Morgunblaðið - 01.12.2004, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 2004 C 3
FÓLK
DÓMARANEFND KSÍ hefur stað-
fest nafnalista A-, B- og C-dómara
fyrir árið 2005. Magnús Kristinsson
bætist í hóp A-dómara en þeir dæma
meðal annars alla leiki í úrvalsdeild
karla. Þar með eru A-dómararnir 11
talsins. Gunnar Sverrir Gunnarsson
bætist í hóp A-aðstoðardómara og
kemur hann í stað Sigurðar Þórs
Þórssonar sem er hættur störfum.
RÚNAR Steingrímsson færist upp
í hóp B-dómara sem dæma leiki í 1.
deild karla. Hann kemur í stað Arn-
ar Bjarnasonar sem lætur af störf-
um.
HALLDÓR Lárusson, frjáls-
íþróttamaður, var um síðustu helgi
kjörinn íþróttamaður Aftureldingar
2004 á uppskeruhátíð félagsins.
ENSKA knattspyrnusambandið
úrskurðaði í gær El-Hadji Diouf,
sóknarmann Bolton, í þriggja leikja
bann en hann hrækti á Arjan de
Zeeuw, leikmann Portsmouth um
helgina þegar liðin áttust við. Bolton
hefur auk þess sektað leikmanninn
og missir hann laun í tvær vikur.
Þetta er í þriðja sinn sem Diouf er
sakaður um að hrækja á mótherja
sína.
LEE Hendrie, leikmaður Aston
Villa, hefur verið ákærður fyrir
ósæmilega hegðun en hann fór ekki
rakleiðis af velli þegar honum var
sýnt rauða spjaldið í leik við Man-
chester City um helgina. Hendrie
þóttist ætla að skalla í andlit Danny
Mills, leikmanns City, og var rekinn
af velli. Hann áfrýjaði þeirri ákvörð-
un, sagðist ekki hafa skallað Mills og
sást það við endursýningu að það er
rétt hjá Hendrie. En enska sam-
bandið vísaði áfrýjun hans frá og
kemur hann fyrir aganefndina 7.
desember.
JUSTIN Gatlin og Joanna Hayes
unnu til viðurkenningar sem kennd-
ar eru við Jesse Owens, fyrrverandi
heimsmethafa í spretthlaupum og
langstökki, og eru veittar árlega því
bandaríska frjálsíþróttafólki sem
þykir skara fram úr. Gatlin vann
gullverðlaun í 100 m hlaupi karla á
ÓL í Aþenu, brons í 200 m hlaupi og
silfur í 4x100 m boðhlaupi. Hayes
varð Ólympíumeistari í 100 m
grindahlaupi kvenna.
JACKSON Richardson hefur í
hyggju að gefa kost á sér í franska
landsliðið í handknattleik fyrir
heimsmeistaramótið í Túnis í byrjun
næsta árs. Richardson er 35 ára
gamall og ætlaði sér að hætta eftir
Ólympíuleikana í Aþenu í sumar.
Honum hefur snúist hugur og ætlar
að ræða málið við Claude Onesta
landsliðsþjálfara á næstu dögum.
RICHARD Gough hefur verið ráð-
inn knattspyrnustjóri Livingston,
neðsta liðsins í skosku úrvalsdeild-
inni. Þetta verður frumraun Goughs,
sem lék lengi sem varnarmaður með
Everton, Glasgow Rangers og
skoska landsliðinu.
ÍSLENSKA 19 ára landsliðið í
knattspyrnu dróst í riðil með
Búlgaríu, Króatíu og Bosníu í
1. umferð riðlakeppni Evr-
ópumóts landsliða en dregið
var í höfuðstöðvum UEFA í
Sviss í gær.
Í undankeppni 17 ára lands-
liða lenti Ísland í riðli með
Tékklandi, Andorra og Sví-
þjóð. Riðlarnir eru tólf og kom-
ast tvær efstu þjóðirnar í hverj-
um riðli í 2. umferðina ásamt
liðinu með bestan árangur í
þriðja sæti. Í 2. umferðinni
verður leikið í sjö fjögurra liða
riðlum og kemst efsta þjóðin
áfram í úrslitakeppnina ásamt
gestgjöfunum.
