Morgunblaðið - 15.11.2004, Page 8
ÁSTRALSKI sundmaðurinn Ian
Thorpe segir að bandaríski sund-
maðurinn Michael Phelps hafi
hagað sér eins og „hálfviti“ er
hann var handtekinn í síðustu
viku vegna ölvunaraksturs.
Phelps er aðeins 19 ára gamall
og vann til sex gullverðlauna og
tvennra bronsverðlauna á Ól-
ympíuleikunum í Aþenu í sumar.
Hann var handtekinn í Salisbury
í Maryland en þar er ökumönn-
um undir 21 árs aldri bannað að
hafa áfengi í blóði sínu við akstur
– sama hve lítið magnið er.
Mál Phelps verður tekið fyrir
hjá dómara í lok ársins eða í
byrjun þess næsta. „Ég veit ekki
hvernig málinu er háttað en að
mínu mati eru það aðeins „hálf-
vitar“ sem keyra eftir að hafa
drukkið alkóhól og þetta var
ekki vel ígrundað hjá Phelps.
Ég er viss um að hann er mið-
ur sín vegna atviksins en ég veit
að ungt fólk í Ástralíu er með-
vitað um að akstur og áfengi fer
ekki saman.
Phelps veldur því mörgum
vonbrigðum.“
Styrktaraðilar Phelps hafa
lýst yfir stuðningi við sundmann-
inn og hann hefur ráðið færa lög-
fræðinga vegna málsins.
Ian Thorpe ekki
sáttur við Phelps
HELGI Sigurðsson lék allan leik-
inn fyrir AGF sem gerði jafntefli,
3:3, við OB. Helgi kom mikið við
sögu. Hann lagði upp tvö fyrstu
mörk sinna manna og fékk svo
dæmda vítaspyrnu þegar Stig Töft-
ing kom AGF í 3:1. OB neitaði að
gefast upp og jafna metin áður en
yfir lauk.
ÓLAFUR Gottskálksson lék í
marki Torquay sem tapaði 2:0 fyrir
utandeildarliðinu Hinckley United í
1. umferð ensku bikarkeppninnar.
ÞÓRÐUR Guðjónsson sat á vara-
mannabekknum allan tímann í liði
Bochum sem tapaði fyrir Bayern
München á heimavelli, 3:1. Bæjarar
tryggðu sér sigur með því að skora
þvívegis á síðustu 13 mínútunum.
PARÍS, London, New York,
Madrid eða Moskva. Í einhverjum af
þessum fimm borgum verða sum-
arólympíuleikarnir haldnir árið
2012. Alþjóða ólympíunefndin fær í
hendur í dag formlega umsóknir frá
fulltrúum borganna og það verður
síðan ákveðið á fundi Alþjóða ól-
ympíunefndarinnar í Singapúr í júlí
á næsta ári hvaða borg hreppir
hnossið.
NORÐUR-Írinn Darren Clarke
sigraði með yfirburðum á Taiheiyo
Masters mótinu sem lauk í Japan í
gærmorgun. Hann lék lokahringinn
á 68 höggum og var samtals á 22
höggum undir pari, sem er nýtt met
í þessu móti. Clarke var sex höggum
á undan Bretanum Lee Westwood
og heimamanninum Nozomi Ka-
wahara, sem voru jafnir í öðru sæti.
Clarke bætti metið, sem þeir Jose-
Maria Olazabal, Masashi Ozaki og
Toshimitsu Izawa áttu, um fjögur
högg.
JÓN Gunnarsson tvíbætti Norð-
urlandamet öldunga í 90 kg flokki í
hnébeygju á móti í Reykjanesbæ um
helgina. Jón lyfti fyrst 312 kg og síð-
an 322,5 kg. Jón bætti svo Norð-
urlandamet í samanlögðu, sem var
orðið 22 ára gamalt, með því að lyfta
samanlagt 830 kg. Þá bætti Jón Ís-
landsmetið í bakpressu þegar hann
lyfti 207,5 kg.
JAKOB Baldursson setti Íslands-
met í bakpressu í 110 kg flokki þeg-
ar hann lyfti 345 kg og Ægir Jóns-
son bætti Íslandsmet unglinga í
bakpressu í 110 kg. flokki þegar
hann lyfti 222,5 kg.
