Morgunblaðið - 18.11.2004, Síða 3

Morgunblaðið - 18.11.2004, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. NÓVEMBER 2004 D 3 Auka-aðalfundur Auka-aðalfundur knattspyrnudeildar Fylkis verður haldinn í Fylkishöll fimmtudaginn 2. desember nk. kl. 20.30. Dagskrá fundarins: 1. Laga- og reglugerðarbreytingar. 2. Kosning stjórnar. 3. Önnur mál. Íþróttafélagið Fylkir „ÉG hef verið slæmur í vinstri öxl undanfarnar þrjár vikur, og hrokk- ið í og úr lið tvívegis, og síðast gegn Þjóðverjum í fyrsta leiknum hér í Svíþjóð. Ástandið hefur ekkert versnað eftir það atvik en ég hef aðallega meitt mig í varnarleiknum er ég hef lent í samstuði við sókn- arleikmenn. Og það er verst þegar höndin er í beinni stöðu út á móti leikmanninum. Þá hef ég átt í erf- iðleikum, en ég get spilað og ætla mér að vera með í fleiri leikjum á þessu móti,“ sagði Guðjón Valur Sigurðsson en hann var hvíldur í gær á World Cup gegn Frökkum ásamt Jaliesky Garcia og mark- verðinum Roland Eradze. Guðjón bætti því við að vinnuveit- endur hans hjá þýska liðinu Essen hefðu ekki verið mjög hressir að hann skyldi vera valinn í landsliðið enda vildu forráðamenn liðsins nota tímann og hvíla Guðjón fyrir átökin sem eru framundan í þýsku úrvalsdeildinni. „En ég tel að ástandið sé ekki eins slæmt og þeir halda. Ég hef verið í sérstökum æfingum á báðum öxlum á undanförnum misserum. Ég er með rifu í liðbandi í hægri öxl og hef ekki getað skotið af öllu afli. En ég vona að þetta muni lagast á allra næstu vikum og ég verði góð- ur áður en heimsmeistaramótið hefst í Túnis,“ sagði Guðjón Valur en hann hefur leikið 115 landsleiki og skorað í þeim 440 mörk. Guðjón Valur með rifu í liðbandi í vinstri öxlinni FÓLK  SKOSKA knattspyrnufélagið Hearts hefur óskað eftir að því að fá Atla Jónasson, 16 ára markvörð úr KR, til æfinga í næstu viku. Þetta kom fram á vef KR í gærkvöld. Atli var að- almarkvörður drengjalandsliðsins í ár og var jafnframt fyrirliði KR-inga sem urðu bæði Íslands- og bikar- meistarar í 3. flokki og unnu alla sína leiki í þessum tveimur mótum.  MARKÚS Máni Michaelsson, Düss- eldorf, var valinn í lið vikunnar í þýsku 1. deildinni í handknattleik af þýska handboltatímaritinu Handball Woche. Markús Máni hefur leikið vel með liði Düsseldorf í undanförnum leikjum og nú valinn í lið vikunnar í annað sinn.  ARNAR Pétursson, FH og Hjálm- ar Vilhjálmsson, Fram, hafa verið úr- skurðaðir í leiks bann af aganefnd HSÍ en báðir fengu þeir útilokun í leikjum liða sinna um síðustu helgi. Arnar missir af leik FH gegn Þór annað kvöld og Hjálmar verður ekki með sínum mönnum gegn Aftureld- ingu á morgun.  EMIL Hallfreðsson, knattspyrnu- kappi úr FH, skoraði fyrir varalið Feyenoord í fyrrakvöld þegar liðið vann 5:0 sigur á andstæðingum sín- um. Emil er þessa vikuna til reynslu hjá hollenska liðinu en þangað fór hann frá Tottenham þar sem hann var til skoðunar í síðustu viku.  JÓN Arnór Stefánsson gerði 16 stig, tók 5 fráköst og átti 3 stoðsend- ingar fyrir Dynamo St.Petersburg þegar liðið sigraði Khimik frá Úkr- aínu, 107:99 í Evrópubikarkeppninni í körfuknattleik, í fyrrakvöld.  BRASILÍUMENN töpuðu í gær- kvöld fyrsta leik sínum í undankeppni HM í knattspyrnu þegar þeir biðu óvænt lægri hlut í Ekvador, 1:0. Edis- on Méndez skoraði sigurmarkið 13 mínútum fyrir leikslok.  FORRÁÐAMENN Liverpool bíða með öndina í hálsinum eftir því að sóknarmaður þeirra, Milan Baros, skili sér heim í dag eftir að hafa leikið með Tékkum í Makedóníu. Baros fór meiddur af velli eftir aðeins 17 mín- útna leik, líklega tognaður í læri. Ef Baros verður lengi frá er Liverpool í slæmum málum því hinn aðalsóknar- maður liðsins, Djibril Cisse, er fót- brotinn og spilar ekki meira í vetur. HREIÐAR Guðmundsson svamlaði í djúpu lauginni í síðari hálfleik gegn Frökk- um í gærkvöldi, í sínum öðr- um landsleik og kom inn á í stöðunni 19:13. Hreiðar er hávaxinn markvörður sem leikur með ÍR en hann hefur átt við meiðsli að stríða á hné undanfarið ár. Sleit krossband og hefur farið í tvær aðgerðir í kjölfarið. „Ég er að ná mér. En á enn mikið inni,“ sagði Hreið- ar en hann segist ekki taka það til sín að í gegnum tíð- ina hafa markverðir íslenska landsliðsins mátt þola gagn- rýni þar sem þeir eru oft á tíðum sagðir vera veikasti hlekkur liðsins. „Ég hef ekk- ert spáð í það og hugsa aldr- ei um slíka hluti sem sagðir eru um okkur. Viggó hefur gefið mér þetta tækifæri til þess að sýna hvað í mér býr og það er eins gott að fara vel með þann tíma sem mað- ur fær,“ sagði Hreiðar