Sunnudagsblaðið - 01.09.1963, Síða 7

Sunnudagsblaðið - 01.09.1963, Síða 7
Þeim Þórhalli farnaðist illa, eins og geta mátti, er allir vínsvelgir leiðangurs- ins voru saman komnir á einu skipi. Hrakti þá alla leið til írlands og voru þar mjög hrjáðir, en Þórhallur líflátinn. Aðrir leiðangursmenn héldu suður með Ströndinni. Segir svo frá ferð þeirra: „Nú er að segja frá Karlsefni, að hann fór suður fyrir landið og Snorri og Bjarni með sínu fólki. Þeir fóru lengi og allt þar til, er þeir komu að á einni, er féll af landi ofan í vatn eitt til sjávar. Eyrar voru þar miklar, og mátti eigi komast í ána utan að háflæðum. Þeir Karlsefni sigldu í ósinn og kölluðu í Hópi. Þeir fundu á landi sjálfsána hveitiakra, þar sem lægðir voru, en vínvið allt þar, sem holta vissi. Hver lækur var fullur af fisk- um. Þeir gerðu grafir, þar sem mættist landið og flóðið gekk efst, og þá er út féll sjórinn, voru helgir fiskar í gröfunum. Þar var mikill fjöldi dýra í skóginum með öliu móti. Þeir voru þar hálfan mánuð og skemmtu sér og urðu við ekkert varir. Fé sitt höfðu þeir með sér”. (Boland telur Hóp vera Albermerle Sound í Suður-Karólínu.) „Þeir Karlsefni höfðu gert búðir sínar upp frá vatninu, og voru sumir skálarnir nær vatninu, en sumir firr. Nú voru þeir þar þann vetur. Þar kom enginn snjór, og allt gekk fé þeirra sjálfala fram”. Löndum vorum iíkaði að vonum vel í þessu suðræna loftslagi. Er ekki að efa, að þar hefði risið blómleg íslenzk ný- lenda, ef ekki hefði komið til bardaga við Indíána. Samskipti þeirra hófust með friðsam- legri verzlun. Indíánarnir létu skinn og grávöru fyrir búnyt. Segir í Grænlend- inga sögu: ...... var sú kaupför Skræl- ingja, að þeir bóru sinn varning í burtu í mögum sínum, en Karlsefni og föru- nautar hans höfðu eftir bagga þeirra og skinnavöru”. Sögunum ber ekki saman um, hver voru tildrög ófriðarins. En öllu þykir mér trú- SÍÐARI HLUTI Hann var vanur sulli í ánni og hafði oft komið í vatn áður, þó að ósyndur væri með öllu. Honum brá þó ónotalega við þessa skyndilegu kaffæringu, en varð ekki mjög hræddur, fyrst í stað. Hans fyrsta hugsun var Rauður, hann yrði að ná í hann aftur. Þegar honum skauc úr kafinu, sá hann sér til skelfingar, að hann var kominn út í mitt fljót og Rauður horfinn þaðan, sem honum fannst að liann ætti að vera, beint niður undan hvannastóðinu. Hann reyndi í fáti að grípa til hundasunds, sem hann hafði oft reynt fyrr í grunnu vatni. Hann krafsaði fram fyrir sig með höndunum, eins ótt og hann orkaði og leitaði með fótunum eftir steini eða kletti í botninum. En hér virtist vera botnlaust hyldýpi og ekkert utan vatnið að spyrna í, en því iíkt sem ósýnilegar tröllakrumlur drægju höfuð hans niður með jötunafli, hægt og hægt og ómótstæðilega. Um leið og h'inn var að sökkva í annað sinn varð hann hrædd- ur. Hann rak upp hálfkæft skelfiagaróp, sem bergmálaði dauflega i dökku gljíSfr- inu, síðasta andvarp drengs, sem var að drukkna. Þá fann hann þrifið sterklega og óþyrmilega í blússukraga sinn aftan frá, og höfuð hans og herðar hrifnar til hálfs upp úr straumfallinu. Hunn fann anlegri frásögn Grænlendinga- sögu, sem segir, að einn úr liði Þorfinns hafi vegið Skræling, því að hann hafði viljað taka vopn þeirra. Komu þá Skrælingjar fjöl- mennir og verður bardagi með þeim. Féllu tveir menn af þeim Karlsefni en margir af Skrælingjum, og flýja þeir síð- an. „Þeir Karlsefni þóttust nú sjá, þótt þar væri landkostir góðir, að þar myndi jafn- an ótti og ófriður á liggja af þeim, er fyrir bjuggu”. Eftir þetta fara þeir aftur í Straum- fjörð og eru þar næsta vetur. Þann vetur urðu miklir flokkadrættir og ófriður í liði Karlsefnis. Voru þær deilur um hinar fáu konur í hópnum. Þær urðu til þess, að ákveðið var að snúa heim til Grænlands um vorið. Þangað komu landnemarnir