Sunnudagsblaðið - 01.09.1963, Side 9

Sunnudagsblaðið - 01.09.1963, Side 9
Bærinn Ávík og Reykjaneshyrna, sem er 2—3 km norðan við Gjögur. í dimmviðri var Hyman oft fyrsta landkenning hákarla- manna. lifrarbroddanna og heldur þeim saman, en það, sem nefnt var sál var hjartavöðvinn, sem liggur rétt fyrir aftan tálknin í há- karlinum eins og í öðrum fiskum. Þegar beitt var bæði hrossakjöti og sel, var hafð ■ ur sinn bitinn af hvoru, og hét það að beita tálbeiting. Beitt var á allan legg sóknarinnar, en hvorki á odd hennar né bugðu. Venjulega byrjuðu róðrar heimamanna norður þar upp lir nýju ári, en aðkomu- menn þeir, er búðir áttu og uppsátur höfðu á Gjögri, komu eigi fyrr en með þorra. Það, ,sem aflaðist í fyrstu legunum, var allt flutt í land, bæði hákarl og lifur, og nefndust það doggaróðrar. Það þótti skemma fyrir afla að kasta hákarli eða rusli úr honum í sjóinn. Þurfti þá lengra að sækja í næsta róðri, en það þótti hvergi nærri gott, meðan dag var lítt tekið að lengja. Til þess að koma skipulagi á þetta, héldu formenn fund í byrjun vertíðar og gerðu með sér samning um það, að enginn þeirra mætti sleppa hákarli í sjó fyrr en eftir einhvern ákveðinn tíma, t.d. 20. marz eða 1. apríl, eftir því sem samkomulag varð um í hvert sinn. Samningurinn var skriflegur, og rituðu allir formenn undir hann. Gilti hann sem lög eftir það út þá vertíð. Þó að víti væru engin eða viðurlög fyrir brot á samkomulagi þessu, var það betur haldið en mörg landslögin, og sannaðist þar hið fornkveðna, „að gott er, það sjálf- um semur.“ Smærri skipin svo sem sexæringar, er lítið gátu flutt í samanburði við áttær- inga og teinæringa, höfðu suma hákarlana utanborðs í heilu lagi. Það voru nefndar hlessur og að róa fyrir hlessum. Var það oft ærið erfiði og gekk seint, svo oft fóru 12-15 tímar í það að komast í land í blíð- viðri þá leið, sem róin var á 2 stundum á lausu skipi. En það gat lika komið fyrir Indversk afneitun Frh. af bls. 5. ir heilögu menn) Ilindúanna. Þeir hvorki reykja, neyta áfengis, éta kjöt né taka hunang. Og þeir sofa ekki nema stuttan tíma í einu. Loks spurði ég: „Verjijð þið mestum tíma ykkar tii hugleiðslu og bænahalds?" Viðmælandi minn sraraði þessu þannig: „Hið daglega „sadhana“ og hugstarf hefst mjög snemma á morgnana eða um fjögurleytið. Fyrstu tveim til þrem stundun- lun er varið til gagngerrar sjálfs- skoðunar og umhugsunar um dýpstu rök tilverunnar. í dögun komum við allir saman og spyrjum hvern annan, hvort nokkur óhrein hugsun hafi leitað á okkur daginn áður. Um átta- leytið sinnum við gestum, ef ein- hverjir eru, og ræðum trúarleg mál. Eftir að hafa neytt matar um ellefuleytið lesum við í ritn- ingunni og tökum okkur penna í hönd, ef eitthvað þarf að festa á blað. Upp úr hádeginu er aftur tekið á móti gestum og rætt við þá. Við safum aldrei á daginn og höfum algera þögn á nóttunni Á kvöldin framkvæmum við nokkurg konar líkamstyftun til að staðfesta enn betur fráhvarf okkar frá heim- inum fyrir utan.