Morgunblaðið - 19.10.2004, Side 2
ÍÞRÓTTIR
2 B ÞRIÐJUDAGUR 19. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
KÖRFUKNATTLEIKUR
Grindav. – Hamar/Self.
134:111
Grindavík, úrvalsdeild karla, Intersport-
deildin, mánudaginn 18. október 2004.
Gangur leiksins: 20:12, 32:26, 39:31, 51:40,
60:57, 71:60, 92:73, 97:78, 104:82, 123:96,
128:111, 134:111.
Stig Grindavíkur: Darrel Lewis 48, Páll
Axel Vilbergsson 28, Justin Miller 21,
Kristinn Friðriksson 12, Jóhann Ólafsson
12, Þorleifur Ólafsson 6, Eggert Pálsson 4,
Morten Shmidowin 3.
Fráköst: 23 í vörn – 19 í sókn.
Stig Hamars/Selfoss: Chris Woods 35,
Marvin Valdimarsson 31, Damon Bailey
26, Friðrik Hreinsson 11, Pétur Ingvars-
son 3, Svavar Pálsson 3, Atli Gunnarsson 2.
Fráköst: 23 í vörn – 19 í sókn.
Villur: Grindavík 25 – Hamar/Selfoss 19.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og
Aðalsteinn Hjartarson.
Áhorfendur: Um 300.
Staðan:
Njarðvík 2 2 0 209:158 4
Grindavík 2 2 0 224:191 4
Fjölnir 2 2 0 191:169 4
KR 2 2 0 167:151 4
Haukar 2 1 1 182:145 2
Keflavík 2 1 1 192:163 2
Skallagrímur 2 1 1 177:177 2
Snæfell 2 1 1 167:172 2
ÍR 2 0 2 173:206 0
Hamar/Selfoss 2 0 2 188:224 0
KFÍ 2 0 2 168:210 0
Tindastóll 2 0 2 134:206 0
1. deild karla
Stjarnan – Þór A .................................. 78:71
Drangur – Þór A .................................. 73:76
Höttur – Valur...................................... 77:67
Þór Þ. – ÍA............................................ 90:50
Staðan:
Þór A. 3 2 1 234:209 4
Höttur 3 2 1 223:208 4
Stjarnan 2 2 0 153:144 4
Þór Þorl. 2 1 1 163:125 2
Breiðablik 1 1 0 85:61 2
Valur 2 1 1 152:148 2
Ármann/Þrótt. 2 1 1 133:156 2
Drangur 2 0 2 142:151 0
ÍS 1 0 1 58:87 0
ÍA 2 0 2 121:175 0
KNATTSPYRNA
England
Úrvalsdeild:
Portsmouth – Tottenham........................1:0
Aiyegbeni Yakubu 63. 20.121.
Noregur
Odd Grenland – Tromsö...........................3:1
Staðan:
Rosenborg 24 12 6 6 47:33 42
Vålerenga 24 11 9 4 36:22 42
Tromsö 24 11 4 9 35:30 37
Ham–Kam 24 10 7 7 32:30 37
Brann 24 11 3 10 43:38 36
Lyn 24 9 9 6 28:26 36
Odd Grenland 24 9 7 8 43:38 34
Lilleström 24 8 9 7 42:30 33
Viking 24 6 12 6 26:30 30
Fredrikstad 24 8 5 11 39:49 29
Bodö/Glimt 24 7 6 11 28:37 27
Stabæk 24 7 6 11 24:34 27
Molde 24 5 10 9 28:36 25
Sogndal 24 4 7 13 34:52 19
Svíþjóð
Malmö FF – Landskrona.........................0:1
Örebro – Trelleborg..................................3:0
Örgryte – Helsingborg.............................1:1
Hammarby – AIK.....................................1:1
Staðan:
Halmstad 24 13 7 4 50:25 46
Malmö 24 13 7 4 41:20 46
Gautaborg 24 14 4 6 31:17 46
Kalmar 24 9 10 5 24:17 37
Djurgården 24 9 8 7 35:31 35
Hammarby 24 9 7 8 27:25 34
Elfsborg 24 8 8 8 25:30 32
Helsingborg 24 7 9 8 39:29 30
Sundsvall 24 7 8 9 25:28 29
Landskrona 24 6 9 9 23:31 27
Örebro 24 7 6 11 29:45 27
Örgryte 24 5 10 9 21:30 25
AIK 24 4 10 10 20:31 22
Trelleborg 24 2 7 15 17:48 13
SKYLMINGAR
Hagaskóli, Íslandsbikarmótið í skylming-
um með höggsverði, laugardaginn 17.
október 2004.
