Morgunblaðið - 15.12.2004, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. DESEMBER 2004 C 3
CHRIS Coleman, hinn ungi knattspyrnustjóri enska
úrvalsdeildarliðsins Fulham, spáir því að Chelsea verði
enskur meistari en Fulham gerði 1:1-jafntefli gegn
Manchester United í fyrrakvöld í London.
Man. Utd. er nú 9 stigum á eftir Chelsea sem er í
efsta sæti deildarinnar og Coleman telur að grannalið-
ið sé sterkasta lið deildarinnar en Fulham tapaði 4:1
gegn Chelsea í nóvember.
Stór leikmannahópur
„Ég held að Chelsea hampi Englandsmeistaratitl-
inum þegar upp verður staðið. Miða ég við það sem ég
hef séð til liðsins fram til þessa í vetur. Liðið notar
sömu leikaðferð og Manchester United en ég hef það á
tilfinningunni að Chelsea nái alla leið að þessu sinni.
Liðið hefur yfir að ráða stórum leikmannahóp og
hafa notað marga leikmenn í leikjum liðsins. Manchest-
er United og Arsenal verða vissulega í baráttunni um
titilinn áfram en ég held að Chelsea hafi betur í þeirri
baráttu,“ sagði Coleman.
Coleman spáir
Chelsea titlinum
ÁGÚST Sigurður Björgvinsson hefur verið ráðinn sem
landsliðsþjálfari 18 ára landsliðskvenna í körfuknatt-
leik. Meðal verkefna hjá liðinu næsta sumar er Norður-
landamót og Evrópukeppni.
Liðið hefur undirbúning fyrir sumarið nú um jólin og
hefur Ágúst valið æfingahóp en þar eru 10 leikmenn úr
liði Hauka og 7 leikmenn frá Keflavík. Hópurinn er
þannig skipaður: Bára Hálfdánardóttir, Guðrún
Ámundadóttir, Helena Sverrisdóttir, Ingibjörg Skúla-
dóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir, Ragnheiður Theodórs-
dóttir, Sara Ólafsdóttir, Sigrún Ámundadóttir, Sonja
Margrét Ólafsdóttir, Svanhvít Skjaldardóttir, allar úr
Haukum.
Anna María Ævarsdóttir, Bára Bragadóttir, Bryndís
Guðmundsdóttir, Hrönn Þorgrímsdóttir, Linda Stef-
anía Ásgeirsdóttir, María Ben Erlingsdóttir og Pála
Júlíusdóttir, allar úr Keflavík.
Hrund Jóhannsdóttir og Helga Einarsdóttir frá
Tindastól. Ingibjörg Vilbergsdóttir og Helga Hafsteins-
dóttir úr Njarðvík.
Ágúst tekur við
18 ára landsliðinu
UEFA, Knattspyrnusamband
Evrópu, hefur sektað Real
Madrid og Lazio vegna kyn-
þáttafordóma áhangenda lið-
anna á leikjum í Evrópu-
keppninni auk þess sem Lazio
verður að leika næsta heima-
leik sinn í Evrópukeppni fyrir
luktum dyrum. Bæði hafa fé-
lögin áfrýjað dómi UEFA.
Real Madrid er samkvæmt
dómnum gert að greiða 9.780
evrur, jafnvirði um 800.000
króna vegna kynþáttafordóma
sem stuðningsmenn liðsins
sýndu blökkumanni úr liði
Bayer Leverkusen í leik á
Bernabeu 23. nóvember. Einn-
ig stóðu nokkrir áhorfendur
upp í sætum sínum og heilsuðu
að hætti nasista.
Auk kynþáttafordóma voru
stuðningsmenn Lazio uppvísir
að því að kasta alls kyns hlut-
um inn á leikvöllinn, slagsmál
og margt fleira misfagurt.
Þetta er í þriðja sinn sem Laz-
io er dæmt til að leika fyrir
luktum dyrum vegna skríls-
láta stuðningsmanna liðsins á
Evrópuleikjum.
Lazio og
Real sektuð
Keflvíkingar byrjuðu leikinn afmiklum krafti og skoruðu ell-
efu fyrstu stig leiksins. Þeir spiluðu
góða vörn og voru
heimamenn í mikl-
um vandræðum
framan af og kom
það meðal annars
fram í lélegum skotum heimamanna,
bæði úr lélegum færum og eins gekk
þeim illa að hitta þó svo þeir kæmu
sér í almennilegt skotfæri.
Þeir gerðu sín fyrstu stig eftir sex
mínútna leik og fannst stuðnings-
mönnum heimaliðsins nóg um.
