Morgunblaðið - 15.11.2004, Qupperneq 2
ÍÞRÓTTIR
2 B MÁNUDAGUR 15. NÓVEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Íþróttir Morgunblaðsins Kringlunni 1 , 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri , sos@mbl. is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.
ÓLAFUR Stefánsson
skoraði 10 mörk, þar af
5 úr vítaköstum, þegar
Ciudad Real vann sigur
á danska liðinu Kolding,
36:35, í lokaumferð
riðlakeppni Meistara-
deildar Evrópu í hand-
knattleik í Madrid á
laugardagskvöldið.
Ólafur og félagar unnu
þar með alla sex leiki
sína í riðlinum.
Liðið fékk 12 stig,
Kolding og Ljubuski fengu 6 en
Danirnir komust áfram þar sem
þeir höfðu betur í innbyrðisviður-
eign. Stefán Arnaldsson og Gunnar
Viðarsson dæmdu leikinn en þeir
dæma sem kunnugt er í heims-
meistarakeppninni í
Túnis í janúar.
Barcelona er eins og
Ciudad Real komið
áfram í 16-liða úrslitin
en Börsungar burstuðu
ungverska liðið Pick
Szeged, 35:26. Ung-
verski landsliðsmað-
urinn Lazslo Nagy var
markahæstur Börsunga
með 9 mörk og spænski
landsliðsmaðurinn Iker
Romero var með 8.
Portland San Antonio er þriðja
spænska liðið sem er komið í 16-liða
úrslitin. Portland tapaði fyrr Celje
Lasko, 29:27, en það kom ekki að
sök. Bæði lið voru komin áfram fyr-
ir lokaumferðina.
Ólafur Stefánsson
skoraði tíu gegn Kolding
Ólafur
FRAMHERJINN Hernan Crespo
og varnarmaðurinn Facundo
Quiroga eru ekki í landsliðshópi
Argentínu sem mætir Venesúela í
undankeppni heimsmeistaramóts-
ins á miðviku-
daginn í
næstu viku.
Hópurinn er
þannig skip-
aður:
Markvörður
er Leonardo
Franco (Atlet-
ico Madrid).
Varnar-
menn eru
Gonzalo Rod-
riguez (Villar-
real), Gabriel Milito (Real Zara-
goza), Fabricio Coloccini (AC
Milan).
Miðjumenn Argentínumanna
eru óneitanlega sterkur – Maxi
Rodriguez (Espanyol), Lionel
Scaloni (Deportivo La Corogne),
Juan Roman Riquelme (Vill-
arreal), Esteban Cambiasso (Inter
Milan), Javier Zanetti (Inter Mil-
an), Diego Placente (Bayer Lev-
erkusen), Andres D’Alessandro
(Wolfsburg), Juan Pablo Sorin
(Villarreal), Santiago Solari (Real
Madrid).
Sóknarmenn landsliðs Argent-
ínumanna eru Luciano Galletti
(Zaragoza), Javier Saviola (Món-
akó), Luciano Figueroa (Cruz
Azul/Mexíkó) og Cesar Delgado
(Cruz Azul/Mexíkó).
Crespo er
ekki í liði
Argentínu
Steen lét aðstoðarmenn sínakalla inn á völlinn, hann hélt
sig til hlés í þessum leik líkt og í
þeim fyrri. Steen
vissi að það var fyr-
ir neðan virðingu
forráðamanna
norska knatt-
spyrnusambandsins að leika við
Ísland um laust sæti í úrslita-
keppni Evrópumótsins næsta sum-
ar á Englandi. Það var lítið fagnað
eftir 2:1 sigur liðsins í Valhöll. En
Steen stjórnaði liðinu í síðasta sinn
í leiknum eftir 4 ár í starfi. Steen
var áður þjálfari úrvalsdeildarliðs-
ins Haugesund og bar hann sig vel
þrátt fyrir að fá ekki boðsmiða í
veisluna sem fram fer næsta sum-
ar.
„Ég virði ákvörðun norska
knattspyrnusambandsins. Þar á
bæ vilja menn horfa til framtíð-
arinnar. Ég hef verið með liðið í
fjögur ár og þeim kafla er lokið en
ég tel að liðið sé mun betra í dag
en það var þegar ég tók við því.