heilu og höldnu, nema skip Bjarna Grímólfssonar fórst. Þorfinni Karlsefni og Guðríði hafði fæðst sonur í Straumfirði, sem nefndur var Snorri. Þau fóru síðar til íslands og var margt stórmenna af þeim komið. Þannig lauk fyrstu alvarlegu tilraun ís- lendinga til landnáms í nýjum heimi. Hvín mistókst vegna ófriðar við Skrælingja og innbyrðis deilna, eða öllu heldur ónógra kvenna. Enn er sagt frá einni tilraun til að nema land á Vínlandi. Fyrir þeim leiðangri voru á einu skipi Freydís, hálfsystir Leifs Eiríkssonar, og Þorvarður, eiginmaður hennar, en á öðru tveir austfirzkir bræður. Sú tilraun fékk hörmulegan endi, því að bræðurnir og allir menn þeirra voru myrt- ir að undirlagi Freydísar. Eftir það geta íslenzk fornrit ekki um fleiri Vínlandsferðir, þótt alls ekki sé loku skotið fyrir, að þær hafi verið farnar. ÞÁTTUR Þorfinns Karlsefnis verður sá síffasti í grreinaflokki þessum, og er þó ekki allt talið, sem bcndir til mannaferffa í Ameríku fyrir 1492, og verffur aff láta örfá dæmi nægja. heitan loftstraum leika vun háls sinn og hnakka, og varð þess var, að eitthvað slóst í fætur hans, sem héngu máttvana niður. Að öðru leyti gerði hann sér ekki grein fyrir hvað var að gerast, fyrr en Rauður skákaði honum upp á stóran, flatan stein við enda fljótsins, þar sem gljúfrið þrengd- ist á ný. Það var þá Rauður, sem bjarg- aði honum frá drukknun, þegar hringið- an var að færa hann í kaf. Það var hann, sem synt hafði út í fljótið og bitið sír- um sterku tönnum í hálsmálið á fötum hans, og síðan dröslað honum hingað. — Drengurinn fann nú, að hann var dálítið aumur og kenndi sársauka aftan á háls- inum, þar sem Rauður hafði leitað eftir travistu taki á fötum hans. Sennilega var hann eitthvað flumbraður eftir harðar tennur hans, en það voru smáskeinur, sem fljótt myndu gróa. Það sem hér hafði gerzt mátti ekki vitnast, hann varð að gæta sín, að minnast aldrei einu orði á það heima. Annað eins og þetta yrði aldr- ei fyrirgefið, það vissi hann af fyrri yfir- sjónum. Þegar drengurinn hafði jafnað sig um stund og mesta vatnið var runnið úr föt- um hans, hoppaðí hann á ný á bak Rauði, sem stóð eins og þúfa kyrr þétt við stein- inn, með snærið í tvíteymingi upp á makkanum eins og hann hafði skilið við það, er hann kollsteyptist. Hvönnin, sem orsakað hafði fall hans, varð eftir í fljót- í bænum Newport í Rhode Island stend- ur mannvirki, sem bandarískir sagnfræff- ingar eru sannast aff segja í hálfgerffum vandræffum meff. Þaff er sívalur turn úr höggnu grjóti í rómönskum miffaldastfl. Enginn veit, hvernig hann er til kominn, en af elztu rituffum heimildum landnem- anna er 1 jóst, aff hann hefur veriff þar fyr- ir þelrra tíff. Boland telur, aff íslenzkur biskup á Grænlandi, Eirikur Gnúpsson, hafi látiff reisa turninn. Þá á Kensington rúnasteinninn ekki síffur stormasama sögu. Steinninn fannst í Minnesóta skömmu fyrir síffustu alda- mót! Á honum er þessi texti meff rúna- letri: Vér erum 8 Gotar og 22 Norffmenn á könnunarferff frá Vínlandi um Vestriff. Vér áttum búffir hjá (vatni meff) 2 skerj- um dagleiff norffur frá þessum steini. Vér vorurn aff fiskiveiffum dag einn. Er vér komum heim fundum vér 10 manna vorra blóffi drifna og dauffa. A(VE) M(ARIA) forði (oss) frá illu.. Og á hlið steinsins: (Vér) höfffum 10 af (félögum vorum) viff hafiff tii aff líta eftir skipum vorum 14 inu, hann hugsaði ekki meira um hana, en lét Rauð feta sig sama veg til baka út úr gljúfrinu. Þegar þeir komu til hrossanna aftur, leysti drengurinn snærið fram úr Rauði, og kjassaði hann innilega um leið og hann sleppti honum, en klárinn néri hausnum vinalega við barm hans, beit laust í ljósa blússuna, svo að grassafinn úr munni hestsins litaði hana dökkgræn- um dílum, hér og hvar. Drengurinn leitaði sér að hlýlegum stað, sunnan undir