Sunnudagsblaðið - 19.02.1961, Síða 2

Sunnudagsblaðið - 19.02.1961, Síða 2
MYNDIRNAR: | EFRI myndin er af stærsta fiskinum, sem til | er í vatnasvæði Amasonfljótsins, Hann heitir | „Arapaima£t o:g getur orðið fjórir metrar að | lengd. Hann er veiddur af Indíánum með eins | konar skutlum, sem skotið er líkt og ör af boga. § Á myndinni sést einn slíkur af meðalstærð vera ■ komínn upp á fljótsbakkann. — Neðri myndin | sýnir árbakka á Amasonsvæðinu, þar sem byggð | er við fljótið. Víða eru annars óbyggð svæði, og 1 innst inni x hinum miklu skógum, sem mega ■ heita ókannaðir á stórum svæðum, eru miklir 1 skóglausir graslendilsflákar. 8fwiwiliÉjÍÍÍBII|W38Bp|ÍÍpÍWjpiÍBpBWIIjWj RIO de JAJMEiRO (Picmail- cr). Amasonfljót er svo stórt, að það er hægt að sigla á stór um hafskipum eftir því gegn- um meira en tvo þriðju af meginlandi Suður-Ameríku. Þetta er vatnsmesta fljót heimsins og lengsta .fljótið líka að aðeins tveimur undan skildum, Missisippi-Missouri og Níl. Hægt er að sigía hana á nærfellt öllum skipum allt upp til Iquitos í Perú, 2000 mílur inni í landi frá mynni fljótsins á austurströnd Bra- í'úíu rétt við miðbaug. 'Skip, sem rista 14 fet, geta komizt 486 mílum lengra. Amason er alls staðar breið, en sums staðar þar sem hún fellur í einu lagi er hún 4—6 mílur á breidd, en annars stað ar er hún hrein flækja úr kvíslum, auk þess. sem að henni fellur mikill fjöldi af hliðarám. Meðaldýpi á rign- ingatímanum er 120 fet. Alls er þetta mikla fljót 3000 mílur að lengd frá upp- tökum til ósa. Upptökin eru við Maranon í Perú, hátt uppi í Andesfjöllum, í vötnum. sem fá aðrennsli undan skrið jöklum háfjallanna, Þaðan eru ekki nema tæpar 100 míl- ur vestur á Kyrrahafsströnd. Mikinn hluta leiðar sinnar austur til hafs fellur það yfir flatlendi, þar sem með all- löngu millibili eru höll austur á bóginn. Miðhlutinn er oft kallaður Solimoes. Afrennslissvæði Amason- fljóts er 2 722 000 fermílna eða litlu minni en öll Banda- ríki Norður-Ameríku. Og skál in meðfram fljótinu er stærsta svæði heimsins, sem ekki hefur verið kannað, fyrir utan hin ónytjanlegu heim- skautasvæði. íbúarnir eru aðallega Indí- ánar, hálfvilltir, fátækir og fávísir. Sumir vinna við gúm- ræktina, aðrir lifa eins og for feður þeirra út í skógunum á því, sem náttúran gefur þeim. Dagar hinna villtu Indíána og grimmra villidýra i Ama- sonskógunum eru horfnir, og allir, sem eru sæmilega var- kárir, geta farið þar um, a. m, k. ihinar þekktu leiðir. Óskaplegur fjöldi dýra hefst við í Amasondældinni, aðallega apar, fuglar og hreinn aragrúi af skordýrateg undum. Meira en 400 ætar fisktegundir eru í ánum, en alls er talið, að þar séu um 2000 tegundir, enda horfa sportveiðimenn þangað von- araugum. Spánverjinn Vicente Yanez Pinzon fann Amason fyrstur árið 1500 og fyrsta ferðin frá Andes til Atlantshafsins eftir ánni var farin 40 áruní seinna. Nú er verið að gera veg frá Quito í Euador til Belem £ Autur-Brazilíu. Þegar hann er kominn upp, verður hanm eini vegurinn yfir þetta mikla vatnavæði og skóga og eini vegurinn, sem liggur þvers yfir meginland Suður-Amer- íku. En járnbrautarlestif tengja saman Braziliu og Boli víu. Maður, sern ferðast upp efi ir Amason, sér frá hinu þægi' lega skipi sínu fjölda litilia Framliald á 6. síðu. DÆMIÐ EKKI til þess að þér verðið ekki dæmd- ir; því að með þeim dómi, sem þér dæmið, verð- ið þér dæmdir, og með þeim mæ'li, sem. þér mæl- ið, verður yður mælt. En því . sér þú flísina í auga bróður þíns, en tekur ekki eftir bjálkanum í auga þínu? Eða hvernig /getur þú sagt við bróður þinn: Lát m!g draga út flísina úr auga þér, en gengur svo sjálfur með bjálka í auganu? Hræsnari, drag fyrst bjáikann út úr- auga þínu, og þá muntu sjá vel til að draga út flísina úr auga bróður þms. (Fjallræðan). 2 Sunnudagsblaðið

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.