Úrslitakeppni 17 ára liða fer
fram í Lúxemborg 2006 og
sama ár leika 19 ára liðin til úr-
slita í Póllandi.
Ísland í
sterkum
riðlum
ar fáeinar sekúndur voru eftir.
alldór Sigfússon og Jónatan
gnússon voru allt í öllu hjá KA
koruðu 20 af 29 mörkum liðsins
Hörður Fannar Sigþórsson stóð
r sínu á línunni. Talsverður
dræðagangur var á hægri væng
ókn liðsins og kom nokkuð á
rt að vinstri handar skytturnar
r, Michael Pladt og Nicola
kovic, skyldu ekkert fá að
eyta sig. Hjá Haukum voru Þór-
lafsson og Jón Karl Björnsson í
lokki og Vignir Svavarsson
raði mikilvæg mörk í seinni hálf-
auk þess að vera hamhleypa í
ninni.
áll Ólafsson, þjálfari Hauka, var
ósáttur við varnarleik sinna
nna í fyrir hálfleik. „Við sögðum
ef við ætluðum að fá aftur 19
k á okkur í einum hálfleik þá
um við bara gleymt þessu og
ð heim strax. Að sjálfsögðu leist
nnum ekki á það og við bættum í
n í vörninni og komumst inn í
inn. Þetta var síðan spennandi í
n og við vorum kannski heppnir
að ná í stigið,“ sagði Páll. Hann
sagði að vissulega munaði um Ás-
geir Örn Hallgrímsson en ekki
þýddi að velta sér upp úr því að
hann væri úr leik. „Við verðum að
byggja á því liði sem við erum með í
dag og það er frábært að koma
hingað og ná í eitt stig á móti góðu
KA-liði.“
Framundan er lengri ferð hjá
Haukum, tveir leikir á móti Zagreb
í Króatíu um næstu helgi. Hvernig
skyldi Páli lítast á blikuna? „Jú,
þetta verður auðvitað erfitt, tveir
leikir á tveimur dögum en þetta er
skemmtilegt verkefni sem við tök-
um með bros á vör. Við erum orðnir
ansi reyndir í svona stórmótum og
þetta verða níundi og tíundi Evr-
ópuleikurinn hjá okkur á þessum
vetri,“ sagði Páll.
Magnús Stefánsson, hin unga og
hávaxna skytta KA-manna, sagði
erfitt að finna skýringar á erfiðleik-
um KA í seinni hálfleik. „Haukarnir
duttu niður í 6-0 vörn sem svínvirk-
aði hjá þeim. Við fundum ekki gluf-
ur og boltinn hætti að fljóta þannig
að það varð allt annar bragur á
sóknarleiknum hjá okkur en í fyrri
hálfleik. Við ætluðum okkur sigur
en mér finnst við eiga mikið inni og
það kemur ekkert annað til greina
en sigur í þeim tveim leikjum sem
eftir eru,“ sagði Magnús.
Morgunblaðið/Kristján
varnarmönnum Hauka.
sýnt hjá
liðunum
k að sigra Hauka á heimavelli
fsta sæti norðurriðils hand-
mamanna og staðan í leikhléi
ni hálfleik og náðu jafntefli,
g en KA í öðru sæti með 13
æti í úrvalsdeild.
VÅLERENGA, lið Árna Gauts Ara-
sonar, hefur fengið leyfi til að spila
heimaleik sinn gegn Djurgården
frá Svíþjóð í Skandinavíudeildinni í
knattspyrnu annað kvöld í Valhöll,
knattspyrnuhöll félagsins í Ósló.
Ullevål-leikvanginum, heimavelli
Vålerenga, hefur verið lokað og tví-
sýnt var hvort leikurinn gæti farið
fram. Reglur keppninnar segja að
heimilt sé að spila á völlum sem
uppfylli öll skilyrði til að leikið sé á
þeim í efstu deild í viðkomandi
landi, og í Valhöll var hægt að gera
þær breytingar sem með þurfti svo
leikurinn gæti farið þar fram.