Opinn flokkur
1. Ragnar Ingi Sigurðsson, FH
2. Hróar Hugosson, Skylmingafélagi
Reykjavíkur
3. Andri Heiðar Kristinsson, Skylminga-
félagi Reykjavíkur og William Hunting-
don–Williams, Skylmingafélagi Reykjavík-
ur.
ÚRSLIT
ADRIAN Mutu, sóknarmaður
Chelsea og rúmenska landsliðsins í
knattspyrnu, segir að fréttir um að
hann hafi fallið á lyfjaprófi séu
rangar. Enskir fjölmiðlar skýrðu
frá því í gær að í lyfjaprófi sem tek-
ið var af Mutu á æfingasvæði
Chelsea í haust hefði komið fram að
hann hefði neytt kókaíns.
Gheorghe Popescu, umboðs-
maður Mutus og fyrrum landsliðs-
maður Rúmena, er kominn til Lond-
on til viðræðna við Jose Mourinho,
knattspyrnustjóra Chelsea, um
skjólstæðing sinn. „Mutu hefur tek-
ið þessum fréttum mjög illa, þær
voru honum mikið áfall, sem eðli-
legt er. Að sjálfsögðu heldur hann
fram sakleysi sínu,“ sagði Popescu
við komuna til London.
Hann sagði enn-
fremur að Mutu
hefði staðfest við
sig að lyfjapróf
hefði verið tekið af
sér í byrjun mán-
aðarins en hann
hefði hvorki séð né
heyrt af nið-
urstöðum þess,
hvorki frá Chelsea
né frá lyfjanefnd-
inni.
Mutu var fyrir í
slæmum málum hjá
Chelsea, eftir að
hann lék með Rúmeníu í und-
ankeppni HM í síðustu viku, þrátt
fyrir meiðsli. Mourinho sagði í
framhaldi af því að það væri langt
þangað til Mutu kæmi til
greina í lið Chelsea á ný.
Þá missti Mutu bílprófið
nýlega heima í Rúmeníu,
fyrir að neita að sýna lög-
reglu skilríki þegar hann
var stöðvaður. Ennfremur
var hann sektaður af
Chelsea fyrir ummæli sem
hann lét falla í garð Mour-
inhos í viðtölum.
Að auki hefur Mutu átt
erfitt uppdráttar hjá
Chelsea það sem af er þessu
tímabili en þar hefur hann
verið í fjórða sæti í baráttu
fjögurra sóknarmanna um sæti í
liðinu, á eftir Eiði Smára Guðjohn-
sen, Didier Drogba og Mateja
Kezman.
Rúmenski sóknarmaðurinn Mutu neitar
fréttum um að hafa fallið á lyfjaprófi
Mutu
KRISTJÁN Andrésson gerði eitt
mark fyrir IF GUIF þegar liðið tapaði
á útivelli, 31:25, fyrir Hammarby í
sænsku úrvalsdeildinni í handknatt-
leik á sunnudagskvöldið. Þetta var
annað tap IF GUIF í deildinni á
keppnistímabilinu en það hefur unnið
fjóra leiki. „Gamla brýnið“ Staffan
Olsson var markahæstur hjá Hamm-
arby með átta mörk. Fimm lið eru
jöfn og efst með átta stig í sænsku úr-
valsdeildinni, Skövde, Drott, Hamm-
arby, GUIF og Ystad.
JULIAN Duranona átti stórleik og
skoraði 11 mörk, þar af eitt úr víta-
kasti þegar lið hans Vulkan Volgen-
berg vann Goldstein, 39:31, í 3. deild
þýska handknattleiksins á sunnudag.
Þetta er annar leikurinn í röð þar sem
Duranona skorar 11 mörk.
HELGI Sigurðsson lék í 73 mínútur
með AGF sem gerði jafntefli, 2:2, við
AaB á heimavelli í dönsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu á sunnudag-
inn. AGF er í þriðja sæti með 18 stig
en Bröndby með 24 og Viborg með 20
eru fyrir ofan Árósaliðið.
INDRIÐI Sigurðsson gat ekki leik-
ið með Genk gegn Mons Bergen í
belgísku 1. deildinni í knattspyrnu um
helgina. Indriði meiddist í landsleikn-
um gegn Svíum í síðustu viku og var
hvíldur af þeim sökum.
RAGNAR Jónsson, Birgir Björns-
son og Ingvar Viktorsson fengu af-
hentan heiðurskross ÍSÍ á afmælis-
hófi FH um nýliðna helgi en þar héldu
FH-ingar upp á 75 ára afmæli sitt.
