom fram í máli
Sigurjóns Þ. Árnasonar, banka-
stjóra Landsbankans, á fundi Líf-
eyrissjóðs verkfræðinga í gær.
Olíuverð í 51 dollara
Verð á olíu fór í fyrsta skipti yfir
51 dollara fatið á markaði í New
York í gær. Verðhækkunin er rakin
til truflana sem orðið hafa í olíu-
framleiðslu á Mexíkóflóa af völdum
fellibylja þar að undanförnu.
Bremer setur Bush í bobba
Paul Bremer, fyrrverandi land-
stjóri í Írak, segir að Bandaríkja-
menn hafi ekki haft nógu marga her-
menn í Írak eftir að Saddam
Hussein var steypt af stóli og að þeir
hefðu „goldið þess dýru verði“. Þessi
ummæli Bremers þykja neyðarleg
fyrir George W. Bush Bandaríkja-
forseta sem varið hefur undirbúning
og áætlanir bandarískra stjórnvalda
vegna innrásarinnar í Írak.
Y f i r l i t
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
ÓGLEYMANLEG
SAGA UM VINÁTTU
GYÐINGADRENGS VIÐ
ARABAKAUPMANNINN
IBRAHIM
ÚTGEFANDI SÖGUNNAR AF PÍ KYNNIR:
HERRAIBRAHIMOGBLÓMKÓRANSINS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
EFTIR
ERIC-EMMANUELSCHMITT
BORGARSTJÓRN Reykjavíkur
samþykkti í gær að beina því til
skipulags- og bygginganefndar að
hefja breytingu á aðalskipulagi
Reykjavíkur í þá átt að eingöngu
verði gert ráð fyrir tveggja akreina
Hallsvegi í stað fjögurra. Flutti
Steinunn Valdís Óskarsdóttir tillögu
þess efnis fyrir hönd borgarfulltrúa
R-listans.
Borgarfulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins fögnuðu þessari tillögu og
greiddu henni atkvæði. „Málflutn-
ingur okkar sjálfstæðismanna í
borgarstjórn og skipulagsnefnd hef-
ur verið á þann veg að við höfum
ekki viljað sjá fjórfaldan Hallsveg,“
sagði Guðlaugur Þór Þórðarson. „U-
beygja R-listans er bara hið besta
mál.“
Nú liggur Hallsvegur frá Strand-
vegi í Grafarvogi að Fjallkonuvegi.
Fyrir liggur að hann verði tengdur
við Víkurveg eins og sjá má á með-
fylgjandi mynd. Síðar á að tengja
hann við Vesturlandsveg en sá hluti
á eftir að fara í umhverfismat að
sögn Jóns H. Sigurðssonar íbúa í
hverfinu. Í aðalskipulagi hafi verið
gert ráð fyrir fjórum akreinum alla
þessa leið.
Steinunn Valdís sagði að í sam-
tölum sínum við íbúa í Grafarvogi
hefði komið fram að þeir vildu ekki
loka veginum. Þeir vildu einungis að
það skipulag, sem gilti þegar þeir
fengu lóðir sínar úthlutaðar á árun-
um 1988 til 1992, standi. Í því hefði
verið gert ráð fyrir Hallsvegi sem
tengibraut en ekki stofnbraut. Hún
hefði bent á það í skipulags- og bygg-
inganefnd í sumar að engin tímasett
áform væru uppi um að breikka veg-
inn þó svo að gert væri ráð fyrir
breikkuninni á aðalskipulagi.
Tvær akreinar duga
„Miðað við núverandi umferð á
Hallsvegi og þá umferð sem áætluð
er að minnsta kosti næsta aldar-
fjórðung er ljóst að tveggja akreina
Hallsvegur dugar sem tenging við
Vesturlandsveg í stað fjögurra, sem
Vegagerðin hefur alltaf gert ráð fyr-
ir,“ sagði Steinunn þegar hún las
upp úr greinargerð með tillögu R-
listans.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, odd-
viti Sjálfstæðisflokksins, sagði að
ákvörðunin 1991 að skilgreina Halls-
veg sem stofnbraut hafi ekkert með
það að gera að hann þyrfti að vera
fjórar akreinar. Þessar skilgreining-
ar á vegum sem stofnbraut eða
tengibraut skipti aðeins máli í sam-
skiptum ríkis og Reykjavíkurborgar.
Ríkið tæki þátt í kostnaði við stofn-
brautir en ekki tengibrautir.
Hallsvegur í Grafarvogi verði
tvær akreinar en ekki fjórar
!
MEIRIHLUTI sveitarstjórnar
Skagafjarðar er klofinn í afstöðu
sinni til tillögu um að setja Villinga-
nesvirkjun inn á nýtt aðalskipulag
sveitarfélagsins. Þetta segir Gísli
Gunnarsson, forseti sveitarstjórnar
og oddviti sjálfstæðismanna, sem
mynda meirihlutann ásamt Vinstri
hreyfingunni – grænu framboði, VG.
