Sunnudagsblaðið - 28.08.1960, Blaðsíða 4

Sunnudagsblaðið - 28.08.1960, Blaðsíða 4
til gamans Morð p' Framhald af 2. síðu. svefni. Fyrir viku genguð þér í svefni og komuð inn í mitt herbergi, ekki satt? Hafið þér tapað vasaklút? Hr. Calthrop starði fyrirlit- lega á Penbury. — Hvað eig- ið þér eiginlega við? spurði hann. . — Hr. Calthrop, hafið bér sofið hér síðastliðinn hálf- tíma? spurði Penbury. — Hvað um það, hrópaði Calthrop. — Hvaða bölvað kjaftaði er þetta eiginlega? Haldið þér kannske að ég hafi farið héðan út úr stofunni án þess að vita það og drepið Wainwright alveg að ástæðu- lausu? Ég fór úr stofunni fyr- ir um það bil 20 mínútum, herra minn. Ég náði í kvöld- blaðið inni í borðstofu, til að leysa krossgátuna. Hann sló ofsareiður á blaðið: — Hér er það! . Monty Smith, sem hafði hlustað eftirvæntingarfullur 'á samtalið, hafði sína sögu til- búna. Hann hafði þrisvar far- ið yfir hana í huganum. Hann ætlaði ekki að vera jafn bráð- ur og Calthrop. Hann talaði hægt og með nákvæmni. — Ég fór út úr stofunnj af því að ég mundi allt í einu eftir, að ég hafði ekki skilað hr. Wainwright útidyralykl- inum, sem hann lánaði mér í gær, af því að ég fann ekki minn. Þegar ég kom á neðstu hæðina, mætti ég frú Mayton, sem spurði hvort ég vildi hjálpa henni með gluggatjöld- in fyrir forstofuglugganum. íÞau höfðu dottið niður^ Ég 'hjálpaði henni með þáp, og . við gengum saman niður í dag •stofuna. Þið munið sjálfsagt eftir, að við komum inn sam- an? — Penbury leit rannsak- andi á Monty. — Hvað svo með útidyralykilinn? spurði hann. — Hvað? Já, auðvitað, stam aði Monty. — Ég gleymdi honum alveg vegna glugga- tjaldann^, Þegar ég kom hing að niður var ég ennþá með hann í vasanum. Penbury yppti öxlum. Hann virtist ekki vera ánægður. Nú sneri hann sér að frú Wick. Hún hélt áfram að prjóna og spurði: — Er nú komið að mér? — Já, ef þér vilduð gera svo vel, svona rétt fyrir siðasakir. — Ég skil, sagði hún bros- andi. — Það er engin þörf á afsökun. Jæja, ég fór til að sækja prjóna, þessa, sem ég er að nota. Eins og þér vitið, er herbergið mitt á annarri hæð, lítið hliðarherbergi, og þegar ég hafði náð í prjón- ana og ætlaði að fara, heyrði ég hr. Wainwright hósta ... — Haldið áfram, tautaði Penbury. — Já, svaraði frú Wick, —• ég held áfram. Hvers vegna ekki? Herbergisdyr yðar, hr. Penbury, vcru opnar, og ég gekk inn, til að spyrja yður hvort við gætum ekki gert eitt hvað til að fá hr. Wainwright til að hætta að hósta, en þér voruð þar ekki. Þér voruð jú að segja að þér hefðuð farið út. Hr. Wainwright hóstaði aftur þessum þurra, kjamt- andi hósta, ég gat ekki þolað þetta lengur. Áður en ég vissi af stóð ég fyrir framan her- bergi hr. Wainwright og barði að dyrum. Það var vasaklút- urinn minn, sem þér fuhduð í herberginu vðar, hr. Penbury, ég hlýt að hafa misst hann þar... Penbury vætti varirnar. Frú Wick hélt áfram að prjóna og glamrið í prjónun- um var eina hljóðið, sem rauf þögnina. Það var eins og prjón arnir dönsuðu óendanlegan, ógnþrunginn dans. Svo hélt frú Wick áfram að tala, ein- kennilega hörkulegri röddu. — Kom inn, sagði hr. Wain wright. — Já, ég kem, svaraði ég og gekk inn. Þarna stóð haim og brosti til mín. — Þér komið þó ekki til að kvarta yfir hóstanum í mér? sagði hann. — Nei, ég kem til að lækna hann, sagði ég. Svo stakk ég hann í hjartað með prjónin- um ... svona! — Kreppt hönd in rak prjón af alefli niður í sessu, sem lá við hliðina á henni. ", Um leið var hringt á dyra- bjölluna. — Lögreglan, stundi Calt- hrop. ' Enginn hreyfði sig. í dauða- kyrrðinni hevrðist þjónustu- stúlkan koma upp úr kjallar- anum, útidyrahurðin heyrðist opnuð og fótatak nálgaðist... Ándartaki síðar heyrðist hinn harði, kjamtandi hósti hr. Wainwright. — Já, sagði frú Wick, — ég heyrði þegar hann fór út fyrir 10 mínútum ... en kærar þakkir fyrir þessa skemmti- legu hugmvnd, herra Pen- bury! Auðvitað sat ég hérna og lét mér leiðast rétt eins og allir hinir . . . " „Ég ætla að bregða mér upp og greiða mér, áður en ég fer að borða“. 