Kári Árnason og Sölvi Geir Otte-
sen verða báðir fjarri góðu gamni
en þeir eru í hópi 10 leikmanna
Djurgården sem eru ekki leikfærir
vegna meiðsla. Kári verður þó lík-
lega tilbúinn þegar Djurgården
mætir Esbjerg frá Danmörku á
sunnudaginn. Vegna meiðslanna
getur Djurgården aðeins mætt með
16 leikmenn til Óslóar en heimilt er
að vera með 18 leikmenn í hópnum.
En þó leikið sé innanhúss í Ósló
verður spilað á grasi í Tromsö í
Norður-Noregi þar sem heima-
menn fá FC Köbenhavn í heimsókn
annað kvöld. Þótt Tromsö sé 300
kílómetrum norðar en nyrsti oddi
Íslands, rétt við 70. breiddarbaug,
er grasvöllurinn þar nothæfur og
leikurinn verður sá fyrsti í sögunni
sem háður er á grasi í norðurhluta
Noregs í desembermánuði.
Vålerenga fær að spila
heimaleikinn í Valhöll
SÍÐASTA vígið er fallið. Hauk-
ar hafa ákveðið að selja heima-
leik sinn í Evrópukeppni bikar-
hafa og leika hann í Króatíu.
Ástæðan er helst sú að áhugi á
leikjum liðsins í Evrópukeppn-
inni á keppnistíðinni hefur afar
takmarkaður, fáir áhorfendur
hafa lagt leið sína á heimaleiki
þeirra í Meistaradeild Evrópu.
Tekjurnar svo litlar að vart
hefur náðst upp í dómara-
kostnað. Samt voru Haukarnir
ekki leika við neina aukvisa í
keppninni, öðru nær.
„Við eru hundsvekktir yfir
aðsókninni á Evrópuleiki okkar
á tímabilinu og það er ekki
eins og við höfum verið að fá
einhver skítalið til landsins.
Stuðningsmenn Hauka hafa
verið duglegir að mæta á leik-
ina en aðrir handbolta-
áhugamenn hafa því miður
ekki skilað sér og að sjálfsögðu
hefur þetta komið við pyngjuna
hjá félaginu,“ sagði Páll enn
fremur.
Sömu sorgarsögu má segja
frá þátttöku Hauka í Meist-
aradeildinni á síðasta vetri,
áhuginn var að mestu takmark-
aður við stuðningsmenn félags-
ins, þótt aðsóknin í fyrra hafi
verið heldur skárri en nú.
Árum saman tóku íslensk fé-
lagslið þátt í Evrópumótunum í
handknattleik og sum þeirra
náðu framúrskarandi árangri. Má
þar nefna frammistöðu Vals og Vík-
ings í lok áttunda áratugar síðustu
aldar og í byrjun þess níunda. Veru-
lega sló í bakseglin í upphafi tíunda
áratugarins. Þá varð kostnaður
sumra félaga slíkur baggi á herðum
þeirra að þau voru árum saman að
ná endum saman og sum þeirra eru
jafnvel illa brennd enn vegna „Evr-
ópuævintýra“, m.a. vegna lítils áhuga
almennings.
Eftir nokkurt hlé gerðu m.a. KA
og Afturelding atlögu að Evrópumót-
unum á síðari hluta tíunda áratug-
arins en höfðu ekki feitan gölt að flá
þegar upp var staðið. Enn kom hlé á
þátttökunni þar til Haukar blésu í
herlúðra á þessum vettvangi í upp-
hafi þessara aldar. Af metnaði og
eldmóði hefur félagið sent karlalið
sitt til þátttöku undanfarin fimm
keppnistímabil. Mikill áhugi var
fyrstu árin tvö meðal handknattleiks-
áhugamanna. Íþróttahúsið á Ásvöll-
um var á tíðum fullt út úr dyrum á
heimaleikjum og flugvélar voru fyllt-
ar skipti eftir skipti með rauðklædda
stuðningsmenn Hafnfirðinga til Evr-
ópu þar sem þeir stóðu dyggilega við
bakið á sínum mönnum. Árangur
Hauka var góður, liðið komst nærri
úrslitaleikjum og margir leikmenn
fengu mikilvæga reynslu og ungum
mönnum var „hent út í djúpu laug-
ina“. Má þar nefna Ásgeir Örn Hall-
grímsson og Vigni Svavarsson.