Það eru aðeins fimm leikmenn sem
léku með liðinu í Sydney er liðið
varð Ólympíumeistari. Og við höf-
um notað aðra leikmenn sem þurfa
meiri tíma til þess að þroskast.“
„Skipulag varnarleiks
liðsins mun betra“
En Steen var ekki viss um hvað
íslenska liðið gerði á fundum sín-
um og æfingum eftir, 7:2, tap liðs-
ins í Egilshöll sl. miðvikudag. Því
á laugardag var allt önnur stemn-
ing í gangi í íslenska liðinu. „Að
mínu mati var skipulag varnarleiks
liðsins mun betra, við fengum
minna rými til þess að athafna
okkur á miðsvæðinu. Íslenska liðið
var betur undirbúið fyrir leikinn
að þessu sinni og við gáfum of
mikið svæði eftir á vellinum sem
þær nýttu sér vel,“ segir Steen en
hann telur að íslenska liðið hafi
tekið stórt skref í átt að bestu lið-
um veraldar.
„Ísland er komið á blað. Í riðla-
keppninni sannaði liðið sig í
keppni á meðal þeirra bestu og við
sáum það í þessum leik að leik-
menn íslenska liðsins geta leikið
vel sem lið og nýtt sér styrkleika
liðsins. Ég tel að með góðu skipu-
lagi og góðum æfingum geti ís-
lenska liðið náð langt á þessu
sviði.“ Spurður hvort Steen hafi
áhuga á að taka að sér íslenska
kvennalandsliðið var Norðmaður-
inn fljótur að svara. „Ég hef hug á
því að starfa við þjálfun áfram og
það kemur allt til greina – kannski
að Ísland sé of langt í burtu eins
og staðan er í dag.“
Steen var ekki viss um á hvaða
sviði íslenska liðið þyrfti að bæta
sig á næstu misserum til þess að
verða betra. En hann var inntur
eftir líkamsstyrk, leikskipulagi,
tækni og úthaldi leikmanna ís-
lenska liðsins. „Ég tel að í íslenska
liðinu séu margir spennandi leik-
menn sem geta náð langt á næstu
misserum. En það sem við gerum
hér í Noregi er að etja stúlkum og
drengjum saman í æfingaleikjum.
Þær hafa gríðarlega gott af því að
fá að glíma við slík verkefni og ég
tel að slíkar æfingar hafi skilað af
sér betri leikmönnum í norska
kvennalandsliðinu. Strákar sem
eru 16–17 ára eru afbragðsmót-
herjar að mínu mati. Þeir hafa
hraðann sem stúlkurnar þurfa að
tileinka sér en eru ekki með yf-
irburði líkamlega. Það er mikil-
vægt fyrir stelpur sem æfa knatt-
spyrnu að spila við stráka af og til.
Því þeir eru að gera það sem þær
eiga oft í erfiðleikum með. En ég
legg áherslu á að 10 ára stelpa er
oftar en ekki með líkamlega yf-
irburði gegn dreng sem er 10 ára.
Það sem skilur þau að í knatt-
spyrnunni er tækni og hraði sem
strákar tileinka sér í leik sín á
milli. Ég held að það sé ríkjandi
hjá stelpum að þær láti æfing-
arnar duga. Þær eru ekki að leika
sér í knattspyrnu á daginn þegar
tími gefst til. Þar eru strákarnir
áberandi,“ sagði Steen. En hann
hrósar leikmönnum norska liðsins
sem hann telur afreksmenn í
fremstu röð. „Ég tel að norska
landsliðið sé á meðal þeirra bestu í
veröldinni þrátt fyrir að við séum
að leika í umspili um laust sæti á
EM. Ég hef lagt hart að mínum
leikmönnum og get ekki annað en
hrósað þeim. Þær hafa mætt á all-
ar æfingar með því hugarfari að
verða betri. Þær æfa ekkert minna
en strákar sem eru í sömu stöðu
og þær. Kvennaknattspyrna er
eitthvað sem mun aðeins vaxa og
dafna í nánustu framtíð og það er
okkar að skapa þeim sömu að-
stæður og möguleika og strákarnir
fá við sínar æfingar,“ sagði Åge
Steen.
Þjálfari norska kvennalandsliðsins
telur að stúlkur ættu að keppa og
æfa oftar með strákum
„Ísland
komið
á blað“
ÅGE Steen var á milli steins og sleggju eftir síðari leik norska
kvennalandsliðsins í knattspyrnu gegn íslenska liðinu þrátt fyrir,
8:3, samanlagðan sigur liðsins í undankeppni Evrópumótsins.
Steen stjórnaði liðinu í síðasta sinn á laugardaginn í „Valhöll“,
knattspyrnuhúsi í eigu Vålerenga við Helsfyr í Ósló.
Morgunblaðið/Sigurður Elvar Þórólfsson
Åge Steen, þjálfari Noregs, hefur stjórnað liðinu í síðasta sinn.
Sigurður Elvar
Þórólfsson
skrifar frá
Noregi
Crespo