Sunnudagsblaðið

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Sunnudagsblaðið - 01.11.1959, Qupperneq 10

Sunnudagsblaðið - 01.11.1959, Qupperneq 10
' 602 SUNNUDAGSBLAÐIÐ M. J, Lermentov: Framhaldssaga PRINSESSA hins nýfædda dags náðu enn ekki niður í gjána, en fjallstindarnir beggja megin við okkur, voru sveipáðir gullnu gliti. Við hvern minnsta vindblæ hrundi yfir okkur regn hvítra blóma af laufþéttum runnum sem uxu f öllum klettasprungum. Ég man að á þessari stundu elskaði ég náttúruna heitar en nokkru sinni fyrr. Það var yndislegt að virða fyrir sér hvern daggardropa sem titraði á blöðum vínviðarins og glitraði í milljónföldu litskrúði Ijósbrotsins. En hvað ég reyndi að hvessa sjónir og rýna gegnum móðu fjarskans. Gatan mjókkaði stöðugt, hamra veggirnir urðu þverhnýptari og dekkri. Loks var svo að sjá, sem þeir rynnu saman í einn ófæran klett. Við héldum áfram án þess að segja orð. — Hafið þér gengið frá erfða- skrá yðar? spurði Werner allt í einu. — Nei. — En ef þér fallið nú? — Þá geta erfingjarnir gefið sig fram. — En eigið þér enga vini, sem yður gæti hugsazt að senda hinztu kveðju? Ég hristi höfuðið. — Og er þá engin kona til í veröldinni, sem yður langaði til að eftirláta einhvern minjagrip? — Eruð þér að leita eftir því, læknir? svaraði ég honum, — að ég opni hjarta mitt fyrir yður? ... Nei, sjáið þér til, ég er kom- inn yfir þann aldur, er menn deyja með nafn ástmeyjar sinnar á vör- unum og senda vini sínum meira eða minna ilmsmurðan hárlokk. Þegar ég renni huganum til þess, að ef til vill eigi ég bráðum að deyja, er það einungis ég sjálfur, sem ég hugsa um, það eru ekki allir þannig gerðir. Þeir vinir, sem hafa gleymt mér í fyrramálið, eða það sem verra er, saurgað minningu mína með guð má vita hverju, — og þær kon ur sem gefa sig öðrum á vald, og hamast svo við að hæðast að mér til þess að hinn verði ekki af- rýðissamur út í náinn, — ég segi bara, friður sé með þeim! Frá hretviðrum lífsins hef ég aðeins tekið með mér örfáar hugmyndir, en engar tilfinningar. Ég er bú- inn að lifa lengi, ekki með hjart- anu, heldur með höfðinu. Ég kryf og rannsaka ástríður mínar og at- hafnir af miklum áhuga en engri samúð. Ég er líkastur tveim persónum. Önnur þeirra lifir í orðsins fyllstu merkingu, en hin endurspeglar hana og gagnrýnir. Sú fyrrnefnda mun ef til vill innan klukkustund- ar kveðja yður og alla tilveruna, en hin... já, hvernig verður með hina? ... En lítið þér á, læknir. Sjáið þér þarna uppi á hamrinum til hægri, eru þar ekki þrír menn? Skyldu það vera andstæðingar okkar? Við hertum á hestunum. í kjarrinu neðan undir klett- unum stóðu þrír hestar bundnir. Við tjóðruðum einnig okkar hesta þar og lögðum svo af stað upp mjóan götuslóða, er lá upp á gjár- brúnina. Þar beið Grúsnitskí á- samt riddaraliðshöfuðsmanninum og öðrum aðstoðarmanni sínum, er þeir nefndu Ivan Ignatjevitsj. Ættarnafni hans gat ég aldrei komið fyrir mig. —- Við erum búnir að bíða lengi eftir yður, sagði höfuðsmaðurinn og glotti háðslega. Ég dró fram úr mitt og sýndi honum það . Hann afsakaði sig með því að hans klukka flýtti sér. Það liðu nokkrar mínútur í kveljandi þögn. Loks rauf lækn- irinn hana um Ieið og hann sneri sér að Grúsnitskí. — Mér virðist svo, sagði hann, — að þar sem það er augljóst orð- ið, að þið eruð báðir þess albúnir að ganga á hólm hér, til að verja heiður ykkar, þá ætti sá mögu- leiki að vera fyrir hendi, að þið gengjuð til samninga og jöfnuðu sakir ykkar á friðsamlegan hátt. — Já, ég er fús til þess, sagði ég. I

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.