Sunnudagsblaðið - 26.01.1958, Blaðsíða 9

Sunnudagsblaðið - 26.01.1958, Blaðsíða 9
SUNNUDAGSBLAÐIÐ 3? hann til að gerai enda þótt ná- kvæmni hans og smámunasemi væri ekki jafn hárfín, þegar hann var í einrúmi með fögrum konum. Þegar hann var í París sleppti hann gersamlega fram af sér beizl inu og lifði í glaum og gleði; um- gekkst m.a. leikkonur og annaó listafólk, en heima í Englandi varð hann að sæta tækifærum til þess að geta hlaupið útundan sér, en lækifærin buðust raunar ærið mörg. Ásamt hinni fögru konu sinni. Alexöndru, gisti hann oft hallir enska aðalsins nokkra daga I einu, stundum vikurnar út. En jafnvel þótt Alexandra væri nærstödd gat liann ekki látið hjá Hða að líta aðrar konur hýru auga. Hver og einn vissi um þetta, en um slíkt er ekki rætt hátt — allra sízt. þegar konungleg hátigr. á í hlut. — Þannig tókst Edvarð VII. að sigla milli skers og báru án þess sýnilegt væri að hann vekti minnstu grunsemdir hjá konu sinni. Um aldamótin var Edvarð orð- inn sextugur og hafði safnað all- mikilli fitu. Hann var með öðrum orðum kominn yfir þann aldur, þegar menn brenna heitast í ást- arbáli og ævintýrahungri. Ennþá lifði þó í glóðunum hjá honum, en hann hafði tapað áhuganum fyrir því að binda sig langvarandi bönd um með ástmeyjum sínum. En á þessum árug eignaðist hann þó eina ástmey. Það var frú Alice Keppel, sem gift var miklum heimsmanni, og sjálf var hún mik il Samkvæmiskona. Hún var eng- inn unglingur lengur, en einmitt á bezta þroskaskeiði konunnar. Frú Keppel var framúrskarandi vel klædd kona, svo að það sópaði að herini, og orð fór af því hve orðheppin hún var í samræðum. I rauðleitu hári hennar glitruðu smaragðsdemantar, og hún kunni mæta vel að koma fram í sam- kvæmum. Allt þetta voru eigin- ieikar, sem prinsinn mat mikils. Hún var sannkallaður meistari í tennisleik, og svo ötul í veiðiferð- um og útreiðartúrum, að það var sem hún væri samvaxin hestin- um. Maður hennar, herra George Koppel var jafningi hennar á öll- um sviðum — og þar sem þau Frú Aliec Keppel voru vel fjáð áttu þau greiðan að- gang að samkvæmislífi prinsins, og fundu sig þar jal'nvel heima og fiskurinn í vatninu. Kunningsskapur frú Keppel og Edvarðs hófst við tennismót eitt i Cannes vorið 1900. Edvarð prins, sem venjulega hafði ekki úthald lil þess að teika lengi tennis. gekk nú fram af sjálfum sér og öðrum þennan dag. Hann og frú Keppei léku tennis svo lengi að allir gáf- ust upp á að horfa á þau. En þó létu þau leikinn niðurfalla um síð ir og allur kunningjahópurinn end aði daginn á dýrindis veitinga- húsi. En áður hafði frú Keppel og aðrar konur í samkvæminu. komið því í verk að skipta um klæðnað, en karlmennirnir settust til borðs án samkvæmisklæðnaðar, og var það í fyrsta sinn um daga Ed- varðs, að slíkt bæri við. Þetta var öruggt tákn þess að Edvarð væri orðinn ástfanginn — og þar með gleyminn á hefðbundna siði, enda var hann vanur að segja, að menn sem settust til kvöldverðar án kjóls eða smókings væru eitthvað undarlegir fuglar. Frameftir sumrinu mátti oft sja Keppelhjónin fylgja í kjölfar priru; ins af Wales. og um haustið tók frú Keppel þátt í hverri veiði- ferð. sem Edvarð efndi til. A^eturinn eftir andaðist Viktoría drottning, og Edvarð varð kon- ungur Bretlands. Eftir það leið vart sú vika, að Keppelhjónin sætu ekki miðdegisverðarboð hjá konunginum. Næsta sumar, þegar kom að þeim tíma, er Edvarð var vanur að fara í hina árlegu heim- sókn til Skotiands, var frú Keppel gert heimboð af einum nábúanum — og svo var bæði nábúunum og gestum þeirra boðið til konungs- hjónanna. Nú var sambandið orðið svo augljóst, að almenningur het'ði átt að geta fengið vitneskju um það, en svo varð þó ekki. Hirðin var pottþétl og þögul eins og' gröfin. Og það undarlega var, að Alex- andina drottning virtist hafa al- veg sérstaka ánægju af því að hafa Alice í nærveru sinni. Þar á móti hóf frú Keppel drottninguna til skýjanna. Þegar þetta þrístirni SÚSÍ .SUniSíP, yirlisl þcUV> oiniTiin

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.