4 Syitnudagsbiaðið TÖLUR Framhald af 3. síSu. ans, 10, við og bá kemur út 666+1000. Táknið fyrir 1000 er M, fyrsti bókstafurinn í „mysterium“. — Það væri synd að segja, að vMichael þessi Stifel hafi verið . slakur í tölvísindum! í skáldsögu Tolstoys, „Stríð og friður“, er kenníhg, <5em gefa á til kynna, að tálan 666 hafi átt við Napoleon keisara. Aðrir hafa kuklað þannig með tölur og bókstafi, að út hefur komið, gð Nero hafi verið hið stóra dýr, sem minnzt er á í Opinberunarbókinni. :í Nýjasta dæmið í þessnm efnum er úr síðasta strfði, þar sem stillt var upp talúaröð, þar sem A—100, B=101v C= 102, D—103, E=104 og. svo íramvegis. Ef nafnið HITLER er reiknað út eftir þessari formúlu, verður útkoman ... 666! FRÆGUR leyniiögreglumaður hefur nýlega lýst í æviminn- ingum sínum einu vandasamasta verkinu, sem honum var falið að leysa af hendi og hvernig honum tókst það. Hann átti að taka fastan slunginn fjársvikara í Englandi. Svikarinn hafði klæðzt kvenbúningi og leikið á fjölmarga leynlögreglumenn frá Scotland Yard Leynilögreglumaðurinn var að loknu afreki sínu spurður hvernig í ósköpunum hann hafi farið að því að finna manninn. Svar hans ber vissulega vott um ágætlega þroskaða athyglisgáfu: — Dulbúningurinn var svo vel gerður, að mig hefði aldrei getað dreymt um annað eins. Andlitsliturinn, hárið, göngulagið, framkoman: allt var þetta jafn yndislegt og kvenlegt. En þá brá svo við, að ,,frúin“ gekk framhjá einni fínustu tízkuverzlun Lundúnaborgar, án þess svo mikið sem gjótá augunum upp í gluggana. Þá vissi ég hvar hundurinrn lá grafinn! ☆ EITT SINN var því spáð, að ísland mundi sökkva í sæ og í tilefni af þvi kvað Jónas Jónsson i Hróarsdal eftirfarandi visu: Stjörnu fróðir fræðimenn fyrir þjóðum lýsa: Að muni í flóði farast senn frónið góða — ísa Nafni hans að Tjörn við Sauðárkrók svaraði með þessari vísu: Þótt min sé ekki mikil sjón mega það rekkar heyra. Ef að sekkur ísa frón eitthvað skekkist fleira. ☆ LÍSA hét stór og góðleg negrastúlka, sem gætti barna í húsi einu í New York. Húni hafði verið þar í mörg ár og gerði mikið gagn bæði með því að þvo þvotta, stoppa í sokka og margt fleira, auk þess sem hún gætti barnanna Dag nokkurn kemur Jack litli til hennar og spyr, eftir að hafa skoðað hana gaumgæfilega: — Heyrðu, Lísa, af hverju hefurðu svona stðrar hendur? ■— Það skal ég segja þér, Jack, segir Lísa Það er af því, að þegar ég var barn, lék ég mér alltaf í forarleðiunni í skurðun- um, og af því fær maður stórar hendur. — Já, en af hverju hefurðu þá svona stóra fætur, Lása? — Það er skiljanlegt. Við hlupum alltaf berfætt í leðjunn; og af því verða fæturnir stórir. — Segðu mér, Lísa, spyr Jack litli að lokum: Saztu líka í leðjunni? ☆ EFTIEFAEANDI vísur orti Káinn um þ'kktan fræðimar.n héðan að heiman, er hann var á ferð fyrir vestan: Nú heilsa ég heimspeking frægum og hneigi mig. — Sæll vert þú — heiðraði herra Ágúst H — „doi you do?“ Við þráum hér syðra að sjá þig og setjast hjá þér í foíl, og hlusta á þig, herra Ágúst H. — „do you feel?“ Það er svo hressandi, heilnæmt, og heimskuna dæmir í foann, að hlusta á þig, herra Ágúst, H. — lærðan mann. Þeir, sem að þekkja þig, vita, þegar að komið er haust heldur þú heimleiðis, Ágúst, H. — vaðalaust.

x

Sunnudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.