“ að 40 doggar væru utanborðs og því til nokkurg að vinna. Eftir að samningstíminn var útrunninn, var ekki flutt í land annað en lifria. ef afli var nægur. Var þá hákarlinn settur á tamp og honum fleygt í sjóinn, er til lands var leitað að lokinni legu. Væri hins vegar tregur afli, var oftast nær eitt- hvað hirt af hákarli. Þetta nefndust skurð- arróðrar. Oftlega tók það 5-7 sólarhringa að fá fulla hleðslu, þó að gott væri veður, og stundum máttu menn sitja heilan sólar hring undir vað án þess að verða varir. Þegar veður voru góð og stillur gengu, gátu smærri skipin farið tvær legur hverja eftir aðra án hvíldar á milli, og þannig borið jafnmikið úr býtum sem hin stærri. Þegar mörg skip voru á líkum miðum, þurfti oft að færa sig og tók það langan tíma. Hákarlinn var bæði gráðugur og lyktnæmur og var fljótur að renna á þef- inn frá þeim, sem dýpra lágu undan. Tók þá undan hjá þeim, sem voru grynnra. Áratugurinn frá 1880-90 voru slæm ár, hafís og önnur harðindi, og þar af leiðandi skortur og fátækt meðal alþýðu. Dró þá úr hákarlaútgerðinni, því að sumir gátu eigi gert út sakir erfiðra ástæðna, en þeir, sem gerðu út á þeim árum fengu oft góð- an afla. Næstu tvo áratugi, 1890-1910, var yfirleitt betur ært og oft ágæt hákarla- veiði. Mestur afli, sem um er getið frá þeim árum, voru 6 tunnur lýsis til hlutar auk hákarls að sama skapi. Verð á lýsi var þá 25 kr. tunnan og 30 aura kg. af hákarli. Hlutaskipti voru þannig, að dauðu hlutirnir voru 3: fyrir skip, veiðarfæri og beitu. Væri skipseigandi sjálfur formaður, tók hann aðeins einn hlut eins og aðrir og því engan formannshlut. Væri annar formaður, galt útgerðarmaður honum hálf- an hlut í formannskaup auk mannshlut- arins. Lifrina bræddu menn sjálfir seinna á vorin, eftir vertíðarlok. Sá út- gerðarmaður oftast um það og sendi til þess 3-4 menn. Hákarlaskipin höfðu aldrei með sér eldivið að heiman, heldur keyptu rekavið til eldsneytis. Var gott til þeirra fanga norður þar. Á rekajörðum var jafnan miklu brennt af viði þeim, sem minnstur var og lélegastur til bygginga. Til elda- mennskunnar höfðu vermennirnir oftast lítinn kofa, er stóð á bak búðunum. Af bökum stórra hákarla var flett skrápnum, og nefndist það hreinn hákarl. Hákarlinn var fluttur heim og kasaður þar, en skipt áður, svo að hver fengi sinn hlut til verk- unar, því að það var mjög misjafnt, hversu mönnum fórst það úr hendi. Kösunin út af fyrir sig var ekki vandaverk. Hákarl- inn var aðeins borinn í hrúgu í dæld eða skvompu, urðaður þar með grjóti og mold- arhnausum og látinn liggja á sumar fram. Þá var hann tekinn upp og þveginn, skor- inn i hæfilegar lengjur og hengdur upp i hjalla til herzlu og þurrkunar. Það heita beitur. Til þess að hákarlinn verkaðist vel, þótti mestu varða, að vindur blési um hann sem oftast og mest. Hákarl frá Eyjum á Bölum, en þar er vindasamt, var víðfrægur fyrir gæði um allar Strandir og ávallt nefndur Eyjahákarl. Sami siður átti sér stað á Gjögri sem í verstöðvunum við Djúp, að þeir, sem komu í skipsrúm í fyrsta sinn, urðu að glíma um sýsluna, og varð sá sýslumaður, er engan gat fellt. En það var sýsla hans að hreinsa burt skít og skarn og gæta þess, að þrifalegt væri í kringum búðirnar. Aldrei snerti þó sýslumaður við því starfi frekar en einhver annar, því að nafnið og sýslan var aðeins spé og grátt gaman, sem