Njarðvíkingar bitu þó frá sér og
skoruðu átta stig í röð og minnkuðu
muninn í 8:11. Mikill hraði einkenndi
leik beggja liða, en eins og oft vill
verða þegar hraðinn er mikill þá
gera leikmenn meira af mistökum en
ella og sú var raunin í gær. Undir
lok hálfleiksins spiluðu Keflvíkingar
pressuvörn og hægði það mjög á leik
heimamanna en staðan eftir fyrri
hálfleik var 34:40, Keflvíkingum í vil.
Í seinni hálfleik byrjuðu heima-
menn í Njarðvík vel og komust í
fyrsta skiptið yfir í leiknum, 44:43.
Mikill hraði var hjá báðum liðum á
þessum kafla í seinni hálfleik. En í
þriðja leikhluta náðu Keflvíkingar
tólf stiga forystu með mjög yfirveg-
uðum leik, 53:65. Njarðvíkingar
komu til baka og skoruðu fimmtán
stig í röð og voru aftur komnir með
forystu, 68:65.
Lokamínúturnar voru æsispenn-
andi. Staðan var 73:73 eftir að liðin
höfðu skipst á um að hafa nokkurra
stiga forystu. Keflvíkingar skoruðu
en næsta sókn Njarðvíkinga fór
gjörsamlega út um þúfur og endaði
með skoti langt utan af velli þegar
tíminn á skotklukkunni var að renna
út. Keflvíkingar náðu frákastinu,
brotið var á Gunnari Einarssyni sem
skoraði úr tveimur vítaskotum þeg-
ar rétt rúmar 14 sekúndur voru eft-
ir. Hann skoraði síðan úr öðru skoti
sínu skömmu síðar og þar með var
sigurinn í höfn hjá Keflvíkingum.
„Við spiluðum ekki vel, gerðum
allt of mikið af mistökum megnið af
þessum leik en það virtist nægja
gegn Njarðvík í kvöld,“ sagði Gunn-
ar Einarsson, fyrirliði Keflavíkur, í
leikslok.
„Við lékum ekki vel og 73 stig á
heimavelli er alls ekki nógu gott. Ég
er ekki að hrósa vörn Keflvíkinga
heldur var það aumingjaskapur okk-
ar að gera ekki betur. Við spiluðum
hreinlega mjög illa en vorum engu
að síður alltaf inní leiknum og hefð-
um auðveldlega getað unnið hann
með smásamhæfni í restina,“ sagði
Einar Jóhannsson, þjálfari Njarð-
víkur.
Ljósmynd/Hilmar Bragi Bárðarson
Njarðvíkingurinn Friðrik Stefánsson reynir hér að stöðva skot
frá Anthony Glover, leikmanni Keflavíkur.
Keflvíkingar
unnu í Njarðvík
NJARÐVÍK tók á móti Keflavík í fyrsta leik tíundu umferðar Inter-
sportdeildarinnar í körfuknattleik í Njarðvík í gærkvöld. Keflavík
sigraði með fimm stiga mun, 73:78, eftir æsispennandi og sveiflu-
kenndan leik. Njarðvíkingar halda efsta sætinu með 16 stig en nú
eru þrjú lið þar á eftir með 14 stig, Snæfell, Fjölnir og Keflavík.
Davíð Páll
Viðarsson
skrifar
Bandaríska lyfjaeftirlitið(USADA) ákvað að höfða mál
gegn Collins í sumar eftir að það
komst á snoðir um að hún hefði keypt
þessi efni hjá hinu umdeilda lyfjafyr-
irtæki Balco, en einn forsvarsmaður
þess hefur haldið því fram að hann
hafi selt Marion Jones ólögleg lyf í
undanfara Ólympíuleikanna í Sydney
fyrir fjórum árum.
Bannið sem Collins var dæmd í er
það lengsta sem frjálsíþróttamaður
hefur verið dæmdur í til þessa auk
þess sem hún er fyrsti frjálsíþrótta-
maðurinn sem er dæmdur án þess að
hafa áður fallið á lyfjaprófi.
Collins, sem er 33 ára, hélt fram
sakleysi sínu og sagði ásakanirnar
rangar en næg gögn þóttu fyrir hendi
til að sakfella hana. Collins er þrett-
ándi íþróttamaðurinn sem er dæmd-
ur í keppnisbann í Bandaríkjunum
eftir að upp komst um ólöglega sölu
Balco fyrir nokkrum misserum. Fyr-
irtækið á auk þess yfir höfði sér
ákæru fyrir peningaþvætti til að
leyna greiðslum frá íþróttamönnum í
bókhaldi sínu.
USADA hefur einnig ákært Tim
Montgomery, heimsmethafa í 100 m
hlaupi og sambýlismann Jones.
Málarekstur hefst gegn honum í júní.