ÞORMÓÐUR Jónsson náði best-
um árangri íslenskra júdófólksins
sem tóku þátt í opna finnska mótinu
um helgina. Þormóður varð fimmti í
+100 kg flokki. Gígja Guðbrands-
dóttir varð í 9. sæti í -70 kg. flokki
en þau Máni Andersen, Snævar
Jónsson og Margrét Bjarnadóttir
töpuðum sínum glímum í fyrstu um-
ferð
FÓLK
Mótið fór í alla staði vel fram ogluku þeir keppendur og dóm-
arar sem rætt var við lofsorði á fram-
kvæmdina, þar á
meðal yfirdómarinn
Jan Samuelsson frá
Svíþjóð sem hefur
víða farið. Það var
því margt um manninn og kenndi
margra grasa, keppendur voru alls
75 og þar af voru 44 frá tólf löndum.
Suma þekktu Íslendingarnir vel,
hafa æft og keppt með þeim í Dan-
mörku. Þar á meðal var Bobby
Milroy í fjórða sinn á þessu móti sem
hefur verið honum gott. „Einhvern
veginn hentar þessi höll mjög vel
fyrir mig án þess að ég viti nákvæm-
lega hvers vegna, líklega vegna þess
að það er gott að hlaupa á gólfinu og
ég spila meira uppá það. Þeir tækni-
lega eiga því í meiri vandræðum og
þess vegna náði ég í mín þriðju úrslit
hérna á þessu móti,“ sagði Milroy,
sem er frá Kanada en býr og æfir í
Danmörku. Hann lagði æfingafélaga
sinn Jim Andersen frá Noregi í úr-
slitum en Andersen hafði þá þegar
slegið út Þjóðverjann Bjoem Jopp-
ien sem er í 16. sæti heimslistans og
fyrirfram var spáð að næði langt á
mótinu. „Vandinn við að spila við Jim
er að þegar hann leikur vel og gerir
ekki mistök getur hann unnið hvern
sem er, svo það er ómögulegt að
vinna hann. Þá er bara að gera eins
vel og maður getur og vona hið
besta. Ég tek eitt ár fyrir í einu en
mér líkar vel hér á Íslandi enda gott
mót og hugsa að ég komi hingað aft-
ur því mér gengur svo vel, það er
gott fyrir keppnisandann.“
Í kvennaflokki beindust augu
margra að Rögnu Ingólfsdóttur og
Söru Jónsdóttur en þær náðu sér
ekki á strik, Sara datt út í 16-manna
úrslitum en Ragna vann einn leik og
komst í 8-manna úrslit en tapaði þar
fyrir Susan Hughes, sem vann mót-
ið. Ragna og Sara voru að vonum
ekki ánægður með
niðurstöðuna því bú-
ast má við að þær
lækki eitthvað á
heimslistanum í bad-
minton, í besta falli
standi í stað.
„Mér var raðað
ágætlega og gekk
því nokkuð vel,“
sagði Tinna, sem
keppir undir merkj-
um TBR. Hún taldi
árangur í samræmi
við getu en vildi þó
aðeins meira. „Við
áttum að vinna þá
sem við unnum og
svo töpuðum við fyr-
ir þeim sem voru
betri svo það var
ekki mikið óvænt en
við hefðum getað
unnið tvenndarleik-
inn, þar hefðum við
mátt gera betur.“
Vel heppnað alþjóðlegt mót í badminton í TBR-húsinu
Morgunblaðið/Ómar
Susan Hughes varð sigurvegari í einliðaleik kvenna á alþjóðlega mótinu í TBR-húsinu.
Bobby Milroy sigraði í karlaflokki.
LÍTIÐ fór fyrir Íslendingum á
Iceland Express alþjóðamótinu
sem fram fór í 8. sinn í húsum
TBR um helgina. Væntingar
voru svo sem ekki miklar því þar
sem mótið er hluti af Evrópu-
mótunum og gefur alþjóðleg
stig koma hingað sterkir leik-
menn í stigasöfnun en það vant-
aði samt ekki að íslensku kepp-
endurnir legðu sig alla fram.
Lengst náði Tinna Helgadóttir
sem komst í undanúrslit í tví-
liðaleik með Katrínu Atladóttur
og einnig í undanúrslit tvennd-
arleiks með Magnúsi Inga
Helgasyni.
Stefán
Stefánsson
skrifar
Íslendingar
náðu sér
ekki á strik