uppi var haft í niðrunarskyni. Vafa- laust er siður þessi ævaforn, e.t.v. frá lokum 13. aldar, er íslenzkir goðar og niðjar þeirra máttu láta í minni pokann fyr ir innlendum og erlendum konungsþjón- um með því nafni. Landlegur voru bæði tíðar og langar. Voru þá glímur helzta skemmtunin. Dá- lítið var teflt, en spil sáust varla. Bóka- kostur var lítill og lítið lesið. Sumir ungl- ingar og enda fullorðnir menn notuðu land legurnar til þess að læra lestur og einkum skrift, ef einhver var sá í verstöðinni, gem þau fræði gat kennt, sem oftast var. Mjög margir fengust við smíðar og skinnklæða- saum fyrir húsbændui sína. Þegar hagyrð- ingar og kvæðamenn voru í verinu, voru rímur kveðnar og ortar formannavísur. Tóbaksnotkun var mjög í hófi, mest notað af munntóbaki, enda handhægast á miðum úti. Vínnautn var heldur ekki mikil eða almenn. Þó var dálítið drukkið í landlegum ef vín var til, en á sjóinn var það sjaldan haft, og þá ekki nema smávegis leki til hressingar í illhleypum. Um 1880 gerði sá maður út skip sitt frá Gjögri sem Kristján hét ívarsson. Hann var ættaður af Vatnsnesi í Húnaþingi og bjó þar. Skip hans hét Hallvarður, eftir Hallvarði Hallsyni frá Horni, sem var mik- ill og farsæll skipasmiður á sinni tíð auk annars, er honum var til lista lagt. Skip Kristjáns var smíðað í Skjaldar-Bjarnarvík en þar bjó Hallvarður langa ævi, og hvíla bein hans þar í túni. Kristján var hagyrðingur góður og orti formannavísur um hákarlaformennina á Gjögri. Ein slík ríma er enn til, lítt brjál- uð, og má vera að fleiri séu, þó hér segi ekki af að sinni. Ríman hefet á vísu þess- ari: Sönglar tog, en svignar rá, sviðum bogar kólgan á, ginnarsloga gautar þá Gjögursvogum sigla frá. Um sjálfan sig kveður Kristján svo í rímunni: Gaufar tvistur sels um svið, sjaldan fyrstur út á mið, hrottabyrstur hlyni við, heitir Kristján, manntetrið. Tómas er maður nefndur, kallaður víð- förli, enda hafði hann víða farið. Hann var og góður hagyrðingur og fræðimaður. Tómas var oft að flækjast um á Gjögri og yrkja um formennina og hásetana, auk þess sem liann fór í róður og róður, sem skipaskækja ef vantaði mann. Til hans kvað Kristján þetta: Meður lýða freyrum fés, frekt þó tíðum kuli, traustur ríður ti-yppi hlés, Tómas víðföruli Ekki kunni Tómas því vel, að launa eigi vísuna, og yrkir því til Kristjáns: Þá aldan breimar yzt við nes, að því beimar gæta, kýminn sveimar kisu hlés, Kristján heimasæta. Er að þ.ví vikið í vísunni svo sem í móðg- unar skyni, að Kristján þótti eigi sækja djarft sjóinn, þá er veður voru ótrj'ggí i Slíkan kveðskap og annan höfðu menn sér til skemmtunar í þá daga og þótti íþrótt „vammi firrð”, svo sem enn er. ÍRI kom á hlaupum inn á veit- ingahús og sagði við barþjóninn: „Hálfpott áður en hasarinn byrj ar“. Hálfpottinn fékk haim og drakk hann út. „Annan hálfpott, áður en hasar- inn byrjar“. Hann var búinn að ljúka úr um það bil hálfu glasinu, þegar bar- þjónninn spurði: „Hvaða hasar?‘* „Ég hef enga peninga sagði, frinn. Rltstjórl: HBpl Egilsson Ötgefandi: AlþýðublaSiS Prentun: Prentsmiðia AlþýSnblaSsins AI*ÝÐUBLAÐH> — SUNNUDAGSBLAÐ 0;

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.