Aldrei fallið en
átta ára bann
BANDARÍSKI spretthlauparinn Michelle Collins hefur verið dæmd í
átta ára keppnisbann fyrir notkun ólöglegra lyfja án þess að hafa
nokkru sinni fallið á lyfjaprófi. Collins, sem er fyrrverandi heims-
meistari í 200 m hlaupi innanhúss, var fundin sek um að hafa notað
blóðrauðasteralyfið EPO og einnig hið nýja steralyf, THG.
FÓLK
GRAEME Souness, knattspyrnu-
stjóri Newcastle, sem lenti í útistöð-
um við dómarann Howard Webb í
deildaleik gegn Fulham 7. nóvem-
ber – var rekinn frá hliðarlínunni er
Newcastle tapaði, 1:4 – hefur verið
settur í leikbann. Souness var sekt-
aður um rúmlega milljón ísl. kr. og
fær ekki að stjórna liði sínu í leik
gegn WBA 3. janúar.
KYLFINGURINN Tiger Woods
hefur staðfest að hann muni leika á
golfmóti sem fram fer í Kína á
næsta ári og þar er markmiðið að
safna saman bestu kylfingum heims,
frá Bandaríkjunum, Evrópu, Asíu,
Afríku og Ástralíu. Talið er að verð-
launaféð á mótinu verði með því
hæsta sem gerist í keppni atvinnu-
manna og bandarískir fjölmiðlar
telja að heildarverðlaunaféð verði á
bilinu 250–320 millj. kr.
WOODS lék á golfmóti sem fram
fór í Kína í nóvember árið 2001 þar
sem hann tók þátt í æfingabúðum
barna og unglinga, auk þess sem
hann lék með áhugamönnum 18 hol-
ur. Þar borguðu kylfingar allt að 1
millj. kr. fyrir að taka þátt í því.
Mótið verður líklega haldið 10.–13.
nóvember á næsta ári og er mark-
miðið að mótið verði hluti af Evr-
ópumótaröðinni, japönsku mótaröð-
inni og Asíu-mótaröðinni.
JÓHANNES Harðarson, fyrrver-
andi leikmaður með ÍA, sem leikur
með Start, nýliðum í norsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu, gæti fengið
liðsfélaga frá Danmörku sem hefur
verið í sviðsljósinu vegna agavanda-
mála í heimalandi sínu. Tom Nord-
lie, þjálfari Start, segir að vel komi
til greina að gera Stig Töfting tilboð
en honum var á dögunum sagt upp
störfum hjá AGF eftir að hann lenti
í slagsmálum í jólaveislu félagsins.
ÁSDÍS Hjálmsdóttir, frjáls-
íþróttastúlkan efnilega, hefur verið
krýnd íþróttamaður ársins hjá
Glímufélaginu Ármanni 2004. Ásdís
er Norðurlandameistari í spjótkasti
í aldursflokknum 19 ára og yngri –
auk þess er hún Íslandsmeistari inn-
an- og utanhúss í kúluvarpi, kringlu
og spjótkasti í aldursflokknum 19–
22 ára. Ásdís setti alls átta Íslands-
met á árinu í kúluvarpi og spjótkasti
í aldursflokknum 19–20 ára og 21–22
ára.
SILVIO Baldini var á mánudag-
inn sagt upp starfi þjálfara hjá
Parma. Liðinu hefur vegnað illa á
keppnistímabilinu og er nú um
stundir í þriðja neðsta sæti ítölsku
A-deildarinnar.
STEFFEN Iversen, samherji
Árna Gauts Arasonar hjá norska
liðinu Vålerenga, er á leið til liðs á
Ítalíu. Umboðsmaður leikmannsins
segir að Lazio og Fiorentina hafi
bæði gert hosur sínar grænar fyrir
Iversen og komi hann til með að
ganga í raðir hvort annars liðsins.
ála
gs-
n-
rst-
a
í
nga
tu
m-
n-
-
r“
ÍÞRÓTTIR
p-
til
u-
A,
-
Meidd heim frá Ítalíu
SALÓME Tómasdóttir, skíðakona frá Akureyri, meiddist á æfingu
á Ítalíu um helgina og kom til Íslands í gær, viku fyrr en hún ætlaði
sér. Hún er með vinstri fótinn í gifsi en að sögn Tómasar Leifs-
sonar, fyrrum skíðakappa og föður Salóme, er hún ekki brotin.
„Læknar höfðu áhyggjur af vaxtarlínunni og því var hún sett í gifs.
Hún vonast til að komast á skíði strax á nýju ári,“ sagði Tómas, sem
raunar er einnig með vinstri fótinn í gifsi, slasaði sig í badminton.