kjarri vöxnum ási, þar fór hann úr blautum fötunum, vatt úr þeim vatnið, svo sem kostur var á, og breiddi þau síðan til þurrks á limar bjarkanna. Meðan hann beið þess, að föt hans þornuðu, fór hann að hugsa um það á ný, að aldrei mátti nokkur maður fá að vita neitt lun það, sem fyrir haiiji hafði komið í dag, ekki einu sinni mamma. Fn hann yrði þó að biðja hana um auka- bita af brauði og fáeina sykurmola, — handa Rauði á morgun. Það þurfti engra skýringa við, sem betur fór, annars en þeirra, að klárinn væri kominn fram á dal. Sól var nú sigin í miðaftanstað, — og drengurinn óð á ný berfættur suður yfir ána og fór að huga að kvífé sínu. Lubbi hafði annast æmar trúlega, svo að cnga þeirra vantaði, þegar hann hóaði þeim saman. dagleiðir frá þessari eyju á (því Her- rans) ári 1362. Látlausar deflur hafa staffið um þaff, hvorí steinninn sé falsaður effur ei. Boland, sem styðst við kenningar Hjálmars Holands telur menn úr leiffangri Páls nokkursi Knútssonar hafa gert steininn. Magnús Eiríksson, konungur yfir Noregi og Sví- þjóff sendi Pál til aff líta eftir kristni haldi á Grænlandi. Svo eru affrir ekki síðri fræðimenn, sem telja steininn hreina fölsun, sem ein- hverjir gárungar meff nasasjón af rúna- letri hafi gert sér til gamans. En ævintýralegust af öllu er ef til vill tilgáta Bolands um endalok írlands hins mikla, sem áður hefur veriff fjallaff um, cn íbúar þess voru (segir Boland) af írsk- um og íslenzkum ættum. Meff auknum ferffum víkinga til Am- eríku þótti þeim sér ekki lengur vært í Massachusetts, en tóku sig upp og fóru til Mexíkó síffan Perú og jafnvel enn víff- ar, og áttu sinn þátt í aff móta menningu Azteka og Inka. Styffst Boland þar viff þjóffsögur Indí- ána um hvíta, rauffskeggjaffa guffi, sem komu óvænt til lands þeirra. Sagnirnar segja ennfremur, að þeir hafi loks siglt til hafs. Þar hefur Thor Heyerdahl tekiff upp þráðinn meff Kon Tiki leiffangri sínum, en hann telur aff rauffskeggjar hafi kom- izt á flekum til Suffurhafseyja, þar sem enn standa óbrotgjörn minnismerki þeirra úr rauffum steini. En nóg um þaff. Á endanum fann svo Kólumbus Amcríku, þegar Evrópumenn voru komnir á þaff stig aff geta hagnýtt sér hina nýju heimsálfu, svo aff fyrir söguna skiptir hans ferff mestu máli. En afrek hinna, sem á undan honunt komu, mega ekki falla í gleymsku. Char- les Boland hefur lagt sitt af mörkum til aff svo verði ekki meff bók sinni „They All Discovered America.” Sumarið var liðið, og gróður þess fall- inn í vetrarhíði. Haustið var einnig á enda og laufvindar þess þagnaðir. Það var kom- inn vetur, víkingsvetur. í byrjun gormán- aðar kynngdi niður lognsnjó, svo að hvergi sá í dökkan díl, en síðan gerði spilli- blota og áfreða svo mikla, að varia fékk tittlingur í nef sitt. Á ýli voru sífelidir austan þræsingar, með upprofi um helg- ar. En með mörsugi hófust langvinnar stórhriðar, af útnorðri. Þegar upp birti hafði landið lokast ihni til hálfs, og var orðið samfrosfa liinni hvítu, fljótandi álfu. Fylgdu því frost mik- il, svo að á skömmum tíma lagði íshelht á vikur og firði, en hestfæri gerði þar, sem áður voru stórskipaleiðir. Þá brá til staðviðra. Það var siður margra dalabænda, að senda tryppi sín, og þau yngri hross, sim vel höfðu gengið undan sumri, í haga- göngu út að sjónum, yfir vetrarmánuð- ina. Nú hafði veturinn komið snemrrta og setzt svo illa að, að ýmsum fannst þáð heillaráð að senda öll hross, bæði ung og gömul í vetrarhaga við sjávarsíðurra Þessa vetrarkvíða mátti Gamli Raúður gjalda, og varð nú að fylgja yngri hross- unum á útiganginn í fyrsta skipti, síðan hann dróst i aldur. Eftir staðviðrin gerði enn snjókomu og bylji, með grimmdarfrosti, sem heltók Frh. á bls. 10. ALPTSUBLAÐIÐ — SUNNUDAGSBtAÐ J

x

Sunnudagsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.