Í kjölfarið fóru Eyjamenn af stað
með kvennalið sitt út til Evrópu, ekki
af síðri metnaði en Hafnfirðingar.
Allt var lagt í sölurnar. Hápunktinum
í Eyjum var náð í fyrra þegar liðið
komst í undanúrslit í EHF-keppninni.
Kostnaður við þátttöku í hverri
umferð í Evrópukeppninni er senni-
lega ekki undir hálfri annarri milljón
og því fengu Eyjamenn m.a. að kynn-
ast í fyrra en þeir stóðu af sér alla
brotsjói eins og fyrri daginn. Í vetur
átti ÍBV að taka þátt í Meistaradeild
Evrópu í kvennaflokki en treysti sér
ekki í slaginn vegna kostnaðar.
Fram og Valur voru með í Evr-
ópumótunum í haust. Kvennalið Vals
lék heima og heiman gegn sænsku
liðið en féll úr leik að því loknu.
Karlalið Vals og Fram fóru til Sviss
og Rúmeníu. Í öllum tilfellum virð-
ingarvert framtak. Bæði karlaliðin
seldu heimaleiki sína til andstæðing-
anna til að draga úr kostnaði. Eftir
sölu á hinum og þessum varningi vik-
um saman til þess að ná endum sam-
an fyrir eina ferð var það ekki endi-
lega ósk manna að vinna og standa
þar með í áframhaldandi sölu fram
eftir öllum vetri, jafnvel fram á vor
og sumar.
Því miður lítur út fyrir að á ný
dragi úr þátttöku íslenskra félagsliða
í Evrópumótunum og hún þróist að
einhverju leyti út í skemmtiferðir
sem leikmenn fjármagna sjálfir.
Kostnaður er mikill og öruggar
tekjur engar. Því miður ræður
áhugaleysi handknattleiksáhuga-
manna nokkru og er lýsandi dæmi
um áhuga þeirra á íþróttinni hér á
landi. Hann virðist smátt og smátt
vera fjara út af ýmsum ástæðum.
Enginn veit hvað átt hefur fyrr en
misst hefur.
Ívar Benediktsson
Síðasta vígið
er fallið!
Á VELLINUM
Andri Stefan sést hér í Evrópuleik með
Haukum á Ásvöllum.
iben@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
GABRIEL Heinze, argentínski bak-
vörðurinn í liði Manchester United,
segist kvíða mikið fyrir því að spila
með liði sínu í jólatörninni sem fram-
undan er í ensku knattspyrnunni.
Heinze er heittrúaður kaþólikki og
segist hann óttast að erfitt verði fyrir
sig að ná að einbeita sér að knatt-
spyrnunni.
Eins og jafnan er dagskráin þétt í
ensku knattspyrnunni yfir jól og ára-
mót og það er nýtt fyrir Heinze því lið-
in sem hann hefur leikið með hafa allt-
af verið í vetrarhléi á þessum árstíma.
„Jól og páskar eru mikilvægustu
tímar ársins. Þá fer ég í messur og er
ekki með hugann við knattspyrnu. Það
verður mjög undarlegt að spila knatt-
spyrnu um jólahátíðina en ég vona að
ég geti náð að aðlaga mig þessu. Ég er
vanur því að spila marga leiki en það
sem er erfitt er tímasetning þeirra. Við
fjölskyldan eyðum jólunum alltaf sam-
an og það verður ekki létt fyrir mig að
yfirgefa mína nánustu á þessum tíma,“
segir Heinze við enska blaðið The Sun.
Heinze í vanda
ÍÞRÓTTIR