Sunnudagsblaðið - 23.04.1961, Síða 1
L
23. APRIL. — 15. TBL.
VI ARG.
Eftir CAMILIE
FLAMMARION
FYRIR 70—80 árum
skrifaði hinn frægi
franski stjömufræðing-
ur, Camille Fl'ammarion,
hugleiðiCngar sínar um
líf og lífskilyrði í fiinum
óendanlega stj,örnu-
geimi. Hann setti þær
fram í skáldlegum bún
ingi. Sjálf stjörnudísin,
Úranía fylgdi honum og
sýndi honum dásemdir
alheimsins. Þessar hug
leiðingar eru hluti! bók
arinnar „Úranía“, sem
kom út á íslenzku 1898
í frábærr-i þýðngingu
Bjarnar frá Viðfirði.
Sunnudagsblaðið birt
ir hér brot úr þessum
hugleiðingum í tilefni af
því að nú hefur fyrsti
maðurinn, Juri Gagarin
hinn rússneski, farið út
í geiminn og geimöld er
hafin.
OG ég sá, hvar Jörðin hné í
regindjúp rumsins. Turnkoll-
urinn á stjörnuhúsinu ag ljós-
mari borgarinnar hurfu á svip
stundu; en sjálfur þóttist ég
hvergi hreyfast; það var á-
þekk tilfinning, er grgip mig,
eins og þegar maður stendur
í loftfari og sér jörðina svífa
óðfluga burt undir fótum sér.
Þannig sveif ég á fleygiferð
hærra og hærra, lengra og
lengra, borinn af ómælilegum
töfrakrafti áleiðis að tak-
marki, er alitaf vék undan og
aldrei varð náð. Úranía leið
fram við hlið mér og var þó
jafnan öli'u ofar; hún leit við
mér blíðlega og sýndi mér öll
ríki veraldarinnar. Það var
runninn dagur á Jörðunni, er
hér var komið förinni. Ég gat
að líta Frakkland, Rín, Þýzka
land, Austurríki, ítalíu, Mið-
jarðarhafið, Spán, Atlantshaf-
ið, Ermarsund og England;
það var eins og á örsmáu
landabréfi, enda var þess ekki
langt að bíða að öll lönd voru
horfin og Jörðin líktist tungli