Sunnudagsblaðið - 26.01.1958, Blaðsíða 16

Sunnudagsblaðið - 26.01.1958, Blaðsíða 16
44 SUNNUDAGSBLAÐIÐ FRANCOIS GIFTIST. Franska skiíldkonan Francois Sagan er um það bil að ganga í heilagt hjónaband með bókaút- gefandanum Guy Schoel- ler, en hann er maður á íimmtugsaldri. — Fyrir áramótin dvaldist Fran- coise í íbúð sinni á River- unni, en Guy ferðaðist til Suður-Afríku. Vegna af- leiðinga bílsyssins í fyrra — sem nærri hafði kost- að Francois lífið — gat hún ekki farið með manns efni sínu til Afríku. —o— MICKEY MÚS DAUÐUR í blaðaviðtali í Lundún- um fyrir skömmu. til- kvnnti Walt Disney, að ein af elztu og vinsælustu persónum sínum, Mickey Mús, væri ekki lengur í tölu lifenda; hann væri horfinn úr myndum sín- um. Mickey hefur tórt í 25 ár. —o— IíRANDO GIFTUR. Marlon Brando, kvik- myndaleikarinn, er kven- fóik um allan heim hefur dáð og tilbeðið, gifti sig nýlega í kyrrþei. Brúður hans er indverska kvik- myndastjarnan Anna Has -hfi. Hjónavígslan fór fram á heimili frænku Brandos við Hollywood. og var brúðguminn klædd ur dökkbláum fötum, I hvítri skyrtu, en brúður- in ljósgrænum kjól og bar liljur í hári. NÝR BALLETT. Francois Sagan lætur hvorki bílslys né gifting- aráform trufla sig í hinni skapandi list. Meðan hún lá á sjúkrahúsinu eftir bílslysið fræga, samdi hún ballett, sem talið er að sýndur muni verða í París á þessum vetri. —ó— FRÁ BRÚÐI TIL BRÚÐGUMA. Hinn 43 ára gamli Rob- ert Allen, sem stóð frami fvrir altarinu sem brúður fvrir 25 árum, gifti sig nýlega í þriðja sinn, og er það í annað sinn, sem hann er brúðgumi. Rob- ert Allen g'iftist í fyrsta sinn 1933 — og þá sem kona —. Hjónabandið fór auðvitað út um þúfur, er ,,brúðurin“ skipti um kyn og eliefu árum síðar gift- ist Allen á ný og þá sem karlmaður. — Nú héfur hann gifst í þriðja sinn, og heitir brúður hans Doreen Mortimore. —o— DÓTTIR REUMERTS f KVIKMYND. Dvveke, dóttir hins þekkta leikara Paul Reu- merts. er um þessar mund ir að 4eika í sinni fyrstu kvikmynd. Það er Tekn- isk Film Co, sem er að gera myndina eftir skáld- sögu Erling Poulsen „Eng elen i sort.“. Meðal ann- arra leikara f mvndinni verður Tngeborg Brahms. —o— Nú er vetur í bæ, og það er betra aft vera vel bú- inn, jafnvel í rúminu. bessi sífti náttjakki er nýjasta tízka í náttklæðum karlmanna, og var nýlega á tízku sýningu í Manehester. SUNNUDAGSBLAÐIÐ ÚTGEFANDI: SuxmudagsblaSið hJ. RITSTJÓRI: Ingólfur Kristíánsson, Stórholti 17. Sími 16151, Box 1127. A.FGREIÐSLA: Hverfisgötu 8—10. Sítni 14900. Prentsmiðja Alþýðublaðsins,

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.