Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 1
2004 MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
MARKAREGN Í ENSKU KNATTSPYRNUNNI / B4 OG B5
BIRGIR Leifur Hafþórsson á enn möguleika á
að fá þátttökurétt á evrópsku mótaröðinni í
golfi. Birgir lék fjórða hringinn á úrtökumótinu
á San Roque vellinum á Spáni í gær á 80 högg-
um, eða átta höggum yfir pari en það kom ekki
að sök. Hann endaði í 26.-32. sæti á 293 höggum
eða samtals fimm höggum fyrir pari . 75 efstu
kylfingarnir af þeim 172 sem hófu keppni leika
tvo hringi til viðbótar, á morgun og þriðjudag
en 35 þeirra tryggja sér þátttökuréttinn á evr-
ópsku mótaröðinni.
Fyrir fjórða hringinn í gær var Birgir Leifur
í 4.-7. sæti en honum tókst afar vel upp á þriðja
hringnum. Hann lék hann á 69 höggum eða
þremur undir parinu.
Birgir Leifur lék fyrsta hringinn á 75 högg-
um, annan og þriðja á 69 og fjórða hringinn á
80 höggum.
Birgir Leifur
í baráttunni
EMIL Hallfreðsson, knatt-
spyrnumaðurinn knái úr FH,
sem kjörinn var efnilegasti
leikmaður Íslandsmótsins í
sumar, er kominn til
Feyenoord í Hollandi þar sem
hann verður við æfingar út
vikuna. Emil hélt til Hollands
um helgina eftir stutta dvöl
hjá Tottenham en þar var
hann til reynslu í nokkra daga.
„Emil stóð sig býsna vel hjá
Tottenham og ég veit að liðið
ætlar að fylgjast áfram með
honum. Hann kemur til með
að spila æfingaleik með
Feyenoord og ég reikna alveg
með því að útsendarar frá
fleiri liðum skoði hann í þeim
leik,“ sagði Arnór Guðjohn-
sen, umboðsmaður Emils.
Emil hjá
Feyenoord
ÓLAFUR Ingi Skúlason knatt-
spyrnumaður hjá enska liðinu Ars-
enal ætlar að ræða David Dein
stjórnarformann félagsins í vik-
unni en Arsenal hefur hafnað til-
boði frá hol-
lenska 1. deild-
arliðinu Gron-
ingen í Íslend-
inginn.
Arsenal vill fá
um 45 milljónir
króna fyrir Ólaf
sem honum
finnst allt of hátt
verð enda renn-
ur samningur
hans við Arsenal út í sumar.
„Ég ætla sjálfur að tala við Dein
og reyna að fá hann til að lækka
kaupverðið. Mér finnst sú tala sem
hefur gefið upp fullhá. Þetta er
uppsprengt verð en ég vona nú að
samningar takist og að þetta gangi
í gegn. Ég vil komast til Groningen
og þó svo að klúbburinn sé ekki sá
stærsti þá er það í hollensku 1.
deildinni og það er fylgst vel með
henni,“ sagði Ólafur Ingi við Morg-
unblaðið í gær. Ólafur er enn á
sjúkralistanum en hann gekkst
undir aðgerð fyrir skömmu eftir að
í ljós kom beinbar í lífbeini. ,,Ég er
ennþá hálfslæmur en ég vonast til
að þetta batni í vikunni og að ég
geti byrjað að æfa í næstu viku.“
Arsenal vill
45 milljónir
króna fyrir
Ólaf Inga
Ólafur Ingi
Mér hefur gengið býsna vel aðskora og við Hjörtur Hjartar-
son, Skagamaður, erum í hálfgerðri
keppni okkar á milli í markaskorun,“
sagði Hrefna við Morgunblaðið, en
Hjörtur og fleiri Íslendingar stunda
nám við sama skóla og Hrefna.
„Hjörtur er að vinna eins og er en
hann hefur skorað 21 mark,“ segir
Hrefna. Með henni í liðinu leika Heið-
rún Friðriksdóttir frá Dalvík, KR-
ingurinn Ólína Sigurgeirsdóttir og
Elsa Einarsdóttir markvörður úr
Breiðabliki.
Í viðræðum við KR
Hrefna segist ætla að spila á Ís-
landi næsta sumar en hún varð
markadrottning á Ís-
landsmótinu í fyrra með
21 mark og í kjölfarið
gerði hún samning við
norska liðið Medkila.
„Ég vonast til að ná
samningi við mitt ást-
kæra lið KR og ætli ég
klári það mál ekki þegar
ég kem heim í jólafrí í
næsta mánuði. Það var
góð reynsla að spila í
Noregi en það stóð ekki
til að ég yrði þar lengur.
Norska deildin er gríðarlega sterk og
það er mikill styrkleikamunur á henni
og heima á Íslandi,“ sagði Hrefna en
hið unga lið Medkila féll
úr úrvalsdeildinni.
Hrefna, sem er 24 ára
gömul, á að baki 7 A-
landsleiki og í þeim hefur
hún skorað þrjú mörk.
Hún hefur hins vegar
ekki tekið þátt í síðustu
leikjum íslenska liðsins.
,,Ég hef svona smátt og
smátt horfið út úr mynd-
inni en ég hef samt ekkert
gefið landsliðsferilinn upp
á bátinn. Ég stend mig
bara á vellinum heima næsta sumar
og þá er aldrei að vita nema ég fái
kallið aftur.“
Hrefna Huld skorar
grimmt í Bandaríkjunum
HREFNA Huld Jóhannesdóttir, fyrrverandi leikmaður KR, sem lék
með Medkila í norsku úrvalsdeildinni í sumar, hefur skorað grimmt í
bandarísku háskóladeildinni í haust. Hrefnu, sem leggur stund á
viðskiptafræðinám í Alabama, hlotnaðist sá heiður á dögunum að
verða fyrir valinu sem nýliði ársins í NAIA-deildinni en hún hefur
skorað 20 mörk í 19 leikjum fyrir Auburn Montgomery-háskólaliðið
og hefur að auki átt fjölda stoðsendinga.
Hrefna Huld
MARGRÉT Lára Viðarsdóttir átti
við meiðsli að stríða á aftanverðu
læri í síðari leik íslenska liðsins gegn
Norðmönnum á laugardag og var
Margrét ekki eins áberandi í leik
liðsins líkt og í 7:2 tapi Íslands gegn
Norðmönnum í Egilshöll s.l. mið-
vikudag. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins voru útsendarar frá
flestum af stærstu félagsliðum Nor-
egs á leiknum í Valhöll á laugardag-
og flestir voru að fylgjast með Mar-
gréti Láru. Ekki er vitað um hvaða
lið er að ræða en Margrét Lára er
talinn geta farið í hvaða lið sem er í
norsku deildinn og látið að sér kveða
eins og staðan er í dag. Margrét
Lára hefur skorað 11 mörk í 13
landsleikjum en hún er samnings-
bundin Íslandsmeistaraliði Vals
næsta árið. Margrét Lára lék með
Bikarmeistaraliði ÍBV á síðustu leik-
tíð og var útnefnd efnilegasti leik-
maður deildarinnar annað árið í röð.
Morgunblaðið/Golli
Eyjastúlkan Margrét Lára Viðarsdóttir, til hægri, í leik gegn Norðmönnum í Evrópukeppninni.
Norsk lið
hafa áhuga
á Margréti
Láru