en hann varði alls 14 skot í leiknum. Ég er tilbúinn „Það var gott að verja fyrsta boltann, þá fór maður í gang. En það er mikil sam- keppni um þessa stöðu. Við erum þrír hérna úti og markverðir heima sem gætu allt eins verið í þessum hópi. Við erum eins og rándýr ut- an við völlinn er við bíðum eftir tækifærinu og menn verða bara að standa sig til þess að fá að spila. Svo ein- falt er það og ég vona að sjálfsögðu að ég fái að spila fleiri leiki á þessu móti en Viggó ræður því að sjálf- sögðu hverja hann velur. En ég er tilbúinn þegar kallið kemur,“ sagði Hreiðar Guð- mundsson. Eins og rándýr sem bíða færis Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfarigerði nokkrar breytingar á lið- inu frá leiknum við Þjóðverja. Birkir Ívar Guðmundsson var í markinu, Þórir Ólafsson í hægra horninu, Einar Hólmgeirsson, Dagur Sig- urðsson og Markús Máni Mich- aelsson fyrir utan og Logi Geirsson í vinstra horninu og Róbert Gunnars- son á línunni. Leikurinn byrjaði ágætlega, Birk- ir Ívar varði fyrsta skot Frakka og íslenska liðið komst 1:0 yfir og aftur 3:2. En þar með var draumurinn bú- inn. Hann stóð aðeins í rúmar tvær mínútur. Á næstu mínútum gerðu Frakkar átta mörk gegn tveimur ís- lenskum og staðan 10:5 eftir tæpan stundarfjórðung. Sá munur hélst svo gott til leikhlés. Íslenska liðið lék sams konar vörn gegn Frökkum og það gerði gegn Þjóðverjum, 3-3 en Frakkar léku 5-1 vörn og talsvert aftar en þeir hafa oftast gert síðustu árin. Það eina sem gladdi augað í fyrri hálfleik hjá íslenska liðinu var frammistaða Markúsar Mána í sókninni þar sem hann var óragur við að sækja að vörn Frakka og uppskeran fyrir hlé hjá honum voru sex mörk. Síðari hálfleikur var skárri en sá fyrri – þó ekki mikið. Frakkar gerðu sem fyrr 19 mörk þó breytt væri um vörn – farið í 5-1. Það virtist ekkert trufla Frakkana sem löbbuðu sér í gegn eða gáfu sér góðan tíma við að undirbúa langskot án þess að varn- armenn gengu mikið út á móti skot- mönnunum. Frakkar léku reyndar mjög vel í gær, boltinn gekk vel í sókninni og leikmenn voru alltaf tilbúnir að losa sig við boltann áður en íslensku varnarmennirnir náðu að brjóta og stöðva þannig sóknina. Hins vegar gáfu Íslendingar Frökkum allt of langan tíma til að afthafna sig í sókninni en þegar komið var á hinn enda vallarins virtist Íslendingum liggja lifandis skelfing á og nýttu færi sín illa enda fjölmörg skot ótímabær auk þess sem allt of marg- ir fóru illa að ráði sínu þegar þeir komust í góð færi. Eins og áður segir var Markús Máni í miklum ham í fyrri hálfleik en í þeim síðari var það hins vegar Róbert Gunnarsson sem átti bestan leik í sókninni og gerði þá sjö mörk. Einn leikmaður til viðbótar getur trúlega verið þokkalega sáttur við sitt framlag í leiknum í gær en það er Hreiðar Guðmundsson markvörð- ur. Hann kom í markið þegar 8 mín- útur voru til leikhlés, varði eitt skot fram að hléi en bætti tíu skotum við í síðari hálfleik. Þá átti Einar Hólm- geirsson ágætan leik. Viggó reyndi margt og mikið í gær, hann lét til dæmis Arnór Atla- son um tíma í vinstra hornið, í hinu horninu léku Þórir og Einar Örn lengstum en það gekk ekki vel þann- ig að um tíma var Ásgeir Örn Hall- grímsson kominn í hornið og Einar Hólmgeirsson í skyttunni. Íslenska liðið hefði trúlega ekki þurft að tapa með níu marka mun ef það hefði ekki örlað á lítilli stemn- ingu og allt að því áhugaleysi þegar staðan var orðin erfið. Leikmenn, allflestir, gáfust allt of snemma upp. Ljósmynd/Anders Abrahamsson Dagur Sigurðsson, fyrirliði Íslands, sækir að frönsku vörninni í leiknum í heimsbikarkeppninni í Ludvika í gærkvöldi, þar sem Didier Dinart tekur á móti honum með hendur á lofti. Tóm vandræði gegn Frökkum ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik fékk hálfháðulega útreið er það mætti Frökkum á heimsbikarmótinu í Svíþjóð í gærkvöldi. Eftir ágætan leik gegn Þjóðverjum í fyrrakvöld vantaði allan baráttuanda í leikmenn í gær og Frakkar gengu á lagið og sigruðu 38:29 eftir að staðan í leikhléi hafði verið 19:13 fyrir Frakka. Íslenska liðið hefur því tapað báðum leikjum sínum í riðlinum og mætir Ungverjum í dag í síðasta leik riðilsins. Liðið mun leika um 5. - 8. sæti ásamt Ung- verjum og Króötum og væntanlega Slóvenar.                            ! ! "! ! #  $ % &     '('    )          ÍÞRÓTTIR rj- , ld. n m fór ttu. mu- ti. “ að áðu nútu a sá s að r ni. Hann en sam- fur u 6:0 æri- itter æð n ik í er urg - hálf- ri fa r m

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.