Gísli segir að í versta falli sé meiri-
hlutasamstarf flokkanna í hættu en í
besta falli „láti menn þetta yfir sig
ganga í bili“.
Umræðum og afgreiðslu um tillög-
una var frestað til næsta fundar
sveitarstjórnar á morgun, en hún
kom frá formanni skipulags- og
byggingarnefndar, Bjarna Marons-
syni, sem situr í sveitarstjórn fyrir
Sjálfstæðisflokk. Gísli segist ekki
telja vera þörf á Villinganesvirkjun
og um það hafi verið sátt í meirihlut-
anum. Hins vegar hafi tekist sam-
komulag um að gera ráð fyrir Skata-
staðavirkjun inni á skipulaginu.
Reiknar Gísli ekki með að taka þátt í
atkvæðagreiðslunni á morgun.
Bjarni Jónsson, annar fulltrúi VG í
sveitarstjórn, vill ekkert fullyrða um
hvort meirihlutasamstarfið sé í
hættu. Í gildi sé ítarlegur málefna-
samningur milli flokkanna, eitt
áhersluatriði samningsins sé að
hverfa frá áformum um Villinganes-
virkjun. Bjarni segist ganga út frá
því að við þennan samning meirihlut-
ans verði staðið af heilindum. Vinstri
grænir hafi ekki aðrar væntingar.
Ný tillaga um Villinganesvirkjun
Meirihlutinn klof-
inn í afstöðu sinni
„ÞAÐ er búið að breyta Hlemmi í
Hlemm annars staðar í heiminum,
það má segja það,“ segir Baltasar
Kormákur, leikstjóri kvikmyndar-
innar A Little Trip to Heaven, en
verið var að taka atriði fyrir kvik-
myndina í gærkvöldi og nótt.
Hlemmur var orðinn öllu banda-
rískari en menn eiga að venjast í
gærkvöldi, en honum var breytt í
vettvang rútuslyss sem á að eiga
sér stað snemma í kvikmyndinni.
Bandarísku leikararnir Forest
Whitaker og Peter Coyote voru
meðal leikara í atriðinu á Hlemmi.
Morgunblaðið/Þorkell
Kvikmyndað á breyttum Hlemmi
„VIÐ lítum á þetta sem áfangasigur,“
segir Jón H. Sigurðsson sem býr við
Garðshús þar sem Hallsvegur mun
fara framhjá, en hann á einnig sæti í
íbúasamtökum Grafarvogs. Íbúar séu
þó áfram ósáttir við að umferð, sem
komi Grafarvogi ekkert við, verði
beint í gegnum hverfið um Hallsveg.
Samþykkt borgarstjórnar í gær sé
viðleitni í þá átt að gera hverfið ekki
algjörlega óbyggilegt. Íbúasamtökin
eigi fund með Árna Þór Sigurðssyni,
forseta borgarstjórnar, í dag þar sem
fyrirhuguðu gegnumstreymi umferð-
ar verði andmælt.
Áfangasigur
ICELANDAIR hefur ákveðið að
kaupa sjálfvirk hjartastuðtæki í flug-
flota sinn en tækin eru notuð til að
gefa stuð þeim sem verða fyrir
hjartastoppi. Gera má ráð fyrir að
kostnaður við kaupin í þotur félags-
ins sé milli þrjár og fjórar milljónir
króna auk kostnaðar við þjálfun og
sé kostnaði deilt niður á fjölda flug-
farþega á ári myndi það þýða um
þriggja króna hækkun fargjalds á
hvern farþega.
„Við vonumst til þess að þessu
verði lokið innan árs. Það er verið að
kanna það hvaða tæki henta þörfum
okkar og aðstæðum best,“ segir Guð-
jón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi
Icelandair.
Í grein í nýjasta hefti Lækna-
blaðsins er lýst sjúkratilfelli þar sem
farþega í flugi í erlendri flugvél milli
Bretlands og Bandaríkjanna var
komið til bjargar með slíku tæki.
Læknar, sem voru meðal farþega,
meðhöndluðu manninn og vélin lenti
í Keflavík um klukkustund eftir að
farþeginn veiktist. Hann var fluttur
á Landspítalann þar sem íslenskir
læknar meðhöndluðu hann. Var
hann útskrifaður 12 dögum síðar.
Hjartastuð-
tæki í þotum
Icelandair
Í dag
Sigmund 8 Bréf 25
Úr verinu 11 Minningar 26/27
Viðskipti 12 Myndasögur /32
Erlent 16 Dagbók 32/34
Minn staður 17 Staður og stund 34
Höfuðborgin 18 Listir 35/37
Landið 18/19 Af listum 35
Akureyri 19 Fólk 38/41
Daglegt líf 20 Bíó 38/41
Umræðan 21/25 Ljósvakamiðlar 42
Forystugrein 22 Veður 43
Viðhorf 24 Staksteinar 43
* * *