Heiðurskrossana fengu þeir fyrir ára-
langt starf að málefnum íþróttanna,
bæði sem íþróttamenn og sem félags-
málafrömuðir. Þá var Ólafur Bjarna-
son sæmdur gullmerki ÍSÍ en hann
hefur unnið ötullega að málefnum
skylmingaíþróttarinnar hjá FH.
PATRICK Vieira, fyrirliði Arsenal,
getur ekki leikið Evrópuleikinn á
móti Panathinaikos annað kvöld og
óvíst er hvort hann geti spilað gegn
Manchester United á sunnudaginn.
Vieira meiddist á ökkla í leik Arsenal
á móti Aston Villa á laugardaginn.
Líklegt er að Edu taki stöðu Vieira á
miðjunni.
HARRY Kewell og Steve Finnan
koma á ný inn í leikmannahóp Liver-
pool sem tekur á móti Deportivo La
Coruna í Meistaradeild Evrópu í
kvöld. Þeir misstu af leik liðsins gegn
Fulham á laugardag, Kewell vegna
meiðsla og Finnan vegna veikinda.
DOUG Ellis, stjórnarformaður
Aston Villa, segist hafa náð sam-
komulagi við David O’Leary, knatt-
spyrnustjóra Villa, um nýjan samning
við félagið sem gildir út leiktíðina
2008. Núgildandi samningur O’Lear-
ys rennur út eftir 19 mánuði en Ellis
vonast til að knattspyrnustjórinn riti
nafn sitt undir nýjan samning á næstu
dögum.
FÓLK
Grindvíkingar spiluðu pressuvörnnánast allan leikinn og gekk
hún alls ekki. Gestirnir leystu press-
una auðveldlega og skoruðu tvö stig í
gríð og erg. Eini
munurinn var þó sá
að á meðan gestirnir
settu niður tvö stig í
hverri sókninni af
annarri skoruðu heimamenn grimmt
úr þriggja stiga skotum. Grindavík
skoraði úr 10 þriggja stiga skotum í
fyrsta leikhluta og alls úr 24 slíkum
skotum í leiknum.
Ótrúleg hittni var í raun hjá báðum
liðum allan tímann og þó að einhver
vörn væri spiluð endrum og sinnum
þá hittu menn samt. Heimamenn
voru 71:60 yfir í hálfleik en slíkar töl-
ur hafa oft verið lokatölur í einhverj-
um leikjum.
Ekkert var slegið af í seinni hálfleik
og bæði lið spiluðu fínan sóknarleik
en létu lítið fara fyrir sér í vörninni.
Heimamenn sigruðu 134:111, eða alls
245 stig í einum og sama leiknum.
Bestir í liði Hamars/Selfoss voru
þeir Chris Woods, Marvin Valdimars-
son og Damon Bailey en þeir félagar
skoruðu 92 af 111 stigum liðsins. Hjá
heimamönnum voru þeir Darrel Lew-
is og Justin Miller bestir.
„Vissulega var ekki mikil vörn spil-
uð en sóknarleikur beggja liði átaka-
laus. Þeir spiluðu ágætis svæðisvörn
en við hittum bara úr flest öllum skot-
um sem við fengum. Við megum hins
vegar ekki við því að koma svona til
leiks á móti sterkari liðum því þá
verður okkur refsað. Það vantaði ein-
hvern neista í vörnina og í liðsheild-
ina. Kannski var um eitthvert vanmat
að ræða hjá okkur og það hefur viljað
brenna við að þegar við spilum leik
sem við eigum að vinna eins og þenn-
an þá verður vörnin stundum slök,“
sagði Kristinn Friðriksson, þjálfari
Grindvíkinga, í leikslok.
Þriggja stiga
stórskotahríð
LEIKUR Grindavíkur og Hamars/Selfoss varð aldrei rishár þó að bæði
lið spiluðu ágætan sóknarleik. Heimamenn sigruðu örugglega
134:111 sem er örugglega stigamet í Röstinni og þó víðar væri leitað.
Garðar P.
Vignisson
skrifar
„ÞETTA var alveg ferlegt. Þegar
við skoruðum ruddust áhangendur
AIK inn á völlinn og lögreglan kom
til að skakka leikinn. Við flúðum inn
í klefa og vorum þar í 50 mínútur
áður en dómarinn ákvað að halda
leiknum áfram,“ sagði Pétur Mar-
teinsson, leikmaður Hammarby í
Svíþjóð, en í gær tók liðið á móti ná-
grönnum sínum í Stokkhólmi, AIK.
Lögreglumaður slasaðist og tæp-
lega 20 voru handteknir. Ólætin
brutust út þegar Hammarby komst í
1:0 á 64. mínútu en eftir að leikurinn
gat hafist á ný tókst AIK að jafna.
Pétur Marteinsson lék allan leikinn.
„Mér fannst furðulegt að dóm-
arinn skyldi ekki flauta leikinn af.
Bæði vegna aðstæðna og ekki síður
vegna meiðslahættu. Það er ekkert
sniðugt að stoppa í klukkutíma og
fara síðan aftur út í kuldann hérna.
Þetta var okkar heimaleikur og
ég veit ekki hvert framhaldið verð-
ur, en lögreglan hafði einhvern pata
af því að stuðningsmenn AIK ætluðu
að stofna til óeirða og var því fjöl-
menn hér. Við erum á leið heim í
rútu og í lögreglufylgd,“ sagði Pét-
ur í gærkvöldi.
Önnur óvænt úrslit urðu þegar
Malmö tapaði á heimavelli fyrir
Landskrona 1:2 og lék Auðun
Helgason allan leikinn með Lands-
krona.
Örgryte og Helsingborg gerðu
einnig 1:1 jafntefli og kom Tryggvi
Guðmundsson inn á sem varamaður
á 77. mínútu en Jóhann B. Guð-
mundsson kom ekki við sögu.
Örebro bar sigurorð af botnliði
Trelleborgar, 3:0.
Pétur í slagsmála-
leik í Stokkhólmi
Í A-riðli tekur Mónakó á móti Olympia-kos og Liverpool fær Deportivo La
Coruna í heimsókn á Anfield. Olympia-
kos er efst með 4 stig, Liverpool og
Mónakó hafa 3 en Deportivo situr á
botninum með eitt stig.
Liðsmenn Liverpool ættu að mæta til
leiks gegn Deportivo með gott sjálfs-
traust eftir sigurinn góða á Fulham, 4:2,
eftir að hafa lent 2:0 undir.
„Þetta var frábær sigur og það er ekki
spurning að hann hjálpar okkur fyrir
leikinn á móti Deportivo. Það er búið að
vera hökt á okkur það sem af er liðið á
tímabilinu en vonandi horfir nú til betri
vegar. Við búum okkur undir mjög erf-
iðan leik á móti Deportivo. Þetta er síð-
asta tækifæri liðsins til að rétta sinn hlut
og þeir koma alveg örugglega til með að
selja sig dýrt,“ segir Xabi Alonso, einn
af Spánverjunum í liði Liverpool.
Leiks Real Madrid og Dynamo Kiev í
B-riðlinum á Santiago Bernebau-vellin-
um í Madrid er beðið með mikilli eft-
irvæntingu og er alveg ljóst að mikil
pressa hvílir á liðsmönnum Real Madrid.
Hvorki hefur gengið né rekið hjá
stjörnuliðinu upp á síðkastið og eru
stuðningsmenn þess orðnir mjög
óþreyjufullir. Liðið er um miðja deild í
spænsku 1. deildinni og í Meistaradeild-
inni er það með 3 stig eins og Bayer Lev-
erkusen, Roma situr á botninum án stiga
en Kænugarðsmennirnir í Dynamo
tróna á toppnum með 6 stig.
M
b
b
a
R
v
H
R
u
d
S
v
Z
a
l
a
l
þ
e
s
m
S
s
l
B
m
o
í
Tekst R
af s
ÞRIÐJA umferð Meistaradeildar Evrópu
átta leikjum og eftir þá leiki gætu línur f
áfram í 16-liða úrslit keppninnar. Real M
chester United, sem öll hafa hampað Ev
anförnum árum, verða í eldlínuni í kvöld
og Liverpool.
Ronaldo, David Beckham
KÖRFUKNATTLEIKUR
1. deild kvenna:
Kennaraháskólinn: ÍS - Keflavík .........19.30
Hópbílabikar kvenna:
Smárinn: Breiðablik -Ármann/Þróttur ....20
Í KVÖLD
Sigurbjörn Árni illa meiddur
SIGURBJÖRN Árni Arngrímsson, millivegalengdahlaupari úr UM-
SS, meiddist illa á sinni fyrstu æfingu í byrjun síðasta mánaðar. Við
myndatöku nýverið kom í ljós að hann hafði rifið liðþófa í vinstra
hné auk þess sem liðbrjóskið aftan á hnéskelinni er illa farið. Að
sögn Sveinbjörns Baldurssonar bæklunarlæknis er ekkert annað að
gera en fara í aðgerð og einungis um 50% líkur á að hann muni ná
sér það vel að hann verði fær um að keppa að fullu á nýjan leik.
Sigurbjörn stóð sig vel í sumar, varð m.a. Landsmótsmeistari, Ís-
landsmeistari og bikarmeistari í 800 og 1500 metra hlaupum.